Morgunblaðið - 16.05.2004, Síða 44

Morgunblaðið - 16.05.2004, Síða 44
MINNINGAR 44 SUNNUDAGUR 16. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Lífsþræðir tveggja unglingsstúlkna ófust saman um einhver árabil. Seinna skildu leiðir eins og gengur. Eftir lifa minningar um Hólmfríði Ástu Bjarnason – Fríðu – kæra vinkonu frá unglingsárum; þegar fundum okkar bar fyrst saman vorum við þrettán ára. Við kynntumst í sól og hita suð- ur á Kanaríeyjum en þar dvöldum við báðar ásamt foreldrum okkar. Það stefndi í einmanalegt frí en ég hafði þó rekið augun í stúlku á mínu reki og greip tækifærið þegar ég sá hana tilsýndar, að synda í kaldri lauginni. Ég vék mér að stúlkunni, kynnti mig og spurði hana að nafni. Hún varð furðu lost- in en sagði til nafns og við tókum tal saman. Þá kynntist ég Fríðu, eins og hún var alltaf kölluð. Fríða með brúnu, fallegu augun og um- hverfis dökk og löng bráhár. Hún sagði mér síðar að henni hefði brugðið í brún vegna þess að hún taldi mig mun eldri en ég var. Litli bróðir minn var með mér og hún hélt mig vera mömmu hans. Þegar þessi misskilningur leiðréttist þá létti henni mikið og hennar dillandi hlátur tók að óma. Þegar minning- arnar spretta upp í huga mínum, ein af annarri, þá eru þær umvafð- ar hlátri hennar. Hláturinn var henni eðlislægur, sprottinn af HÓLMFRÍÐUR ÁSTA BJARNASON ✝ Hólmfríður ÁstaBjarnason, Fríða, fæddist í Reykjavík 19. febr- úar 1962. Hún lést í Sjálfsbjargarheim- ilinu í Hátúni 12 fimmtudaginn 29. apríl síðastliðinn og var jarðsungin frá Árbæjarkirkju 7. maí. skopskyni sem hún hafði gnótt af. Eftir dvölina á Kanaríeyjum urðum við góðar vin- konur og við tóku ár sem eru mikil mótun- arár í lífi hverrar manneskju. Unglings- árin. Fríða bjó að góðu uppeldi, átti heil- steypta móður og traustan stjúpföður sem í sameiningu bjuggu henni og bræðrunum gott heimili. Með þann bakgrunn fór Fríða inn í unglingsárin. Við vorum aldrei í vandræðum með að hafa ofan af fyrir okkur enda Fríða uppátektasöm og vin- sæl meðal vinkvenna sinna. Við sátum gjarnan fram á nætur í her- bergi Fríðu í Grundarlandinu, spjölluðum saman og hlustuðum á plötur en Fríða fylgdist grannt með því sem efst var á baugi í tón- list. Í uppáhaldi hjá henni þá voru hljómsveitirnar Queen, Santana, Electric Light Orchestra, Elton John og Genesis. Tvær unglings- stúlkur sem voru svo mikið að þroskast, en þó ekki meira en það að þær sátu fram á nætur, spiluðu Matador, hlustuðu þá gjarnan á út- varpið og fengu sér kornflekskök- ur, bestu í heimi!, sem snilldar- kokkurinn móðir Fríðu, Ellý, bjó til. Fríða er ein jákvæðasta mann- eskja sem ég hef fyrirhitt um æv- ina og mætti sannarlega til lífsins með jákvæðni og hafði afar góð áhrif á mig og aðra. Ef upp kom hugmynd sem henni leist vel á þá var hún drífandi og hrinti henni í framkvæmd. Það var fyrir hennar tilstilli að við fórum í margar úti- legur, allar minnisstæðar, þó er sú sem einföldust var í sniðum eft- irminnilegust. Þá fórum við suður í Hafnir þar sem afi og amma Fríðu bjuggu. Tjölduðum steinsnar frá hafi og fórum í fjörugöngur, skoð- uðum eyðibýli í nágrenninu og lás- um ástarsögur í tjaldinu. Þegar kuldi svarf að fórum við inn til ömmu hennar og fengum „ömmu- kakó“. Með leyfi foreldra okkar fórum við á Rauðhettuútihátíðina og skemmtum okkur konunglega en ekki fór eins vel þegar við stál- umst til að fara í útilegu. Það syndasumar unnum við báðar sem sendlar í Arnarhvoli, Fríða í sam- gönguráðuneytinu. Fannst okkur að sumarið mætti ekki líða án þess að við færum í eina útilegu. Eina helgina skelltum við okkur svo upp í rútu með tjald og nesti og fórum að Búðum á Snæfellsnesi. Áttum skemmtilega helgi og ætluðum að taka rútuna klukkan sex á sunnu- degi en vegurinn var langur frá tjaldstæðinu á Búðum að þjóðvegi og við misstum af rútunni. Það voru hnípnar konur sem hófu gönguna löngu, frá Búðum til Reykjavíkur. Það þarf ekki að orð- lengja að um miðnætti, eftir sex tíma göngu í rigningu, þá gáfumst við upp. Í ágústmyrkrinu gengum við niður að bóndabæ og bönkuðum upp á. Þar var okkur ágætlega tek- ið og fengum við næturgistingu þar og Fríða hringdi heim morguninn eftir. Það var víst fyndið (eftir á!) þegar svarað var í símann í Grund- arlandinu og nefmælt símstöðvar- kvenrödd heyrðist í fjarska: „Halló, Hólmfríður á Neðra-Hóli er á lín- unni og biður um samtal.“ Að kynnast Fríðu og hafa fengið að deila með henni hinum mik- ilvægu unglingsárum var dýrmætt. Hún var trygglynd og ber bunki af bréfum þess merki. Hún skrifaði mér löng og skemmtileg bréf þegar ég fór til Kaupmannahafnar í eitt ár. Einn sumardag árið 1981 þegar við vorum báðar nítján ára, ég í Kaupmannahöfn og hún í Reykja- vík, þá hringdi hún og sagðist vera að koma í heimsókn. Að vísu væri hún í hjólastól en það myndi redd- ast. Við hittumst á flugvellinum í Kaupmannahöfn og við tók sum- arfrí í glampandi sól og hita. Eftir nokkurradaga dvöl í Kaupmanna- höfn var farið upp í lest og stefnan tekin á Stokkhólm þar sem Jón Páll, faðir Fríðu, bjó og starfaði sem gítarleikari. Þegar vel heppn- aðri Kaupmannahafnar- og Stokk- hólmsferð hennar lauk gekk hún upp landganginn, ein og óstudd, enginn hjólastóll. MS-kastið hafði dregið sig í hlé og Fríða gekk í átt að flugvélinni sem flaug með hana heim til Íslands. Nú hefur hennar bjarta sál, hlát- urmildi andi, flogið til sólar. Lífsþræðir tveggja unglings- stúlkna fléttuðust saman um skeið. Seinna skildu leiðir eins og gengur, en þó fögnuðum við hvor með ann- arri fæðingu frumburða okkar. Eftir það slitrótt samskipti uns þar kom að við spunnum þráðinn ekki lengur. Eftir lifa í huga og hjarta minningar, hjúpaðar þakklæti. En einnig trega. Líf Fríðu litaðist svo mjög af MS. Hún sem var öðrum fremur andlega í stakk búin til að Lína frænka eins og ég kalla hana var hálf- systir föður míns. Ég þekkti hana frá barn- æsku og hún var part- ur af tilverunni. Kom oft í heimsókn að Uppsölum þar sem við bjuggum og gisti stundum. Síðustu áratugina bjó hún í litlu húsi sem stendur ut- arlega í Garðinum þar til hún flutt- ist á Garðvang. Við stunduðum bókaskipti og fylgdumst stundum með sömu sjónvarpsþáttunum. Lína hafði gaman af að sauma út og blómin hennar Línu vora alltaf í fullum skrúða. Hún hugsaði mikið um sonarbörnin, eins og raunar um öll ættmenni sín. Ævistarf Línu var fiskvinnsla eins og mitt og flestra kvenna, sem unnu úti í Garði og Sandgerði á tuttugustu öldinni. Lína hélt sér vel og var hraust þar til hún veiktist af heila- EGILÍNA GUÐ- MUNDSDÓTTIR ✝ Egilína Guð-mundsdóttir fæddist í Garði 15. janúar 1914. Hún lést á Garðvangi í Garði 1. apríl síðast- liðinn og var útför hennar gerð frá Út- skálakirkju 10 apríl. blóðfalli fyrir stuttu. Þriðjudaginn 30. mars sá ég Línu síðast. Við sátum hjá henni og hún brosti þegar við sögðumst koma aftur fljótlega. Eftir að ég kynntist Geira fór ég fljótlaga með hann í heimsókn til Línu. Ég hafði ráðið mig á bát frá Keflavík 1987, og höfðu kynni mín og Elsu konu minnar hafist fljótlega eftir það.Veturinn 1988, er við vorum eitt sinn á leið frá Keflavík til Sand- gerðis sagði Elsa að við skyldum koma við í Garðinum hjá Línu frænku. Ég hafði ekki heyrt um Línu áður. Þegar við renndum að húsinu sá hún okkur í gegnum stofugluggann. Hún var fljót til dyra og tók mér strax eins og hún hefði þekkt mig alla tíð. Og kisan Lóló, sem svaf í rúmi sínu, sem ekki var dónalegt, reis úr rekkju til að athuga gestina. Þá þrjá vetur sem ég átti eftir að stunda sjóinn frá Keflavík kom ég oft við hjá Línu á leiðinni til Sandgerðis þegar ég kom af sjónum. Færði ég henni í soðið og var það vel þegið af þeim AFMÆLIS- og minningar- greinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disk- lingi þarf útprentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusíma og heima- síma). Ekki er tekið við hand- skrifuðum greinum. Um hvern látinn einstakling birtist ein aðalgrein af hæfi- legri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar séu um 300 orð eða 1.500 slög (með bilum) en það eru um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitn- anir í sálma eða ljóð takmark- ast við eitt til þrjú erindi. Einn- ig er hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5– 15 línur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir grein- unum. Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsing- um um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Frágangur afmælis- og minning- argreina Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langlangamma, GUÐBJÖRG GUÐJÓNSDÓTTIR, Bjarteyjarsandi, verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju, Saur- bæ, Hvalfjarðarströnd, þriðjudaginn 18. maí kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á dvalarheimilið Höfða, Akranesi. Jónas Guðmundsson, Hallgrímur Guðmundsson, Rebekka Gunnarsdóttir, Óttar Guðmundsson, Jóna G. Ólafsdóttir, Sigurjón Guðmundsson, Kolbrún R. Eiríksdóttir, Dúfa Stefánsdóttir, Vífill Búason, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. Við þökkum innilega þeim fjölmörgu, sem sýndu okkur samúð og hlýhug í orði og verki í veikindum, við andlát og útför okkar elskuðu eiginkonu, móður, tengdamóður, dóttur, ömmu, systur, mágkonu og svilkonu, SVEINBORGAR HELGU SVEINSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til Heimahlynningar Krabba- meinsfélagsins. Finnbogi Jónsson, Esther Finnbogadóttir, Bjarni Karl Guðlaugsson, Ragna Finnbogadóttir, Andrés Minarro, Sigríður R. Júlíusdóttir, Finnbogi Guðmundsson, Júlíus Sveinsson, Freydís Fannbergsdóttir, Sveinn S. Sveinsson, Margrét J. Bragadóttir, Ragnar Sveinsson, Gunnhildur M. Sæmundsdóttir, Birgir Sveinsson, Steinunn Ingibjörg Gísladóttir, Dóróthea Bergs, Helgi Már Bergs, Anton Helgi Jónsson, Margrét Sveinsdóttir, Hrafnhildur Ólafsdóttir. Elskulegur eiginmaður minn, GÍSLI DAGSSON, Vesturbergi 50, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánu- daginn 17. maí kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast Gísla, er vinsamlega bent á að láta Krabbameinsfélagið njóta þess. Margrét Sigvaldadóttir. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför móður minnar, tengda- móður og ömmu, PÁLÍNU MAGNEU PÁLSDÓTTUR, Skipholti 8, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar D-6, Landspítala, Fossvogi. Páll Ástþór Jónsson, Hólmfríður Tryggvadóttir, Hlín Pálsdóttir, Sif Pálsdóttir, Jón Ingi Pálsson. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG ÓLADÓTTIR, Stekkjargerði 6, Akureyri, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju þriðju- daginn 18. maí klukkan 13.30. Haukur Guðmarsson, Marta Vilhjálmsdóttir, Gylfi Guðmarsson, Arnheiður Eyþórsdóttir, Guðmundur Guðmarsson, Helga Aðalsteinsdóttir, Óli Guðmarsson, Anna Steinunn, Hafdís Inga og Óli Gneisti Sóleyjarbörn, barnabörn og langömmubörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.