Morgunblaðið - 16.05.2004, Síða 15

Morgunblaðið - 16.05.2004, Síða 15
höfum. Við viljum að þeir, sem hafa löngun til, geti horft á okkar fréttir og séð okkar mynd af hlutunum.“ – Í hverju felst munurinn á ykkar fréttum og þeim vestrænu? „Hann veltur fyrst og fremst á að- gengi. Við erum til dæmis ein af fáum sem eru með fréttamenn í Fallujah í Írak núna. Okkar fréttamenn eru gjarnan á stöðum þar sem aðrir fréttamenn eru ekki. Þeir hafa því að- gang að efni og myndum sem hinir hafa ekki. BBC og fleiri vestrænir miðlar kaupa fréttirnar okkar og vitna gjarnan til þeirra. Þeir geta þannig nálgast okkar myndir af at- burðunum, en við höfum þá frá fyrstu hendi. Í Írak tölum við til dæmis mik- ið við óbreytta borgara. Við ræðum líka bæði við íraska hermenn og bandaríska. Við tökum mikla áhættu í Írak. Þetta er meginatburður og þessir at- burðir skipta okkur sem arabíska fréttamenn gríðarlegu máli. Það sem er að gerast í Írak er nokkuð sem mun hafa áhrif á okkur hér í Katar og á framtíðina í Mið-Austurlöndum. Írak er nágranni okkar.“ Vald til að móta umræðuna „Flestir vestrænu fréttamennirnir eru hluti af ákveðnu fjölmiðlabatteríi. Þeir sækja fréttamannafundi og fá upplýsingar frá hinum og þessum að- ilum og stofnunum. Eins og vestrænu fjölmiðlarnir erum við hluti af þessu, en gefum þar að auki mynd af hlut- unum innan frá. Við erum á staðnum – erum úti á meðal fólksins. Hafirðu einungis aðgang að hinu er hætta á að myndin sem þú veitir verði einhæf. Þeir sem boða til fjölmiðlafunda, flytja ávörp og veita viðtöl hafa vald til að móta umræðuna og stýra því hvað telst fréttnæmt.“ Blaðamaður segist hafa heyrt vest- ræna fjölmiðla í Írak gagnrýnda fyrir að fylgja eftir bandaríska og breska hernum. „Þeir fylgja hermönnunum ekki beinlínis eftir – það er þeir skrásetja ekki allt þeir sem gera – en þeir ferðast um með þeim og sjá hlutina með þeirra augum. Þeir fara ekki um á eigin vegum,“ segir Jihad og setur spurningarmerki við það hversu góða mynd slíkt gefi af ástandinu í landinu. Osama bin Laden – Þú nefndir Osama bin Laden og að þið hefðuð verið sökuð um að vera málpípa hans. Þið hafið birt skilaboð frá bin Laden – hvernig fáið þið þau? „Skilaboðin eru send til okkar. Þeir sem vilja hafa samband við okkur nálgast okkur. Við nálgumst þá ekki. Við höfum nákvæmlega engin tengsl við bin Laden. Fólk á Vesturlöndum trúir því hins vegar gjarnan að við séum í beinu sambandi við hann, að við getum hringt si svona í hann og spjallað. Sannleikurinn er sá að við höfum ekki hugmynd um hvar hann er.“ – Þegar þið fáið myndbandsspólur eins og þá sem spiluð var eftir ellefta september, hvernig getið þið verið viss um að persónan á þeim sé sú sem hún segist vera? „Við getum auðvitað aldrei staðfest það endanlega eða verið hundrað pró- sent viss um að sá sem sagður er vera á spólunni sé sá hinn sami. Við gerum hins vegar okkar besta og höfum sér- fræðinga sem grandskoða efnið. Í þessu samhengi má benda á að eftir að við höfum sjónvarpað bin Laden eða öðrum álíka hlutum höfum við iðulega fengið jákvæð viðbrögð frá CIA eða öðrum nokkrum dögum síð- ar. Þeir hafa staðfest að manneskjan sem við sögðum þetta vera sé líklega sú rétta.“ Útnefning hjá Time Aðspurður hvort hann telji hinn vestræna heim tilbúinn að hlusta á sögu Al-Jazeera þegar ensku útsend- ingarnar hefjist svarar Jihad játandi. „Ég tel menn almennt vera tilbúna – þó hugsanlega frekar í Evrópu en Ameríku. Menn kunna að meta að við erum fagleg. Til að byrja með voru margir sem álitu okkur hálfgerða við- vaninga en menn eru smátt og smátt að átta sig á því að við höfum þaul- reynt starfsfólk. Þeir kunna líka að meta það að við erum ekki á vegum neinna, við erum ekki hluti af neinum samtökum eða einhverju álíka.“ – Hversu mikilvægt er starf Al- Jazeera? „Ég álít það mikilvægt. Al-Jazeera hefur sannarlega hjálpað til við að gera fólk á Vesturlöndum meðvitaðra um araba og Mið-Austurlönd. Á dög- unum útnefndi Time okkur sem einn af þeim hundrað aðilum sem hafa mest mótunaráhrif í heiminum. Og það eru ekki okkar orð!“ Höfundur er BA í heimspeki. Götulíf í Doha.Katar er að mestu eyðimörk. ’ Við erum ekki að reyna að vinnagegn Vesturveldunum. Al Jazeera hefur það að leiðarljósi að hverri skoðun fylgi ævinlega andvíg skoðun. ‘ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MAÍ 2004 15 Þekking og reynsla – á sviði fasteignalána www.frjalsi. is Þórður Jónsson, löggiltur fasteignasali, er ráðgjafi á viðskiptasviði. Frjálsi fjárfestingarbankinn hefur á að skipa hópi fagfólks með víðtæka reynslu, ríka þjónustulund og sérfræðiþekkingu á öllum sviðum lánastarfsemi; viðskiptafræðingum, löggiltum fasteignsölum og lögmönnum. Þessu fólki geturðu treyst H im in n o g h a f/ 90 40 12 4 Vextir fr á 5,4% 50% afsláttu r á lántöku gjaldi til 1. júl í Í BYRJUN árs 2001 kom Al- Jazeera á laggirnar vefsíðu. Fréttavefurinn varð á stuttum tíma feikivinsæll og síðan er í dag ein af þeim fimmtíu mest sóttu í heimi. Veffangið er www.aljazeera.net og ensk út- gáfa www.english-aljazeera.net. Al-Jazeera á Netinu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.