Morgunblaðið - 08.06.2004, Page 24
LISTIR
24 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Kaffi Reykjavík, Vest-
urgötu 2, kl. 21 Á Skálda-
spírukvöldi lesa úr verkum
sínum Hlín Agnarsdóttir og
Guðmundur Andri Thorsson.
Ólafur Gunnarsson, Anna
Pálína Árnadóttir og Bene-
dikt S. Lafleur lesa úr skáld-
sögum. Ágústína Jónsdóttir
les ljóð og Gunnar Dal les úr
nýútkomnu hækusafni.
Landsbókasafn Íslands
- Háskólabókasafn Opn-
uð hefur verið sýningin
Handband á Íslandi 1584-
2004. Um er að ræða litla
sögulega sýningu um
handband á Íslandi frá
útgáfu Guðbrandsbiblíu
1584 til vorra daga. Sýn-
ingin stendur til 31.
ágúst.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Anna Pálína
Árnadóttir
KRISTÍN Björg Ragnarsdóttir
fiðluleikari og Anna Guðný Guð-
mundsdóttir píanóleikari koma fram
á tónleikum í Listasafni Sigurjóns í
kvöld kl. 20.
Þetta eru fyrstu einleikstónleikar
Kristínar Bjargar hér á landi síðan
hún hélt til framhaldsnáms í fiðluleik
við Brooklyn College, City Univers-
ity of New York árið 2000, en hún
lauk námi við Tónlistarskólann í
Reykjavík árið 1999, þar sem Guðný
Guðmundsdóttir var aðalkennari
hennar. „Fyrstu tvö árin í New York
sótti ég einkatíma hjá Gerald Beal,
en hóf síðan nám við CUNY hjá
Masao Kawasaki, og lauk þaðan
mastersgráðu,“ segir Kristín í sam-
tali við Morgunblaðið.
Á efnisskrá tónleikanna eru són-
ötur eftir J.S. Bach og Beethoven,
Sonatensatz eftir Brahms, Vetrartré
eftir Jónas Tómasson og Introduct-
ion og Rondo Capriccioso eftir
Saint-Saëns. „Ég reyndi að hafa efn-
isskrána fjölbreytta og hafa þar tón-
list frá sem flestum tímabilum,
barokk, rómantík og 20. aldar tón-
list. Verk Saint-Saëns á einna best
við mig, það er tæknilega mjög erfitt
en ofboðslega fallegt og skemmtilegt
um leið. Svo stendur Bach alltaf fyr-
ir sínu,“ segir Kristín en bætir við að
Beethoven og Brahms séu líka á
meðal hennar eftirlætistónskálda.
Verkinu Vetrartrjám kynntist
Kristín í gegn um fiðlukennara sinn
hér heima, Hlíf Sigurjónsdóttur.
„Verkið var samið fyrir hana árið
1983, að ég held. Ég hafði hlustað á
það og það náði svo vel til mín. Ég
leik tvo kafla úr því.“
Í sumar hefur Kristín hlotið styrk
til þess að fara á níu vikna námskeið
á Aspen Music Festival. „Þegar því
lýkur fer ég aftur til New York, þar
sem ég verð að minnsta kosti í eitt ár
í því sem kallast verkleg þjálfun.“
Morgunblaðið/Eggert
Kristín Björg Ragnarsdóttir heldur í kvöld fyrstu einleikstónleika sína hér-
lendis eftir framhaldsnám í Bandaríkjunum í Listasafni Sigurjóns Ólafs-
sonar ásamt Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur píanóleikara.
Bach stendur
alltaf fyrir sínu
NÆSTKOMANDI fimmtudag hefst
kórastefna við Mývatn, sem stendur
fram á sunnudag. Þetta er í annað
sinn sem kóra-
stefnan er haldin
þar og taka 160
kórsöngvarar
þátt í henni í ár,
úr Kór Bústaða-
kirkju, Kamm-
erkór Hafn-
arfjarðar, Kór
Egilsstaðakirkju
og Kór Akureyr-
arkirkju, auk
fjögurra þingeyskra kóra.
Kórastefnan er í umsjá Margrétar
Bóasdóttur söngkonu, sem fædd er
og uppalin í Mývatnssveit, og segir
hún stefnuna hafa vaxið upp af Sum-
artónleikum við Mývatn, sem haldnir
hafa verið undanfarin 16 ár. „Árið
2002 fékk ég styrk úr Menningar-
borgarsjóði til þess að hafa tónleika
með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
á Sumartónleikunum. Það hlóð utan
á sig og varð á endanum að tón-
leikum með kór og hljómsveit. Svo
reyndist þetta vera svo skemmtilegt
að sú hugmynd kom upp að halda
kórastefnu, sem við gerðum í fyrsta
sinn í fyrra,“ segir Margrét. „Það eru
alls konar tónlistar- og menningarhá-
tíðir haldnar yfir helgi hér á landi, en
engin þeirra einblínir á kóra. Við
þekkjum mjög vel til slíkra hátíða er-
lendis, þar sem kórar koma saman og
dagskráin byggist annars vegar á
tónleikum einstakra kóra og hins
vegar keppni eða sameiginlegu stór-
virki sem unnið er að. Þar sem ég hef
alla tíð verið mikil kórmanneskja og
kórsöngur er eins konar þjóðaríþrótt
Íslendinga, fannst mér kominn tími
til að bæta úr og skapa grundvöll fyr-
ir slíkri stefnu hérlendis.“
Viðeigandi staður
fyrir Sköpunina
Aðalviðfangsefni kórastefnunnar
að þessu sinni er Sköpunin eftir Jos-
eph Haydn, þar sem Sinfón-
íuhljómsveit Norðurlands leikur með
kórum og einsöngvurum. Tónleik-
arnir verða haldnir í íþróttahúsinu í
Reykjahlíð sunnudaginn 13. júní.
„Það að flytja Sköpunina á mjög vel
við á þessum stað – það má segja að
þar sé skaparinn enn að því þar kem-
ur stöðugt eitthvað úr iðrum jarðar,
og ýmsir bentu mér á þetta verk
Haydns til að flytja við þetta tæki-
færi. Þegar ég fór að skoða nóturnar
að kórþættinum komst ég að því að
það var alls ekki ógerlegt að flytja
þetta, með góðu fólki sem auðvitað
hefur undirbúið sig fyrirfram. Þegar
þetta allt kom saman var þetta al-
gjört draumaverk, enda telja margir
að þetta sé sú óratóría tónbók-
menntanna sem hefur verið oftast
flutt,“ segir Margrét og bætir við að
tónlistin sé afar myndræn og
skemmtileg, bæði fyrir þá sem flytja
og þá sem á hlýða. „Svo erum við
auðvitað með einvalalið einsöngvara,
Gunnar Guðbjörnsson tenór, Berg-
þór Pálsson bariton, Jóhann Smára
Sævarsson bassa, sem kemur gagn-
gert frá Þýskalandi til að taka þátt í
flutningnum og Huldu Björk Garð-
arsdóttur sópran, auk mín.“
Mývatn hentar vel
Opnunartónleikar kórastefnunnar
verða fimmtudagskvöldið 10. júní í
félagsheimilinu Skjólbrekku, þar
sem þingeyskir kórar ásamt ein-
söngvurum flytja tónlist eftir sr. Örn
Friðriksson, en í sumar eru fimmtíu
ár liðin síðan hann kom fyrst til
starfa sem prestur og síðar prófastur
í Mývatnssveit. „Þetta er þingeyskt
kvöld, þar sem fram koma Kór
Reykjahlíðarkirkju, Kór Skútustaða-
kirkju, Kór Húsavíkurkirkju og
Karlakórinn Hreimur. Kórarnir
flytja tónlist sr. Arnar, en hann hefur
alla tíð stundað tónsmíðar í frí-
stundum.“ Föstudaginn 11. júní
verða svo aðkomukórarnir fjórir með
sameiginlega tónleika í Skjólbrekku
og verður haldið hlöðuball í
Ferðamannafjósinu í Vogum að því
loknu.
Að sögn Margrétar er Mývatn og
nágrenni kjörið til kórastefnuhalds
af þessu tagi. „Þetta er náttúrlega
eitt fallegasta umhverfi sem um
getur. Þarna er fín aðstaða, gisti-
þjónusta víða og fínt félagsheimili
með góðum flygli. Síðan er þar
íþróttahús, sem hljómar merkilegt
nokk ansi vel og þar við hliðina er
mjög falleg og rúmgóð grunn-
skólabygging, þar sem er matar- og
geymsluaðstaða. Þar fyrir utan er
auðvitað mjög fín afþreying í boði, til
dæmis er verið að opna þessi stór-
kostlegu gufuböð og blátt lón, þar er
hægt að fara í golf og ganga á fjöll án
þess að þurfa mikinn útbúnað. Þann-
ig að fólki er alls ekki í kot vísað í
Mývatnssveit, sem er þar fyrir utan
eitt veðursælasta svæði landsins,“
segir hún.
Alls taka rúmlega 300 manns þátt í
kórastefnunni, bæði hljóðfæraleik-
arar og söngvarar. Margrét segist
telja að ferðamenn og fólk úr ná-
grannasveitum muni ekki láta þetta
tækifæri fram hjá sér fara. „Við get-
um tekið á móti um 400 áheyrendum
og ég á ekki von á öðru en þetta verði
vel sótt, enda hafa bæði Þingeyingar
og Akureyringar haft orð á sér fyrir
að vera mjög menningarlegir. Það
hefur auðvitað aldrei verið flutt neitt
af slíkri stærðargráðu á þessum stað
fyrr og Guðmundur Óli með Sinfón-
íuhljómsveit Norðurlands er löngu
búinn að sanna að hann er góður
skipstjóri á svona stórum bát sem
slíkt verkefni er. Þannig að við erum
afar bjartsýn og hlökkum mikið til,“
segir Margrét Bóasdóttir að lokum.
Kórastefna við Mývatn 10.–13. júní
Kórsöngur er
þjóðaríþróttin
Morgunblaðið/ÞÖK
Kammerkór Hafnarfjarðar og Kór Bústaðakirkju eru meðal þátttakenda í kórastefnunni á Mývatni.
Margrét Bóasdóttir
MENNINGARSTEFNA Hafnar-
fjarðarbæjar var samþykkt í bæjar-
stjórn nýverið og kynnti Marín
Hrafnsdóttir, menningar- og ferða-
málafulltrúi Hafnarfjarðar, stefnuna
í gær. Liður í menningarstefnunni er
að festa Bjarta daga, lista- og menn-
ingarhátíð Hafnarfjarðar, í sessi og
kynnti Marín jafnframt dagskrá há-
tíðarinnar, sem fram fer dagana 12.–
23. júní.
Bæjarlistamaður frá 2005
Í menningarstefnunni er lögð rík
áhersla á fjölbreytileika – að allir fái
notið menningar, óháð aldri, kyni og
menningarhóp. Sérstaklega er kveð-
ið á um að menningarstofnanir ræki
hlutverk sitt í menningar- og listupp-
eldi barna og áhersla lögð á leiðandi
hlutverk menningarstofnana í bæn-
um. „Við leggjum áherslu á að allir
fái notið menningar, börn, unglingar,
aldraðir og allt þar á milli, þannig að
það sé eitthvað fyrir alla,“ sagði
Marín.
Marín fagnaði útgáfu nýútkomins
bæklings um menningarstefnuna,
sem hún sagði þó byggða á gömlum
merg. „Það er búið að taka mörg ár
að vinna þessa stefnu í samvinnu við
ólíka aðila. Við erum nú komin með í
hendur plagg, sem mun að sjálf-
sögðu hjálpa okkur að missa ekki
sjónar á því sem við erum að gera og
hjálpa okkur að stefna í rétta átt,“
sagði hún, en í menningar- og ferða-
málanefnd Hafnarfjarðar sitja Sím-
on Jón Jóhannsson, Guðrún Gunn-
laugsdóttir og Snædís Baldursdóttir.
Sú nýjung var jafnframt sam-
þykkt í menningarstefnunni að val-
inn verður bæjarlistamaður Hafnar-
fjarðar frá og með árinu 2005.
Ný íslensk kvikmynd frumsýnd
Bjartir dagar eru haldnir öðru
sinni í ár, en hátíðin var einnig haldin
síðasta sumar. Líkt og í menning-
arstefnunni er lögð sérstök áhersla á
þátttöku barna og unglinga á hátíð-
inni og því til staðfestingar fór kynn-
ingarfundurinn fram í Gamla bóka-
safninu, menningar- og kaffihúsi
fyrir ungt fólk, sem opnað var í
fyrra. Mun stór hluti dagskrár
Bjartra daga fara fram í húsinu og
umhverfis það.
Meðal atburða á Björtum dögum
eru uppskeruhátíð félagsmiðstöðv-
anna, tónleikar nær öll kvöld í Hafn-
arborg og víðar, sýning á vegum
Góðtemplarareglunnar í Gúttó, sýn-
ing Sigurbjargar Karlsdóttur hjá
Halla rakara þar sem skyggnst verð-
ur inn í álfheima, stórir útitónleikar
við gamla Lækjarskóla hinn 22. júní
og frumsýning á nýrri íslenskri kvik-
mynd, Konunglegt bros. Útivist og
hreyfing skipa jafnframt stóran sess
í viðburðum hátíðarinnar, en loka-
punktur hennar verður Jónsmessu-
gleði, sem haldin er að kvöldi 22. júní
í Hellisgerði.
Menningarstefna Hafnarfjarðar og Bjartir dagar kynnt
Börn og unglingar í fyrirrúmi
Morgunblaðið/ÞÖK
Menningarstefna Hafnarfjarðar og dagskrá lista- og menningarhátíð-
arinnar Bjartra daga, sem fram fer 12.–23. júní, var kynnt í gær.