Morgunblaðið - 16.05.2004, Blaðsíða 33
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MAÍ 2004 33
www.cattelanitalia.com
Ný húsgagnalína frá Ítalíu
15% kynningarafsláttur dagana 16. til 26. maí
Nýstárleg húsgögn frá Cattelan Italia
- hönnun og gæði í fyrirrúmi
Opið kl.10-18 virka daga, laugardaginn 22. maí kl.11 - 16
EINS og fram hefur komið leggur Listahá-
tíð sérstaka áherslu á sviðslistir að þessu
sinni. Reyndar er sýning Rustavelileikhússins
á Þrettándakvöldi eina sýningin sem kalla má
hreinræktaða leiklist, Schaubühne-sýningin
er einhverskonar dansleikhúsbræðingur og
sú japanska virðist vera hreinræktaður dans
ef marka má kynningar. Hvers vegna leik-
listin verðskuldar ekki stærri sneið af tíma og
peningum Listahátíðar veit ég ekki, í ljósi vin-
sælda leikhússins hér. Eins má spyrja sig
hvort rétt hafi verið valið, að flytja hingað
tvær umfangsmiklar og mannmargar sýning-
ar, í stað þess að finna fleiri spennandi hópa
með viðaminni og ferðavænni verkefni. Það
lætur allavega ekki vel í mínum eyrum að
heyra kynningarmaskínu listahátíðar leggja
sérstaka áherslu á það í kynningu hvað leik-
mynd þýska hópsins er mörg tonn, og telja
það væntanlega til marks um hve vel er gert
við íslenska áhugamenn um sviðslistir að
þessu sinni. Nú verður þess væntanlega langt
að bíða að leiklistin fái aftur jafnstóran hluta
af listinnflutningskvóta Listahátíðar, og er
það súrt. Þeim mun meiri ástæða til að gleðj-
ast yfir því sem þó rekur á fjörur okkar.
Gestir sem færa leikhúslífinu hér eitthvað
nýtt, eða allavega eitthvað annað en við eigum
að venjast, eru alltaf kærkomnir. Nú hefur
reyndar samgangur austurs og vesturs í leik-
listarlegum skilningi aukist mjög, og Ísland
notið þess eins og aðrir. Allavega eru ötulir
leikhúsáhugamenn farnir að vita hvers má
vænta af leiksýningum úr austurblokkinni.
Áhersla á sjónræna hlið leikhússins, ljóðræn
nálgun á persónur, hreyfingar og stíl, mikil
notkun á tónlist til áhrifaauka og sterk þörf til
að kafa djúpt í verk þau sem lögð eru sýning-
unum til grundvallar. Oft er afrakstur þess-
arar köfunar næsta sérviskulegur, iðulega
sterkar bundinn kenjum leikstjórans og hvað
honum er ofarlega í huga þegar lagt er í leið-
angurinn en því sem kalla mætti kjarna verk-
anna. Útkoman er næstum alltaf áhugaverð,
oft furðuleg og stundum svo snertipunktalaus
við framvindu, persónur og þema verkanna að
þau þvælast eiginlega bara fyrir.
Sýning Rustavelileikhússins á Þrettánda-
kvöldi hefur öll þessi einkenni. Útlit hennar,
rýmisnotkun og sjónrænt hugmyndaflugið
sem að baki býr er töfrandi. Hið sveigða form
hins hvíta sviðsgólfs, rauði hringstiginn,
blöðrurnar og hvítu tjöldin, að ógleymdum
lömbunum allt í kring sköpuðu sýningunni
fallega, óræða og ljóðræna umgjörð. Tónlist
er óspart notuð, þótt mig gruni nú að það sé
ofrausn að eigna hana alla tónskáldinu Gia
Kancheli, þó hann „hafi svipaða stöðu í sínum
heimshluta og Arvo Pärt“ eins og svo tilgerð-
arlega er komist að orði í leikskránni. Ég gat
ekki betur heyrt en enska kabaretthljóm-
sveitin The Tiger Lillies kæmi mikið við sögu
í hljóðheimi sýningarinnar, og ekkert nema
gott um það og hana að segja.
Þá hefur leit höfundar sýningarinnar að
kjarna leitt hann á afar nýstárlegar slóðir.
Nafn verksins kveikti hjá honum þá hugmynd
að flétta inn í verk Shakespeares nokkurskon-
ar helgileik, atriði úr guðspjöllunum þar sem
fæðing og fyrstu dagar frelsarans eru raktir.
Nú er Shakespeare líklega minnst kristilegur
af klassískum höfundum eftir Krist, og auk
þess frægur fyrir kæruleysi um nafngiftir
gleðileikja sinna, enda verð ég að játa að mér
er lífsins ómögulegt að sjá tengslin milli þess-
ara efnisþátta. Atriðin sjálf eru fallega svið-
sett, í einhverskonar írónískum uppgerðar-
naívískum stíl sem áhorfendur vissu ekki allt-
af hvort var leyfilegt að hlæja að. Fyrir utan
þessi uppbrot er meðferð leikritsins næsta
hefðbundin og framvindunni fylgt nokkuð ná-
kvæmlega þar til í lokin, en það er óþarfi að
ljóstra því upp hér hvernig þau eru.
Þrettándakvöld greinir frá atburðum sem
verða í hertogadæminu Illiríu þegar tvíbura-
systkin verða þar skipreika. Systirin Víóla
dulbýr sig sem karlmann og gengur í þjón-
ustu hertogans, og fær fljótt það hlutverk að
falast eftir hönd og hjarta Ólivíu fyrir hertog-
ann. Vitaskuld verður Ólivía ástfangin af yng-
issveininum, og Víóla af hertoganum. Sem
betur fer á hún tvíburabróður, Sebastían,
þannig að allir fá það sem þeir vilja í lokin.
Nema reyndar bryti Ólivíu, Malvólíó, sem er
blekktur til að halda að húsmóðirin elski sig,
hvattur til að gera hosur sínar grænar fyrir
henni, og úrskurðaður geðveikur þegar hann
lætur til skara skríða.
Robert Sturua, höfundur sýningarinnar,
velur henni trúðskan og írónískan leikstíl,
sem reyndar er leyft að vera nokkuð köfl-
óttum. Sumir leikaranna virðast vísvitandi
leika með yfirdrifnum tilþrifum, kannski til að
tjá hve tilfinningar þeirra eru uppblásnar.
Átti þetta sérstaklega við um Sebastían og
hertogann, og varð nokkuð leiðigjarnt. Aðrir
eiga innlifaðar senur þar sem falleg og sönn
augnablik ná að lifa, einkum Nino Tarkhan-
Mouravi sem Víóla og Lela Alibegashvili sem
Ólivía. Áhrifamest voru þó þau sem fengu að
leika lausustum hala í trúðleik. Zaza Pap-
uashvili var fantagóður Malvólíó, einkum eftir
að hann hafði verið leiddur á villigöturnar.
Magnaðast var samt að fylgjast með Nana
Khuskivadze gera þernuna Maríu að maka-
laust heillandi trúð, svo fallega gert að aum-
ingja Fjasti, fífl Ólivíu, fellur algerlega í
skuggann.
Þrátt fyrir ótvíræða kosti sýningarinnar
verður þessi sundurgerð í leikstíl, og fjar-
lægðin sem helgileikurinn skapar til að halda
sýningunni utan seilingar innlifunarinnar fyr-
ir undirritaðan. Ég sá að þarna voru töfrar á
ferð, en þeir töfruðu mig ekki. Og kannski var
sú fágun og nákvæmni sem einkenndi suma
hluta sýningarinnar til þess að gera þau
augnablik og atriði sem voru ónákvæm og
ekki nógu skörp enn meira áberandi og trufl-
andi. Rustaveli-leikhúsið er heimsfrægt og ég
hef lesið lofsamlegar umsagnir um ýmis verk
þessa hóps og hr. Stuara. Sýningin á Þrett-
ándakvöldi verður samt ekki sá tímamótavið-
burður fyrir mig sem leikhúsáhorfanda sem
ég hafði gert mér vonir um. Flott sýning, en
nýjabrumið er farið, og það reynist hafa átt
stóran þátt í áhrifunum.
LEIKLIST
Rustaveli-leikhúsið frá Georgíu
Höfundur: William Shakespeare, leikstjóri: Robert
Sturua, leikmynd: Giorgi Alexi-Meskhishvili, tónlist:
Giorgi Kancheli. Leikendur: Archil Baratashvili,
Archil Baratashvili, David Gotsiridze, Eka Mind-
iashvili, Gela Lejava, Gela Otarashvili, Goga Gveles-
iani, Guram Mgaloblishvili, Guram Sagaradze, Irakli
Macharashvili, Lela Alibegashvili, Levan Barat-
ashvili, Levan Berikashvili, Nana Khuskivadze , Nino
Tarkhan-Mouravi, Soso Abramishvili, Temur Chich-
inadze, Tenguiz Giorgadze, Tristan Saralidze, Vano
Gogitidze, Zaza Baratashvili, Zaza Papuashvili,
Zurab Sharia og Zviad Papuashvili.
Þjóðleikhúsinu 14. maí 2004.
HVAÐ SEM ÞÉR VILJIÐ, EÐA ÞRETTÁNDAKVÖLD Þrettándi
dagur jóla
Þorgeir Tryggvason
Útlit sýningarinnar, rýmisnotkun og sjónrænt
hugmyndaflugið sem að baki býr er töfrandi.