Morgunblaðið - 16.05.2004, Blaðsíða 39
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MAÍ 2004 39
Auglýst er eftir umsóknum í þátttökustyrki til
Jazzhátíðar Reykjavíkur 2004 sem verður haldin
29. september til 3. október nk.
Umsóknir skulu sendar á sérstökum
eyðublöðum sem liggja frammi á skrifstofu
FÍH, Rauðagerði 27
og á vefsíðu hátíðarinnar
www.reykjavikjazz.com
og skulu sendast með tölvupósti til
Festival@Reykjavikjazz.com
eða í almennum pósti fyrir 31. maí nk.
merktar: „Jazzhátíð 2004 - Pósthólf 8955, 128
Reykjavík“ eða aðeins verða teknar til greina
umsóknir með fullum, umbeðnum upplýsingum.
Öllum umsóknum verður svarað
fyrir 15. júní nk.
Jazzhátíð Reykjavíkur 2004
FRÆÐSLUFUNDUR
FYRIR VÉLHJÓLAFÓLK
Á dagskrá fundarins verður m.a. kynning á
Umhverfisnefnd VÍK og þeim umhverfismarkmiðum
sem vélhjólamenn stefna á að setja sér.
Auk þess mun verða fræðsla um umhverfisvænan
akstursmáta. Lögmaður upplýsir félagsmenn um réttindi
og skyldur hjólafólks og Íslandsmeistarinn í Enduro
gefur fundarmönnum góð ráð um keppnisakstur.
Allt vélhjóla- og áhugafólk velkomið!
Staður: Grand Hótel við Sigtún
Stund: Mánudagur 17. maí
Tími: 19.30 stundvíslega
Umhverfisnefnd VÍK
MÁLARINN býr í Kaupmanna-
höfn, nánar tiltekið úti á Amákri,
eins og úthverfið austan hafnarkan-
alsins sem sker borgina hefur verið
íslenzkað. Á tveggja ára fresti eða
svo, kemur hann til ættlandsins með
ferskar akríl og/eða olíumyndir í
farteskinu og slær upp veislu í ein-
hverju listhúsi höfuðborgarsvæðis-
ins en þó oftast því sem ber nafnið
Fold, hvað má vera táknræns eðlis.
Hann er íslenzkur eins og austan-
tórurnar, rofglæta í austri þegar
annars er alskýjað, minnir landann
þó jafnaðarlega á flest það sem er
upphafnara í fari fyrrum herraþjóð-
ar. Einkum það sem mjúkt er undir
tönn og fer vel í maga, vermir
hverja taug; Gammel Dansk, og
skenkir á upphafsreit.
Málarinn ekki kominn til að slá
um sig með látum og umsnúningi í
meðhöndlun lita og tilfallandi verk-
færa sem hann handfjallar flesta
daga, er þó annars vel róttækur á al-
mennum vettvangi, kannski einn af
síðustu ósviknu móhíkönunum. Aft-
ur á móti vel minnugur orða heims-
listamannsins; „maður þarf ekki að
mála stríð til að gera byltingu í mál-
verkinu, eitt epli er nóg“. Var ann-
ars lengi í framvarðsveit SÚM, með-
an listhópurinn var og hét og þá um
skeið vel pólitískur í myndmáli sínu,
en hvarf frá öllum slíkum vangavelt-
um til hags fyrir átökin við hinn
hreina tvívíða flöt, með litinn í for-
grunninum. Peinture pure, hið
hreina málverk, nefna menn vinnu-
ferlið og framgangsháttinn í Frans.
Þó ekki svo að hann hafi yfirgefið
hina hlutlægu verund, hún jafnaðar-
lega einhvers staðar merkjanleg,
helst sem táknræn tilvist, hér
skorða markaðar útlínur aðskiljan-
leg fyrirbæri; verur, umheim, him-
inn haf og jörð á grunnflöt.
Málarinn veit líka, að ekki þarf
djúpa pólitíska sannfæringu til að
gera gilda áróðurslist frekar en
trúarhita til að frambera úrskerandi
list í guðshús, verklagið og tjákraft-
urinn gera jafnaðarlega útslagið,
hafa síðasta orðið. Löngu vitað að
flest helstu meistaraverk sem til að
mynda hafa ratað í guðshús eru
gerð af listamönnum sem létu sig
trúarbrögð litlu varða, sumir jafnvel
hundheiðnir. Litur, lína og form hér
guðdómur í sjálfu sér, skipta öllu.
Inntakið í aðföngum málarans
Tryggva Ólafssonar hefur lengi að
meginhluta verið minni heimahaga á
Íslandi ásamt lifunum á ferðalögum.
Einnig vinnan í sjálfri sér, veigurinn
að ganga til vinnunnar dag hvern og
rækta sinn garð, fága og slípa skynj-
anir sínar frammi fyrir formum og
línum, þó einkum litunum, hverjum
og einum, ásamt innbyrðis samræmi
þeirra. Þetta er verðugt verkefni
hverjum hugumstórum manni sem
sýslar með málaragræjurnar, og
ekki dugðu þeim andans jöfri, sjálf-
um Goethe, minna en 40 ár að glíma
við skynrænt eðli lita og færa til
bókar. Listamaðurinn hér með á
nótunum sem kemur klárlega fram í
hans heillegustu verkum á þessari
frísklegu sýningu, vísa helst til
myndarinnar Gríma (3), þar sem allt
gengur upp, skot í bláhornið eins og
menn segja stundum.
Ljósmyndir
Í Ljósafold, eins konar innskoti í
hliðarrými listhússins, sýnir Friðrik
Tryggvason sex ljósmyndir af
stærri gerðinni. Friðrik, sem er son-
ur eigendanna, stundaði nám í ljós-
myndum og fjölmiðlafræði bæði hér
á landi og við Lorenzo di Medici
skólann í Flórenz. Þannig á ferð
ljósmyndari með traustan menntun-
argrunn, en minna þekki ég til
vinnubragðanna í þessu lærdóms-
setri í Flórenz. Mig grunar þó að
nemendum hafi verið sett verkefni
þar sem fyrst og fremst eða í og
með skyldi stílað á kjarnann, hið
hrjúfa í tilverunni en forðast yfir-
borð og léttfengnar lausnir. Auð-
sætt má vera af þeim tveim sýn-
ishornum vinnubragða sinna sem
Friðrik hefur kynnt borgarbúum
með stuttu millibili, hið fyrra var á
Mokka, að hann leitar ekki auðveld
myndefni uppi. Er öllu meira í mun
að kljást við einhver afmörkuð við-
föng, sem reyna mjög á getu og
hæfni hverju sinni, þetta heitir að
finna og höndla, ganga óhikað á vit
ögrandi áskorana, en gerir um leið
miklar kröfur til njótandans. Að
sjálfsögðu eru allar myndirnar í
svart-hvítu sem er sannasta eðli
ljósmyndatækninnar, viðfangið svo
nærmyndir afmarkaðra hluta af búk
nakins karlmanns. Gefur auga leið
að líkami karlmannsins er lista-
manni meiri áskorun en konunnar,
hann er formrænt séð mun erfiðari
viðfangs, jafnt málurum teiknurum
sem ljósmyndurum. Skortir þá
mýkt, ávölu línur, eðlisbundna
þokka og útgeislan sem er helsta
prýði konulíkamans. Myndirnar ei
heldur konfekt fyrir viðkvæm augu í
sinni hráu og raunsæju mynd og
fyrir sumt bera þær keim af föngum
í grafíska hönnun. Vinnuferlið ber
þó vott um að hér sé á ferð maður
sem tekur hlutina alvarlega og
óhætt sé að gera miklar kröfur til í
framtíðinni.
Fágun lita og forma
Bragi Ásgeirsson
Morgunblaðið/Bragi Ásgeirsson
Ein af ljósmyndunum á sýningu
Friðriks Tryggvasonar.
Morgunblaðið/Bragi Ásgeirsson
Tryggvi Ólafsson: Gríma, akríl á léreft, 66 x 53 cm, 2004.
MYNDLIST
Listhúsið Fold
MÁLVERK TRYGGVI ÓLAFSSON
Opið virka daga frá 10–18, laugardaga
11–17. Sunnudaga 14–17. Til 23. maí.
Aðgangur er ókeypis.
Ljósafold – ljósmyndir
FRIÐRIK TRYGGVASON SÖGUR
ATVINNA mbl.is