Morgunblaðið - 13.06.2004, Qupperneq 64
Meiri viðbúnaður lögreglu og tollgæslu að skila árangri í fíkniefnamálum
AUKIÐ eftirlit og samstarf lögregluemb-
ætta og tollgæslunnar á Keflavíkurflugvelli,
ásamt meiri viðbúnaði lögreglu almennt, er
að skila árangri við uppljóstrun og rannsókn
fíkniefnamála að undanförnu. Þetta er mat
Ásgeirs Karlssonar, aðstoðaryfirlögreglu-
þjóns hjá fíkniefnadeild lögreglunnar í
Reykjavík, en eins og kom fram í blaðinu í
gær hefur mikið annríki verið hjá lögreglunni
í fíkniefnamálum síðustu daga og vikur. Lagt
hefur verið hald á nokkur kíló af efnum; kók-
aíni, amfetamíni, hassi og e-töflum.
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir hjá SÁÁ,
segir að neysla á fíkniefnum hér á landi hafi
verið nokkuð stöðug síðustu ár. Þó megi
merkja aukna neyslu á kannabisefnum í öll-
um aldurshópum og meira virðist vera um
kókaín í umferð en áður. Sömuleiðis sé farið
að bera á heróíni á ný, sem sé sérstakt
áhyggjuefni, og fleiri flokkar ólöglegra lyfja
séu fluttir inn í landið, bæði róandi og örvandi
lyf. Varðandi e-töflur telur Þórarinn nokkurt
framboð vera af þeim í dag og verðið lægra
en oft áður, um 2.000 krónur taflan. Verðlag á
fíkniefnum hafi að öðru leyti verið stöðugt.
Meiri vopnaburður
Ásgeir Karlsson telur að magn fíkniefna í
umferð sé ekki að aukast óeðlilega mikið,
þótt fréttir af fíkniefnamálum hafi verið tíðar
að undanförnu. Fyrst og fremst megi skýra
þetta með auknum viðbúnaði lögreglu- og
tollgæsluyfirvalda. Hvort árstíðin skipti ein-
hverju máli, sumarbyrjun og stutt í útihátíðir
hjá ungmennum, telur Ásgeir svo ekki vera.
Ungmenni séu heldur ekki með fjármuni
undir höndum fyrr en í júlímánuði, ætli þau
sér á annað borð að verða sér úti um fíkniefni.
Spurður hvort harkan sé að aukast í heimi
fíkniefna, og mál séu farin að dreifast meira
um landið, segir Ásgeir engan vafa leika á
því. Reykjavík sé ekki lengur eini vettvangur
fíkniefnamála, enda þótt meginviðskipti fari
þar fram. Meira sé um vopnaburð fíkniefna-
neytenda en áður og þessi þróun sjáist einnig
í fleiri bankaránum undanfarið þar sem
vopnum hefur verið beitt. Fólk leiti allra leiða
til að fjármagna neyslu sína á fíkniefnum og
svífist einskis.
„Þessar haldlagningar sýna okkur og
sanna að það margborgar sig að halda úti
ströngu eftirliti. Þetta er vandamál sem
borgar sig að sinna og það má ekki gefa því
lausan tauminn,“ segir Ásgeir.
Aukin neysla á kókaíni
GÆÐAEFTIRLIT með meðferð geðsjúkra hefst
hér á landi í sumar. Hlutverkasetur, atvinnusköp-
un fyrir geðsjúka, hefur fengið styrk frá Nýsköp-
unarsjóði námsmanna og heilbrigðisráðuneytinu
til að hrinda gæðaeftirlitinu í framkvæmd.
Elín Ebba Ásmundsdóttir, forstöðuiðjuþjálfi á
geðsviði Landspítala – háskólasjúkrahúss, segir að
reynsla og þekking geðsjúkra verði nýtt til að
leggja mat á þjónustuna. „Reyndar efast ég ekkert
um að reynsla geðsjúkra verður nýtt á geðdeildum
í framtíðinni, í miklu meiri mæli en nú er, til dæmis
með því að ráða starfsmenn á geðdeildir sem sjálfir
hafa reynslu af að kljást við geðsjúkdóma.“
Elín Ebba segist alltaf hafa lagt mikla áherslu á
að spyrja sjúklingana sjálfa hvaða leiðir þeir vilji
fara og ráðgast við þá sem náð hafi bata um hvað
hafi reynst þeim best. Gæðaeftirlit felist í að not-
endur í bata, í samvinnu við sérfræðinga, spyrji
aðra sjúklinga um hvað gagnist þeim best. Fyrir
utan að hjálpa kerfinu að bæta þjónustuna skapi
gæðaeftirlitið störf fyrir geðsjúka og efli þannig
sjálfstraust þeirra.
Gæðaeftirlit
á geðdeildum
Sjálfstraust/18
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK.
Smáauglýsingar á
Leitið og þér munið finna!
UM 25,2% Íslendinga á aldrinum
15–89 ára neyta ekki áfengis sam-
kvæmt könnun sem IMG Gallup
gerði í maí síðastliðnum fyrir Sam-
starfsráð um forvarnir, samstarfs-
vettvang sex bindindissamtaka.
Hlutfall bindindisfólks er hæst í
yngstu og elstu aldurshópunum og
konur eru bindindissamari en karl-
ar. Bindindismenn eru hlutfallslega
fleiri á landsbyggðinni en á höf-
uðborgarsvæðinu.
Þá kemur fram að færri neyta
áfengis í hópi þeirra sem lægri hafa
tekjur og sem eingöngu hafa lokið
grunnskólaprófi, borið saman við
fólk með hærri tekjur og háskóla-
próf. Alls kváðust 6,5% aðspurðra
hafa farið í áfengismeðferð en geta
má þess að í hliðstæðri könnun sem
gerð var fyrir rúmum áratug var
hlutfallið mun lægra, eða 2,6%.
73% svarenda sögðust neyta
áfengis og aldrei hafa farið í áfeng-
ismeðferð og 20,6% neyttu ekki
áfengis og höfðu ekki farið í með-
ferð. Fleiri karlar en konur neyta að
jafnaði áfengis og fleiri karlar en
konur kváðust neyta áfengis þrátt
fyrir að hafa farið í áfengismeðferð,
eða 2,8% á móti 0,9% kvenna.
Þegar litið er til aldursskiptingar
kemur í ljós að flestir í aldurs-
hópnum 60–69 ára neyta áfengis
þrátt fyrir að hafa farið í áfeng-
ismeðferð eða 5,3% og sker sá hóp-
ur sig nokkuð úr hvað þetta varðar.
Næstur á eftir er yngsti aldurshóp-
urinn, 15–19 ára, en þar er hlut-
fallið 2,9%.
Þegar tekjur fólks eru hafðar til
hliðsjónar neyta tæp 60% fólks með
tekjur undir 250 þúsund krónum
áfengis og hafa ekki farið í með-
ferð, en hjá hópi þeirra sem hefur
yfir 550 þúsund krónur er hlutfallið
tæp 85%. Sömu sögu er að segja af
menntun fólks og áfengisneyslu,
rúm 60% fólks sem eingöngu hefur
lokið grunnskólaprófi neyta áfengis
og hafa ekki farið í meðferð en hjá
fólki með háskólapróf er hlutfallið
rúm 85%. Úrtakið í könnuninni var
1.465 manns á aldrinum 15–89 ára
og var svarhlutfall 62,4%. Sam-
starfsráð um forvarnir er sam-
starfsvettvangur sex bindind-
issamtaka: Barnahreyfingar IOGT,
Bindindisfélags ökumanna, Bind-
indissamstaka IOGT á Íslandi, Ís-
lenskra ungtemplara, Samvinnu-
nefndar skólamanna um
bindindisfræðslu og Ungmenna-
hreyfingar IOGT.
Fjórði hver neytir ekki áfengis
Könnun á áfengisneyslu gerð fyrir samstarfsráð sex bindindissamtaka um forvarnir
)
'
&#",
; :+
TVÖ sterk tímabil
tísku og tíðaranda
eru kveikjan að
tveimur söng-
leikjum sem sýndir
verða í Reykjavík í
sumar. Inntak
þeirra er talið
munu höfða til
fólks í dag, enda
má finna enduróm
hinna skýru hug-
mynda í samtím-
anum; annars veg-
ar um frið og
frjálsar ástir og
hins vegar þá sann-
færingu að hver sé
sinnar gæfu smið-
ur.
Söngleikurinn
Hárið, frá árinu
1967, verður frum-
sýndur í Austurbæ í blábyrjun júlí, í þriðja sinn af
atvinnuleikurum hér á landi. Leikstjóri er Rúnar
Freyr Gíslason.
Fimmtudagskvöldið 24. júní nk. fer hins vegar
á fjalirnar söngleikurinn Fame frá árinu 1992,
byggður á samnefndri kvikmynd frá 1980. Verk-
inu leikstýrir Bjarni Haukur Þórsson á nýju leik-
sviði í Vetrargarðinum í Smáralind.
Í Tímariti Morgunblaðsins í dag er rætt við
Bjarna Hauk og alla þrjá leikstjóra Hársins á Ís-
landi, um verkin sjálf, tíðarandann og ekki síst
endurútsetta tónlistina sem að samtímasið verð-
ur gefin út á geisladiskum í sumar.
Þau Björn Thors og Ragn-
hildur Steinunn Jónsdóttir
verða í lykilhlutverkum í
sýningum sumarsins.
Tvöföld
sumargleði
MAÐURINN sem handtekinn var við húsleit í
Þorlákshöfn á föstudag viðurkenndi við yfir-
heyrslur lögreglunnar á Selfossi í gær um-
fangsmikla sölu á hörðum fíkniefnum undan-
farið ár og vörslu á fíkniefnum og þýfi, m.a.
vopnum.
Að sögn Elísar Kjartanssonar, rannsóknar-
lögreglumanns á Selfossi, var farið í húsleitina
vegna gruns um fíkniefnasölu og vörslu þýfis.
Í húsi mannsins fundust nokkur grömm af am-
fetamíni, búnaður til sölu og neyslu fíkniefna,
haglabyssa, riffill, loftskammbyssur, skotfæri,
kylfa, nokkrir hnífar og tvær axir. Að lang-
mestu leyti var þetta þýfi úr innbrotum á höf-
uðborgarsvæðinu, auk tölva, hljómflutnings-
tækja, myndavéla og annarra raftækja.
Elís segir þýfið að mestu vera greiðslu til
mannsins fyrir fíkniefni. Hann hafi ekki sjálf-
ur verið í innbrotum en starfsemi hans að-
allega verið bundin við höfuðborgarsvæðið.
Elís segir manninn, sem er á þrítugsaldri, hafa
sýnt samstarfsvilja við rannsóknina og að
loknum yfirheyrslum hafi ekki verið talin
ástæða til að fara fram á gæsluvarðhald yfir
honum. Málið sé engu að síður umfangsmikið
og rannsókn þess haldi áfram hjá lögreglunni
á Selfossi.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Við húsleitina í Þorlákshöfn á föstudag var lagt hald á fíkniefni, vopn og margs konar annað þýfi úr innbrotum á höfuðborgarsvæðinu.
Viðurkenndi umfangsmikla sölu
Hald lagt á mikið af vopnum og öðru þýfi í Þorlákshöfn
♦♦♦