Morgunblaðið - 16.05.2004, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 16.05.2004, Qupperneq 33
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MAÍ 2004 33 www.cattelanitalia.com Ný húsgagnalína frá Ítalíu 15% kynningarafsláttur dagana 16. til 26. maí Nýstárleg húsgögn frá Cattelan Italia - hönnun og gæði í fyrirrúmi Opið kl.10-18 virka daga, laugardaginn 22. maí kl.11 - 16 EINS og fram hefur komið leggur Listahá- tíð sérstaka áherslu á sviðslistir að þessu sinni. Reyndar er sýning Rustavelileikhússins á Þrettándakvöldi eina sýningin sem kalla má hreinræktaða leiklist, Schaubühne-sýningin er einhverskonar dansleikhúsbræðingur og sú japanska virðist vera hreinræktaður dans ef marka má kynningar. Hvers vegna leik- listin verðskuldar ekki stærri sneið af tíma og peningum Listahátíðar veit ég ekki, í ljósi vin- sælda leikhússins hér. Eins má spyrja sig hvort rétt hafi verið valið, að flytja hingað tvær umfangsmiklar og mannmargar sýning- ar, í stað þess að finna fleiri spennandi hópa með viðaminni og ferðavænni verkefni. Það lætur allavega ekki vel í mínum eyrum að heyra kynningarmaskínu listahátíðar leggja sérstaka áherslu á það í kynningu hvað leik- mynd þýska hópsins er mörg tonn, og telja það væntanlega til marks um hve vel er gert við íslenska áhugamenn um sviðslistir að þessu sinni. Nú verður þess væntanlega langt að bíða að leiklistin fái aftur jafnstóran hluta af listinnflutningskvóta Listahátíðar, og er það súrt. Þeim mun meiri ástæða til að gleðj- ast yfir því sem þó rekur á fjörur okkar. Gestir sem færa leikhúslífinu hér eitthvað nýtt, eða allavega eitthvað annað en við eigum að venjast, eru alltaf kærkomnir. Nú hefur reyndar samgangur austurs og vesturs í leik- listarlegum skilningi aukist mjög, og Ísland notið þess eins og aðrir. Allavega eru ötulir leikhúsáhugamenn farnir að vita hvers má vænta af leiksýningum úr austurblokkinni. Áhersla á sjónræna hlið leikhússins, ljóðræn nálgun á persónur, hreyfingar og stíl, mikil notkun á tónlist til áhrifaauka og sterk þörf til að kafa djúpt í verk þau sem lögð eru sýning- unum til grundvallar. Oft er afrakstur þess- arar köfunar næsta sérviskulegur, iðulega sterkar bundinn kenjum leikstjórans og hvað honum er ofarlega í huga þegar lagt er í leið- angurinn en því sem kalla mætti kjarna verk- anna. Útkoman er næstum alltaf áhugaverð, oft furðuleg og stundum svo snertipunktalaus við framvindu, persónur og þema verkanna að þau þvælast eiginlega bara fyrir. Sýning Rustavelileikhússins á Þrettánda- kvöldi hefur öll þessi einkenni. Útlit hennar, rýmisnotkun og sjónrænt hugmyndaflugið sem að baki býr er töfrandi. Hið sveigða form hins hvíta sviðsgólfs, rauði hringstiginn, blöðrurnar og hvítu tjöldin, að ógleymdum lömbunum allt í kring sköpuðu sýningunni fallega, óræða og ljóðræna umgjörð. Tónlist er óspart notuð, þótt mig gruni nú að það sé ofrausn að eigna hana alla tónskáldinu Gia Kancheli, þó hann „hafi svipaða stöðu í sínum heimshluta og Arvo Pärt“ eins og svo tilgerð- arlega er komist að orði í leikskránni. Ég gat ekki betur heyrt en enska kabaretthljóm- sveitin The Tiger Lillies kæmi mikið við sögu í hljóðheimi sýningarinnar, og ekkert nema gott um það og hana að segja. Þá hefur leit höfundar sýningarinnar að kjarna leitt hann á afar nýstárlegar slóðir. Nafn verksins kveikti hjá honum þá hugmynd að flétta inn í verk Shakespeares nokkurskon- ar helgileik, atriði úr guðspjöllunum þar sem fæðing og fyrstu dagar frelsarans eru raktir. Nú er Shakespeare líklega minnst kristilegur af klassískum höfundum eftir Krist, og auk þess frægur fyrir kæruleysi um nafngiftir gleðileikja sinna, enda verð ég að játa að mér er lífsins ómögulegt að sjá tengslin milli þess- ara efnisþátta. Atriðin sjálf eru fallega svið- sett, í einhverskonar írónískum uppgerðar- naívískum stíl sem áhorfendur vissu ekki allt- af hvort var leyfilegt að hlæja að. Fyrir utan þessi uppbrot er meðferð leikritsins næsta hefðbundin og framvindunni fylgt nokkuð ná- kvæmlega þar til í lokin, en það er óþarfi að ljóstra því upp hér hvernig þau eru. Þrettándakvöld greinir frá atburðum sem verða í hertogadæminu Illiríu þegar tvíbura- systkin verða þar skipreika. Systirin Víóla dulbýr sig sem karlmann og gengur í þjón- ustu hertogans, og fær fljótt það hlutverk að falast eftir hönd og hjarta Ólivíu fyrir hertog- ann. Vitaskuld verður Ólivía ástfangin af yng- issveininum, og Víóla af hertoganum. Sem betur fer á hún tvíburabróður, Sebastían, þannig að allir fá það sem þeir vilja í lokin. Nema reyndar bryti Ólivíu, Malvólíó, sem er blekktur til að halda að húsmóðirin elski sig, hvattur til að gera hosur sínar grænar fyrir henni, og úrskurðaður geðveikur þegar hann lætur til skara skríða. Robert Sturua, höfundur sýningarinnar, velur henni trúðskan og írónískan leikstíl, sem reyndar er leyft að vera nokkuð köfl- óttum. Sumir leikaranna virðast vísvitandi leika með yfirdrifnum tilþrifum, kannski til að tjá hve tilfinningar þeirra eru uppblásnar. Átti þetta sérstaklega við um Sebastían og hertogann, og varð nokkuð leiðigjarnt. Aðrir eiga innlifaðar senur þar sem falleg og sönn augnablik ná að lifa, einkum Nino Tarkhan- Mouravi sem Víóla og Lela Alibegashvili sem Ólivía. Áhrifamest voru þó þau sem fengu að leika lausustum hala í trúðleik. Zaza Pap- uashvili var fantagóður Malvólíó, einkum eftir að hann hafði verið leiddur á villigöturnar. Magnaðast var samt að fylgjast með Nana Khuskivadze gera þernuna Maríu að maka- laust heillandi trúð, svo fallega gert að aum- ingja Fjasti, fífl Ólivíu, fellur algerlega í skuggann. Þrátt fyrir ótvíræða kosti sýningarinnar verður þessi sundurgerð í leikstíl, og fjar- lægðin sem helgileikurinn skapar til að halda sýningunni utan seilingar innlifunarinnar fyr- ir undirritaðan. Ég sá að þarna voru töfrar á ferð, en þeir töfruðu mig ekki. Og kannski var sú fágun og nákvæmni sem einkenndi suma hluta sýningarinnar til þess að gera þau augnablik og atriði sem voru ónákvæm og ekki nógu skörp enn meira áberandi og trufl- andi. Rustaveli-leikhúsið er heimsfrægt og ég hef lesið lofsamlegar umsagnir um ýmis verk þessa hóps og hr. Stuara. Sýningin á Þrett- ándakvöldi verður samt ekki sá tímamótavið- burður fyrir mig sem leikhúsáhorfanda sem ég hafði gert mér vonir um. Flott sýning, en nýjabrumið er farið, og það reynist hafa átt stóran þátt í áhrifunum. LEIKLIST Rustaveli-leikhúsið frá Georgíu Höfundur: William Shakespeare, leikstjóri: Robert Sturua, leikmynd: Giorgi Alexi-Meskhishvili, tónlist: Giorgi Kancheli. Leikendur: Archil Baratashvili, Archil Baratashvili, David Gotsiridze, Eka Mind- iashvili, Gela Lejava, Gela Otarashvili, Goga Gveles- iani, Guram Mgaloblishvili, Guram Sagaradze, Irakli Macharashvili, Lela Alibegashvili, Levan Barat- ashvili, Levan Berikashvili, Nana Khuskivadze , Nino Tarkhan-Mouravi, Soso Abramishvili, Temur Chich- inadze, Tenguiz Giorgadze, Tristan Saralidze, Vano Gogitidze, Zaza Baratashvili, Zaza Papuashvili, Zurab Sharia og Zviad Papuashvili. Þjóðleikhúsinu 14. maí 2004. HVAÐ SEM ÞÉR VILJIÐ, EÐA ÞRETTÁNDAKVÖLD Þrettándi dagur jóla Þorgeir Tryggvason Útlit sýningarinnar, rýmisnotkun og sjónrænt hugmyndaflugið sem að baki býr er töfrandi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.