Morgunblaðið - 08.06.2004, Qupperneq 48
FÓLK Í FRÉTTUM
48 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
NÝTT: Miðasala á netinu
www.borgarleikhus.is
Stóra svið Nýja svið og Litla svið
DON KÍKÓTI eftir Miguel de Cervantes
Su 13/6 kl 20
SÍÐASTA SÝNING Í VOR
CHICAGO eftir J. Kander, F. Ebb og B. Fosse
Lau 12/6 kl 20,
Lau 19/6 kl 20
SÍÐUSTU SÝNINGAR Í VOR
DANSLEIKHÚS 10/06/2004 SAMKEPPNI
9 verk eftir 14 höfunda
Fi 10/6 kl 20 - Kr. 2.500
Áhorfendaverðlaun - diskótek
BELGÍSKA KONGÓ eftir Braga Ólafsson
Su 13/6 kl 20
SÍÐASTA SÝNING
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare
í samstarfi við VESTURPORT
Í kvöld kl 20 - UPPSELT
Mi 9/6 kl 20, - UPPSELT
Fi 10/6 kl 20, - UPPSELT
Fö 11/6 kl 20 - UPPSELT
Lau 12/6 kl 15
Lau 12/6 kl 20- UPPSELT
SÍÐUSTU SÝNINGAR
TANZ THEATER HEUTE - LJÓSMYNDASÝNING
í samvinnu við Goethe Zentrum - Í FORSAL
Miðasala: 568 8000
Nýr opnunartími: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00 - 18:00
miðviku-, fimmtu- og föstudaga: 10:00 - 20:00
laugardaga og sunnudaga: 12:00 - 20:00
www.borgarleikhus.is midasala@borgarleikhus.is
Fim. 24. júní FRUMSÝNING kl. 19.30 - UPPSELT
Fös. 25. júní Sýning nr. 2 kl. 19.30 - UPPSELT
Mið. 30. júní Sýning nr. 3 kl. 19.30 - ÖRFÁ SÆTI
Fim. 1. júlí Sýning nr. 4 kl. 10.30 - FÁ SÆTI
Fös. 2. júlí Sýning nr. 5 kl. 19.30 - LAUS SÆTI
Sun. 4. júlí Sýning nr. 6 kl. 17.00 - LAUS SÆTI
Lau. 10. júlí Sýning nr. 7 kl. 16.30 - LAUS SÆTI
Lau 10. júlí Sýning nr. 8 kl. 19.30 - FÁ SÆTI
5TA HERDEILDIN hefur nú
verið starfandi í fimm ár. Spila-
mennska hefur verið allregluleg
þennan tíma og að
baki er ein stór
plata, sem út kom í
hitteðfyrra.
Tónlist herdeild-
arinnar er illskil-
greinanleg, og er
það tvímælalaust
hennar helsti kostur. Íslenskt þjóð-
lagapönk er sæmilegasta lýsing á
hljóðheiminum hér og sum lögin hafa
yfirbragð vögguvísna eður barna-
gælna þar sem undir niðri kraumar
einhver óskilgreinanlegur hrylling-
ur. Lög eins og „Styttufall“ t.d. eru
eins og sérsamin fyrir tröllasögur
Jóns Árnasonar.
Tónlistin er mestmegnis á þessari
línu, með skemmtilegum útúrdúrum
yfir í blágresishljóma, sveitatónlist
og fleira. Eitt af því flottara sem hér
má heyra er þegar holur og surgandi
rafmagnsgítarinn kemur inn í hinn
annars lífræna hljóðfæraleik (eins og
í „Einkavæðslublús“) hljómandi eins
og hann hafi verið tekin upp í næsta
dal. Skuggalega flott.
Textarnir hér eru nokkuð sér á
báti. Forvitnilegir og furðulegir;
skemmtilegir og skrítnir. Sæmileg
orðgnótt í gangi, oft er reynt að
segja eitthvað og það bregður fyrir
rími. Hvílík tilbreyting!
Platan byrjar á nokkuð magnaðri
stemmu um „Heimspekinginn sem
stökk út um gluggann“. Hann „las
þartil (svo) að hann sá að þetta var
allt sama tuggan“ og „tók síðan þann
pól að tækla lífið hinumeginfrá
(svo)…“
Strax í næsta lagi, „Einkavæðslu-
blús“ bregður fyrir stórfurðulegum,
súrrealískum texta með undarlegum
lýsingum á einkavæðslu á strætis-
vögnum og reglum þar að lútandi.
Það má t.a.m. ekki taka Jón Mýrdal
upp í vagnana og geðsjúklingar geta
að sönnu keypt strætisvagna en þeir
mega ekki keyra þá!?
Oft er stutt í myrkrið. „Ég sé þig í
myrkrinu/hangandi á irkinu/sljóa af
geðlyfinu/með stillt á mute í sjón-
varpinu/með slefu í munnvikinu/
hlæjandi að ruglinu“, segir í hinu
harmræna „Farðu vel“.
Aðrir textar eru þjóðfélagsleg
gagnrýni (kirkjan, ríkisstjórnin
o.s.frv.) blönduð römmum íslenskum
kvæðastemmum þar sem fyrir koma
tröll, kindur og smaladrengir. For-
vitnileg samsuða og eiga liðsmenn
Herdeildarinnar heiður skilinn fyrir
að leggja metnað í textagerðina.
Söngkonurnar Sonja Lind Eygló-
ardóttir og Unnur Andrea Einars-
dóttir eiga þá góða spretti í sínum
innleggjum.
Þrátt fyrir þetta hrjá plötuna
nokkrir annmarkar. Hljómur er
heldur slakur og hljóðfæraleikurinn
upp og ofan. Oftast er losaraleg
áferðin kostur heldur en hitt en
stundum ekki, stundum á bassaleik-
urinn það til að vera í óþéttara lagi
t.a.m.. Lagasmíðalega séð er platan
líka nokkuð ójöfn.
Söngvarinn, Gísli „Gímaldin“ er
með sérstæða rödd og á svosem ekki
langt að sækja það. Hann er sonur
Magnúsar „Megasar“ og auðheyran-
legt að genabygging raddbandana
hjá þeim feðgum er svipuð. Rödd
Gímaldins á það til að vera dulítið
pirrandi, ef ofskammtað er. Titill
plötunnar er skemmtilegur en að
ósekju hefðu mátt vanda betur til
umslagsins.
Áhlaup 5tu herdeildarinnar er
samt vel heppnað þegar öllu er á
botninn hvolft. Það sem upp úr
stendur nefnilega er að tónlistin er
leitandi, fer iðulega í óvæntar áttir
og það er einfaldlega hressandi –
kætir mann og bætir. Þessi eiginleiki
gerir að verkum að það er giska auð-
velt að horfa framhjá áðurnefndum
göllum.
Tónlist
Skæru-
hernaður
5ta herdeildin
Áður óútgefið efni
5tu herdeildina skipa Gímaldin (söngur,
gítar og mandólín), Loftur S. Loftsson
(bassi, söngur og bakraddir), Hermann
Stefánsson (banjó, söngur og bakraddir),
Gestur Guðnason (rafmagnsgítar), Þór-
dís Claessen (ásláttur og frágangur á
hrynjanda), Sonja Lind Eyglóardóttir
(söngur) og Unnur Andrea Einarsdóttir
(söngur). Bogi Reynisson stýrði upp-
tökum og hljóðblandaði en Gunnar Ósk-
arsson sá um endanlegan frágang.
Ógrunduð forsjá gefur út.
Arnar Eggert Thoroddsen
„…sum lögin hafa yfirbragð vögguvísna eður barnagælna þar sem undir
niðri kraumar einhver óskilgreinanlegur hryllingur,“ segir meðal annars
um nýjustu afurð 5tu herdeildarinnar.
STUNDUM er erfitt að trúa því
að menningar(kima)vitinn Kevin
Smith sé sá leikstjóri og handrits-
höfundur sem stendur að baki
rómantísku gamanmyndinni Jer-
sey stelpan, svo langt gengur hún
nefnilega í klisjum og stirðbusa-
heitum á köflum. Þegar bráðsnjöll
samtalsatriði taka hins vegar að
gera vart við sig þegar líður á
myndina, verður ekki lengur fram
hjá því horft að þar er Smith að
verki og enginn annar.
Það virðist eiga betur við leik-
stjórann að vinna með smærri og
óhefðbundnari myndir, því þegar
allir þættir Jersey stelpunnar eru
vegnir og metnir, stendur það
uppúr að Smith hefur hreinlega
ekki eins gott vald á forminu og
hann kannski hafði ætlað.
Sagan segir frá New York-búan-
um Ollie Trinkie (Ben Affleck),
snjöllum almannatengli sem nýtur
stórborgarlífsins og er ástfanginn
upp fyrir haus af ritstjóranum
Gertrude (Jennifer Lopez). Þegar
þau ákveða að taka skref í þá átt
að stofna fjölskyldu reynist starf
Ollie taka upp allan hans tíma.
Þegar Gertrude verður ólétt tekur
tilvera Ollie hins vegar stakka-
skiptum, og finnur hann sig fyrr
en varir í hlutverki einstæðs föður
í rólyndislegu úthverfi New Jer-
sey. Nýtt fólk kemur inn í líf Ollie
og dóttur hans Gertie, m.a. afar og
frændur og hin kynlífsáhugasama
búðarloka Maya (Liv Tyler).
Í handriti Smith skjóta ýmis sí-
gild þemu upp kollinum, s.s. tog-
streitan milli smábæjarlífs og stór-
borgarlífs, og klaufagangur
óreynds föður. Smith á nokkra
góða takta í viðleitninni við að
skrifa sig inn í sígilt frásagnar-
formið, en að öðru leyti er sagan í
grunnatriðum vandræðalega væm-
in og svo augljós að halda mætti
að hún væri ætluð páfagaukum
fremur en þaulvönum áhorfendum
rómantískra Hollywood-gaman-
mynda. Ýmislegt vegur þó upp á
móti striðbusaheitunum sem gerir
Jersey stelpuna að ágætis gam-
anmynd á köflum. Söngleiknum
Sweeney Todd er t.d. tvinnað
skemmtilega inn í söguna og í
gegnum það tekst Smith að láta
þræðina koma saman á snyrtilegan
hátt í lokin. Stöku samtöl, s.s. á
milli Ollie og stórstjörnunnar Will
Smith, milli Ollie og Mayu, og
fleiri persóna, fá mann síðan til
þess að steingleyma leiðindunum á
köflum. Þar njóta leikarar sín líka
bráðvel. Liv Tyler stígur t.d. fram
með mjög sjarmerandi persónu-
túlkun auk þess sem afinn og
„frændurnir“ tveir eru bráðfyndn-
ir í meðförum flinkra gamanleik-
ara. Og það sem kemur kannski
mest á óvart er hvað Ben Affleck
stendur sig vel í hlutverki Ollie.
Hann fer reyndar leiðinlega af
stað í verstu klisjunum í fyrri
hluta myndarinnar, en þegar á líð-
ur finnur hann sig ágætlega í gam-
anleiknum. Þegar plúsar og mín-
usar hafa lagðir saman standa því
eftir tvær stjörnur.
Fyndin og
leiðinleg
KVIKMYNDIR
Smárabíó, Regnboginn
Jersey Girl / Jersey stelpan Leikstjórn og handrit: Kevin Smith. Kvik-
myndataka: Vilmos Zsigmond. Aðal-
hlutverk: Ben Affleck, Liv Tyler, George
Carlin, Raqueal Castro, Jason Biggs og
Jennifer Lopez. Lengd: 102 mín. Banda-
ríkin. Miramax Films, 2004.
Heiða Jóhannsdóttir
Liv Tyler og Ben Affleck í hlutverkum sínum.
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergiðFréttir á SMS