Morgunblaðið - 08.06.2004, Page 4

Morgunblaðið - 08.06.2004, Page 4
FRÉTTIR 4 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ -ráð dagsins Hægt er að ná ryki úr gítar með því að setja þurr hrísgrjón inn í kassann og gegnum opið. Hristið varlega, snúið gítarnum við og hellið grjónunum úr. Rannsóknarleiðangur Jöklarannsóknafélagsins Mæla hæsta tind Íslands að nýju FÉLAGAR í Jöklarannsóknafélagi Íslands eru þessa dagana í árlegum rannsóknarleiðangri á Vatnajökli. Meðal verkefna rannsóknarmanna er að mæla nákvæma hæð Hvanna- dalshnúks, en nú eru 100 ár liðin frá því J. P. Koch og félagar mældu hæð hans í fyrsta sinn, og sögðu hann 2.119 metra háan. Umhverfisráðherra, Siv Friðleifs- dóttir, er með í för, og munu fé- lagsmenn í Jöklarannsóknafélaginu sýna ráðherranum jökulinn, meðal annars í kjölfar hugmynda um stofnun þjóðgarðs á Vatnajökli. Að sögn Magnúsar Tuma Guðmunds- sonar, formanns Jöklarannsókna- félagsins, eru í hópnum bæði sjálf- boðaliðar og vísindamenn á þessu sviði. Hópurinn dvelur í bækistöð félagsins á Grímsfjalli. „Við höfum til dæmis farið í Grímsvötn og kannað aðstæður þar, og einnig mælt ísskrið á nokkrum stöðum,“ sagði Magnús Tumi í samtali við Morgunblaðið. Farið á hnúkinn til mælinga Í gærdag fór hópurinn, ásamt umhverfisráðherra, á Hvannadals- hnúk og mældi hæð hans með GPS- tækni. Veður hefur leikið við rann- sóknarhópinn, og segir Magnús Tumi það ekki nema á nokkurra ára fresti sem svo vel vilji til með veður þegar farið er á Hvannadals- hnúk. „Fyrir hundrað árum, þegar Koch og félagar hans mældu hnúk- inn, fengu þeir töluna 2.119 metrar, og sú tala hefur komist í allar kennslubækur. Nú eru mælingar mun nákvæmari, og okkur langaði að sjá hver hæð hnúksins væri núna,“ sagði Magnús Tumi. Hann segir niðurstöðu mælinganna að vænta innan tveggja vikna. Magnús segir að hafa beri í huga að hæð hnúksins sé breytileg, enda toppurinn hjarnfönn sem breytist ár frá ári. „Hæðina er því ekki hægt að mæla endanlega, heldur breytist hún um nokkra metra milli ára. Við gerum þó mælinguna nú á sama árstíma og gert var fyrir 100 árum.“ ÓPERAN „Fjórði söngur Guðrún- ar“ var frumflutt í Kaupmannahöfn árið 1996, en borgin var þá menn- ingarhöfuðborg Evrópu. Danski leikmyndahöfundurinn Louise Beck átti frumkvæði að samningu óperunnar. Beck var viðstödd þeg- ar tilkynnt var um verðlaunaveit- inguna í Kaupmannahöfn í gær og lýsti því hvernig hún hefði fengið hugmyndina að óperunni þegar hún kom inn í gamla, friðlýsta skipakví við Holmen í Kaupmanna- höfn fyrir rúmum tíu árum. Skipa- kvíin hafði legið ónotuð í um hálfa öld, en Beck heillaðist af mosa- grónu granítinu sem skipin höfðu legið á og krafti vatnsins fyrir ut- an. Beck fannst að þetta svið kallaði á tónskáld sem hefði tilfinningu fyrir náttúruöflunum í norðri og leitaði því að Íslendingi. Hún heyrði eitt verka Hauks Tómasson- ar og ákvað að hafa samband við hann. „Þegar ég talaði við hann í síma undraðist ég hvernig svona rólegur maður gæti samið svo kraftmikið verk. Ég ákvað því strax að fljúga til Íslands og hitta hann í eigin persónu, og sá að Haukur hafði yfir sér mikla ró, en að undir yfirborðinu leyndist eld- fjall. Beck og Haukur unnu í tvö ár að verkinu með enska leikstjóranum Lucy Baily og danska textahöfund- inum Peter Laugesen. Haukur segir að þessi vinna hafi verið mik- ið ævintýri. „Yfirleitt þegar ég fæ pöntun um verk sit ég einn heima og geng nokkurn veginn frá því áð- ur en ég skila því af mér til tónlist- armannanna. Í þetta sinn tók ég þátt í mótun verksins á öllum stig- um og það var mikils virði.“ Efni óperunnar er sótt í Eddu- kvæði, í sögu Guðrúnar Gjúkadótt- ur. Haukur segir að hann hafi heillast af textanum. „Um tíma var rætt um að þýða hann á dönsku, en mér fannst algert skilyrði að haldið yrði í íslenskuna vegna þess hversu glæsilegt málfarið er og hrynjand- in. Ég hugsaði líka til þess að tón- listin yrði kannski flutt á Íslandi síðar, og að erfitt yrði að laga tón- listina að íslenskunni ef hún væri upprunalega samin við danskan texta.“ Dýr og viðamikil uppsetning Uppsetningin var mikið verk, og nærri 250 manns unnu að undir- búningi hennar. Kostnaður var áætlaður um 90 milljónir íslenskra króna. Vatn gegndi stóru hlutverki í sýningunni. Gestir voru ferjaðir á báti yfir að skipakvínni, og jafn- framt var vatni hleyp inn í skipa- kvína meðan á sýningunni stóð. Óperan var frumsýnd 24. júlí 1996 og uppselt var á allar sýn- ingar. Hún fékk góða dóma í fjöl- miðlum og þótti vera einn af há- punktum menningarársins. Árið eftir var tónlistin hljóðrituð í Víðistaðakirkju með söngvurum úr sýningunni, tónlistarhópnum Caput og norska stjórnandanum Christian Eggen. Diskurinn hlaut góðar viðtökur og var meðal ann- ars valinn einn af fimm bestu disk- um ársins 1998 af gagnrýnanda tónlistartímaritsins Grammo- phone. Tilnefndur í þriðja sinn Haukur hefur tvisvar áður verið tilnefndur til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs, fyrir verkið Spíral árið 1996 og árið 2000 fyrir Fiðlukonsert.Hann er fjórði Ís- lendingurinn sem hlýtur verðlaun- in, en áður hafa Björk Guðmunds- dóttir, Hafliði Hallgrímsson og Atli Heimir Sveinsson hlotið þau. Verðlaunin voru fyrst veitt árið 1965, en í fyrstu aðeins annað hvert ár. Nú eru þau til skiptis veitt höf- undum og flytjendum tónlistar. Þau nema um fjórum milljónum ís- lenskra króna og verða afhent í tengslum við Norðurlandaráðsþing í Stokkhólmi í nóvember. Árlega eru þrettán tónskáld eða tónlistarmenn tilnefndir til verð- launanna, tveir frá hverju Norður- landanna, og einn frá Færeyjum, Grænlandi og Álandseyjum. Auk Hauks var Þórður Magnússon tón- skáld tilnefndur til verðlaunanna fyrir Íslands hönd að þessu sinni fyrir verkið „Ó Jesú eðla blómi“. Aldrei verið mikill óperuaðdáandi Haukur hafði lítið unnið að söng- verkum áður en hann hófst handa við „Fjórða söng Guðrúnar“ og ekki haft mikinn áhuga á klassísk- um óperum. „Ég hef aldrei verið mikill óperuaðdáandi, og mig hafði aldrei dreymt um að semja óperu,“ segir Haukur. Haukur segist enn hafa jafnlít- inn áhuga á að semja verk til flutn- ings í hefðbundnu óperuhúsi, en hins hefur hann kannað mögu- leikana á að finna samstarfsfólk og efni í aðra óhefðbundna óperu, en að það hafi aldrei „smollið saman“. „Mér finnst erfitt að finna texta sem mig langar til að semja tónlist við. Helst finnst mér að hann þurfi að vera um stóru spurningarnar – ástina, dauðann og guð.“ Ólíklegt að óperan verði sett upp á Íslandi Haukur er ekki mjög vongóður um að hægt verði að setja óperuna „Fjórða söng Guðrúnar“ upp á Ís- landi. „Það þyrfti að vera eitthvert stórt, hrátt, yfirbyggt svæði, en ég á erfitt með að sjá fyrir mér að hægt verði að nota vatnið með sama hætti og var gert í Kaup- mannahöfn. Það yrði mikil vinna að laga verkið og breyta til samræmis við aðrar aðstæður“. Haukur hefur nýlega lokið verki fyrir Orkester Norden, sem er hljómsveit tónlistarnema frá öllum norrænu ríkjunum. Hann hefur einnig í hyggju að semja verk fyrir danska söngkonu sem á sínum tíma tók þátt í uppfærslunni á „Fjórða söng Guðrúnar“. Einnig stendur til að hann semji verk fyrir kór. Haukur segir að tónlistarverð- laun Norðurlandaráðs séu mikil- væg viðurkenning, en hann efast um að þau hafi mikið að segja á al- þjóðavettvangi utan Norðurlanda. Hann segist vonast til þess að verð- launin verði til þess að vekja at- hygli á honum á Norðurlöndum þannig að tónlistarhópar taki eldri verk hans til flutnings og panti ný. Verðlauna- verkið frum- flutt í skipakví Haukur Tómasson tónskáld hlýtur tónlist- arverðlaun Norðurlandaráðs árið 2004 fyrir óperuna „Fjórði söngur Guðrúnar“, sem frumflutt var í friðlýstri skipakví fyrir átta árum. Helgi Þorsteinsson sat fjölsótt- an blaðamannafund í Kaupmannahöfn þar sem tilkynnt var um verðlaunaveitinguna. Morgunblaðið/Helgi Þorsteinsson Danski leikmyndahönnuðurinn Louise Beck fékk Hauk Tómasson til liðs við sig fyrir tíu árum til að setja upp óperu í gamalli skipakví. DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra opnaði í gær sögusýningu í útibúi Íslandsbanka í Lækjargötu, í til- efni aldarafmæli bankans, en Ís- landsbanki gamli hóf störf 7. júní 1904. Sýningin er haldin í öllum 28 útibúum bankans víðs vegar um landið og stendur til 9. júlí. Bjarni Ármannsson, forstjóri Ís- landsbanka, segir að öllum sé nauðsynlegt að þekkja uppruna sinn „því þykir okkur við hæfi að rifja upp aldarlanga fjármálasögu bankans á þessum tímamótum, sögu sem sýnir að við sem skipum Íslandsbankasveitina í dag stönd- um traustum fótum íslensku at- vinnu- og fjármálalífi og byggjum á traustum grunni og áratuga reynslu fyrirrennara okkar.“ Slegið á létta strengi Davíð Oddsson ávarpaði sam- komuna og sagði að þetta væri bæði merkileg og hátíðleg stund í sögu lands og þjóðar. Hann sló á létta strengi með því að lesa gamla úttekt bankans þar sem út- listaðar voru eigur bankans, allt frá eikarborði til hrákadalla. Hann fór stuttlega yfir sögu bank- ans og stjórnmála og minntist á það að árið 1909 hefði Hannes Hafstein hætt sem ráðherra og gerst einn af bankastjórum Ís- landsbanka. „Þetta er rétt að hafa í huga þegar menn hætta svona störfum,“ sagði Davíð og vísaði til þeirrar umræðu sem verið hefur um framtíð hans eftir að hann vík- ur sem forsætisráðherra. Bjarni Ármannsson sló einnig á létta strengi og sagðist vera „mun órórri“ eftir ræðu Davíðs og „hans framtíðaráform.“ Forsætisráðherra opnar sögusýningu í Íslandsbanka Merkileg og hátíð- leg stund Morgunblaðið/ÞÖK Kátt var á hjalla við opnun sögusýningar Íslandsbanka í Lækjargötu í gær. Davíð Oddsson forsætisráðherra var á meðal gesta og opnaði sýninguna. LÖGREGLAN á Ísafirði handtók mann fyrir að hafa hnífa á lofti er hann deildi við annan mann seint á sunnudagskvöld. Maðurinn, sem var ölvaður er at- vikið átti sér stað, var vistaður í fangageymslu lögreglunnar þar til í gær. Lögreglan segir að málið sé lit- ið alvarlegum augum þar sem vopn voru til staðar. Hnífunum var þó ekki beitt og enginn slasaðist. Með hnífa á lofti á Ísafirði

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.