Morgunblaðið - 16.05.2004, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 16.05.2004, Blaðsíða 24
24 SUNNUDAGUR 16. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Það mun hafa verið árið 1953 að vígalegsveit bæjarstarfsmanna á vegumBorgarverkfræðings kom á vettvangvið Fríkirkjuveg. Þar höfðu góðtempl-arar undir forystu Freymóðs Jóhanns- sonar búið um sig í svokallaðri Bindindishöll, en svo nefndu þeir hús Thors Jensens, sem þeir höfðu eignast er þeir keyptu stórhýsi hans við Fríkirkjuveg. Ég minnist þess er vinnuflokkur kom á vettvang. Þar fór fyrir nafnkunnur heiðursmaður, Einar B. Pálsson, sonur fyrsta bæjarstjóra Reykjavíkur, Páls Einarssonar hæstarétt- ardómara. Einar er kunnur vegna margra farsælla af- skipta sem hann hefir haft af framfaramálum í borg sinni. Í þessu máli, sem hér verður rætt, gekk hann þó erinda þeirra sem unnu verk sem ekki hefði átt að komast til framkvæmda. Jón Björnsson, víðreistur garðyrkjufrömuður, sem kenndur er við Alaska og mörg þarfleg verk hefir unnið m.a. að ráða til sín Dieter Roth, snill- ing, sem starfaði hér á landi um alllangt skeið og frægur er. Jón var nýkominn frá Alaska og bauð Reykjavíkurborg þjónustu sína. Um þessar mundir hafði greinarhöfundur tekið á leigu garð- hús það sem enn stendur í garði húss Thors Jen- sens. Ég samdi við Freymóð og félaga hans um leyfi til íssölu í garðinum. Lét smíða lítil hentug veitingaborð, sem hægt var að stafla hverju ofan á annað þegar þau voru ekki í notkun. Einnig festi ég kaup á liprum garðstólum, sem mátti leggja saman svo lítið færi fyrir þeim í geymslu. Fjöldi fólks sótti garðinn og fann „sólskinsblett í heiði“, skjólsælt athvarf í Hallargarðinum, en svo var staðurinn nefndur eftir Bindindishöllinni. Það, að fjöldi fólks sótti garðinn var fyrst og fremst því að þakka að þar var skjól fyrir vindum, sem annars hefðu mælt sér mót til þess m.a. að fletta ungmeyjar á aldur við Marilyn Monroe pilsum, svo sem frægt var er hún var ljósmynduð þegar loftstraumur fletti pilsi hennar í hæð höf- uðs. Harðsnúin sveit borgarstarfsmanna kom með kúlu sem var þeytt á trausta múra Thors Jen- sens. Þeir féllu hver af öðrum líkt og múrinn í Jerikó á sinni tíð við lúðrablástur Jósúa. Ég vissi ekki fyrr en nú nýlega að hugmyndasmiður að baki múrbrotsins var góðkunningi minn, Sveinn Ásgeirsson hagfræðingur, stjórnandi frægra út- varpsþátta. Ég reyndi hvað ég gat að stöðva niðurbrot múrsins. Þeir hlustuðu ekki á viðvörunarorð al- menns borgara. Múrarnir hrundu, hver af öðrum. Hér fylgja ljósrit af bréfaskiptum Kvennaskól- ans og Reykjavíkurborgar og ljósmyndir frá góð- um dögum í garðinum. Lúðrasveit skemmti stundum. Margir áheyrendur nutu kvöldblíðunn- ar. Þeir sem högnuðust mest á framkvæmdum þessum voru skósmiðir í Lækjargötu. Flestar konur sem gengu krákustíga Alaska-Jóns brutu skóhæla er þær fetuðu hellulögn hans. Gísli Ferdinandsson og nágranni hans höfðu ekkert annað fyrir stafni en að hæla skó þeirra sem lögðu leið sína um garðinn. Hugmyndin um skjólsælan garð var ekki að fæðast núna. Þegar skjólgarðar Thors Jen- sens voru jafnaðir við jörðu Deilur um skipulagsmál eru ekkert nýmæli í sögu Reykjavíkurborgar. Pétur Pétursson rifjar upp er múr- arnir við Hallargarðinn hrundu. Lúðrasveit Reykjavíkur leikur á sólbjörtum sumardegi. Tjörnin er friðsæl og sólin ljómar og vermir. Bréf borgarstjórnar um niðurbrot skjólgarða. Kvennaskólinn setur fyrirvara. Fjöldi barnavagna. Smábörn og „barnapíur“ undu sér vel undir sólhlífum. Garðstólar keyptir hjá Gísla Jónssyni. Hægt var að leggja þá saman. Lystihús Thors Jensens. Jón Eyjólfsson, lengi starfsmaður Leikfélags Reykjavíkur og Lúðra- sveitar Reykjavíkur. Gætti garðsins af alkunnri samviskusemi. Góð stund í Hallargarðinum. Næði til þess að skrifa kunningjabréf. Athugið skjólvegginn sem rís að baki. Hann var brotinn eins og múrinn í Jeríkó. Pétur Pétursson Höfundur er þulur. ’ Fjöldi fólkssótti garðinn og fann „sólskins- blett í heiði“, skjólsælt athvarf í Hallargarð- inum. ‘ Ljósmynd/ Eyjólfur HalldórssonMorgunblaðið/Ól. K.M. Starfsmenn borgarverkfræðings komu á vettvang á stórvirkum vinnuvélum og brutu skjólveggi Thors Jensens og jöfnuðu við jörðu. Hér má sjá garðinn (múrvegg- inn) sem veit að Kvennaskólanum. Ljósmynd/Vignir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.