Morgunblaðið - 08.06.2004, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 08.06.2004, Qupperneq 1
Jafngildir löngu námi Valdís klippir myndina Eilíft sólskin hvítþvegins hugar | Fólk Föt fyrir þá stóru Stórir strákar eiga oft erfitt með að fá á sig föt | Daglegt líf Nýr methafi Birkir slær leikjamet í efstu deild í knattspyrnu | Íþróttir TVEIR selkópar litu dagsins ljós í gær og fyrradag í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal. Mjög sjaldgæft er að selir komi í heiminn í dýragörðum en það hefur þó gerst á hverju ári síðustu 6–7 ár í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Að morgni sunnudags kæpti urtan Særún. Þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti erindi í garðinn um 11 í gærmorgun til að festa kóp- inn á mynd kom annar kópur í heiminn, í þetta sinn undan urtunni Kobbu. Kópurinn var hinn sprækasti, hnusaði af mömmu sinni, og stakk sér síðan til sunds. Hópur barna var við selalaugina þegar atvikið átti sér stað en kæping tekur alla jafna mjög fljótt af og ekki margir sem ná að sjá hana með eigin augum. Að sögn Unnar Sigþórsdóttur, deildarstjóra fræðsludeildar í Fjölskyldu- og húsdýragarð- inum, er illmögulegt að greina kyn kópanna fyrstu vikurnar þar eð urturnar verja af- kvæmi sín af mikill hörku. Til marks um það veittist Kobba að einum dýrahirðinum þegar hann hugðist fjarlægja fylgjuna úr lauginni. Selurinn Snorri er faðir beggja afkvæma. Kobba, Særún og Snorri voru fönguð á Rauðasandi árið 1991 og hafa dvalið í sela- lauginni í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum síðan. Sjaldgæft andartak fangað á filmu Morgunblaðið/Jim Smart Urtan Kobba kæpti þegar ljósmynda átti annan selkóp  Urta kæpir/28–29 ÞORSKKVÓTI næsta fiskveiðiárs verður 205 þúsund tonn, 4 þúsund tonnum minni en á yf- istandandi fiskveiðiári, samkvæmt tillögum Hafrannsóknastofnunarinnar um leyfilegan heildarafla á næsta ári. Skerðingin helgast fyrst og fremst af því að þorskurinn fær minna af loðnu að borða en áður. Ýsustofninn braggast hinsvegar sem aldrei fyrr og ufsa- stofninn er á hraðri uppleið. Í skýrslu Hafrannsóknastofnunar segir að meðalþyngd þorsks árið 2003 hafi minnkað verulega frá árinu 2002 og sé mun minni en gert hafi verið ráð fyrir. Líklegt er að lækkun meðalþyngdar megi rekja til minna magns loðnu á útbreiðslusvæði þorsks. Vegna breyttra umhverfisskilyrða í hafinu í kringum landið hafi atferli loðnu breyst til muna og misheppnaðar mælingar á loðnustofninum undanfarin misseri skapi verulega óvissu um framtíð þorskstofnsins. Breytt umhverfisskilyrði eru aftur á móti talin koma stofnum ýsu og ufsa mjög til góða, Hafrannsóknastofnunin leggur til að ýsukvóti næsta fiskveiðiárs verði aukinn um 15 þúsund tonn eða í 90 þúsund tonn og ufsakvótinn verði 70 þúsund tonn sem er 20 þúsund tonn- um meira en á yfirstandandi fiskveiðiári. Stofnunin segir hins vegar ástand grálúðu- stofnsins mjög slæmt og hann sé í sögulegu lágmarki. Hún leggur því til að dregið verði úr sókn í stofninn og kvóti næsta árs verði 15 þúsund tonn, að afla útlendinga meðtöldum. Þá leggur stofnunin til að dregið verði úr veiði á steinbít um 3 þúsund tonn. Ekki áhrif á útflutningstekjur Greiningardeild Landsbankans segir að til- lögur Hafrannsóknastofnunar um aflamark í þorski, ýsu, ufsa og grálúðu á næsta fiskveiði- ári feli í sér aukningu um rúm 7 þúsund þorsk- ígildistonn, þrátt fyrir að gert sé ráð fyrir að þorskaflamark verði 4 þúsund tonnum minna en á yfirstandandi ári. Greiningardeild KB banka segir að í heild sé líklegt að áhrif á út- flutningstekjur sjávarútvegsins í heild verði ekki veruleg en breytingar á kvótaúthlutun eftir tegundum muni koma misjafnlega við einstök sjávarútvegsfyrirtæki og skerðingin muni hafa nokkur áhrif á arðsemi þeirra fyr- irtækja sem eru háð þorskveiðum. Lagt til að þorskkvótinn verði minnkaður um 4 þúsund tonn milli ára Minna framboði fæðu í sjónum um að kenna  Mikil óvissa/10 „AUÐVITAÐ væri skemmtilegra að fá að veiða meira af þorski. En við verðum víst að trúa fiskifræðingunum og ef þorskurinn fær of lítið að éta er skynsamlegt að veiða ekki meira af hon- um,“ segir Eiríkur Jóns- son, skipstjóri á ísfisktogaranum Sturlaugi Haraldssyni AK. Eiríkur segir það hinsvegar ánægjulegt að leyfð sé meiri veiði á ýsu og ufsa. „Það var löngu tímabært. Menn hafa ver- ið í stökustu vandræðum vegna þess að þeir hafa ekki nægi- legan kvóta í þessum tegundum. Aftur á móti hefði ég viljað sjá verulegan niðurskurð á gullkarfakvótanum. Við höfum verið mikið á karfaveiðum og það hefði mátt skerða karfa- kvótann fyrir löngu. Djúpkarfastofninn er sömuleiðis mjög lélegur. Ég man ekki eftir eins slæmu ástandi á þessum stofnum og sennilega er gullkarfastofninn, ásamt kannski grálúðustofninum, sá stofn á Íslandsmiðum sem er kominn nálægt hættumörkum. Ég skil ekki hvers vegna Hafrann- sóknastofnunin grípur ekki inn, við höfum bent fiskifræðing- unum á þetta í mörg ár en það er ekkert gert,“ segir Eiríkur. Of mikill karfakvóti Í YFIRLÝSINGU sem birt var á vefsíðu í nafni al-Qaeda í gær er boð- að að vestræn flugfélög verði aðal- skotmark samtakanna á næstunni. Yfirlýsingin birtist á vefsíðu ísl- amista sem er þekkt fyrir að birta slík skilaboð. Undir hana er ritað „al- Qaeda á Arabíuskaganum“. Í yfirlýsingunni er ítrekað vísað til „krossfara“, sem á máli herskárra múslima stendur fyrir allt vestrænt fólk. Varað er við því að „allt sem tengist þessum krossförum – svo sem byggingar, herstöðvar og sam- göngutæki, einkum og sér í lagi vest- ræn og bandarísk flugfélög – verða bein skotmörk næstu aðgerða í hinu heilaga stríði sem, með Guðs hjálp, ekkert mun aftra okkur frá að heyja, sérstaklega ekki í nánustu framtíð.“ Hryðjuverkamenn úr röðum her- skárra múslima hafa staðið að öldu árása í Sádi-Arabíu að undanförnu. Al-Qaeda hótar flug- félögum Kaíró. AP. NORSK yfirvöld hyggjast brátt bjóða dæmdum kynferðisafbrota- mönnum upp á þann kost að und- irgangast hormónameðferð sem bælir kynhvöt þeirra, í þeim tilgangi að minnka líkur á að þeir gerist aftur brotlegir eftir að afplánun lýkur. Í Danmörku hefur slík meðferð verið í boði síðan árið 1989 og mun enginn þeirra 25 dæmdu nauðgara og barnaníðinga sem þar hafa hlotið meðferðina gerzt brotlegir á ný. Dagsavisen greinir frá því í gær að fjórir dæmdir kynferðisafbrotamenn í Noregi hafi þegar lýst sig reiðu- búna að gangast undir meðferðina. Níðingar í hormóna- meðferð ERINDREKAR í öryggisráði Sam- einuðu þjóðanna sögðust í gærkvöld eiga von á því að samkomulag næðist í dag um nýja ályktun ráðsins um Íraksmál eftir að fulltrúar Banda- ríkjanna og Bret- lands féllust á málamiðlun um breytingar á álykt- unardrögunum. Áður hafði litið út fyrir að átaka- fundur væri framundan, þar sem í þeirri uppfærðu mynd ályktunar- draganna sem Bandaríkjamenn og Bretar lögðu fram í gær var ekki gert ráð fyrir því að íraska stjórnin hefði vald til að hindra vissar aðgerð- ir setuliðsins eins og Frakkar höfðu lagt til, en þeir hafa neitunarvald í ráðinu. Lakhdar Brahimi, fulltrúi SÞ í Írak, tjáði ráðinu í gær að trúverð- ugar kosningar yrðu ekki haldnar þar fyrr en í fyrsta lagi vorið 2005. Sátt um Íraksályktun Sameinuðu þjóðunum. AFP. Lakhdar Brahimi ♦♦♦ ♦♦♦ STOFNAÐ 1913 155. TBL. 92. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.