Morgunblaðið - 16.05.2004, Blaðsíða 52
FRÉTTIR
52 SUNNUDAGUR 16. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
5-6 herb. góð 145 fm íbúð á 1. hæð
og á jarðhæð í fallegu húsi, byggðu
1920 og teiknað af Guðjóni Samúels-
syni. Á 1. hæð (2. hæð) eru 3 saml.
stofur, hol, eldhús og 2 herbergi. Mikil
lofthæð er á hæðinni. Á jarðhæð er
hol, baðherb. og 2 herbergi. Sólstofa
er út af öðru herb. Mögulegt er að
gera séríbúð á jarðhæðinni. V. 23 m.
4008.
SKÓLAVÖRÐUSTÍGUR´
OPIÐ HÚS MILLI 14.00 OG 17.00
ÍBÚÐIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG (SUNNUDAG) Á MILLI 14 OG 16.
Glæsileg húseign með sex stúdíóíbúðum
(fjórar samþykktar) sem hefur nánast allt
verið endurnýjað frá grunni, s.s. rafmagn,
lagnir, ofnar, gluggar, járn, gólfefni,
innréttingar og hurðir. Útsýni. Fimm
einkabílastæði á lóð. Eignin hentar
sérlega vel til útleigu, en hún er staðsett
fyrir ofan upplýsingamiðstöð ferðamanna.
Til greina kemur að selja eignina í hlutum.
Óskað er eftir tilboðum.
HÚSIÐ VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG
(SUNNUDAG) Á FRÁ KL. 14-16. 4167
OPIÐ HÚS SKÓLASTRÆTI 1
EINSTAKT TÆKIFÆRI
Burknavellir 17 - Hafnarfirði - lyftuhús
Frábær staðsetning við hraunjaðarinn og gott
útsýni. Íbúðir frá 72-133 fm með sérinngangi af
svölum. Hús klætt að utan, viðhaldslítið. Íbúðirnar
afhendast fullbúnar án gólfefna, en með flísalögðu
baðherbergi, þvottahúsi og anddyri.
Vandaðar innréttingar og tæki. Val á innréttingum.
Hús teiknað af Sigurði Þorvarðarsyni.
Verktakar: Fjarðarmót.
Verð á 2ja herbergja íbúðum er frá 11,1 millj.
Verð á 3ja herbergja íbúðum með stæði í bílskýli er frá 14,2 millj.
Verð á 4ra herbergja íbúðum með stæði í bílskýli er frá 15,1 millj.
Verð á 5 herbergja íbúðum með stæði í bílskýli er frá 17,3 millj.
Vorum að fá í sölu glæsilegar 2ja, 3ja, 4ra og 5 herbergja íbúðir í glæsilegu lyftuhúsi við Burknavelli 17.
Upplýsingar á skrifstofu
eða á hraunhamar.is
AÐALFUNDUR Bandalags há-
skólamanna (BHM) andmælir þeirri
aðför að starfsöryggi ríkisstarfs-
manna sem frumvarp um breyting-
ar á starfsmannalögum felur í sér.
Segir í ályktun fundarins að áminn-
ing til ríkisstarfsmanns sé í sumum
tilvikum eina vörnin gegn fyrirvara-
lausum geðþóttauppsögnum.
„Áminningarferlið tryggir að rík-
isstarfmenn fá tækifæri til að bæta
ráð sitt, uppfylli þeir ekki starfs-
skyldur, og þar með má í flestum
tilvikum komast hjá uppsögnum.
Einkum er þessi breyting á starfs-
mannalögunum ankannaleg í ljósi
þess að starfsmannaskrifstofa fjár-
málaráðuneytisins hefur á undan-
förnum misserum boðið forstöðu-
mönnum upp á vandaða fræðslu um
ráðningar- og starfslokareglur,“
segir í ályktun fundarins. „Minnt er
á að fulltrúar heildarsamtaka op-
inberra starfsmanna hafa lýst sig
reiðubúna til viðræðna um að
minnka formkröfur til áminninga.
Aðalfundur BHM ítrekar ályktun
formannafundar BHM 13. nóvem-
ber 2003 um að unnið verði gegn af-
námi áminningarskyldu á öllum víg-
stöðvum – til dæmis með
vinnustaðafundum nú á næstu dög-
um og við endurnýjun kjarasamn-
inga í haust.“
Fundurinn minnti á stjórnar-
skrárvarinn rétt launafólks til þess
að semja um réttindi tengd vinnu,
og segir að ef ríkisstjórnarmeiri-
hlutinn falli ekki frá því að afnema
áminningarskyldu varanlega úr lög-
um verði starfsöryggi sett á oddinn
í kjarasamningum í haust.
BHM um frumvarp um ríkisstarfsmenn
Frumvarpið aðför
að starfsöryggi
Ráðstefna um samgöngumál í
litlum og miðlungsstórum borg-
um Á vegum ACCESS-samtakanna
verður á morgun, mánudaginnn 17.
og þriðjudaginn 18. maí haldin ráð-
stefna í Ráðhúsi Reykjavíkur, um
samgöngumál í litlum og miðlungs-
stórum borgum.
Áhersla verður lögð á umfjöllun um
sjálfbæra umferð og orkunotkun
undir yfirskriftinni „Sustainable
Mobility and Energy Use in Small-
and Medium-Sized Cities“.
ACCESS er samstarfsvettvangur
rúmlega 140 borga og sveitarfélaga í
Evrópu um samgöngumál og er
markmið ACCESS að stuðla að
bættri umferðarmenningu til að
sporna við auknu umferðarálagi,
loftmengun, gróðurhúsaáhrifum og
hávaðamengun. Samtökin voru
stofnuð 2001 á grunni eldri sam-
starfsverkefna um umferðarmál í
Evrópu.
Dagskrána og nánari upplýsingar
má finna á http://www.reykjavik.is/
access
Á MORGUN
BHM átelur að stíga skuli eiga
skref aftur á bak í löggjöf sem
stuðla á að jafnrétti kynjanna á
vinnumarkaði og á heimili með því
að setja þak á greiðslur í fæðingar-
orlofi, segir í ályktun. Kemur fram
að slíkt þak dragi óhjákvæmilega
úr líkum á því að ung börn fái notið
samvistum við báða foreldra „og
því muni konur áfram að mestu
axla ábyrgð á barnauppeldi og
heimilisstörfum því karlar eru enn í
miklum meirihluta hátekjumanna á
Íslandi.“ BHM segist áskilja sér rétt
til að ná fyrri kjörum sem skerðast
með lengingu viðmiðunartímabils
fæðingarorlofsgreiðslna.
Lögin skref
aftur á bak
NÝLEGA var dregið í sumar-
getraun sumarbúðanna Ævintýra-
lands. Apríl Helgudóttir, sjö ára,
dró út eftirtalda vinningshafa:
Vikudvöl í sumarbúðunum: Elínrós
Birta Jónsdóttir, 7 ára, Reykjavík.
2. Reiðhjól frá versluninni Hvelli:
Hafþór I.G. Sigurðsson, tólf ára,
Keflavík. 3. 10.000 króna gjafabréf
frá Tískuversluninni Brimi: Gunnar
Karl Hansson, 11 ára, Kópavogi. 4.
10.000 króna gjafabréf frá Smára-
lind: Andrea Hrund Bjarnadóttir,
níu ára, Hellu. 5. 5.000 króna gjafa-
bréf frá Smáralind: Páll Jónsson,
níu ára, Neskaupstað. 6. Grillveisla
frá Goða: Einar Kristinn Hilm-
arsson, 12 ára, Flateyri. 7. Bíóferð
fyrir fjóra í Sambíóin: Thelma Ýr
Guðjónsdóttir, 10 ára, Reykjavík.
Apríl Helgudóttir sá um að draga út vinningshafa.
Unnu í get-
raun Ævin-
týralands