Morgunblaðið - 16.05.2004, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MAÍ 2004 9
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur
eftirtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi
innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar:
Gjöldin eru: Staðgreiðsla og tryggingagjald sem fallið hafa í eindaga til og með 15. maí 2004,
virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. maí 2004 og önnur gjaldfallin álögð gjöld
og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 15. maí 2004 á staðgreiðslu, trygginga-
gjaldi og virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, vanskilum launagreiðenda utan staðgreiðslu,
áfengisgjaldi, launaskatti, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, slysatryggingagjaldi ökumanna, föstu ár-
gjaldi þungaskatts, þungaskatti skv. ökumælum, viðbótar- og aukaálagningu söluskatts vegna fyrri
tímabila, skemmtanaskatti og miðagjaldi, virðisaukaskatti af skemmtunum, tryggingagjaldi af
skipshöfnum ásamt skráningargjöldum, búnaðargjaldi, iðgjaldi í Lífeyrissjóð bænda, vinnueftirlits-
gjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, aðflutnings-
gjöldum og útflutningsgjöldum, skilagjaldi á umbúðir, verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og verð-
bótum á ógreitt útsvar, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjaldi, fisksjúkdómagjaldi, jarðar-
afgjaldi og álögðum opinberum gjöldum, sem eru:
Tekjuskattur, útsvar, aðstöðugjald, sérstakur tekjuskattur manna, eignarskattur, sérstakur
eignarskattur, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald, iðnlánasjóðs- og
iðnaðarmálagjald, þróunarsjóðsgjald, kirkjugarðsgjald, markaðsgjald, gjald í framkvæmda-
sjóð aldraðra og skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði, ofgreiddar barnabætur, ofgreidd-
ur barnabótaauki og ofgreiddar vaxtabætur.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum
gjaldanna, ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á
kostnað gjaldenda.
Athygli skal vakin á því, að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir
gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 11.500 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald er
1.200 kr. og stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjald-
endur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað.
Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald, afdreg-
inn fjármagnstekjuskatt og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frek-
ari fyrirvara. Loks mega þeir gjaldendur, er skulda bifreiðagjöld og þungaskatt, eiga von á að
skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara. Fyrrgreindur 15 daga frestur
frá dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum.
Reykjavík, 16. maí 2004.
Tollstjórinn í Reykjavík
Sýslumaðurinn í Kópavogi
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði
Sýslumaðurinn í Keflavík
Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli
Sýslumaðurinn á Akranesi
Sýslumaðurinn í Borgarnesi
Sýslumaðurinn í Stykkishólmi
Sýslumaðurinn í Búðardal
Sýslumaðurinn á Ísafirði
Sýslumaðurinn í Bolungarvík
Sýslumaðurinn á Patreksfirði
Sýslumaðurinn á Hólmavík
Sýslumaðurinn á Siglufirði
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki
Sýslumaðurinn á Blönduósi
Sýslumaðurinn á Akureyri
Sýslumaðurinn á Húsavík
Sýslumaðurinn á Ólafsfirði
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði
Sýslumaðurinn á Eskifirði
Sýslumaðurinn á Höfn
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Selfossi
Sýslumaðurinn í Vík
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli
Gjaldheimta Vestfjarða
Gjaldheimta Austurlands
Gjaldheimtan í Vestmannaeyjum
OPNUÐ var í gær í útibúi Lands-
banka Íslands á Ísafirði sýning á 33
Kjarvalsmálverkum í eigu Lands-
bankans í tilefni 100 ára afmælis úti-
bús Landsbankans á Ísafirði, 15 maí.
Á föstudag var einnig fagnað merk-
um tímamótum í starfsemi bankans
þegar 1900. bankaráðsfundur
Landsbankans var haldinn á Ísa-
firði. Að honum loknum var 130
gestum boðið til kvöldverðar auk
þess sem kaffiveitingar voru bornar
fram fyrr um daginn.
Björgólfur Guðmundsson, for-
maður stjórnar Landsbanka Ís-
lands, opnaði Kjarvalssýninguna í
gær í nýuppgerðu húsnæði Lands-
bankans á Ísafirði sem teiknað var
árið 1958 af Guðjóni Samúelssyni
þáverandi húsameistara ríkisins. Að
sögn Brynjólfs Þórs Brynjólfssonar
útibússtjóra var allt endurnýjað í
húsinu og það opnað formlega á
föstudag. Fjöldi gesta, bankaráðs-
menn og framkvæmdastjórar
Landsbankans auk starfsmanna og
annarra gesta gerðu sér glaðan dag
og um kvöldið mætti gestahópurinn,
um 130 manns, til kvöldverðar og
naut skemmtiatriða.
Brynjólfur Þór er 12. útibússtjóri
Landsbankans á Ísafirði frá upphafi
og hefur gegnt því starfi í 9 ár. Segir
hann að þegar litið sé yfir aldarlanga
sögu bankans, standi upp úr sam-
staða bankans með Ísfirðingum í 100
ár. „Þetta er elsta starfandi fyr-
irtækið á Ísafirði,“ segir Brynjólfur
Þór. „Hér er mjög gott og reynslu-
mikið starfsfólk. Til gamans reikn-
uðum við út samanlagðan starfs-
aldur okkar hér sem er 249 ár hjá 12
starfsmönnum.“
Aldrei þurft að segja
neinum upp
Brynjólfur Þór segir að endurnýj-
un húsnæðis bankans komi til með
að breyta miklu fyrir starfsemi
bankans. „Bankaviðskipti eru orðin
eins og sagt er í íþróttunum, „maður
á mann“. Fólk sest hjá „sínum“
þjónustufulltrúa og ræðir við hann.
Gömlu stóru afgreiðsludiskarnir eru
horfnir og starfsemin orðin meira
prívat. Um leið hefur starfsfólki
fækkað en við erum þó það lánsöm í
þessu útibúi að hér hefur aldrei
neinum verið sagt upp, heldur hefur
okkur fækkað með því að ekki hefur
verið ráðið í störf þeirra sem hafa
hætt.“
Afmælisins verður þá minnst í
sumar og segir Brynjólfur Þór að
sjónum verði beint að yngstu við-
skiptavinunum. „Við ætlum að grilla
og standa fyrir íþróttamótum og
reglulegum uppákomum í sumar.“
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns
Gestir í afmæli Landsbankans á Ísafirði ásamt Björgólfi Guðmundssyni, stjórnarformanni Landsbankans, og
Brynjólfi Þór Brynjólfssyni útibússtjóra. Afgreiðslusal útibúsins hefur verið gjörbylt og húsnæðið endurnýjað.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns
Linda Kristjánsdóttir, starfsmaður Landsbankans á Ísafirði, við afgreiðslu-
störf. Hún er ein 12 starfsmanna útibúsins sem státa af 249 ára starfsaldri.
Samanlagður starfsaldur 249 ár í útibúinu
Aldarafmæli Landsbankans á Ísafirði
GEÐHJÁLP hefur haft með hönd-
um mál vegna samskipta trúfélaga
og geðfatlaðra allt frá árinu 2002.
Sveinn Magnússon, framkvæmda-
stjóri Geðhjálpar, segir alvarlegt að
mál skjólstæðinganna gangi svo
hægt fyrir sig hjá lögreglu.
„Í lok árs 2002 fór Geðhjálp að
berast símhringingar frá geðfötluð-
um, alls hátt í annað hundrað manns,
sem tengdust samskiptum fólks með
geðraskanir og trúfélaga vegna pen-
ingamála. Að lokum fóru þrjú mál til
athugunar hjá lögreglu,“ útskýrir
Sveinn. Eitt málanna féll stuttu síðar
niður, þar sem viðkomandi trúfélag
greiddi til baka þá fjármuni sem við-
komandi hafði lagt til.
Gögn lágu fyrir um tvö mál þar
sem um meinta misnotkun á bágind-
um geðsjúkra var að ræða, að sögn
Sveins. „Annað þeirra mála féll niður
nú nýlega, þar sem viðkomandi fékk
endurgreitt frá viðkomandi trú-
félagi. Þá hafði málið legið hjá lög-
reglunni á annað ár. Það hefur geng-
ið allt of hægt í kerfinu,“ segir
Sveinn.
Eitt mál er enn eftir og er í rann-
sókn hjá efnahagsbrotadeild lögregl-
unnar. Að því standa Geðhjálp og að-
standendur einstaklings, sem seldi
allar eigur sínar til trúfélags, og
svipti sig stuttu síðar lífi. „Einstak-
lingurinn var greindur mjög geð-
sjúkur, en seldi allar eigur sínar og
gaf trúfélaginu. Þessi mál eru það al-
varleg að við teljum nauðsynlegt að
þau fari fyrir dómstóla,“ segir
Sveinn.
Ósammála leið trúfélaga
„Við erum aldeilis ósammála trú-
félögum og sjónvarpsstöðinni
Omega um að fólk með geðröskun
stríði við atsókn djöfulsins. Geðhjálp
telur það ekki réttu leiðina til að að-
stoða fólk. Við erum hrædd við þessa
þróun, en getum ekki fest hendur á
þessu um leið,“ segir Sveinn og vísar
þar til dæmis til viðtals við konu á
Omega síðastliðna helgi þar sem hún
lýsti meintri aðför djöfulsins að sér.
Haft var samband við sjónvarps-
stöðina Omega, en að sögn aðstand-
enda hennar var ekki litið svo á að
neitt væri athugavert við viðtöl sem
send væru út á stöðinni.
Mál gegn trú-
félögum í biðstöðu