Morgunblaðið - 16.05.2004, Side 23

Morgunblaðið - 16.05.2004, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MAÍ 2004 23 Meira en fjórðungur allra Íslendinga er með háþrýsting og um 40% Íslendinga um sextugt, en tíðni hans eykst með hækkandi aldri. Hvernig er blóð- þrýstingurinn? LH-mjólkurdrykkurinn er fersk, sýrð mjólkurvara. Lífvirku peptíðin í honum geta hjálpað til við stjórn á blóðþrýstingi. Sjá nánar á www.ms.is Náttúruleg hjálp við stjórn á blóðþrýsting i H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA NEYTENDASAMTÖKIN hafa af- hent Samkeppnisstofnun kæru vegna auglýsingar Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja (SBV) um samanburð á þjónustugjöldum í bönkum á Íslandi, í Noregi, Dan- mörku og Svíþjóð. Eftir að þetta fregnaðist sendu SBV frá sér til- kynningu þar sem samtökin furða sig á kærunni. Neytendasamtökin segjast á heimasíðu sinni hafa gagnrýnt skýrslu SBV um samanburð á þjón- ustugjöldum sem birt var í febrúar en SBV hafi engu að síður birt reglu- lega auglýsingar í sjónvarpi þar sem niðurstöðum skýrslunnar sé hamp- að. Það er álit lögfræðinga Neyt- endasamtakanna að auglýsingarnar brjóti í bága við ákvæði samkeppn- islaga enda gefi þær engan veginn rétta mynd af aðstæðum. Krefjast Neytendasamtökin þess því að birt- ing umræddrar auglýsingar verði stöðvuð þegar í stað. Í tilkynningu SBV benda samtök- in á að auglýsingarnar hafi byggst á samanburðarskýrslu GJ Fjármála- ráðgjafar um þjónustugjöld á Norð- urlöndum. Aðferðir þess fyrirtækis séu þekktar og samtökin véfengi ekki niðurstöður skýrslunnar. Þau standi við fyrri orð sín um að þjón- ustugjöld banka hér á landi séu síst hærri en í nágrannalöndunum. „SBV telja við hæfi að Neytenda- samtökin leggi fram faglega unnar upplýsingar um bankamarkaðinn hér á landi fremur en að gera við- leitni annarra til upplýstrar umræðu tortryggilega með órökstuddri gagnrýni og tilhæfulausum uppþot- um í fjölmiðlum,“ segir í tilkynningu Samtaka banka og verðbréfafyrir- tækja. Þá hefur GJ Fjármálaráðgjöf sent frá sér tilkynningu þar sem segir m.a. að engin ný rök komi fram í kæru Neytendasamtakanna. Þau hafi kosið að sneiða framhjá mál- efnalegri umræðu og endurtekið upphrópanir í sífellu. Frábiður fyr- irtækið sér slíkar umræður. Neytenda- samtökin kæra aug- lýsingar bankanna SÁ GÓÐI prófessor Jón Stein- ar Gunnlaugsson fer mjög með fleipur í greinarstúf sem hann birti í Morgunblaðinu í gær, laugardag, og helgaði ekki síst minni persónu. Í fyrsta lagi mundi ég verða mjög sár og reiður þeim orðum að ég „seldi mig hæstbjóðanda“ ef ég gerði mér ekki grein fyrir að þau eru látin falla í hita þeirra miklu deilna sem fjölmiðlafrum- varp Davíðs Oddssonar hefur vakið. Ég hlýt þó að taka fram að ég mundi aldrei láta mér til hug- ar koma að hafa þvílík orð um þann ágæta málsvara sinna skoð- ana Jón Steinar og ætlast eig- inlega til að þau séu heldur ekki höfð um mig. Í öðru lagi mótmæli ég því ein- dregið að DV undir minni rit- stjórn og Mikaels Torfasonar birti „róg“ og „söguburð“ um for- sætisráðherra. Það er fjarri öll- um sanni, þótt stundum sé skor- inort komist að orði í ýmsum greinum blaðsins, enda finnur Jón Steinar orðum sínum aðeins tvær stoðir. Sú fyrri er haldlaus með öllu. Við höfum engar sögur birt um að Davíð hafi hótað föður Hall- gríms Helgasonar rithöfundar embættismissi. Við birtum aftur á móti útdrátt af viðtali sem haft var við Hallgrím á Útvarpi Sögu þar sem hann tók reyndar skýrt fram – í tilefni af frægum fundi sínum og Davíðs – að hann hefði tekið upp hjá sjálfum sér að ótt- ast um starf föður síns. Ef Jón Steinar hefur einhverjar athuga- semdir, af hverju ræðst hann ekki á Útvarp Sögu þar sem þetta allt kom fram? Hin seinni er að sönnu grafalvarlegt mál og kurl ekki komin til grafar ennþá. Það snýst um frétt í DV um að forsætisráðherra hefði hringt í umboðsmann Alþingis til að lýsa óánægju sinni með álit hans á skipan dómsmálaráðherra á Ólafi Berki Þorvaldssyni í embætti hæstaréttardómara. Og höfum við eftir heimildum sem við telj- um mjög áreiðanlegar að þar hafi forsætisráðherra talað með þeim hætti að kalla verði hótanir. Hér er sannkallað stórmál á ferðinni sem fá verður niðurstöðu um sem fyrst en stóryrði um „lágkúru“, „saurblað“ og annað þess háttar munu ekki duga til að hylja málið moldviðri. Tilraun til þess sýnist mér grein Jóns Stein- ars umfram allt vera – og má geta þess að nú þegar er komin á kreik sú kenning að furðu harðar árásir Davíðs sjálfs á forseta Ís- lands séu líka tilraun til að draga athyglina frá þessu máli varðandi umboðsmann, sem gæti átt eftir að reynast forsætisráðherra tölu- vert skeinuhættara en jafnvel slagur við Ólaf Ragnar Grímsson. Fleipur Eftir Illuga Jökulsson Höfundur er ritstjóri DV. FRÉTTIR mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.