Morgunblaðið - 16.05.2004, Síða 60

Morgunblaðið - 16.05.2004, Síða 60
DAGBÓK 60 SUNNUDAGUR 16. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. ein- takið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Skipin Reykjavíkurhöfn: Lagarfoss og Skafta- fell koma í dag. Júpi- ter og Árni Frið- riksson fara í dag. Fréttir Fjölskylduhjálp Ís- lands, Eskihlíð 2–4, í fjósinu við Miklatorg. Móttaka á vörum og fatnaði, mánudaga kl. 13–17. Úthlutun mat- væla og fatnaðar, þriðjudaga kl. 14–17. Sími skrifstofu er 551 3360, netfang dal- ros@islandia.is, gsm hjá formanni 897 1016. Mannamót Norðurbrún 1, Furu- gerði 1, Hvassaleiti 56–58 og Hæð- argarður 31. Farið verður á handverks- sýningu eldri borgara í Reykjanesbæ og Duus-safnið, þriðju- daginn 18. maí nk. Lagt verður af stað kl. 13 frá Norðurbrún 1 og síðan teknir far- þegar í Furugerði. Skráning í Norð- urbrún í s. 568 6960, í Furugerði í s. 553 6040, í Hvassaleiti í s. 535 2720 og í Hæð- argarði í s. 568 3132. Bólstaðarhlíð 43. Föstudaginn 21. maí, laugardaginn 22. maí og sunnudaginn 23. maí, kl. 13–17 alla dagana, verður sýning á munum sem unnir hafa verið í fé- lagsstarfinu í vetur. Á laugardeginum verður harmónikkuleikur kl. 14.45 og á sunnudeg- inum kl. 14.30 og kl. 15.30 sönghópur. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ. Ferð verður á handavinnusýningu eldri borgara í Kefla- vík, mánudaginn 17. maí. Lagt af stað frá Hlaðhömrum kl. 13. Skráning í síma 692 0814 og 566 6377. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Dansleikur í kvöld kl. 20, Caprí- tríó leikur fyrir dansi. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraun- seli, Flatahrauni 3. Félagsheimilið Hraunsel er opið alla virka daga kl. 9–16. Gjábakki, Fannborg 8. Mánudaginn 17. maí og þriðjudaginn 18. maí kl. 10–12 verður tekið við staðfesting- argjaldi vegna Fær- eyjaferðarinnar 24. júní til 1. júlí. Kl. 14– 18 vorsýning, smiðjur í gangi. Vöfflukaffi. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Fjölbreytt dagskrá hvern virkan dag kl. 9–16.30. Seljahlíð, heimili aldr- aðra. Sýning á hand- verki heimilismanna í dag. Kristniboðsfélag karla. Fundur verður í Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut 58–60, mánudaginn 17. maí kl. 20. Sr. Frank M. Halldórsson sér um fundarefnið. Allir karlmenn velkomnir. Bókmenntaklúbbur Hana-nú. Æfing í Gjá- bakka kl. 20, sunnu- dagskvöld 16. maí, vegna flutnings á dag- skrá um rithöfundinn SJÓN í Þjóðmenning- arhúsinu. Soffía Jak- obsdóttir leikstjóri mætir. NA (Ónefndir fíklar). Neyðar- og upplýs- ingasími 661 2915. Opnir fundir kl. 21 á þriðjudögum í Héðins- húsinu og á fimmtu- dögum í KFUM&K, Austurstræti. Minningarkort Samúðar- og heilla- óskakort Gídeon- félagsins er að finna í anddyrum eða safn- aðarheimilum flestra kirkna á landinu, í Kirkjuhúsinu, á skrif- stofu KFUM&K og víðar. Þau eru einnig afgreidd á skrifstofu Gídeonfélagsins, Vest- urgötu 40, alla virka daga frá kl. 14–16 eða í s. 562 1870. Allur ágóði fer til kaupa á Nýja testamentum sem gefin verða 10 ára skólabörnum eða komið fyrir á sjúkra- húsum, hjúkr- unarheimilum, hót- elum, fangelsum og víðar. Minningarspjöld Kristniboðs- sambandsins fást á skrifstofunni, Holta- vegi 28 (hús KFUM og K gegnt Lang- holtsskóla) s. 588 8899. Minningarkort Graf- arvogskirkju. Minn- ingarkort Grafarvogs- kirkju eru til sölu í kirkjunni í s. 587 9070 eða 587 9080. Einnig er hægt að nálgast kortin í Kirkjuhúsinu, Laugavegi 31, Reykja- vík. Minningarkort Stóra- Laugardalssóknar, Tálknafirði til styrktar kirkjubygg- ingarsjóði nýrrar kirkju í Tálknafirði eru afgreidd í s. 456 2700. Minningarspjöld Frí- kirkjunnar í Hafn- arfirði fást í Bókabúð Böðvars, Pennanum í Hafnarfirði og Blóma- búðinni Burkna. Í dag er sunnudagur 16. maí, 137. dagur ársins 2004, bænadag- ur. Orð dagsins: En ég bið til þín, Drottinn, á stund náðar þinnar. Svara mér, Guð, í trúfesti hjálp- ræðis þíns sakir mikillar mis- kunnar þinnar. (Sl. 69, 14.)     Í ljósi umræðna um op-inbera styrki, verð- og neyslustýringu á landbún- aðarvörum bendir Frjáls- hyggjufélagið á nýja leið í átt til markaðsbúðskapar í landbúnaðarmálum.     Félagið segir að styrkir,höft og verndartollar hafi valdið miklum vand- ræðum í landbúnaði. „Komið hefur verið í veg fyrir hagræðingu í land- búnaði með höftum. Styrkir og verndartollar gera að verkum að neyt- endur fá rangar upplýs- ingar um hvort betra sé að kaupa innlendar eða erlendar landbún- aðarvörur. Hefði frelsi ríkt í landbúnaði hefðu menn horfið frá búskap hraðar og bú væru senni- lega stærri og hagkvæm- ari. Nú hafa bændur einn- ig tekið ákvarðanir um búskap, byggðar á styrkjakerfinu. Með af- námi þess myndu ýmsir verða fyrir meira höggi en ef hlutirnir hefðu feng- ið að hafa sinn gang í upp- hafi.     Vegna þeirrar vondustöðu sem búið er að koma mörgum bændum í ef styrkjakerfið yrði af- numið hratt er skyn- samlegt að veita aðlög- unartíma. Í stað þess að inna greiðslur áfram af hendi til bænda með sama hætti og verið hefur, er hægt að gefa út skulda- bréf til þeirra. Ef þeir kjósa að eiga skuldabréf- in munu þeir fá jafn- miklar greiðslur af þeim og þeir hefðu ella fengið í nokkurn tíma, t.d. áratug. Þeir hafa aftur á móti núna annan valkost einn- ig, að selja skuldabréfin. Þannig fá þeir dágóða upphæð strax, í stað greiðslna yfir langt tíma- bil. Þetta gefur mörgum þeirra gott tækifæri til að hætta búskap, þar sem það fé gæti nýst þeim í nokkurn tíma á meðan þeir fyndu sér annan starfsferil.     Þetta fyrirkomulag af-nemur galla styrkja- kerfisins í einu lagi. Öll höft á landbúnað mætti afnema samhliða. Hag- ræðing gæti átt sér stað og búin orðið betri. Þessi aðferð skapar einnig bændum tækifæri til að hætta með reisn, í stað þess að hrekja þá smám saman frá búskap með fá- tækt. Útgáfa skuldabréf- anna gæti verið ódýrari fyrir hið opinbera en nú- verandi kerfi, útgreiddar upphæðir væru svipaðar og ella í nokkur ár, en svo væri þeim lokið og styrkjakerfið úr sögunni.     Afnema ber skyldu semhið opinbera leggur á bændur við gæðastjórn. Einkaaðilar sjá sér hag í því að stunda skyn- samlega gæðastjórn. Neytendur vilja frekar kaupa góðar vörur. Frjáls markaður er best til þess fallinn að finna hvernig gæðastjórn er best hátt- að,“ segir á frjáls- hyggja.is. STAKSTEINAR Ný landbúnaðarstefna með útgáfu skuldabréfa Víkverji skrifar... Víkverji átti leið um kirkjugarðinn íKeflavík á dögunum. Þar blasti við honum ófögur sjón. Einhverjir höfðu gengið berserksgang í garð- inum, ráðist á fjölmörg leiði og brotið og bramlað kertaluktir. Þetta mun ekki vera í fyrsta skipti sem skemmdarverk eru unnin á leiðum í kirkjugarðinum í Keflavík – og ekki í annað skipti. Víkverji gerir sér ekki grein fyrir hvað bærist innra með þeim sem leggjast svo lágt að vinna skemmdarverk í kirkjugörðum. Vík- verji telur að lögreglan í Keflavík eigi að gera allt sem í hennar valdi stend- ur til að komast að því hverjir voru þarna á ferð – og leggja sitt af mörk- um til að koma í veg fyrir ófögnuð af þessu tagi. Það ætti að skylda þá, sem ganga þannig um, til að vinna um tíma í kirkjugarðinum – hreinsa til eftir sig og ýmislegt annað. x x x Það eru oft ótrúlegustu skrif semrata á prent. Víkverji náði varla andanum þegar hann las eftirfarandi í einu blaðanna í vikunni – þá hafði atvinnulaus þjálfari þetta að segja, þegar hann var spurður hvort hann væri á leiðinni til ákveðins félags: „Ég hef nú verið á leiðinni eitthvað síðustu tvo mánuði. Það er eitt og eitt lið sem hefur verið að tala við mann og maður hefur sagt nei við eitthvert lið og svo hefur maður getað sagt kannski já við önnur og alla vegana. Maður hefur getað sagt já þar sem maður er með börnin sín í íþróttum líka en þetta er allt mjög rólegt þessa dagana. Ég fékk tvö mjög áhugaverð símtöl á laugardag sem voru í raun endurtekning á fyrri símtölum en það er alltaf gaman að heyra í góðum mönnum. Það er aldrei að vita nema maður dragi fram skóna. Hvort sem það verður að taka við einhverju meistaraliði sem er að fara að keppa um einhverja titla eða hvort maður sé að fara að taka við einhverju þar sem maður getur búið til hand- boltamenn, eða taka við einhverju til þess að komast að heiman frá kon- unni. Það er langlíklegast. Losna við að vera heima þennan erfiða tíma á milli sex og átta.“ Blaðamaðurinn sem tók viðtalið var greinilega ánægður með sitt verk og skrifaði í lok greinar sinnar: „Svo mörg voru þau orð …“ Eftir þennan lestur segir Víkverji eins og unglingur hefði eflaust sagt eftir lesturinn: Vááá, maður! x x x Víkverji er knattspyrnuunnandi oghorfir mikið á beinar útsend- ingar í sjónvarpi frá leikjum í Eng- landi og víðar. Víkverji er fyrir löngu búinn að fá sig fullsaddan á þeim sem lýsa leikjum hér á landi. Þeir hrópa og öskra hver í kapp við annan í tíma og ótíma og oftar en ekki er eins og þeir séu að lýsa leikjunum fyrir blinda. Víkverji fer frekar á veit- ingastaði og horfir á leiki með er- lendum þulum, sem hafa tilfinningu fyrir því sem fer fram á vellinum. Víkverji sættir sig frekar við finnska þuli, þó að hann skilji aðeins þegar þeir nefna tölur, eins og yksi – yksi þegar Manchester United og Chelsea gerðu jafntefli, 1:1. Morgunblaðið/Ómar Stytta í kirkjugarði. Bréf frá Greenpeace Í GÆR fengum við hjónin, líkt og fjölmargir aðrir Ís- lendingar, bréf sem voru póstlögð nýlega í Þýska- landi. Nafn og heimilisfang var á prentuðum límmiðum sem klesstir voru á umslög- in. Í bréfunum stendur að nöfn okkar og heimilisfang hafi verið á lista sem feng- inn var frá Hagstofu Ís- lands. Ég spyr: Síðan hvenær er heimilt að dreifa póstlist- um út í heim með nöfnum og heimilisföngum óvið- komandi fólks á íslandi? Fjölrituð bréfin voru mjög ópersónuleg og um- slögin voru alveg eins. Samt er eins og ábekingur sé persónulega sá sem sendir bréfið, því í fjölrit- uðum textanum stendur að sendandi hafi heyrt um hina einstöku náttúru Ís- lands og langi mikið til þess að koma til landsins o.s.frv. Síðan stendur: „Hins vegar get ég ekki komið til Ís- lands á meðan stjórnvöld á Íslandi standa fyrir hval- veiðum…“ Ósköp er þetta nú annars einfeldningslegt og tilgerðarlegt. Í textanum stendur, að bréfið sé skrifað í þeirri von að það opni fyrir umræðu. Annar sendandinn krafsar eitthvert nafn undir, þann- ig að ómögulegt er að lesa það og því síður að svara manninum. Hinn sendand- inn gleymdi raunar að und- irrita snepilinn. Hvort tveggja er auðvitað dóna- skapur og lýsir tilurð þess- ara bréfa. Raunar hefði ég áreiðanlega svarað „ábek- ingum“ bréfsins (á þýsku) og sagt þeim eins og satt er, að ég hef ferðast um fallega náttúru Þýskalands, þótt mér líki ekki við verk- smiðjubúskap og illa búra- meðferð á húsdýrum þar í landi. Auk þess veit ég ekki betur en að Þjóðverjar drepi fiska, spendýr og fugla sér til matar, viður- væris og skemmtunar. Ef þessir „ábekingar“ þessa fjölritaða bréfs vilja ekki koma til Íslands, þá er það bara þeirra mál og allt í lagi að mínu mati. Svona fjöldaframleidd rök eru ekki áhrifamikil. Vonandi verður hvalveiði aukin hér frá því sem var í fyrra. Eftirlaunakall. Tapað/fundið Týndur leðurjakki BRÚNN leðurjakki með hettu var seldur í misgrip- um í Kolaportinu á bás Léttsveitarinnar 17. apríl sl. Sá sem kannast við að hafa fengið jakkann er beð- inn um að hafa samband í síma 565 7226 og 865 2562. Dýrahald Síamskötturinn Máni týndist SÍAMSKÖTTUR týndist í Vættaborgum, Grafarvogi 28 apríl. Hann var nýkom- inn á nýja heimilið sitt þeg- ar hann slapp út og hefur ekki sést síðan og ratar ekki heim. Kötturinn heitir Máni og er 13 ára gamall. Hans er saknað af eigend- um. Þeir sem vita um Mána geta vinsamlega haft sam- band í síma 896 1856. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT 1 íþróttakeppni, 8 mál- gefin, 9 glufan, 10 eykta- mark, 11 lesa, 13 vætan, 15 tónlist, 18 hæðir, 21 kassi, 22 digra, 23 kven- selurinn, 24 klæðskeri. LÓÐRÉTT 2 tómra, 3 eldhúsáhald, 4 skynfæra, 5 þáttur, 6 lof, 7 yndi, 12 leyfi, 14 tímgunarfruma, 15 þvaðra, 16 öflug, 17 kvarta undan, 18 kona, 19 setjir, 20 skökk. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 hunds, 4 bergs, 7 látin, 8 refsa, 9 níð, 11 nána, 13 órar, 14 flesk, 15 sófi, 17 uggs, 20 áði, 22 öldur, 23 launa, 24 prins, 25 tangi. Lóðrétt: 1 hulin, 2 nótin, 3 senn, 4 borð, 5 rófur, 6 staur, 10 ígerð, 12 afi, 13 óku, 15 skörp,16 fæddi, 18 grunn, 19 spaki, 20 árás, 21 illt. Krossgáta  Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.