Morgunblaðið - 16.05.2004, Blaðsíða 43
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MAÍ 2004 43
Ástkær eiginmaður minn,
PÉTUR STEFÁNSSON,
Kjarrhólma 30,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðju-
daginn 18. maí kl. 10.30.
Ólafía Guðrún Ásgeirsdóttir.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐJÓN EINARSSON,
Hlíðarhúsum 5,
Reykjavík,
sem lést mánudaginn 10. maí, verður jarð-
sunginn frá Kristskirkju, Landakoti, þriðjudag-
inn 18. maí kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en
þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Hjartavernd.
Þórdís Guðmundsdóttir,
Ingibjörg Guðjónsdóttir, Guðjón R. Ágústsson,
Einar Guðjónsson, Helga Guðmundsdóttir,
Þorbjörg Guðjónsdóttir, Gylfi Gíslason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Minn ástkæri eiginmaður, faðir, sonur, bróðir,
mágur, barnabarn og tengdasonur,
VIÐAR BIRGISSON,
sem lést á heimili sínu fimmtudaginn 6. maí,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykja-
vík mánudaginn 17. maí kl. 13:30.
Unnur Jónsdóttir,
Birgir Viðarsson, Björt Ólafsdóttir,
Axel Viðarsson,
Ari Viðarsson,
Már Viðarsson,
Helga Brynjólfsdóttir, Birgir Lúðvíksson,
Lúðvík Birgisson, Ásdís Anna Sverrisdóttir,
Sigríður Birgisdóttir, Brynjar Gauti Sveinsson,
Guðríður Birgisdóttir, Steingrímur Gautur Pétursson,
Sigríður Erlendsdóttir,
Jakobína Þórðardóttir
og aðrir aðstandendur.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
BJÖRN JÓHANNESSON,
dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund,
áður til heimilis á Laugavegi 85,
Reykjavík,
sem lést fimmtudaginn 6. maí, verður jarð-
sunginn frá Hallgrímskirkju mánudaginn
17. maí kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á að láta
dvalar- og hjúkrunarheimilið Grund, Reykjavík, njóta þess.
Guðbjörg Björnsdóttir,
Arndís H. Björnsdóttir,
Jóhanna G. Björnsdóttir, Tryggvi Eyvindsson,
Hildur Björnsdóttir,
Ólöf S. Björnsdóttir, Magnús Kristmannsson,
Arinbjörn Björnsson,
afabörn og langafabörn.
Elskuleg móðir mín,
ÓSK GUÐRÚN GESTSDÓTTIR,
Sólvallagötu 46,
Keflavík,
lést á dvalarheimilinu Víðihlíð, Grindavík,
fimmtudaginn 13. maí.
Jarðarförin fer fram frá Njarðvíkurkirkju (Innri-
Njarðvík) föstudaginn 21. maí kl. 14.00.
Bjarni Cal Houn Þórðarson.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
okkar elskulega föður, tengdaföður, afa og
vinar,
NÍELSAR BRIMARS JÓNSSONAR,
Fossheiði 16,
Selfossi.
Hanna Þórey Níelsdóttir, Sveinbjörn Orri Jóhannsson,
Steinunn Elsa Níelsdóttir, Arnar Árnason,
Jón Viðar Níelsson, Hulda Waage,
Inga Hrefna og Hildur Karen,
Nína og Orri,
Níels Brimar og Arnar Ingi,
Magdalena Ingimundardóttir.
Nýlega var kvaddur
hinstu kveðju sam-
starfsmaður minn sem
gott er að minnast við ævilok. Báð-
ir áttum við samleið hjá Rafmagns-
veitunni sálugu í tugi ára. Sigurður
var einn þeirra manna sem virtist
síungur þótt árin færðust yfir
hann.
Þess vegna kom andlát hans á
óvart þegar fregnin barst mér, því
svo stutt var um liðið frá því við
áttum tal saman. Rafmagnsveitan
átti því láni að fagna að til hennar
réðust jafnan frábærir starfsmenn
sem unnu fyrirtækinu vel. Sigurð-
ur hóf störf í véladeild fyrirtæk-
isins sem Þórarinn Pjeturs byggði
upp og stjórnaði af miklum dugn-
aði, en hún var ein stærsta og um-
svifamesta deild fyrirtækisins til
fjölda ára.
Þessi véladeild annaðist m.a.
þungaflutninga í seinni virkjanir
við Sogsfossa og tækja- og olíu-
SIGURÐUR EGGERT
SIGURÐSSON
✝ Sigurður EggertSigurðsson
fæddist á Skeggja-
stöðum í Mosfells-
sveit hinn 27. októ-
ber 1924. Hann lést á
líknardeild Land-
spítalans í Kópavogi
1. maí síðastliðinn og
var útför hans gerð
frá Grensáskirkju
10. maí.
flutninga fyrir vara-
stöðina við Elliðaár.
Véladeildin, sem Sig-
urður starfaði í, flutti
línuefni í þessar virkj-
anir og spenna í úti-
virki fyrir austan og
vélbúnað. Þá annaðist
véladeildin þunga-
flutninga á spennum
og tækjabúnaði í
spennustöðvar og að-
veitustöðvar í bænum
þar sem undirritaður
starfaði. Við Sigurður
áttum þar gott sam-
starf. Þá flutti véla-
deildin oft fyrir Reykjavíkurborg
og fleiri aðila eftir því sem með
þurfti, m.a. tæki í Sementsverk-
smiðjuna á Akranesi, en á þessum
árum voru ekki til nein tæki í land-
inu sem gátu flutt verulega þung
stykki. Véladeildin réð yfir krana-
bílum, dráttarbílum og aftanívögn-
um sem báru allt að fimmtíu tonn.
Það hefur stundum verið haft á
orði að ekki hefði verið mögulegt
að flytja allan þennan þunga búnað
í virkjanirnar við Sogsfossa án
þessara öflugu dráttarbíla og
vagna sem segir sitt um mikilvægi
þessara tækja fyrir Rafmagnsveit-
una.
Á þessum árum hafði fyrirtækið
komist yfir tvo stóra birgðaskála í
Fossvogi sem herinn hafði yfirgef-
ið í stríðslok og fékk véladeildin
annan þeirra til afnota fyrir starf-
semina en spennistöðvardeildin
hinn skálann. Þarna var aðstaða til
bílaviðgerða og þangað voru bílar,
aftanívagnar og bílhræ flutt sem
fyrirtækið hafði keypt á Keflavík-
urflugvelli og síðar af Sölunefnd
varnarliðseigna þegar það fyrir-
tæki varð til.
Á þessum árum hafði Þórarinn,
yfirmaður deildarinnar, afburða-
góða viðgerðarmenn og bílasmiði,
en sumir menn störfuðu einnig við
þungaflutninga milli þess sem þeir
sinntu viðhaldi og endurbyggingu
bílaflotans.
Auk Sigurðar störfuðu í véla-
deildinni þeir Sigurður Jóhanns-
son, Björn Steindórsson, Ísleifur
Ólafsson, Oddgeir Ólafsson, Björn
Hjartarson, Jón Sigurjónsson,
Kjartan Þórarinsson og Júlíus
Þórðarson. Allir þessir menn hafa
nú safnast til feðra sinna.
Þegar Vélamiðstöð Reykjavíkur-
borgar var stofnuð 1964 fluttistöll
vélamiðlun fyrirtækja borgarinnar
niður í Skúlatún þar sem einnig
var rekin viðgerðarþjónusta.
Nokkrir starfsmenn Véladeildar
RR gerðust þá starfsmenn Véla-
miðstöðvarinnar en aðrir fluttust
til í starfi innan fyrirtækisins.
Sigurður tók við verkstjórn í
raflínudeild og starfaði þar til
fjölda ára við góðan orðstír. Síðast
starfaði hann í Smiðjunni, þar sem
málningardeild fyrirtækisins var
einnig til húsa, uns starfstíma hans
lauk árið 1994.
Þessa góða drengs minnumst við
vinnufélagar hjá Rafmagnsveit-
unni með þakklæti og virðingu,
vottum börnum hans og fjölskyld-
um þeirra okkar dýpstu samúð.
Guðmundur K. Egilsson.
Elsku Helga. Ég
verð að senda þér
kveðjubréf, svo ég
trúi, að þú sért farin
frá okkur.
Ég trúi ekki enn, að hressa og
glaðværa konan komi ekki og bjóði
mér í kaffisopa, er ég kem norður
næst. Við kynntumst er Ninna
dóttir þín fór að búa með syni mín-
um, Gumma. Og ég man er við
komum á Dalvík fyrst og vorum
boðin í kaffi til tengdaforeldra
drengsins. Við vorum svolítið kvíð-
in, en það hvarf fljótt er þú, kæra
Helga, komst svo hlý og brosmild á
móti okkur. Var eins og við hefðum
þekkt ykkur alla ævi. Og urðum við
bestu vinir.
Alltaf var gaman að koma við hjá
ykkur, hvort sem var heima eða í
HELGA KRISTÍN
SIGURÐARDÓTTIR
✝ Helga KristínSigurðardóttir
fæddist á Hjalteyri
við Eyjafjörð 30.
júní 1944. Hún lést
á Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri
4. desember 2003
og var útför hennar
gerð frá Dalvíkur-
kirkju 13. desem-
ber.
sumarbústöðum, jafn-
vel hestakofum uppi á
heiði, alltaf var jafn
gaman að hittast.
Maður á eftir að sakna
svona gleðistunda, en
gleðst við minningarn-
ar frá góðum stund-
um.
Börnin hafa misst
mikið, að missa þig.
Þú varst þeim ekki
bara móðir, heldur
mikill vinur og félagi.
Kæra Helga, það er
svo erfitt að sætta sig
við að þú sért horfin
okkur svona snögglega, þú sem
varst svo ung, alltaf hress og glöð.
Og hefðir átt að eiga mörg ár eftir
enn, en við vitum ekki hvenær kall-
ið kemur, og trúlega hefur þér ver-
ið falið mikilvægt starf þarna hin-
um megin, því trúi ég.
Ég kveð þig nú, kæra Helga, og
vona, að þér líði vel á nýjum stað.
Ég veit að þú fylgist með okkur öll-
um.
Ég þakka fyrir að hafa kynnst
þér og eiga skemmtilegar minn-
ingar. Góður Guð styrki Karl,
börnin þín, barnabörn og vini.
Kveðja.
Guðrún Áka.
Langri vegferð þinni er lokið og ég
trúi því að sálin, sem bundin var í
fjötrum líkamans, sé nú í félagsskap
áður látinna ástvina í húsi drottins.
Mig langar til að þakka þér að
skilnaði fyrir hlýju þína og um-
hyggju alla tíð. Ein af mínum dýr-
mætustu bernskuminningum snýst
um köku, sem þú færðir mér á fjórða
afmælisdeginum mínum. Þegar ég
stálpaðist voru sterk tengsl milli
heimila okkar, þú varst mér kær-
leiksrík frænka, sem ég virti mikils.
Sem betur fer hélst sambandið
alltaf, enda þótt heimsóknir mínar
yrðu alltof fáar, eftir því sem ár og
áratugir liðu. Að spjalla við þig var
hlýtt og gefandi, fortíðin varð lifandi
og skemmtileg í frásögn þinni og
ekki vafðist fyrir þér heldur að fjalla
um atburði líðandi stundar, minnið
var trútt og hugsunin skýr. Með
innilegu þakklæti kveð ég og fjöl-
skylda mín þig og við vottum að-
standendum þínum samúð.
Hvíl þú í friði.
Guðmundur Kristjánsson.
DAGNÝ
GUÐ-
MUNDS-
DÓTTIR
✝ Dagný Guðmundsdóttir fædd-ist í Krókseli í Skagahreppi í
A-Hún. 24. júlí 1907. Hún lést á
Heilbrigðisstofnun Blönduóss 22.
apríl síðastliðinn og var útför
hennar gerð frá Hólaneskirkju á
Skagaströnd 1. maí.