Morgunblaðið - 08.06.2004, Side 42
DAGBÓK
42 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Fannborg
5. Lokað vegna sum-
arleyfa, opnað aftur
þriðjudaginn 10.
ágúst kl. 16.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
bað og vinnustofa, kl.
9 jóga, kl. 13 postu-
línsmálun.
Árskógar 4. Kl. 9–12
bað og handavinna,
kl. 9–12.30 bókband,
kl. 9 leikfimi, kl. 9.30
dans, kl. 9.45 boccia,
kl. 13–16.30 smíðar,
kl. 20.30 línudans.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8.30–14.30 bað, kl. 9–
9.45 leikfimi, kl. 9–16
handavinna, kl. 15
boccia.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9–
16.45 hárgreiðslu-
stofan opin, kl. 9–14
aðstoð við böðun, kl.
14 félagsvist, púttvöll-
urinn opinn.
Félagsstarfið Dal-
braut 27. Kl. 8–16
handavinnustofan op-
in og vefnaður, kl.
13.30 myndband.
Félagsstarfið Furu-
gerði 1. Kl. 9 aðstoð
við böðun, kl. 12.40,
Bónusferð og kl. 13,
spilað.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Vinnustof-
an opin miðviku-,
fimmtu- og föstudag
með leiðbeinanda til
15. júní. Púttvöllurinn
opinn. Böðun mánu-
og fimmtudaga.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Sameig-
inleg kvennaleikfimi í
Smáranum kl. 11,
karlaleikfimi kl. 13.
Lokað í Garðabergi
e.h. en opið hús í
Kirkjuhvoli á vegum
kirkjunnar.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraun-
seli, Flatahrauni 3.
Kl. 10 ganga fyrir
alla, kl. 11.30 leikfimi,
kl. 14–16 pútt á
Hrafnistuvelli.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði.
Göngu-Hrólfar ganga
frá Ásgarði, Glæsibæ,
kl. 10.
Eigum laus sæti í
dagsferð 12. júní um
Dalasýslu Borgarnes,
Heydal, Eiríksstaði,
Höskuldsstaði, Búð-
ardal, Hjarðarholt,
Laugar í Sælingsdal,
Hvamm, Bröttu-
brekku. Kaffi og með-
læti í Munaðarnesi.
Uppl. í síma
588 2111. Sjálf-
boðaliðar ath. pökkun
á blaðinu Listin að
lifa hefst á miðviku-
dag kl. 10 í Ásgarði,
Glæsibæ.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar, í
dag farið í heimsókn í
Emskipafélagshúsið í
Pósthússtræti, farið í
kaffi í Ráðhúsið mæt-
ing í Gerðubergi kl.
12.45.
Gjábakki, Fannborg
8. Kl. 10–17 handa-
vinna, kl. 14 ganga,
kl. 14.45 boccia, kl. 19
brids.
Gullsmári, Gullsmára
13. Félagsþjónustan
er opin alla virka
daga frá kl. 9–17.
Handavinnustofan er
opin frá kl. 13–16.
Hraunbær 105. Kl. 9
postulín , kl. 10
boccia, kl. 11 leikfimi
, kl. 12.15 versl-
unarferð.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9. 30 boccia, kl. 9–
16.30 handavinna, kl.
13.30 helgistund.
Langahlíð 3. Kl.
11leikfimi, kl. 13
föndur og handa-
vinna.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa,
kl. 9 hárgreiðsla, kl.
10–11 boccia, kl. 14
leikfimi.
Vesturgata 7. Kl. 9–
10.30 setustofa, dag-
blöð og kaffi, kl. 9.15–
16 postulínsmálun, kl.
9–15.30 hannyrðir, kl.
13–16 frjáls spila-
mennska.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9.30 gler-
skurður og morg-
unstund, kl. 10 leik-
fimi, kl. 13
handmennt, og postu-
lín, kl. 14 félagsvist.
Þjónustumiðstöðin
Sléttuvegi 11. Kl. 10–
12 verslunin opin, kl.
13–16 keramik, tau-
málun, föndur, kl. 15
bókabíllinn.
Félag eldri borgara í
Gjábakka. Spilað
brids kl. 19 þriðjud.
og kl. 13.15 föstud.
Félag ábyrgra feðra.
Fundur í Shell-
húsinu, Skerjafirði kl.
20, svarað í s.
552 6644 á fund-
artíma.
Markarholt
Félagsmenn og
áhugafólk. Við minn-
um á fund Reykjavík-
urborgar í kvöld kl.
20 í Vogaskóla við
Gnoðavog
Fundarefni: Fyr-
irhugaðar bygginga-
framkvæmdir í Mörk-
inni Sogamýri fyrir
eldra fólk.
Brúðubílar
Brúðubíllinn í
Reykjavík verður í
dag þriðjudaginn 8.
júní kl. 10 við Hlað-
hamra og á morgun,
miðvikudaginn 9. júní,
kl. 10 við Fífusel og
kl. 14 við Frostaskjól.
Brúðubíllinn í Kópa-
vogi verður á Holts-
velli í dag, þriðjudag-
inn 8. júní, kl. 14.
Í dag er þriðjudagur 8. júní, 160
dagur ársins 2004, Medardusdag-
ur. Orð dagsins: Gefið ekki hund-
um það sem heilagt er, og kastið
eigi perlum yðar fyrir svín. Þau
mundu troða þær undir fótum, og
þeir snúa sér við og rífa yður í sig.
(Mt. 7, 6.)
Víkverji skrifar...
Tilnefningar til Grímunnar, ís-lensku leiklistarverðlaunanna,
voru kynntar á dögunum en af-
hendingin verður á miðvikudaginn
í næstu viku. Fátt kemur þar á
óvart, tvær umtöluðustu sýningar
Þjóðleikhússins, Þetta er allt að
koma og Ríkarður þriðji, fengu
flestar tilnefningar, tíu og níu
talsins, og langstærsta verkefni
Leikfélags Reykjavíkur á leik-
árinu, Chicago, fékk átta, þó ekki
næði það inn á lista yfir „Sýningu
ársins“.
En tilnefning er eitt og verð-
laun annað, eins og sýning Þjóð-
leikhússins á Veislunni fékk að
reyna í fyrra. Sú sýning fékk ell-
efu tilnefningar en hlaut aðeins
tvenn verðlaun þegar upp var
staðið. Ótvíræður sigurvegari þá
var sýning leikhópsins Á senunni,
Kvetch, sem var valin sýning árs-
ins, auk þess að hreppa sig-
urlaunin fyrir leikstjórn, bestu
leikkonu í aðalhlutverki og besta
leikara í aukahlutverki.
x x x
Víkverji hefur ekkert við tilnefn-ingarnar að athuga nú, að einu
atriði undanskildu. Skýtur það
ekki skökku við að Baltasar Kor-
mákur sé tilnefndur í flokknum
„Leikskáld ársins“ fyrir Þetta er
allt að koma? Hann er þar til-
nefndur ásamt Hallgrími Helga-
syni. Baltasar er sannarlega höf-
undur leikgerðar en hæpið er að
flokka þá vinnu með leikritun –
frumsköpuninni sjálfri. Í huga
Víkverja er þetta tvennt ólíkt.
Fyrst þessi leið er farin hefði
flokkurinn frekar átt að heita
„Handrit ársins“. Það hefði líka
hreinlega verið hægt að bæta við
flokki undir yfirskriftinni „Leik-
gerð ársins“. Baltasar á vel heima
í báðum þessum flokkum.
Svo má auðvitað velta því fyrir
sér líka hvort Hallgrímur sé á
réttum bás. Hann er höfundur
sögunnar, sem leikritið byggist á,
en er hann höfundur leikritsins?
Það verður óneitanlega nokkuð
sérkennilegt ef þessir menn
standa uppi sem „leikskáld árs-
ins“.
x x x
Fimm sýningar eru tilnefndar tilGrímunnar sem „Sýning árs-
ins“, Þetta er allt að koma, Rík-
arður þriðji, Meistarinn og Marga-
ríta, Brim og Sporvagninn Girnd.
Sama dag voru vinsælustu sýn-
ingarnar að mati áhorfenda kynnt-
ar, en símakosning hefst á föstu-
dag og lýkur í beinni útsendingu í
sjónvarpinu 16. júní. Þar skaut,
merkilegt nokk, upp kollinum allt
annar listi: Chicago, Dýrin í
Hálsaskógi, Edith Piaf, Eldað með
Elvis og Grease.
Já, hann fer ekki alltaf saman,
smekkur leikra og lærðra.
Morgunblaðið/Þorkell
Þetta er allt að koma fékk flestar
tilnefningar til Grímunnar.
Fróðlegir þættir um
leikhúsbókmenntir
ÉG ER mjög fullorðin kona
og aðdáandi Ríkisútvarps-
ins. Áður fyrr bjó ég í
Reykjavík en er nú búsett
úti á landi. Fyrir nokkrum
árum heyrði ég fróðlega
þætti sem Trausti Ólafsson
flutti um leikhúsbókmennt-
ir og aðra slíka á liðnum
vetri. Væri ekki tilvalið að
fá meira af svo góðu efni því
nóg er af afþreyingarefn-
inu?
090121-7669.
Aðdróttanir og glósur
MIKIÐ er leiðinlegt að
heyra sífelldar glósur og
aðdróttanir fjölmiðla um
okkar frábæru ráðherra
sem hafa stjórnað landinu
okkar þannig að það er orð-
ið eitt mesta, ef ekki mesta
velferðarríki í heimi. Segir
það ekki sína sögu um
stjórn þeirra?
Kona.
Góð buff
ÉG HEF öðru hvoru síðan í
mars verið að borða græn-
metisbuffin hennar Sollu
og þykja mér þau býsna
góð. Einnig eru þau í
skemmtilegum neytenda-
pakkningum. Buffin koma
frá Móður Jörð í Vallanesi í
Fljótsdalshéraði og er um
að ræða lífræna íslenska
ræktun.
Valur.
Sammála Hafliða
HAFLIÐI Kristinsson
skrifaði grein í Morgun-
blaðið í gær undir fyrir-
sögninni „Hvað megum við
þá?“ Ég er sammála því
sem þar kemur fram og lýsi
undrun minni á því að
blaðamaður DV telji Hvíta-
sunnusöfnuðinn vera sér-
trúarhóp. Hann er það ekki
og slíkar aðdróttanir verða
að teljast alvarlegar. Þá
hefur Samhjálp unnið gott
starf og er framlag þeirra
mikilvægt.
Björg Jóhannsdóttir.
Húsbóndahollusta?
ÉG furða mig á því hvers
vegna umsjónarmenn þátt-
arins Ísland í bítið á Stöð 2
veigra sér við það að lesa úr
Morgunblaðinu. Þá grufla
þeir í öðrum blöðum sem
lítið er í. Getur verið að þeir
séu svona húsbóndahollir?
230626-4059.
Kannast þú
við lögin?
VIÐ íbúarnir í Sunnuhlíð í
Kópavogi komum saman til
að rifja upp gömul sönglög
og dægurlög.
Okkur vantar ýmsa texta
– svo dæmi séu tekin um
lög – frá Sí baba sí baba til
Tondeleió og lög sem voru
vinsæl á stríðsárunum.
Textarnir verða helst að
vera á íslensku. Og ekki
gleyma kabarettunum.
Þeir sem hafa ofangreind
lög undir höndum eru
vinsamlegast beðnir að
senda tölvupóst á
hrafn@mi.is.
H.S.
Tapað/fundið
Gleraugu
fundust
GLERAUGU í svörtu
hulstri fundust á leiðinni
upp í Salahverfi í Kópavogi.
Upplýsingar í síma
564 6448.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 sælgætinu, 8 grenjað, 9
veiðarfæri, 10 beita, 11
eldstæði, 13 fæddur, 15
malda í móinn, 18 hæsta,
21 dý, 22 kjaft, 23 við-
kunnanleg, 24 nafn á
sveitarfélagi.
LÓÐRÉTT
2 fyrirgangur, 3 þrautin,
4 áma, 5 sparsemi, 6 æsa,
7 hugboð, 12 næla,
14 meðal, 15 virða, 16
káta, 17 hindra, 18 eyja,
19 siðprúð, 20 skynfæri.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 þegar, 4 tækin, 7 fæðin, 8 ritan, 9 gæf, 11
reim, 13 öldu, 14 öflug,15 svöl, 17 nefs, 20 æra, 22 mán-
ar, 23 uggur, 24 rúmur, 25 taðan.
Lóðrétt: 1 þefur, 2 Guðni, 3 röng, 4 tarf, 5 ketil, 6
nunnu, 10 ætlar, 12 möl, 13 ögn, 15 semur, 16 ösnum, 18
engið, 19 sárin, 20 ærir, 21 aumt.
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html
Í fréttum Stöðvar 2 í fyrra-kvöld var skýrt frá því,
að skattrannsóknarstjóri
hefði sent forsvarsmönnum
Baugs frumskýrslu rann-
sóknar embættisins á skatt-
skilum fyrirtækisins. Í frétt
stöðvarinnar var aðdrag-
andi málsins rakinn að
hluta til og vikið að lög-
reglurannsókn, sem hófst
hjá sama fyrirtæki síðla
sumars 2002 „í kjölfar ásak-
ana fyrrverandi samstarfs-
félaga Baugs, Jóns Geralds
Sullenbergers á hendur
Jóni Ásgeiri Jóhannessyni,
sem þá var stjórn-
arformaður hlutafélagsins
Baugs, og Tryggva Jóns-
syni, þáverandi forstjóra
fyrirtækisins, um auðg-
unarbrot. Mikið vatn hefur
runnið til sjávar frá því að
rannsóknin hófst. Baugur
er ekki lengur hlutafélag.
Tryggvi er hættur og Jón
Gerald samdi við Baugs-
menn um lok málaferla í
Bandaríkjunum.“
Þegar sagt er: „Jón Ger-ald samdi við Baugs-
menn um lok málaferla í
Bandaríkjunum“, er auð-
velt samkvæmt íslenzkri
málvenju að skilja þessa
framsetningu á þann veg,
að Jón Gerald Sullenberger
hafi haft frumkvæði að
þeim samningum. En var
það svo? Hefur fréttastofa
Stöðvar 2 traustar heimildir
fyrir því? Er kannski hugs-
anlegt að réttara hefði ver-
ið að segja: Baugsmenn
sömdu við Jón Gerald um
lok málaferla í Bandaríkj-
unum? Vilji fréttastofu
Stöðvar 2 til þess að hafa
það sem sannara reynist er
ekki dreginn í efa. Þess
vegna er þessari ábendingu
komið á framfæri.
Fjölmiðlar leita um þessarmundir mjög til lög-
fræðinga til þess að leita
álits þeirra á þeim stóru
spurning-
um, sem
uppi eru um
stjórnskipan
landsins í
kjölfar
þeirrar
ákvörðunar
forseta Ís-
lands að
beita 26. gr.
stjórnarskrárinnar í fyrsta
sinn í 60 ára sögu lýðveld-
isins. Einn þessara lög-
fræðilegu álitsgjafa er Sig-
urður Líndal. Í
hádegisfréttum RÚV sl.
sunnudag var rætt við Sig-
urð um hlutverk forsetans í
stjórnskipan landsins. Í
svari sínu um þetta efni
sagði Sigurður Líndal m.a.:
„Og það sem mér fannst
líka, að þarna er þetta keyrt
áfram af miklum asa og eig-
inlega finnst mér Alþingi
varla geta tekið við máli á
þennan hátt.“
Hvort er það lögfræði-legur álitsgjafi eða
pólitískur álitsgjafi, sem
þarna talar? Hvað hefur
„mikill asi“ með lögfræði að
gera? Hvaða lögfræðilega
þýðingu hefur það á hvaða
hraða mál fer í gegnum
þingið? Um leið og lög-
fræðilegir álitsgjafar breyt-
ast í pólitíska álitsgjafa
verða öll álit þeirra metin
með öðrum mælikvarða en
áður.
STAKSTEINAR
Hver samdi við hvern?
Lögfræðilegur eða
pólitískur álitsgjafi?
Sigurður Lín-
dal prófessor