Morgunblaðið - 13.06.2004, Side 18

Morgunblaðið - 13.06.2004, Side 18
Geðdeildin er of stór. Það erengin ástæða til að Land-spítali – háskólasjúkra-hús haldi utan um þetta allt saman. Við þurfum líka að huga að því að færa ábyrgð til geðsjúkra sjálfra, því þeir vita hvað þarf til að þeir nái bata. Hérna hafa menn of- urtrú á lyfjum og læknisfræðilegum inngripum, en þegar sjúklingarnir sjálfir eru spurðir um hvað hafi hjálpað þeim til að lifa með geðsýk- inni eru lyfin alls ekki efst á blaði. Þeim finnst mikilvægast að fá að bera ábyrgð á eigin lífi. Sjálfstraust og sjálfsvirðing skiptir öllu máli. Við þurfum að virkja þá sem hafa náð bata, eða hafa náð tökum á að lifa með sjúkdómi sínum, svo aðrir geð- sjúkir fái jákvæða fyrirmynd.“ Elín Ebba Ásmundsdóttir er for- stöðuiðjuþjálfi á geðsviði Landspít- ala – háskólasjúkrahúss og lektor við heilbrigðisdeild Háskólans á Akur- eyri. Hún hefur skýrar skoðanir á heilbrigðiskerfinu og liggur ekkert á þeim. Hún talar hratt, vill koma sem mestu á framfæri við viðmælanda sinn og virðist hafa litla þolinmæði með kerfinu sem hún hefur starfað innan í rúm 20 ár. En þótt kerfið sé henni ekki að skapi fer því fjarri að hún ætli að hopa af hólmi. Hún vill breyta því sem hægt er að breyta. Það leynir sér ekki að henni þykir sem hugmyndir hennar hafi ekki þann hljómgrunn sem hún kysi. Þann hljómgrunn finnur hún þó vissulega af og til. Síðasta haust fékk hún geðræktarstjörnuna fyrir að opna umræðu um geðheilbrigði, benda á margvíslegar leiðir í með- ferð við geðröskunum og efla geð- heilsu. Og 12. maí sl. hlaut hún aðal- viðurkenningu Brautargengis, námskeiðs Impru fyrir konur sem luma á viðskiptahugmyndum, fyrir hugmynd sína um Hlutverkasetur, atvinnusköpun fyrir geðsjúka. Þá má geta þess að fyrirsögn í blaði skjól- stæðinga iðjuþjálfunar við Eiríks- götu er „Ebba best“. Fleiri orð þarf vart að hafa um viðhorf skjólstæð- inga hennar. Sjúkrahús eru bataletjandi „Sjúkrahús eru beinlínis bataletj- andi fyrir geðsjúka,“ segir Elín Ebba, sem segir sameiningu geð- deilda undir einum hatti Landspítala – háskólasjúkrahúss hafa verið mis- tök. „Ég var fylgjandi sameiningu sjúkrahúsanna á sínum tíma, en geð- deildin er allt of stór. Við eigum bara að hafa bráðaþjónustuna innan sjúkrahússins, en færa allt annað starf þaðan. Sjúkrahúsin eru eins og bílaverkstæði. Ef bíllinn bilar, þá er sjálfsagt að fara með hann á verk- stæði og láta gera við allt sem þarf að gera við og hægt er að laga með tækni bifvélavirkjanna. En svo þarf hann eðlilegt viðhald og umhirðu að auki og það á að gera utan verkstæð- is. Enginn er svo skyni skroppinn að hann setji bílinn sinn á verkstæði þegar hann verður bensínlaus. Að sama skapi er sjálfsagt að geðsjúkir leiti í bráðaþjónustu LSH þegar á þarf að halda. Þegar henni sleppir er engin ástæða til að einstaklingar komi sífellt á „verkstæðið“. Það er beinlínis bataletjandi að sækja eðli- legt „viðhald“ þangað. Ég efast ekki um að kerfi, sem skipti meðferð geð- sjúkra upp á þennan hátt, yrði miklu skilvirkara til lengri tíma litið. Þar að auki er það undarleg ráðstöfun að hafa bráðaþjónustu og alla endur- hæfingu, barna- og unglingageðdeild og langdvaladeildir, undir sömu stjórn. Slíkt þætti áreiðanlega ekki góð latína ef um einhvern annan sjúkdóm væri að ræða.“ Ofurtrú á lyfjum Hún segir að geðsjúkir þarfnist þess fyrst og fremst að sjá hvernig þeir geti verið virkir í samfélaginu þrátt fyrir sjúkdóminn. „Ofurtrúin sem kerfið hefur á geðlyfjum virkar þveröfugt. Geðsjúkir fyllast örvænt- ingu og vonleysi þegar þeir uppgötva að töfrapillurnar laga ekki allt. Ef eitt lyfið verkar ekki nógu vel er það næsta prófað og svo koll af kolli. Smám saman fyllast einstaklingarn- ir vonleysi. Ef þeir hins vegar gera sér grein fyrir að oft á tíðum læknast þeir ekki, en geta lært að lifa með sjúkdómi sínum og halda honum í skefjum, horfir vandinn allt öðruvísi við. Staðreyndin er sú, að í 60–70% tilvika eru geðsjúkdómar krónískir sjúkdómar sem fólk þarf að lifa með alla ævi, en kerfið ætlar ekki að losna úr því fari að meðhöndla þá alltaf sem bráðatilfelli. Trúin á lyfin gerir það að verkum að viðhorf til krón- ískra sjúklinga getur einkennst af pirringi, því það eru auðvitað ómögu- legir sjúklingar sem taka ekki söns- um þótt þeir fái öll þessi fínu lyf! Sjálfstraust er undirstaða alls, en oft er komið fram við sjúklinga eins og smábörn sem kunni ekki fótum sín- um forráð. Þetta viðhorf er dálítið af sama meiði og viðhorfið í skólakerf- inu, þar sem börn eru sett í aukatíma ef þau standa sig ekki nógu vel í ákveðnum fögum. Ég myndi frekar setja þau í aukatíma í þeim fögum sem þau hafa náð góðum tökum á og hafa mikinn áhuga á, til að byggja enn frekar undir sjálfstraust þeirra. Þar með verða þau hæfari til að tak- ast á við aðra hluti.“ Gæðaeftirlit á stofnunum Elín Ebba segist hafa kynnt sér sérstaklega notendahóp í Þránd- heimi í Noregi, sem hefur staðið fyr- ir gæðaeftirliti á þjónustu við geð- sjúka. Sjálf hefur Elín Ebba unnið viðamikla rannsókn á viðhorfi geð- sjúkra hér á landi til áhrifavalda í bata þeirra, þar sem fram kom að það sem helst hafði áhrif til batnaðar var að sjúklingarnir fengju sjálfir að bera ábyrgð á lífi sínu. „Enginn veit betur en sá, sem hefur þurft að kljást við geðveiki og brotist til bata, hvernig best sé að fara að. Þess vegna hef ég alltaf lagt mikla áherslu á að spyrja sjúklingana um hvaða leiðir þeir vilji fara og ráðgast við þá sem hafa náð bata um hvað hafi reynst þeim best. Þeir sem þurfa að nýta sér heilbrigðiskerfið geta manna best bent á kosti þess og galla. Í Þrándheimi hefur þessi leið verið farin með góðum árangri. Þar hefur verið komið upp gæðaeftirlits- kerfi innan stofnana fyrir geðsjúka, þar sem notendur í bata, í samstarfi við sérfræðinga innan viðkomandi stofnunar, spyrja aðra sjúklinga hvað gagnist þeim best. Fyrir utan að hjálpa kerfinu að veita sem besta þjónustu skapar þetta gæðaeftirlit störf fyrir geðsjúka og eflir þannig sjálfstraust þeirra.“ Hugmyndir Elínar Ebbu og sam- starfsfólks hennar um Hlutverkaset- ur, atvinnusköpun fyrir geðsjúka, gera m.a. ráð fyrir að gæðaeftirlit á meðferð geðsjúkra hefjist hér á landi í sumar. Að Hlutverkasetrinu koma, auk Elínar Ebbu, Auður Axelsdóttir, iðjuþjálfi hjá Heilsugæslunni í Reykjavík, og Hugarafl, hópur geð- sjúkra í bata. Til að hrinda gæðaeft- irliti í framkvæmd fékk hópurinn styrk frá Nýsköpunarsjóði náms- manna og heilbrigðisráðuneytinu. „Við ætlum að nýta þekkingu og reynslu geðsjúkra sjálfra til að leggja mat á þjónustuna. Reyndar efast ég ekkert um að reynsla geð- sjúkra verður nýtt á geðdeildum í framtíðinni, í miklu meiri mæli en nú er, til dæmis með því að ráða starfs- menn á geðdeildir sem sjálfir hafa reynslu af að kljást við geðsjúkdóma. Með því að nýta reynslu og þekkingu geðsjúkra erum við einfaldlega að fara sömu leið og viðskiptalífið fann fyrir löngu, að nýta rýnihópa til að átta okkur á hvað megi betur fara.“ Sjúklingar þurfa að hafa áhrif Elín Ebba segir að þótt í mörgum löndum hafi verið settar reglugerðir um að fulltrúar sjúklinga skuli koma að stefnumótun og meðferð innan heilbrigðiskerfisins sé oft um sýnd- armennsku að ræða. „Það segir sig sjálft að einn sjúklingur sem situr í stjórn með átta sérfræðingum, sem tala auðvitað sitt sérfræðimál, á erf- itt uppdráttar. Fulltrúar sjúklinga þurfa að vera fleiri og að auki þarf að vera stöðugt gæðaeftirlit, svo tryggt sé að þeir tali fyrir hönd allra sjúk- linga, en miði ekki eingöngu við eigin reynslu. Notendur heilbrigðiskerfis- ins þurfa að læra að hafa áhrif innan þess og sérfræðingarnir þurfa að læra að láta völd af hendi til þeirra.“ Auk þess að tryggja betri þjón- ustu gegnir gæðaeftirlit því hlut- verki að fylgjast með að fjármunir nýtist eins og til er ætlast. „Því mið- ur gerist það æ ofan í æ að stjórnvöld leggja fé til ákveðinna verkefna, en fylgja því ekkert eftir hvort fjármun- ir nýtast á réttan hátt. Það er ekkert vit í að leggja skattfé í alls konar verkefni án þess að kanna hvernig peningarnir nýtast, hvort þeir komi sér betur á öðrum vettvangi eða hvort veita eigi meira fé til verkefnis svo það skili enn betri árangri.“ Gæðaeftirlit innan geðheilbrigðis- stofnana er ekki eina verkefnið sem Hlutverkasetur er með á prjónun- um. „Við viljum setja á laggirnar kaffihús í miðborginni, „geðveikt“ kaffihús þar sem geðsjúkir geta fengið vinnu sem hentar þeim. Geð- sjúkir eiga oft í erfiðleikum með að stunda vinnu í átta tíma á dag, fimm daga vikunnar, en rekstur kaffihúss gæti veitt þeim hlutastörf. Þannig væri tryggt að þeir væru þátttak- endur í þjóðfélaginu. Sjálfsvirðingu þeirra væri borgið og þeir fengju nauðsynlegt sjálfstraust til að mæta veikindum sínum.“ Eigin fordómar geðsjúkra Sjálfstraustið er mikilvægasta tæki geðsjúkra til að ná stjórn á eigin lífi, eins og Elín Ebba bendir ítrekað á. „Í fyrsta lagi þurfa geðsjúkir að komast yfir eigin fordóma. Einstak- lingur sem fær geðsjúkdóm hefur oftast fyrirfram mótaðar skoðanir og fordóma gagnvart slíkum sjúkdóm- um. Það er til dæmis mikið áfall fyrir ungt fólk að greinast með geðklofa. Það óttast að geta ekki lokið við nám, að eignast aldrei maka og börn og fá aldrei vinnu. Svo tekur oft við langt tímabil þar sem fólk prófar hvert lyf- ið á fætur öðru í von um bata. Þar er mikilvægt að kenna fólki að halda sjálft sína eigin batabók, það á að læra að þekkja einkenni sjúkdómsins og fá aðstoð læknis eða annarra fag- aðila við að feta rétta braut, en ekki leggja allt sitt traust á lækni eða aðra sem geta aldrei, eðli málsins vegna, gert sér fulla grein fyrir líðan þess. Ef fólk lærir á eigin viðbrögð, í stað þess að láta segja sér hvað það eigi að hugsa, finna og gera, þá getur það fundið varanlegri lausnir. Auðvitað missa geðsjúkir stundum dóm- greindina vegna sjúkdómsins, en það ástand er aðeins tímabundið. Og það besta er, að þegar geðsjúkir hafa fundið leið til að lifa með sjúkdómn- um á þennan hátt, þá geta þeir hjálp- að öðrum í sömu sporum. Rannsókn- ir sýna að það er batahvetjandi að styðja aðra sem eiga við sömu erf- iðleika að stríða og það er ekki síður mikilvægt fyrir sjúklinga að hafa já- kvæðar fyrirmyndir í öðrum sem hafa gengið í gegnum sömu reynslu.“ Elín Ebba segir að fyrir 10–20 ár- um hafi líklega verið óhugsandi að geðsjúkir kæmu fram opinberlega, lýstu vanda sínum og tækju þátt í að styðja aðra. „Viðhorfin hafa gjör- breyst. Núna er því tækifæri til að ganga skrefi lengra og styðja geð- sjúka til sjálfshjálpar. Mikilvægast er að þeir fái að vinna störf sem eru þeim mikilvæg og skipta þá máli. Stjórnvöld ættu að huga að því á hvern hátt er hægt að vinna með fyr- irtækjum, sem ráða geðsjúka til starfa, til að efla þátttöku geðsjúkra á vinnumarkaðnum. Staðreyndin er sú, að mikla fjölgun öryrkja hér á landi má fyrst og fremst rekja til fjölgunar ungs fólks með geðsjúk- dóma. Við verðum að ná til þessa hóps og styðja hann til sjálfshjálpar. Annars týnist allt þetta unga fólk, jafnvel í áfengi og fíkniefni. Þarna blasir við forvarnarverkefni sem skil- ar þjóðarbúinu góðri uppskeru.“ Breytt viðhorf til geðsjúkra lýsir sér ekki eingöngu í því að sjúkling- arnir sjálfir séu reiðubúnir að stíga fram og láta að sér kveða, því ætt- ingjar þeirra og vinir eru einnig til- búnir til þess. „Hingað til hefur reynsla aðstandenda geðsjúkra ekki verið nýtt. Samanlögð reynsla allra þeirra sem hafa gengið þrautagöng- una með geðsjúkum er gífurleg og þessi hópur veit vel hvar má bæta úr. Það er geðsjúkum mjög mikilvægt að geta stuðst við fjölskyldur sínar og vini og heilbrigðiskerfið getur ýmis- legt lært af þeim, til dæmis hvernig vænlegast sé að nálgast sjúklinga. Geðsjúkir nefna gjarnan hve mikil- vægt það er þegar heilbrigðisstarfs- menn sýna þeim virðingu og líta á þá sem jafningja.“ Féll fyrir starfinu Elín Ebba fæddist á Akranesi árið 1955, önnur í röð þriggja barna Sól- rúnar Yngvadóttur og Ásmundar Guðmundssonar. Fjölskyldan fluttist til Kópavogs þegar hún var 11 ára. Elín Ebba gekk í Kvennaskólann og Menntaskólann við Hamrahlíð, en þegar leið að stúdentsprófi var hún óráðin hvað hún ætlaði að leggja fyr- ir sig. Mamma hennar hafði alla tíð starfað töluvert að leiklist, pabbi hennar lék í hljómsveitum með starfi sínu sem málari og myndlist höfðaði sterkt til hennar. En hún hafði efa- semdir um að líf listamannsins hent- aði sér. Dag einn var starfskynning í MH Sjálfstraust og sjálfsvirð Elín Ebba Ásmunds- dóttir, forstöðuiðjuþjálfi á geðdeild LSH, segir að færa þurfi ábyrgð á meðferð til geðsjúkra sjálfra. Ragnhildur Sverrisdóttir ræddi við hana um gæðaeftirlit á geðdeildum, bataletj- andi áhrif sjúkrastofn- ana og nauðsynina á skilvirkara heilbrigðis- kerfi. Morgunblaðið/ÞÖK Elín Ebba Ásmundsdóttir segir geðdeild LSH of stóra. Sjálfsagt sé að geðsjúkir leiti í bráðaþjónustuna þegar á þurfi að halda, en önnur starfsemi eigi að vera utan sjúkrahússins. 18 SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.