Morgunblaðið - 16.05.2004, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MAÍ 2004 25
Þessar röksemdir finnast mér íléttvægara lagi, t.d. miðað við
þær niðurstöður sem virtir læknar
birtu í lok rannsóknar á drykkju
ungs fólks fyrir
nokkrum árum og
sagt var frá í Morg-
unblaðinu og víðar.
Þar sagði m.a. að
því fyrr sem fólk
hæfi áfengis-
drykkju þess meiri
skaða ylli hún.
Ástæðan var talin
sú m.a. að taugakerfi unglinga væri
óþroskaðra og því viðkvæmara en
þeirra sem eldri væru. Í samtali um
þessar rannsóknir kom fram að ein-
staklingur sem byrjar áfengis-
drykkju á unglingsaldri gæti átt á
hættu að verða drykkjusjúklingur á
einu ári en það tæki sama einstak-
ling mörg ár að ná sama drykkjustigi
ef hann byrjaði drykkju kominn
nokkuð yfir tvítugt.
Miðað við þessar niðurstöður er
harla óæskilegt að stuðla að
drykkjuskap ungs fólks með því að
auðvelda því aðgengi að áfengi eins
og þessi nýju lög gera.
Mér skilst að nota eigi næstu ár til
þess að rannsaka hvort og hvernig
drykkjuvenjur unglinga breytast
með hinni nýju drykkjulöggjöf. Von-
andi verður í leiðinni hugað að úr-
ræðum fyrir þá sem fyrr verða
drykkjusjúkir en ella. Hvað snertir
hina sérkennilegu röksemd, að sam-
ræma þurfi aldurstakmark upphafs-
drykkju á Íslandi við nágrannalönd-
in, þá mætti benda á að það er ekki
náttúrulögmál að fólk drekki áfengi,
það er áunninn siður sem ágætlega
má vera án.
Í endurminningum Martins And-
ersens Nexö, hins fræga danska rit-
höfundar sem m.a. samdi Palla sig-
urvegara og Dittu mannsbarn,
kemur fram að faðir hans fékk sem
ungur maður hluta af kaupi sínu sem
vinnumaður greitt í áfengi. Þessi
ráðstöfun leiddi ekki til góðs, faðir-
inn varð snemma drykkjusjúkur og
það urðu líka margir hinna ungu
manna sem störfuðu með honum á
bóndabýlum og víðar.
Nokkrir þingmenn reyna nú að
leiða í lög að áfengi verði selt í mat-
vörubúðum.Vonandi verður ekki
næst hafin barátta fyrir því að taka
upp hinn gamla danska sið – að
borga ungu fólki í áfengi?
Það getur varla talist verið þjóð-
hagslega hagkvæmt að vinna að því
að auðvelda ungu fólki aðgengi að
áfengi þegar rannsóknir sýna að það
gerir því meiri skaða sem fólk byrjar
fyrr að neyta þess. Viðkomandi þing-
menn ættu að geta fundið kröftum
sínum verðugra viðnám en að auka á
drykkjuvanda Íslendinga – hann er
ærinn fyrir.
ÞJÓÐLÍFSÞANKAR/Borgað í áfengi?
Drykkjuvandi
er ærinn þegar
UM ÞESSAR mundir er verið að koma á lögum sem heimila 18 ára fólki að
kaupa áfengi en áður var aldurstakmarkið 20 ár. Þetta eru hin undarlegustu
lög miðað við það markmið sem sett hefur verið fram af valdhöfum – að
minnka drykkju landsmanna eins og auðið er á næstu árum, en rannsóknir
sýna að drykkja eykst eftir því sem aðgengi að áfengi er gert auðveldara, –
þetta hefur margoft komið fram. Þær röksemdir sem ég heyrði einkum fyrir
þessari lagasetningu voru að hún væri í samræmi við það sem gerðist í lönd-
unum í kringum okkur og samræmdi einnig réttindi ungs fólks hér.
eftir Guðrúnu
Guðlaugsdóttur
ÞAÐ fer vissulega eftir
veðri hversu vel menn
njóta sín við veiðiskap-
inn, en þegar vel hefur
viðrað við Hlíðarvatn
að undanförnu, hafa
menn verið að gera
góða hluti og skemmta sér vel við veiðiskapinn.
Ljósmyndari Morgunblaðsins var á bökkum Hlíðarvatns
fyrir skemmstu og tók þá nokkrar myndir og eru sumar
þeirra hér með þessum línum. Hlíðarvatn er afar fallegt vatn
suður í Selvogi og þar spilar landið skemmtilega saman,
brattar hlíðar, blátt vatnið, grængrár særinn og svart hraun-
ið, að ógleymdri bleikjunni sem hefur verið í tökuskapi að
undanförnu. Menn hafa einkum notað púpur, gjarnan með
kúluhausum og eflaust mætti tína til fjölda tegunda, en nokk-
ur nöfn sem flogið hafa eru Killer, Watson Fancy, ýmsar
gerðir af Winil Rib, Krókurinn, Héraeyra og Pheasant tail.
Gjarnan með flotlínu og langan taum. En myndirnar tala sínu
máli.
Veiðimaður togast á við bleikju í kvöldsól við Hlíðarvatn. Nokkrar fallegar komnar á land.
Morgunblaðið/Einar Falur
Bleikja komin í háfinn…
Góðir dagar
við Hlíðarvatn
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
– með ánægju!
ar
gu
s
04
-0
28
3
HAUKAR, TIL HAMINGJU MEÐ
ÍSLANDSMEISTARATITILINN Í HANDKNATTLEIK