Morgunblaðið - 08.06.2004, Síða 47
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2004 47
MEISTARAMÓT Íslands í fjöl-
þrautum og lengri boðhlaupum
fór fram Laugardalsvellium um
síðustu helgi. Íslandsmeistari í
tugþraut varð Ólafur Guðmunds-
son, UMSS, hlaut samtals 6.693
stig og Gauti Ásbjörnsson, UMSS,
varð annar með 5.805 stig. Ís-
landsmethafinn Jón Arnar Magn-
ússon, Breiðabliki, tók ekki þátt í
mótinu.
Í sjöþraut kvenna sigraði Krist-
ín Birna Ólafsdóttir, ÍR, eftir
spennandi keppni við Vilborgu
Jóhannsdóttur, UMSS, sem varð í
öðru sæti. Kristín Birna hlaut
samtals 4.859 stig, en Vilborg
4.818 stig, þriðja varð svo Jó-
hanna Ingadóttir, ÍR, með 4.437
stig. Tryggvi Hjaltason, Óðni,
varð meistari í drengjaflokki með
samtals 4.460 stig og Sveinn Elías
Elíasson, Fjölni, sigraði í sveina-
flokki með 6.191 stig. Sveinn
stórbætti Íslandsmet sveina
helgina, en gamla metið var
5.564, sett árið 2001. Það átti
Sveinn Þórarinsson úr FH, en
hann setti það met með áhöldum
fullorðinna en Sveinn Elías með
áhöldum sveina.
Í meyjaflokki sigraði Þóra
Kristín Pálsdóttir, ÍR, hlaut sam-
tals 4.427 stig.
UMSS sigraði í báðum lengri
boðhlaupum karla og Í 3 x 800 m
boðhlaupi kvenna sigraði sveit ÍR
á tímanum 7.16,51 mín.
Ólafur og Kristín Birna
sigruðu á Meistaramótinu
FÓLK
ÞORVALDUR Makan Sigbjörns-
son leikmaður Fram var fluttur á
sjúkrahús en hann fékk aðsvif
vegna mígreniskasts á leið sinni í
búningsherbergi Fram í síðari hálf-
leik gegn Fylkismönnum í gær-
kvöld.
ÞÓRHALLUR Dan Jóhannsson
gat ekki leikið með Fylkismönnum í
gærkvöld. Þórhallur fékk lungna-
bólgu og sagði Þorlákur Árnason
þjálfari Fylkis að hann yrði ekki
með í bikarleiknum gegn ÍR-ingum
um næstu helgi.
GYLFI Einarsson skoraði eitt
marka Lilleström þegar liðið sigr-
aði Stabæk 3:0 í norsku úrvalsdeild-
inni. Markið kom á 54. mínútu en
áður hafði Wisnes komið Lilleström
í 1:0. Það var svo Frode Kippe sem
innsiglaði sigurinn með marki á 62.
mínútu. Veigar Páll Gunnarsson
var í byrjunarliði Stabæk en náði
ekki að setja mark sitt á leikinn.
SIMON Karkov, danski miðju-
maðurinn, var settur út úr liði FH
fyrir leikinn gegn ÍBV í úrvalsdeild-
inni í knattspyrnu í gær. Karkov
hefur ekki náð sér á strik til þessa
og mátti sætta sig við að sitja á
varamannabekknum allan tímann.
IAN Jeffs, miðjumaður ÍBV, á
tveggja leikja bann yfir höfði sér
fyrir sína aðra brottvísun í fimm
fyrstu umferðum úrvalsdeildarinn-
ar. Hann verður ekki með gegn
Fjölni í bikarnum um næstu helgi,
og ekki heldur gegn Keflavík í
deildakeppninni næsta þriðjudag.
KA krækti sér í sitt fyrsta stig á
heimavelli í efstu deild gegn
Grindavík. Í fyrra tapaði liðið 1:2
og árið 2002 urðu úrslitin 0:1.
„ÉG ÁTTI að tryggja okkur öll
stigin og það er ekki hægt að biðja
um betra færi en ég fékk. Ég ætl-
aði að lyfta boltanum yfir mark-
vörðinn en ég var orðinn það
þreyttur að mér tókst það ekki,“
sagði Ríkharður Daðason, fram-
herji Framara, sem fékk upplagt
færi til að tryggja sínum mönnum
öll stigin gegn Fylki í gær. Rík-
harður var ósáttur við sjálfan sig
en hann var sáttari við frammi-
stöðu liðsins.
„Við vorum að vinna miklu bet-
ur sem lið og baráttan og stemn-
ingin í liðinu var allt önnur en í
síðustu leikjum. Markið sem við
fengum á okkur var hins vegar
einfalt og við hefðum átt að geta
komið í veg fyrir það. Við fengum
aukinn kraft þegar Andri Fannar
kom inn á og mér fannst við lík-
legri til að sigra þegar líða tók á
seinni hálfleikinn. Við töluðum um
það fyrir leikinn að vera þéttari,
bæði á miðsvæðinu og í vörninni,
og ég held að það hafi tekist vel.
Eitt stig telur kannski ekki mikið
en við ætlum að reyna að byggja
ofan á þetta og halda áfram á
sömu braut,“ sagði Ríkharður.
„Þetta var ekki gott hjá okkur
en engu að síður tel ég gott að fá
stig á útivelli,“ sagði Valur Fannar
Gíslason, fyrirliði Fylkis. „Á með-
an við vinnum heimaleikina og
tökum stig á útivöllunum er þetta í
góðu lagi. Annars fannst mér við
heilt yfir frekar slakir. Við vorum
ekki nógu beittir enda hálf ragir
og ólíkir sjálfum okkur. Við hefð-
um alveg getað tapað leiknum.
Rikki fékk upplagt færi en Bjarni
varði mjög vel og bjargaði líklega
að við töpuðum ekki.“
Ríkharður
ósáttur
Fylkismenn tróna því enn á toppideildarinnar með 11 stig, stigi
meira en nýliðar Keflvíkinga, en
Framarar, sem fyrir
leikinn höfðu tapað
tveimur leikjum í röð,
sitja í sjöunda sætinu
með fimm stig. Það
var kannski við því búist að Framarar
færu með sigur af hólmi þegar litið er
til tölfræðinnar, en í síðustu tíu við-
ureignum liðanna hefur Fram aðeins
unnið einu sinni, tímabilið 2001. Rík-
harður Daðason fékk hins vegar gull-
ið tækifæri til að kveða Fylkisdraug-
inn í kútinn en fimm mínútum fyrir
leikslok komst hann einn gegn
Bjarna Halldórssyni markverði Fylk-
is eftir slæm mistök Vals Fannars
Gíslasonar. Markvörðurinn ungi sá
við Ríkharði og varði með góðu út-
hlaupi og þar sluppu Fylkismenn með
skrekkinn.
Fyrri hálfleikurinn sem boðið var
upp á í blíðunni á þjóðarleikvanginum
var mjög bragðdaufur og lítil
skemmtun. Hann einkenndist af óná-
kvæmum sendingum á báða bóga,
óþarfa brotum út um víðan völl og
færin voru af skornum skammti.
Framarar ætluðu ekki að brenna sig
á því að fá á sig klaufaleg mörk eins
og í síðustu leikjum. Þeir settu örygg-
ið á oddinn og léku fyrri hálfleikinn
mjög varfærnislega. Fylkismönnum
gekk illa að ná tökum á leik sínum en
einu færin sem litu dagsins ljós í öll-
um hálfleiknum voru fyrir framan
mark Fram. Björgólfur Takefusa
skaut framhjá úr góðu færi strax á 4.
mínútu og Guðni Rúnar Helgason
hitti ekki boltann eftir hornspyrnu í
upplögðu færi. Á markamínútunni
opnaði Ólafur Ingi Stígsson mark-
areikning sinn fyrir Árbæjarliðið á
þessu sumri þegar hann skallaði í net-
ið góða sendingu frá Finni Kolbeins-
syni.
Heldur meira fjör færðist í leikinn í
síðari hálfleik og ekki mátti miklu
muna að gamli Framarinn, Þorbjörn
Atli Sveinsson, bætti við öðru marki
fyrir Fylkismenn í upphafi hálfleiks-
ins. Þrumuskot hans small í stönginni
en Þorbjörn hefur jafnan verið á skot-
skónum þegar þessi lið hafa mæst og
fyrir leikinn í gær hafði hann skorað
fyrir þá bláklæddu í fimm af síðustu
sex leikjum. Eftir þetta færðust
Framarar hægt og bítandi í aukana
og síðasta hálftímann voru þeir sterk-
ari aðilinn. Innkoma Andra Fannars
hleypti lífi í sóknarleik Framara og
hann hafði ekki verið inni á vellinum
nema í þrjár mínútur þegar hann
jafnaði með góðu skallamarki. Fram-
arar reyndu að láta kné fylgja kviði.
Þeir færðu sig framar á völlinn, náðu
undirtökunum á miðsvæðinu og í þrí-
gang á síðasta stundarfjórðungnum
skall hurð nærri hælum við mark
Fylkis. Fyrst varði Bjarni vel lúmskt
skot frá hinum nýklippta Hans Fróða
Hansen og á lokamínútunum var Rík-
harður í tveimur góðum færum og þá
sérstaklega í fyrra skiptið eins og áð-
ur er lýst.
Mikil batamerki voru á leik Fram-
ara eftir slaka frammistöðu í leikjun-
um gegn Grindavík og ÍA. Sérstak-
lega var áberandi að Framarar voru
þéttari fyrir í öftustu varnarlínu og
baráttan og krafturinn var miklu
meiri og betri en í undanförnum leikj-
um. Hans Fróði, Eggert og Andrés
stóðu vel fyrir sínu í vörninni, Ingvar
var duglegur á miðjunni og Ríkharð-
ur vann mjög vel og var ávallt hættu-
legur. Þá var Andri Fannar sprækur
eftir að hann kom inn á en hann leysti
Þorvald Makan Sigbjörnsson af
hólmi eftir klukkustundarleik. Þor-
valdur lék að þessu sinni í fremstu
víglínu.
Fylkismenn voru ekki sannfærandi
og þeir áttu alls ekki skilið meira en
eitt stig. Vörnin var gloppótt, miðjan
ekki eins öflug og í síðustu leikjum og
framherjarnir fótfráu náðu sér ekki á
strik. Finnur Kolbeinsson og Krist-
ján Valdimarsson, sem kom í byrjun-
arliðið vegna veikinda Þórhalls Dans,
voru einna bestir í Árbæjarliðinu að
þessu sinni.
Morgunblaðið/Sverrir
Björgólfur Takefusa, leikmaður Fylkis, freistar þess að spyrna knettinum en þeir Eggert Stef-
ánsson og Ingvar Ólason, leikmenn Fram, fylgjast grannt með tilburðunum.
Fram nær sigri
gegn toppliðinu
FRAMARAR stöðvuðu sigurgöngu Fylkismanna á Laugardalsvell-
inum í gærkvöld. 1:1 jafntefli var niðurstaðan í slag Reykjavíkur-
liðanna í frekar tilþrifalitlum leik en ef eitthvað var þá voru Fram-
arar nærri því að tryggja sér öll stigin sem í boði voru.
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
Fram 1:1 Fylkir
Leikskipulag: 3-5-2 Landsbankadeild karla,
5. umferð
Laugardalsvöllur
Mánudaginn 7. júní 2004
Aðstæður:
Logn, skýjað og 11 stiga hiti,
völlurinn góður.
Áhorfendur: 1.410
Dómari: Gísli H. Jóhannsson,
Keflavík, 3
Aðstoðardómarar:
Magnús Kristinsson,
Sigurður Óli Þórleifsson
Skot á mark: 9(4) - 10(5)
Hornspyrnur: 3 - 6
Rangstöður: 2 - 4
Leikskipulag: 4-3-3
Gunnar Sigurðsson
Andrés Jónsson M
(Daði Guðmundsson 85.)
Hans Fróði Hansen M
Eggert Stefánsson M
Ómar Hákonarson
Fróði Benjaminsen
Ingvar Ólason M
Heiðar Geir Júlíusson
(Baldur Þór Bjarnason 73.)
Ragnar Árnason M
Ríkharður Daðason M
Þorvaldur Makan Sigbjörnsson
(Andri F. Ottósson 58.) M
Bjarni Halldórsson M
Kristján Valdimarsson M
Guðni Rúnar Helgason
Valur Fannar Gíslason
Gunnar Þór Pétursson
Ólafur Ingi Stígsson
(Ragnar Sigurðsson 69.)
Finnur Kolbeinsson M
Helgi Valur Daníelsson M
Sævar Þór Gíslason
Björgólfur Takefusa
(Eyjólfur Héðinsson 87.)
Þorbjörn Atli Sveinsson
(Ólafur Páll Snorrason 66.)
0:1 (43.) Finnur Kolbeinsson átti hniðmiðaða sendingu inn á vítateig Framara
frá miðjum vallarhelmingi Fram. Þar kom Ólafur Stígsson aðvífandi og
skallaði yfir Gunnar Sigurðsson sem var illa staðsettur í marki Fram-
ara.
1:1 (62.) Andri Fannar Ottósson skallaði laglega í netið rétt utan vítateigs eftir
háa sendingu Ragnars Árnasonar frá vinstri kanti.
Gul spjöld: Fróði Benjaminsen, Fram (17.), fyrir brot Ingvar Ólason, Fram (25.), fyrir
brot Guðni Rúnar Helgason, Fylki (25.), fyrir brot Helgi Valur Daníelsson,
Fylki (33.), fyrir brot Valur Fannar Gíslason, Fylki (50.), fyrir brot
Rauð spjöld: Engin