Morgunblaðið - 08.06.2004, Page 41
MENNTASKÓLINN í Kópavogi
brautskráði 215 nemendur 21.
maí síðastliðinn. Í apríl voru út-
skrifaðir 16 nemendur úr tveggja
ára námi í viðskipta- og fjár-
málagreinum svo að samtals hef-
ur skólinn útskrifað 231 nemanda
á þessu ári.
Fagnaði 30 ára afmæli
Skólinn fagnaði 30 ára afmæli
sínu í september sl. og í máli Mar-
grétar Friðriksdóttur skólameist-
ara kom fram að á þessum þrjátíu
árum hefur námsbrautum fjölgað
úr þremur í tuttugu og tvær og
nemendum úr 110 í 1.250.
Forseti bæjarstjórnar, Halla
Halldórsdóttir, afhenti útskrift-
arnemum viðurkenningar úr Við-
urkenningasjóði MK sem stofn-
aður var af Kópavogsbæ 1993.
Viðurkenningarnar hlutu: Stúd-
entarnir Þuríður Eiríksdóttir og
Eyjólfur Berg Axelsson, iðnnem-
arnir Sveinn Sævar Frímannssson
og Hrefna Rósa Jóhannsdóttir og
Ásta Vilborg Njálsdóttir sem út-
skrifaðist af skrifstofubraut. Þá
hlaut Þuríður Eiríksdóttir styrk
frá Sparisjóði Kópavogs og frá
Rótarýklúbbi Kópavogs fyrir góð-
an námsárangur. Sveinn Sævar
Frímannsson hlaut jafnframt
styrk frá Rótarýklúbbnum fyrir
góðan námsárangur í iðnnámi.
Brautskráning í MK
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2004 41
"
#
#
! $
%
" "
& '
# %
"
#
% ( !
!"
#$! %
&
)
*+, -./. " ,0..
-0..! 1
#"
0 2
! '()&
$
) ! $
*
+,' -
. - /01,2'
%
!
" -0.. 3
40..! 5 ! /6!...!3
. - /01,2'
%
!
" 40.. 3
+0/.! 5 ! *!...!3
/01,2'
/
(
77!
"
+0/. 3 6.0..! 5 ! 6!...!3
1)89:;< 3 =>& ?;8 3 @A9)8B85 3 A1 C:98 3 &<985;<
HÓLMGEIR Baldursson, fyrrver-
andi framkvæmdastjóri Íslenska
sjónvarpsfélagsins ehf., hefur sent
frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:
„Vegna umræðu fjölmiðla um
eignaraðild ýmissa aðila að Íslenska
sjónvarpsfélaginu ehf. á árinu 1999,
skal það áréttað að gerðir voru 2
kaupsamningar um sölu á hlutum
mínum í Íslenska sjónvarpsfélaginu
ehf., sá fyrri þann 16. júlí 1999, þar
sem kaupendur voru þeir Eyþór
Arnalds, Árni Þór og Kristján Ragn-
ar. Þá stóð til að undirritaður yrði
áfram starfandi hjá félaginu í sam-
starfi við ofangreinda aðila, en vegna
samstarfsörðugleika ákvað ég að
óska eftir að óselt hlutafé mitt í fé-
laginu yrði keypt, og var það gert
þann 20. september 1999, og voru
kaupendur þá Suðurljós ehf., sem
mér skildist að væru í eign sömu að-
ila.
Þá verður að harma þá umfjöllun
sem beinist að félaginu sjálfu, en því
er nú stýrt í dag af aðilum sem eru
máli þessu óviðkomandi, og ekki
annað að sjá en að annarleg sjón-
armið skýri það að nafn sjónvarps-
stöðvarinnar og hlutafélagsins sem
hana rekur séu sífellt færð í tal
vegna málsins. Þeir athafnamenn
Árni Þór og Kristján ráku á sama
tíma fjölmörg önnur félög sem
tengdust þeim, en af umfjöllun má
helst skilja að þeir viðskiptafélagar
hafi í raun stofnað hlutafélagið og
sjónvarpsstöðina sem félagið rak.
Það er alrangt, enda tala samningar
um kaup þeirra á hlutum í rekstr-
arfélaginu sínu máli, og leiðréttist
það því hér með.“
Fyrrverandi framkvæmdastjóri
Íslenska sjónvarpsfélagsins
Harmar um-
fjöllun sem bein-
ist að félaginu
Kvöldganga í Viðey Í fyrstu kvöld-
göngu sumarsins mun Örvar B. Ei-
ríksson sagnfræðingur fjalla um
Viðey frá 10. öld og fram á þá 20.
Lagt verður af stað með Viðeyj-
arferjunni frá Sundahöfn kl. 19.30.
Gangan tekur u.þ.b. tvær klukku-
stundir og kostar 500 kr. fyrir full-
orðna en 250 kr. fyrir börn. Ef þátt-
taka er nægileg verður kaffisala í
Stofunni í lok göngunnar.
Nýtt hugleiðslunámskeið hjá
Karuna búddamiðstöðinni verður
dagana 8., 15., 22. og 29. júní og 6.
júlí. Námskeiðið ber titilinn „Vakn-
aðu brosandi“ og verður kl. 20–
21.15. Kennari verður enska búdd-
anunnan Ani-La Nyingpo.
Skiptið kostar 1.000 kr. en 600 kr.
fyrir nema. 20% afsláttur er ef greitt
er fyrir heilt námskeið.
Í DAG
Fundur um pólitískt hlutverk for-
seta Íslands Sagnfræðingafélag Ís-
lands og Félag stjórnmálafræðinga
boða til fundar á morgun, miðviku-
daginn 9. júní, um pólitískt hlutverk
forseta Íslands frá stofnun lýðveldis
til okkar daga. Fundurinn verður
haldinn í ReykjavíkurAkademíunni,
Hringbraut 121 (gamla JL-húsinu)
og stendur frá 12–13.30. Þrír fram-
sögumenn flytja erindi á fundinum:
Svanur Kristjánsson, prófessor í
stjórnmálafræði við Háskóla Ís-
lands, Guðni Th. Jóhannesson, sagn-
fræðingur við Hugvísindastofnun
Háskóla Íslands, og Sveinn Helga-
son, fréttamaður á Ríkisútvarpinu.
Fundarstjóri verður Birgir Her-
mannsson stjórnmálafræðingur. Að
framsögum loknum verða umræður
og fyrirspurnir.
Bifhjólasamtök lýðveldisins
Sniglarnir boða til fundar á morg-
un, miðvikudag, í kjölfar tveggja
hörmulegra banaslysa bifhjóla-
manna. Ágúst Mogensen hjá Rann-
sóknarnefnd umferðarslysa mun
ræða við bifhjólamenn um þessa at-
burði á fundinum sem hefst kl. 20 og
verður haldinn í húsakynnum Snigl-
anna.
Á MORGUN
Fyrirlestur um geð- og þroska-
raskanir leikskólabarna verður
haldinn föstudaginn 11. júní kl. 12–
13 í Lögbergi, stofu 101, Háskóla Ís-
lands. Rektor Háskóla Íslands,
Barnarannsóknir og sendiráð
Frakklands á Íslandi standa fyrir
opnum fyrirlestri prófessors Eric
Fombonne um geð- og þroskarask-
anir leikskólabarna. Fyrirlesturinn
verður fluttur á ensku.
Fombonne mun í fyrirlestri sínum
fjalla um tíðni, helstu áhættuþætti
og undirliggjandi orsakir geð- og
þroskaraskana sem greina má hjá
leikskólabörnum.
Á NÆSTUNNI
MINNINGABÓK fyrir þá sem óska
að votta samúð sína vegna andláts
Ronalds W. Reagan, fyrrverandi for-
seta Bandaríkjanna, mun liggja
frammi í anddyri sendiherrabústað-
arins að Laufásvegi 23, í dag, þriðju-
dag, og á morgun, miðvikudag, kl.
10–11.30.
Minningabók
vegna andláts
Ronalds
Reagan
♦♦♦