Morgunblaðið - 08.06.2004, Page 15
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2004 15
1.482.-
TRAVENO
Frábærir stuðningssokkar.
Þvottanet frá The First
Years – hentugt fyrir
þvott, ferðalög o.fl.
T
ilb
o
ð
in
g
ild
a
ti
l 1
5.
6.
2
00
4
G
O
T
T
F
Ó
LK
M
cC
A
N
N
·
S
ÍA
·
2
6
5
1
0
VIELLE
Nýjung sem sló í gegn í Bretlandi.
Unaðsbjörgin er dásamlega einföld og
frábær lausn á fullnægingarvanda kvenna.
Venjulegt verð: 1.990 kr.
Ég sé að þið eigð
ýmsar nauðsynjar
fyrir ferðalagið.
Þvottanet
fylgir með
Traveno ferða-
sokkum
1.490
25%
B-1 TÍAMÍN
Örvar blóðrásina og bætir meltinguna.
Frábært í ferðalagið.
HVÍTLAUKS-
TÖFLUR
Kærkomin fæðubót sem
styrkir ónæmiskerfið.
Ferðalag út úr bænum (þ.á.m. sundlaugarferð) í lok hvers námskeiðs.
Ferðin er frá kl. 09.30 - 17.00.
Kennarar eru m.a. Broddi Kristjánsson íþróttakennari,
Írena Óskarsdóttir íþróttafræðingur,
Jónas Huang badmintonþjálfari,
Arnar Bill Gunnarsson íþróttafræðingur,
Árni Þór Hallgrímsson badmintonþjálfari o.fl.
Innanhúss: Badmintonkennsla, borðtennis, minni tennis, körfubolti, bandý
og leikir
Úti (við TBR-hús og í Laugardalnum): Knattspyrna, sund, frjálsar íþróttir
á Laugardalsvelli, t.d. spretthlaup, langstökk, spjótkast, kúluvarp og hástökk.
Leikir, svo sem hafnabolti, ratleikur o.fl.
Farið er í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í Laugardal
Upplýsingar og innritun í TBR húsinu Gnoðavogi 1 og í síma 581 22 66.
Sumarskóli TBR 2004
Íþróttaskóli fyrir 6 - 13 ára börn í sumar
Námskeiðin eru virka daga kl. 9-13 eða kl. 13-17.
Fjölbreytt íþróttakennsla á dagskrá með áherslu á badminton.
1. 11. júní - 25. júní
2. 28. júní - 9. júlí
3. 12. júlí - 23. júlí
4. 3. ágúst - 16. ágúst
Námskeiðin eru 10 virka daga í senn sem hér segir:
Verð er kr. 7800. Skipt er í hópa eftir aldri.
Veittur er systkinaafsláttur.
Einnig er veittur afsláttur ef farið er á fleiri
en eitt námskeið.
FYRSTA opinbera útför Banda-
ríkjaforseta í rúm þrjátíu ár fer fram
á föstudaginn þegar fertugasti for-
seti Bandaríkjanna, Ronald Reagan,
verður borinn til grafar.
Jarðneskar leifar hans munu
liggja í þinghúsinu í Washington og
mun almenningur geta vottað hon-
um virðingu sína.
George Bush, fyrrverandi vara-
forseti Reagans og síðar Bandaríkja-
forseti, mun halda ræðu honum til
heiðurs ásamt syni sínum, núverandi
forseta, í dómkirkjunni í Wash-
ington, að sögn eins skipuleggjenda
útfararinnar.
Reagan vildi sjálfur að útför sín
færi fram bæði í Kaliforníu, þar sem
hann hóf leikferil sinn og í Wash-
ington þar sem hann sat út tvö kjör-
tímabil sem forseti. Reaganhjónin
hófu skipulagningu útfararinnar árið
1981 þegar hann tók við embætti for-
seta og hefur lítill hópur fjölskyldu-
vina séð um að halda því starfi
áfram.
Útförin mun taka tæpar 46
klukkustundir þar sem kista Reag-
ans verður flutt frá Kaliforníu til
Washington. Að lokinni viðhafnar-
dagskrá verður kistan flutt á hest-
vagni að þinghúsinu í Washington
þar sem hún mun liggja á viðhafn-
arbörum. Almenningur mun hafa að-
gang að henni á fimmtudag og getur
þá vottað virðingu sína.
Að morgni föstudags verður kist-
an flutt að dómkirkjunni í Wash-
ington þaðan sem Reagan verður
jarðsunginn. Reaganhjónin ákváðu
sjálf hvaða tónlist skyldi leikin við at-
höfninga og völdu einnig ræðumenn.
Jarðsetningin sjálf mun loks fara
fram í Kaliforníu og mun Reagan
hvíla í garði Reagansafnsins í Simi-
dal. Opinberar skrifstofur verða lok-
aðar í Bandaríkjunum á föstudag,
nema þær sem varða þjóðaröryggi.
Reuters
Bandarískur sjóliði vottar hinum látna forseta virðingu sína fyrir framan
bráðabirgðaminnisvarða við Reagansafnið í Kaliforníu.
Útför Reagans
undirbúin
Washington. Los Angeles Times.
YFIRVÖLD í Íran hafa stóraukið of-
sóknir gegn pólitískum andstæðing-
um sínum og tilviljanakenndar hand-
tökur og pyntingar eru daglegt
brauð. Kemur þetta fram í nýrri
skýrslu frá mannréttindasamtökun-
um Human Rights Watch.
Í skýrslunni segir, að pólitískum
föngum sé misþyrmt í Evin-fangels-
inu í Teheran og öðrum leynilegum
fangelsum í höfuðborginni og svo hafi
verið síðan stjórnvöld hófu ofsóknirn-
ar fyrir fjórum árum. Sarah Whitson,
framkvæmdastjóri samtakanna fyrir
Mið-Austurlönd og Norður-Afríku,
segir það alrangt, að með umbótum í
Íran hafi verið bundinn endi á pynt-
ingar en ástandið sé hins vegar þann-
ig, að fréttamenn, menntamenn og
aðrir þori ekki lengur að gagnrýna yf-
irvöldin.
Fréttamenn og
rithöfundar flýja land
Í skýrslunni eru nefnd mörg dæmi
um mannréttindabrot, þar á meðal
handtökur, fangelsanir án réttar-
halda, pyntingar, einangrunarvist og
misþyrmingar. Harðlínuklerkarnir í
Íran hafa nú lokað næstum öllum
óháðum dagblöðum og nokkrir kunn-
ir blaðamenn og rithöfundar hafa flú-
ið land. Aðrir hafa verið fangelsaðir
og frammámenn meðal námsmanna
hræddir til að hætta friðsamlegum
mótmælum.
Í skýrslunni er m.a. rætt við rithöf-
unda og blaðamenn sem allir segja frá
margvíslegum pyntingum. Fangarnir
eru barðir, neyddir til að vera í óeðli-
legum stellingum í langan tíma,
hengdir upp á höndum eða fótum og
hótað lífláti játi þeir ekki á sig hvers
kyns sakir. Fari menn fram á að ræða
við lögfræðing er svarið að herða á
pyntingunum.
Human Rights Watch hvetur Evr-
ópusambandið til að þrýsta á írönsku
stjórnina en um miðjan þennan mán-
uð mun sendinefnd frá því ræða við
hana um mannréttindamál í Teheran.
Er sambandið sakað um að hafa sýnt
klerkunum linkind í þeim efnum.
Pynting-
ar sagðar
algengar
í Íran
New York. AFP.