Morgunblaðið - 16.05.2004, Side 68

Morgunblaðið - 16.05.2004, Side 68
68 SUNNUDAGUR 16. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Eftir stutt spjall um tónlist-argyðjuna, sem oft erharður húsbóndi og ekkiallra að þjóna, þótti mér nærtækast að spyrja um það sem fyrst blasir við þegar plötuumslagið er skoðað, en það eru textar Guð- mundar. Það er viss angurværð yfir text- unum, ertu að gera einhverja hluti upp? „Þeir eru nú líka bjartir inn á milli. Það hefur alltaf verið svolítið erfitt fyrir mig að gera texta, að skálda eitt- hvað upp. Þarna ákvað ég að semja texta upp úr einhverju í mínu lífi, hvað er að ske. Í rauninni að hafa gaman af því að gera textana, að þeir skipti mig einhverju máli, þegar ég er að syngja þá skipti þeir einhverju máli. Ég hef verið að hlusta svolítið á menn eins og Ryan Adams, Damien Rice, Bubba og Magnús Eiríks, sem eru oft með dálítið opin sár með það hvernig þeim líður í það og það skipt- ið. Mér finnst gaman að heiðarlegum og einlægum tónlistarmönnum.“ Það má segja að þetta séu svip- myndir sem þú bregður fram? „Já, þetta eru allavega engar lög- regluskýrslur, en texti verður að syngjast vel og hæfa laginu, sem kall- ar dálítið á hvernig textinn er. Lagið Gullkálfurinn fjallar til dæmis dálítið um firringuna sem virðist ríkja í samfélaginu okkar. Við viljum fá allt strax og gerum svo miklar kröfur hvert til annars og út- litsins, svona efnisleg gæði. Það er svo mikil keyrsla hér á Íslandi. En ég er ekki að predika neitt því ég er svona sjálfur. Í laginu Regnboginn er ég líka að skoða hvernig hlutirnir líta út þegar morgunsólin skín yfir dreggjar helg- arfyllirísins, þegar maður kemur út. Þá missir stemningin svolítið sjarm- ann og rómantíkin, sem var kannski í gangi inni á skemmtistaðnum, fær á sig nýjan og ekki eins fallegan svip. En lögin eru ekki öll um einhver ósköp, sum þeirra eru um von. Eitt þeirra, „Ég skal vaka“ er um strákinn minn. Þetta er aðal- lega persónulegt. Mér finnst menn eiga að leyfa sér að leggja spil- in á borðið þegar þeir gefa út sólóplötur. Það lá fyrir að Sálin færi í frí á þessu ári. Þá datt mér í hug að nota fyrri part ársins í að gefa út þessa plötu með svolítið persónu- legum textum og hafa þetta einfaldari tónlist og hljóðfæraskipan. Það er sosum ekkert „master plan“ í gangi, en ég valdi bara tíu lög og texta sem hæfa þeim og tók þann pól í hæðina að gera sem mest sjálfur. Mér finnst að einherjaplötur eigi að vera svolítið á þá leið.“ Hrá Settirðu þig í einhverjar ólíkar stellingar þegar þú samdir fyrir þessa plötu en þegar þú semur fyrir Sálina? „Ég tek mér yfirleitt einn mánuð á ári sem ég nota í að semja lög. Maður fer ekki út úr húsi án þess að það sé komin einhver hugmynd, svo tekur maður það upp og fer að vinna í því. Þessi lög voru flest samin í fyrrasum- ar. Þá vissi ég ekkert hvað ég átti að gera við þessi lög. Maður er í seinni tíð að semja þetta í skorpum, en ekki jafnóðum eins og þetta var í gamla daga. Mig langaði líka að fara að spila svolítið meira á gítar, að vera svolítið meira gítarband. Ég hafði aldrei ver- ið með neinar „ambisjónir“ um að vera með einhvern sólóferil, en þessi lög kölluðu á mig að gera eitthvað svona, þannig að þetta þróaðist út í sólóplötuna. Það gæti alveg farið svo að ég færi út í að spila þetta einn á kassagítar. En þetta eru allt bara lítil smáskref sem ég er að taka þessa dagana. Þetta er nógu stressandi hvort sem er. Platan er líka dálítið hrá. Við höfð- um ekki mikinn tíma til að taka upp plötuna, þannig að ég fór með Birgi Nielsen og Jakobi Smára Magn- ússyni og við æfðum og tókum þetta upp í hljóðveri bara þrír. Þetta var „Menn eiga að leyfa sér að leggja spilin á borðið“ Guðmundur Jónsson, gítarleikari og lagahöfundur, gaf út sína fyrstu sóló- plötu á dögunum. Svavar Knútur Kristinsson átti stutt en laggott spjall við Guðmund um textana, skemmtilegt samstarf og vináttuna. Japl er fyrsta sólóplata Guðmundar Jónssonar. Frábær ævintýramynd hlaðin tæknibrellum eins og þær gerast bestar í anda IndianaJones.Fyrsta stórmynd sumarsins þar sem hetjan Van Helsing á í höggi við Drakúla greifa, Frankenstein og Varúlfinn. Fyrsta stórmyndsumarsins. KRINGLAN Sýnd kl. 3, 6, 8, 9.15 og 10.30. (POWERSÝNING kl. 10.30.) Frábær ævintýramynd hlaðin tæknibrellum eins og þær gerast bestar í anda IndianaJones.Fyrsta stórmynd sumarsins þar sem hetjan Van Helsing á í höggi við Drakúla greifa, Frankenstein og Varúlfinn.  Tvíhöfði  DV  Roger Ebert Chicago Sun Tribune VINSÆL ASTA MYNDIN Á ÍSLAN DI! POWERSÝNING kl. 10.30. FRÁ LEIKSTJÓRA „THE MUMMY“ OG „THE MUMMY RETURNS“ FRÁ LEIKSTJÓRA „THE MUMMY“ OG „THE MUMMY RETURNS“ FRÁ LEIKSTJÓRA „THE MUMMY“ OG „THE MUMMY RETURNS“ HÁDEGISBÍÓ Í SAMBÍÓUM, KRINGLUNNI MIÐAVERÐ KR. 400 Á ALLAR MYNDIR KL. 12 ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8 og 10.40. B.i.12 ára KRINGLAN Sýnd kl. 10. „Frábærar reiðsenur, slagsmálatrið i, geggjaðir búningar og vel útfærðar tæknibrellur“ Fréttablaðið ÁLFABAKKI Sýnd kl. 6. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i.12 ára SV. MBL  VE. DV  Tær snilld. Skonrokk. Stranglega bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 3.45, 8 og 10.20.Sýnd kl. 4. Íslenskt tal. Sýnd kl. 4, 6.15, 8 og 10. Sýnd kl. 6, 8 og 10. FRÁ LEIKSTJÓRA „THE MUMMY“ OG „THE MUMMY RETURNS“ Útlit myndarinnar er frábært. Tæknibrellurnar eru fyrsta flokks. Van Helsing er alvöru sumarpoppkornssmellur sem stendur fyllilega undir væntingum. Þ.Þ. Fréttablaðið.  Tvíhöfði  DV Fyrsta stórmyndsumarsins.  Roger Ebert Chicago Sun Tribune VINSÆL ASTA MYNDIN Á ÍSLAN DI! SKONROKK HJ MBL J.H.H Kvikmyndir.com Það er óralangt síðan ég sá jafn skelfilega grípandi mynd. Án efa ein besta myndin í bíó í dag. KD, Fréttablaðið „Þetta er stórkostlegt meistaraverk“ ÓÖH, DV Í SNERTINGU VIÐ TÓMIÐ Með Íslandsvininum, Jason Biggs úr „American Pie“ ofl. frábærum leikurum eins og Woody Allen, Danny DeVito, Christina Ricci (Sleepy Hollow) og Stockhard Channing (West Wing). Ný rómantísk gamanmynd frá háðfuglinum Woody Allen FRUMSÝNING Sýnd kl. 4 og 9. Sýnd kl. 6.05. & kynna Verður frumsýnd 17. og 18. maí kl. 18.00.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.