Morgunblaðið - 16.05.2004, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 16.05.2004, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MAÍ 2004 37 spurninga. Og það vakna upp áhugaverð pólitísk álitamál í þessu sambandi. Þau sjónarmið sem hér hafa verið sett fram munu smátt og smátt ná til almennings í landinu. Íslendingar vilja ekki að nokkrir viðskiptajöfrar eignist landið og að 99% þjóðarinnar verði leigj- endur hjá þeim. Þess vegna munu grundvallar- sjónarmiðin, sem liggja að baki fjölmiðlafrum- varpi ríkisstjórnarinnar, að lokum ná til fólks og verða ofan á í þessum umræðum. Ef engin breyting verður á afstöðu stjórnar- andstöðuflokkanna má telja líklegt að bæði Sjálf- stæðisflokki og Framsóknarflokki gangi betur að ná til kjósenda á miðju stjórnmálanna en í undanfarandi kosningum. Ætli Samfylkingin sér að halda þeirri pólitísku stöðu að verða næst- stærsti flokkur þjóðarinnar verður hún að ná til þessa miðjufylgis. En hún mun ekki ná til þess ef kjósendur sannfærast um að flokkurinn hafi tek- ið hamskiptum og hafi gerzt talsmaður þeirra þjóðfélagsafla, sem margir fylgismenn Samfylk- ingarinnar hafa hingað til litið á sem „auðvald“. Er eitthvert vit í þessari pólitík fyrir Samfylk- inguna? Er eitthvert vit í þessari pólitík fyrir Steingrím J. Sigfússon, sem segir að pólitískur bakgrunnur sinn sé eitthvað, sem hann kallar „norðfjarðarsósíalisma“? Er hann að ganga til liðs við það, sem einu sinni var kallað „auðvald- ið“?! Hvað hefur komið fyrir þetta fólk? Er þetta pólitísk hugsjón hins unga varaformanns Vinstri grænna, Katrínar Jakobsdóttur? Er þetta það, sem Mörður Árnason, alþingismaður Samfylk- ingar, hefur viljað berjast fyrir? Er það pólitísk hugsjón Bryndísar Hlöðversdóttur, að Íslandi verði skipt á milli örfárra viðskiptajöfra? Er það ástæðan fyrir afskiptum hinnar ungu þingkonu Katrínar Júlíusdóttur af stjórnmálum? Ætlar Ögmundur Jónasson – sem talað hefur af mestu viti allra þingmanna stjórnarandstöðuflokkanna um fjölmiðla í þessum umræðum – að taka þátt í því að nokkrir auðhringar eignist Ísland? Það er tími til kominn að þetta mæta fólk nái áttum. Auðvitað dettur engum í hug að þeir þingmenn, sem hér hafa verið nefndir og aðrir flokksbræð- ur þeirra vilji stuðla að því að svarið við spurn- ingunni hver eigi Ísland verði að Baugur, Sam- son og nokkrir aðrir eigi Ísland. Fjölmiðlafrumvarpið er aðeins hluti af þessari stóru mynd og Alþingi kemst ekki hjá því að tak- ast á við þessa stóru mynd á næstu mánuðum. Hvers konar þjóðfélag? Það hefur verið sann- færing Morgunblaðs- ins áratugum saman, að hin æskilega þjóð- félagsgerð á Íslandi sé sú, að hér ríki ekki of áberandi efnamunur. Sú lífsskoðun hefur verið grundvallarþáttur í þjóðmálastefnu blaðsins. Fá- mennið á Íslandi veldur því, að verði efnamunur of mikill leiðir það til óróa í samfélaginu, sem er engum til góðs. Það verður aldrei friður á Íslandi og samstaða um það, að nokkrar viðskiptablokkir eigi landið allt. Það þýðir ekkert að segja við Morgunblaðið að þessi afstaða sé ný. Hún er ekki ný. Hún hef- ur einkennt skrif blaðsins um viðskiptalífið ára- tugum saman. Þess vegna hefur blaðið lengi ráð- lagt kraftmiklum kaupsýslumönnum að fá útrás fyrir krafta sína í útlöndum, þegar þeir hafa náð vissu stigi í uppbyggingu sinni hér. Og það er eitt af því ánægjulegasta, sem gerzt hefur í síðari tíma sögu okkar að ungir íslenzkir athafnamenn hafa öðlast sjálfstraust til þess að láta að sér kveða í öðrum löndum svo um munar. Lands- menn fagna því. Ísland er þeirra heimavöllur en sá heimavöllur er of lítill til þess að hann geti rúmað athafnir þeirra allar. Þetta eiga þeir að skilja. Það eru líka þeirra hagsmunir að óróleiki í kringum athafnir þeirra hér hamli ekki umsvif- um þeirra annars staðar, sem augljóslega er að gerast. Íslenzka þjóðin var klofin í rótina í hálfa öld vegna átaka á alþjóða vettvangi. Vegna aðildar okkar að Atlantshafsbandalaginu og veru banda- ríska varnarliðsins hér. Áhrif kalda stríðsins á ís- lenzk stjórnmál heyra nú að mestu sögunni til. En það er þyngra en tárum taki ef það á eftir að gerast að þjóðin sundrist á ný og skiptist í tvær fylkingar vegna grundvallarátaka um við- skiptablokkir og umsvif þeirra. Það er óþolandi farg fyrir þetta þjóðfélag ef það á eftir að gerast. Tvennt getur komið í veg fyrir það: Annars vegar að stjórnmálamenn á vinstri kantinum nái áttum og geri sér grein fyrir því að afstaða stjórnarflokkanna til viðskiptablokkanna og þar með samþjöppunar á fjölmiðlamarkaði felur í sér mikil pólitísk tækifæri fyrir þá, ef þeir á annað borð eru hollir hugsjónum sínum. Slík víðtæk pólitísk samstaða er nauðsynleg til þess að hægt sé að ráða við viðskiptablokkirnar. Þær eru orðnar svo öflugar að við erum komin fram á ell- eftu stund. Og hagsmunum hverra þjónar það, ef þær deila og drottna vegna sundrungar og deilna á hinum pólitíska vettvangi um hvernig eigi að setja þeim takmörk? Ekki hagsmunum íslenzku þjóðarinnar. Og hins vegar þetta: Að viðskiptajöfrarnir á Íslandi sjái að sér, slaki á og beini sjónum sínum annað. Og taki þátt í því að setja sjálfum sér og öðrum á vettvangi atvinnulífsins eðlilegan starfsramma. Þeir hafa efni á því og þeir eiga að hafa þá skynsemi til að bera að gerast þátttakendur í því. Það er þeim sjálfum fyrir beztu að friður ríki um starfsemi þeirra hér og að ekki birtist stöðugt í erlendum fjölmiðlum fréttir um átök í kringum þá hér heima fyrir. Forseti Íslands hefur dregizt inn í þessar um- ræður síðustu daga. Það er hans meginhlutverk að sameina þjóðina en ekki sundra. Hver sá sem kjörinn er til þess að verða þjóðhöfðingi allra Ís- lendinga hlýtur að líta á það sem sína höfuð- skyldu. Afskipti forseta af fjölmiðlafrumvarpinu mundu ekki einungis leiða til snarpra pólitískra deilna í nokkrar vikur eða mánuði. Slík afskipti mundu líka kljúfa þjóðina í tvo andstæða hópa. Deilur vegna afskipta forseta mundu verða hat- rammari en nokkuð sem hér hefur sést á seinni áratugum. Afleiðingar af slíkum átökum mundu setja mark sitt á íslenzk stjórnmál ekki í nokkur ár heldur áratugi. Það getur ekki þjónað nokkr- um tilgangi fyrir þann sem gegnir embætti for- seta hverju sinni að efna til slíkra átaka. Undanfarna daga hafa fallið stór orð í ýmsum áttum. Það er nóg komið af því. Alþingi á að taka sér góðan tíma á næstunni í að ræða fjölmiðla- frumvarpið og afgreiða það síðan. Slíkar umræð- ur þurfa að fara fram á breiðum grundvelli en ekki út frá því þrönga sjónarhorni, sem hefur einkennt þessar umræður um of. Morgunblaðið/Árni Torfason Krakkar úti að hreyfa sig við Snælandsskóla. „Hvað hefur komið fyrir þetta fólk? Er þetta pólitísk hug- sjón hins unga vara- formanns Vinstri grænna, Katrínar Jakobsdóttur? Er þetta það, sem Mörður Árnason, al- þingismaður Sam- fylkingar, hefur vilj- að berjast fyrir? Er það pólitísk hugsjón Bryndísar Hlöðvers- dóttur, að Íslandi verði skipt á milli örfárra viðskipta- jöfra? Er það ástæð- an fyrir afskiptum hinnar ungu þing- konu Katrínar Júl- íusdóttur af stjórn- málum?“ Laugardagur 15. maí
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.