Morgunblaðið - 16.05.2004, Blaðsíða 62
AUÐLESIÐ EFNI
62 SUNNUDAGUR 16. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Netfang: auefni@mbl.is
FRIÐRIK krónprins Dana og
Mary Donaldsson voru gefin
saman í hjónaband á
föstudag. Athöfnin fór fram í
Vorrar frúarkirkju í
Kaupmannahöfn að
viðstöddum fjölda gesta víða
að úr heiminum.
Að lokinni hjónavígslunni
héldu brúðhjónin í hestvagni
að Amalíuborgarhöll. Þaðan
veifuðu þau til fólksins sem
hafði safnast saman við
höllina til að fagna þeim.
Eftir að Friðrik og Mary,
sem nú hefur fengið titilinn
krónprinsessa Danmerkur,
höfðu staldrað við í
Amalíuborgarhöll fóru þau á
nýja heimilið sitt í
Fredensborgarkastala, en
þar fór fram konungleg
brúðkaupsveisla um kvöldið.
Dorrit Moussaieff,
forsetafrú, Þorsteinn
Pálsson, sendiherra Íslands í
Danmörku, og Stefán
Stefánsson forsetaritari voru
fulltrúar Íslendinga við
brúðkaupið.
Konunglegt brúðkaup
Reuters
Mary krónprinsessa og Friðrik krónprins stíga hér brúðarvalsinn.
Morgunblaðið/ÞÖK
Guðbjörg Guðmannsdóttir
leikmaður ÍBV og Elísa Sig-
urðardóttir fyrirliði ÍBV fagna
Íslandsmeistaratitlinum.
HAUKAR eru
Íslandsmeistarar í
handknattleik karla árið
2004 en liðið lagði Val í þriðja
leik liðanna í úrslitum 33:31,
og unnu Haukar alla þrjá leiki
liðanna í úrslitum.
Þetta er í fjórða sinn á
fimm árum sem Haukar
verða Íslandsmeistarar, en
þetta er í fyrsta sinn sem
úrslitarimma stendur aðeins
yfir í þrjá leiki. Haukar unnu
einnig Íslandsmeistaratitilinn
í fyrra, en 53 ára bið liðsins
eftir Íslandsmeistaratitli lauk
árið 1999.
„Við lögðum einfaldlega
bara upp með að vinna
leikinn,“ sagði Páll Ólafsson,
þjálfari Hauka eftir leikinn en
hann tók við af Viggó
Sigurðssyni í vetur sem
sagði starfi sínu lausu. Páll
mun ekki þjálfa Hauka á
næstu leiktíð og eru Haukar
að leita að þjálfara í hans
stað.
Á mánudag tryggði ÍBV sér
sigur í 1. deild kvenna í
handknattleik en þar mætti
liðið Val í úrslitum. ÍBV vann
þrjá leiki en Valur einn.
Þetta er annað árið í röð
sem ÍBV verður
Íslandsmeistari en liðið vann
einnig bikarkeppnina, varð
deildarmeistari og komst í
undanúrslit áskorendakeppni
EHF í Evrópu.
Leikir ÍBV og Vals voru
spennandi og réðust úrslit í
þeim eftir framlengingu.
Haukar og ÍBV fögnuðu
Íslandsmeistaratitlum
BÚIÐ er að tilkynna að
hljómsveitin Mínus verði ein
þeirra sveita sem hiti upp
fyrir Metallica á
stórtónleikum í Egilshöll.
Tónleikarnir verða haldnir
sunnudaginn 4. júlí og tekur
húsið 12.000 gesti.
Strákarnir í Mínus eru
búnir að vera í
tónleikaferðalagi um
Bretland og Írland að
undanförnu. Ferðalagið
heldur áfram hjá þeim því í
næstu viku fara þeir af stað
til Þýskalands, Austurríkis og
Ítalíu.
Miðasala á tónleikana
hófst í gær og var fólk strax á
föstudag farið að safnast
saman fyrir utan sölustað í
Reykjavík.
Reuters
Hljómsveitin Metallica á sviði í New York.
Mínus hitar
upp fyrir
Metallica
ÞJÓÐMINJASAFNIÐ hefur
áhuga á að koma fyrir 7,5
metra háu sverði úr steini á
Melatorgi. Þjóðminjasafnið
stendur við Melatorg og
verður það opnað eftir miklar
breytingar 1. september.
Verður sverðið eins og
víkingasverð frá 10. öld sem
fannst við Kaldárhöfða í
Grímsnesi árið 1946. Það
sverð er mjög merkilegur
gripur.
Snorri Már Skúlason,
talsmaður
Þjóðminjasafnsins, segir að
sverðið gæti orðið
skemmtilegt tákn fyrir safnið.
Hugmyndin um sverðið á
Melatorgi er nú í skoðun hjá
Reykjavíkurborg.
Þjóðminjasafnið hefur
beðið listamanninn Stefán
Geir Karlsson að sjá um
smíði sverðsins. Að sögn
Snorra Más verður sverðið
höggvið í stein í Kína, flutt til
Íslands og sett saman á
Melatorginu. Líklega mun
sverðið kosta um 5–6
milljónir króna. Margir þurfa
að vinna við að búa það til og
koma því fyrir. Um tvo mánuði
tekur að smíða sverðið og
flytja það hingað til lands.
Víkinga-
sverð á
Melatorgi
TALIÐ er líklegt
að Sonia Gandhi
verði næsti
forsætis-
ráðherra
Indlands.
Flokkur hennar,
Kongress-
flokkurinn, vann
óvæntan sigur í nýafstöðnum
þingkosningum í landinu.
Atal Behari Vajpayee, sem
verið hefur forsætisráðherra,
baðst á fimmtudaginn
lausnar fyrir sig og ríkisstjórn
sína. Þá var orðið ljóst að
flokkur hans, BJP, hafði beðið
ósigur í kosningunum.
Sonia Gandhi er 57 ára.
Hún er ítölsk að uppruna.
Maður hennar, Rajiv Gandhi,
var á sínum tíma
forsætisráðherra Indlands,
en missti völdin 1989. Tveim
árum síðar var hann myrtur.
Indland er fjölmennasta
lýðræðisríki í heimi.
Kosningarnar þar stóðu í
þrjár vikur og næstum því
380 milljónir manna greiddu
atkvæði.
Sonia
Gandhi
Flokkur
Soniu
Gandhi
sigraði
á Indlandi