Morgunblaðið - 16.05.2004, Blaðsíða 63
HUGVEKJA
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MAÍ 2004 63
Staður Nafn Sími 1 Sími 2
Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542
Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600
Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672
Bifröst Ólafur Snorri Ottósson 435 0098 694 7372
Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243
Blönduós Björn Svanur Þórisson 452 4019/864 4820/662 0984
Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965
Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474
Breiðdalsvík María Jane Duff 475 6662
Búðardalur Anna María Agnarsdóttir 434 1381
Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 690 1039
Djúpivogur Sara Dís Tumadóttir 478 8161 662 1373
Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350
Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123
Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315
Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370
Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885
Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 846 8123
Grenivík Hörður Hermannsson 463 3222
Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608
Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148
Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758
Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 895 0222
Hellissandur/Rif Aron Jóhannes Leví Kristjáns. 436 6925
Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Hofsós Bylgja Finnsdóttir 453 7418 893 5478
Hólmavík Ingimundur Pálsson 451 3333 893 1140
Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823
Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 663 2683
Hvammstangi Gunnar Þorvaldsson 451 2482 894 5591
Hveragerði Erna Þórðardóttir 483 4421 862 7525
Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 487 8172/893 1711/853 1711
Höfn Ranveig Á. Gunnlaugsdóttir 478 2416 862 2416
Innri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 821 3475
Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 820 3463
Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024
Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8378 895 7818
Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112
Laugarás Jakop Antonsson 486 8983
Laugarás Bisk. Hjörtur Freyr Sæland 486 8874
Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679
Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 848 2173
Ólafsfjörður Árni Björnsson 466 2347 866 7958
Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305 899 6904
Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230
Raufarhöfn Alda Guðmundsdóttir 465 1344
Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/892 0488/866 9574
Reykholt Bisk. Oddur Bjarni Bjarnason 486 8900
Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783
Reykjahlíð v/Mýv. Margrét Hróarsdóttir 464 4464
Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674
Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888 862 2888
Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700
Seyðisfjörður Hanna Lísa Vilhelmsdóttir 472 1102 690 2415
Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067
Skagaströnd Þórey og Sigurbjörn 452 2879 868 2815
Stokkseyri Kristrún Kalmansdóttir 867 4089
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141
Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864
Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244
Súðavík Ingibjörg Ólafsdóttir 456 4936
Tálknafjörður Rakel Guðbjörnsdóttir 456 2595 696 2663
Varmahlíð Ragnar Helgason 453 8134 867 9649
Vestmannaeyjar Sigurgeir Jónasson 481 1518 897 1131
Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 698 7521
Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135
Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 848 6475
Þingeyri Arnþór Ingi Hlynsson 456 8285
Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627
Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249
Dreifing Morgunblaðsins
Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni
Ég er morðingi. Uppgötv-aði það fyrir löngu, enreyndi að bægja þeirrihugsun og ísköldu stað-reynd frá eins og ég
mögulega gat, því hún var meira
en lítið óþægileg. Ég sem allt fram
að þessu hafði reynt að fylgja orð-
um Jesú Krists um að bera elsku
til náunga míns – óvinar eða vinar,
það gilti einu. Boðið var skilyrð-
islaust. Í byrjun Fjallræðunnar, í
upphafi 5. kafla Matteusarguð-
spjalls, sagði hann einnig berum
orðum, að sælir væru friðflytj-
endur; þeir myndu Guðs börn kall-
aðir verða. Og að sælir væru mis-
kunnsamir. Og annars staðar í
guðspjallinu, í 26. kafla, sagði hann
beinlínis: „Allir, sem sverði
bregða, munu fyrir sverði falla.“
Löngu áður en það var mælt,
hafði verið letrað á steintöflu ein-
hvers staðar fyrir botni Miðjarð-
arhafs, að ég skyldi aldrei mann
deyða. Og ég í einfeldni minni hafði
snemma einsett mér að taka mark
á því, fannst vit og skynsemi liggja
á bak við þá setningu og meiningu,
og vildi jafnframt gjarnan haga lífi
mínu í samræmi við önnur svipuð
orð í helgri bók.
En allt í einu vakna ég svo upp
við það, að ég er stimplaður og hat-
aður af fjölda manns. Nánar til-
tekið heilli þjóð. Ég var reyndar
víðs fjarri, þegar umrætt ódæði
var framið, sem upp á mig var
klagað, en slepp ekki fyrir það. Al-
þjóðasamfélagið veit nefnilega um
þennan glæp minn. Og ég má
horfa upp á kæran fána lands míns
brenndan á torgi fyrir augum allr-
ar heimsbyggðarinnar, án þess að
geta komið réttum skilaboðum
áleiðis til þeirra, sem trylltir af
gremju og reiði út í mig kveiktu
það bál.
Þú ert líka sekur, rétt eins og
ég, lesandi minn góður. Og allir
aðrir, sem í kringum þig eru. Nær
eða fjær. Án þess að hafa nokkuð
um það að segja. Það er bara
svona. Þetta gerðist í einni svipan,
við það eitt að ríkisstjórn Íslands
samþykkti að leggja blessun sína
yfir árásarstríð gegn Írak og fólk-
inu sem þar býr. Og þótt ég hafi
ekki einu sinni kosið umrædda
flokka til valda 10. maí 2003, verð
ég að gjöra svo vel og þegja og
hlýða og meðtaka þessa byrði og
skömm.
Ég veit eiginlega ekki hvort það
er mér einhver huggun, að fleiri en
ég standi að þessum verknaði.
Held ekki. Það gerir hann töluvert
verri, ef eitthvað er. Þá er hann
nefnilega skipulagður. Ég á nógu
erfitt með að kyngja þessu, að ég
skuli verða morðingi; hvað þá aðr-
ar tæpar 300 þúsund kristnar sálir;
bræður mínir og systur. Og ekki
bara það, heldur pyntari, kúgari,
nauðgari og alls kyns meiðari í of-
análag. Í einu orði sagt hrotti, al-
gjör drullusokkur, ómenni. Sam-
sekur um þetta allt og margt fleira
sem búið er og á eftir að gerast, á
vígvellinum sjálfum eða í fang-
elsum bandamanna í Írak.
Hvað er til ráða?
Ég hreinlega veit það ekki. Það
er ekki hlustað á almenning í þessu
landi okkar, nema e.t.v. rétt fyrir
kosningar, ráðamenn leita ekki eft-
ir að fá að skoða hug almúgans í
þessu máli eða öðrum, áður en
ákvörðun er tekin, sem brenni-
merkir þjóðina alla í einu vetfangi,
og því fátt sem hægt er að gera til
mótvægis úr því sem komið er. Illu
vopnin hafa betur eins og stendur,
hin góðu virðast bitlaus. Og skyldi
maður þó ekki vanmeta kraft bæn-
arinnar, sem þúsundir og milljónir
hafa stöðugt og lengi verið í um
gjörvallan heim, eigandi þá heit-
ustu ósk að andi friðar mætti
leggjast yfir hið stríðshrjáða land í
austri og önnur fleiri. Það mun
gerast, en hvenær er erfiðara að
segja til um.
Sjálfur vil ég nota þetta tæki-
færi og biðja fórnarlömbin og að-
standendur þeirra afsökunar, þótt
ekki verði það tekið aftur sem liðið
er, því miður. En vonin er sú, að
einhvern daginn verði hinir raun-
verulegu gerendur látnir sæta
ábyrgð. Kannski fæst þá opinber
sýkna í málum þeirra, sem glæpina
frömdu óafvitandi. Hér, sem og
annars staðar víða. Og þó hlýtur
alltaf að verða eftir smánarblett-
urinn, annars vegar á ytra borði, á
landi okkar, sem aldrei í 1.100 ára
sögu hafði farið með ófriði á hend-
ur annarri þjóð, og hins vegar
innra, á sálum þeim og hjörtum
sem dregin voru áfram til þessara
misgjörða, án þess að fá ráðrúm til
að spyrna við fótum.
Lokaorð mín að þessu sinni eru
fengin úr hugvekju Kristínar Þór-
unnar Tómasdóttur, héraðsprests í
Kjalarnessprófastsdæmi, frá 2.
apríl 2003, og sem hægt er að finna
á www.kirkjan.is. Þar segir hún
m.a.:
Það er mikilvægt að halda í lífið og friðinn og
muna að Kristur situr núna hjá þeim sem
hafa verið hraktir burt af heimilum sínum
vegna stríðsins. Hann situr meðal barnanna í
Írak sem gráta af skelfingu yfir því sem dyn-
ur yfir þau – alsaklaus. Hann er með kon-
unum í Írak sem reyna að útvega eitthvað
smávatn til að gefa börnunum sínum að
drekka. Og hann situr hjá ástvinum sem
horfa á eftir unga fólkinu sem stjórnvöld
senda í stríð, óvissir hvort það kemur nokk-
urn tíma til baka en alveg vissir um að það
snýr aldrei óskemmt heim eftir hörmungar
stríðsins.
Kross Krists er okkur stöðug áminning um
að vonska mannanna vill sækja fram og tek-
ur á sig ýmsar myndir. Krossinn er líka tákn
um það að Kristur tekur sér stöðu með þeim
sem líða og þjást vegna þessarar vonsku…
Vér morðingjar
sigurdur.aegisson@kirkjan.is
Á bænadegi er
hugurinn með því
vesalings fólki
sem þarf að lifa
við hörmungar og
brjálæði stríðs um
heim allan. Sig-
urður Ægisson
lítur í austurveg
og biður fyrir sitt
leyti írösku þjóð-
ina afsökunar á
þeim gæpum sem
hann á þátt í, ver-
andi Íslendingur.
FRÉTTIR
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar, TF-
SIF, sótti á föstudagskvöld slasað-
an sjómann um borð í norskan tog-
ara, Nordstar, sem var á karfaveið-
um á Reykjaneshrygg.
Beiðni um aðstoð barst á föstu-
dagsmorguninn en talið var að skip-
verjinn hefði handarbrotnað. Skip-
stjórinn var beðinn um að halda í
átt til Reykjavíkur og þegar skipið
var komið í 150 sjómílna fjarlægð
frá landi fór TF-SIF af stað um
kvöldið, með viðkomu í Keflavík til
að taka eldsneyti. Þyrlan kom að
skipinu um ellefuleytið og kom til
Reykjavíkur á fyrsta tímanum um
nóttina. Stærri þyrlan, TF-LÍF, er
í viðgerð.
Þyrla sótti
norskan
sjómann
HARÐUR árekstur tveggja bíla
varð í Sandgerði síðdegis á föstudag,
á mótum Túngötu og Suðurgötu.
Ökumaður annars bílsins var fluttur
á sjúkrahús til aðhlynningar en fékk
að fara heim að því loknu. Hinn bíll-
inn valt eftir skellinn og mikil mildi
þykir að þeir tveir menn sem voru í
honum skyldu ekki slasast.
Harður árekstur
í Sandgerði
HEKLA á Austurlandi var stofnuð
árið 2001 og hefur verið með starf-
semi á Reyðarfirði hjá Verkstæði
Helga. Hekla hf. hefur nú keypt
hlut umboðsmannsins, Helga Magn-
ússonar og breytt nafni fyrirtæk-
isins í Hekla á Austurlandi ehf. Við
starfsemina sem fyrir var, sölu á
nýjum og notuðum bílum og verk-
stæðis- og hjólbarðaþjónustu, bæt-
ist nú þáttur Vélasviðs Heklu, sem
byggist á þjónustu við atvinnutæki
til lands og sjávar. Aðrir eigendur
að félaginu eru Eignarhaldsfélag
Austurlands, Sparisjóður Norð-
fjarðar og Olís, með 40% hlutdeild.
Tvöfalda reksturinn
Tryggvi Jónsson forstjóri Heklu
sagði í samtali við Morgunblaðið að
fyrirtækið væri m.a. nýbúið að gera
samning við Síldarvinnsluna um
þjónustu á þeirra tækjum og fyrir-
tækið veitti mikla þjónustu á virkj-
unarsvæðinu við Kárahnjúka.
„Núna erum við komin með form-
legum hætti að starfsemi á Aust-
fjörðum og erum bjartsýnir á að vel
takist til.
Við erum að tvöfalda reksturinn
eystra og verðum með átta manns í
vinnu til að byrja með. Við höfum
einnig verið að stækka mikið við
okkur í Reykjavík, m.a. að opna
stóra þjónustumiðstöð í Klettagörð-
um.“
Hekla velti í fyrra tæpum tíu
milljörðum króna og Tryggvi telur
að veltan fari í 11,5 milljarða á
þessu ári. Einingin á Austurlandi
gæti verið að velta einhvers staðar
á milli 60 og 70 milljónum á ári.
Líta til álversins
„Við erum að byggja til fram-
tíðar og ætlum okkur að vera með
alvörustarfsemi hér,“ sagði Ás-
mundur Jónsson, framkvæmda-
stjóri vélasviðs Heklu og nýr fram-
kvæmdastjóri Heklu á Austurlandi
ehf. „Það er mikil framvinda á
svæðinu og við erum að sjálfsögðu
vongóðir um að geta tekið þátt í
umsvifunum í kringum álverið, ná-
kvæmlega eins og okkur hefur tek-
ist vel með aðkomu okkar að virkj-
unarframkvæmdunum við Kára-
hnjúka. Við höfum þó lagt mikinn
kostnað í Kárahnjúkaverkefnið og
ómögulegt að segja hverju það skil-
ar okkur þegar upp er staðið.“
Tvöfalda reksturinn og
hasla sér frekari völl
Reyðarfirði. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Hressir með Heklu á Austurlandi: Þeir Heklumenn Ásmundur Jónsson,
Geir Valur Ágústsson, Guðni K. Þorvaldsson og Tryggvi Jónsson forstjóri.