Morgunblaðið - 08.06.2004, Side 23
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2004 23
HÉR ÁÐUR fyrr þurftu þeir karlar sem voru
sérstaklega stórir ævinlega að láta sérsauma á
sig föt og stórfættir áttu mjög erfitt með að fá á
sig skó. Gott dæmi þar um er maðurinn sem
notaði skó númer 47 og sagði að ef svo ólíklega
vildi til að hann rækist á skó sem pössuðu hon-
um í búð, þá keypti hann þá, jafnvel þó um væri
að ræða inniskó eða froskalappir.
Sem betur fer hefur þetta skánað og nú er
það svo að í nokkrum verslunum er hægt að
kaupa skó og flíkur í yfirstærð. Verslanir Hag-
kaupa eru til dæmis með skyrtur, létta jakka,
flíspeysur, gallabuxur, sportlegar buxur, póló-
boli og hlýraboli fyrir karla í stærðum upp í
2XXL (56–58). Þar er einnig hægt að fá jakka-
föt upp í stærð 64 og einstaka sportskó upp í
stærð 50. En Hanna Marta Kristensen, svæð-
isstjóri herradeildar Hagkaupa, segir úrvalið
vissulega minna í þessum stærðum því þessi
fatnaður seljist hægar en annar. „Þetta getur
verið mikið feimnismál og sumir hvísla „ég þarf
númer 58“ á meðan öðrum er alveg sama. Eins
verð ég vör við að mömmurnar koma þó nokkuð
að versla fyrir syni sína því þeir vilja ekki koma
sjálfir.“
Íslenska þjóðin fer stækkandi
Hildur Símonardóttir er annar eigandi hinnar
gamalgrónu Vinnufatabúðar á Laugaveginum,
en þau byrjuðu fyrir tveimur árum að bjóða upp
á flott föt í stórum stærðum fyrir unglingsstráka
og karla. „Íslenska þjóðin fer stækkandi og það á
við um bæði kynin. Erlendir hönnuðir virðast oft-
ast miða við að númer 34 sé stærsta stærðin og
þeir sem eru óvenju stórir eða langir, hafa fyrir
vikið þurft að sætta sig við mjög takmarkað úrval
í fatnaði. En auðvitað vilja þeir líka vera í flottum
fötum eins og allir hinir. Ungu strákarnir sem
þurfa föt í yfirstærðum eða föt í óvenjulegum
hlutföllum, fá sjaldnast eitthvað sem passar á þá í
vinsælustu tískubúðunum og upplifa því sumir
mikla höfnun og veigra sér jafnvel við að fara í
slíkar verslanir.“
Ánægðir viðskiptavinir
Hildur leggur áherslu á að ekki sé aðeins erfitt
fyrir yfirvigtarmenn að fá á sig föt, heldur einnig
fyrir þá sem eru mjög langir þótt þeir séu
kannski grannir. „Þeir sem nota buxur í sídd 36
eða yfir, eiga til dæmis erfitt með að fá á sig bux-
ur í vinsælustu búðunum,“ segir Hildur og bætir
við að þeir karlmenn sem komi í Vinnufatabúðina
og þurfi föt í yfirstærðum, séu mjög ánægðir við-
skiptavinir og komi aftur og aftur. „Þetta eru
ekki aðeins unglingar heldur líka ungir menn á
aldrinum 30–40 ára, sem hafa kannski ekki feng-
ið á sig jakka í mörg ár. Við erum líka með flott
æfingaföt og teljum það hvetjandi fyrir karla
sem vilja taka sig á og fara í ræktina eða stunda
einhverjar íþróttir. Við leggjum líka áherslu á að
hafa þessi föt á sama verði og önnur, en víða
tíðkast að fatnaður í stærð 58 og þar yfir, sé 20%
dýrari, en okkur finnst það helbert óréttlæti.“
Vaxtarræktarmenn þurfa líka föt
Guðmundur Kárason opnaði ásamt fjölskyldu
sinni verslunina High and Mighty í Hlíðarsmára
haustið 2002, en svo heitir verslunarkeðja sem
sérhæfir sig í stórum karlmannsfötum. „Þörfin
fyrir svona sérverslun er mikil hér á landi því ég
tel að 15–20% íslensku þjóðarinnar þurfi föt í yf-
irstærð. Ég er sjálfur nokkuð stór og mikill
maður og ég var orðinn leiður á að geta aðeins
keypt nærbuxur og sokka í minni stærð þegar
ég fór að kaupa föt í bænum,“ segir Guðmundur
sem býður í verslun sinni upp á fatnað fyrir karl-
menn sem eru hærri og breiðari en meðal-
Jóninn, sem og hærri og grennri eða minni og
breiðari. „Vaxtarræktarmenn koma mikið hing-
að til að fá á sig föt, því þeir eru í dálítið öðrum
hlutföllum en flestir aðrir, til dæmis eru þeir oft
mjög breiðir um axlir og brjóst en grannir um
mittið. Af þessum sökum eiga þeir oft erfitt með
að fá á sig skyrtur. Meðalmaður notar 17,5
tommur í hálsmál á skyrtu en vaxtarrækt-
armenn þurfa sumir allt að 23 tommur um háls-
inn.“
Sérstök lína fyrir unglingsstráka
Í High and Mighty er hægt að fá flott föt í
virtum merkjum eins og Y.S.L, Martinique og
Ben Sherman. „Við seljum mikið af gallabuxum
frá Pierre Cardin sem er merki í sambærilegum
klassa og Boss. Svo erum við með jakkaföt og
fínni föt fyrir karla allt frá 17 ára aldri, en ungu
strákarnir halda sumir að þessi verslun sé ein-
göngu fyrir „gamla karla“, sem er hinn mesti
misskilningur. Við erum með sérstaka línu fyrir
unglinga sem heitir Kayak og hentar mönnum
alveg upp í fertugt og því til staðfestingar get ég
sagt frá því að hingað kom eitt sinn þingmaður
til að kaupa sér föt fyrir safaríferð í Afríku og
hann gekk héðan út í Kayak-fötum.“
Í High and Mighty er hægt að fá skó allt upp í
númer 52 og Guðmundur segir mjög gefandi að
sinna þeim hópi manna sem þurfa föt og skó í yf-
irstærð. „Sumir hafa alltaf þurft að láta sér-
sauma á sig og eru mjög glaðir að geta keypt
flott föt sem passa. Svo eru alltaf einhverjir sem
koma hér inn mjög neikvæðir í fyrsta sinn og
eru fyrirfram sannfærðir um að þeir fái ekkert á
sig, en brúnin á þeim léttist þegar þeir fara að
máta.“
TÍSKA
Stórir strákar
í flottum
fötum
Karlar sækjast eftir flottum
fötum, ekki síður en konur, en
þeir sem eru að einhverju leyti
öðruvísi en fjöldinn í laginu
eiga oft erfitt með að fá á sig
föt. Kristín Heiða Krist-
insdóttir spjallaði við fólk sem
segir það þakklátt starf að af-
greiða stóra stráka.
khk@mbl.is
Morgunblaðið/Þorkell
Stór maður: Gaui litli klæðist hér sumarlegum
fötum úr Vinnufatabúðinni.
Hávaxinn: Guðmundur Kárason, einn af
eigendum High and Mighty, er virðulegur í
jakkafötum úr verslun sinni.
Partner : P4046SD
Briggs and Stratton : 4,0 Hö
Afturdrif
www.slattuvel.com
Faxafeni 14 : Sími 5172010
Tilboð
29.900.-
Tilboð
22.900.-
Partner : P3546S
Briggs and Stratton 3,5 Hö
s: 894 3000 - 894 3005
Túnþökur
Ná úruþökur
Túnþökurúllur
únþökulagnir
Áratuga reynsla og þekking
Iðnaðarmenn af
öllum stærðum
og gerðum
1 4 4 4
1 4 4 4
w w w. g u l a l i n a n . i s
Gróður og garðar