Morgunblaðið - 15.06.2004, Page 10
FRÉTTIR
10 ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
JÓN Sigurður Guð-
mundsson, forstjóri og
ræðismaður Íslands í
Louisville, Kentucky í
Bandaríkjunum, lést
laugardaginn 12. júní
sl.
Jón var fæddur á
Þingeyrum í Austur-
Húnavatnssýslu 27.
júní 1921, sonur
hjónanna Guðmundar
Andréssonar og Jór-
unnar Loftsdóttur.
Jón lauk prófi frá
Verslunarskóla Ís-
lands árið 1938.
Á unglingsárum tók hann mikinn
þátt í Skátahreyfingunni í Reykja-
vík. Hann vann hjá Jóni Loftssyni
hf. í Reykjavík og stýrði innkaupa-
skrifstofu fyrirtækisins í New York
1942 til 1946.
Jón fluttist til Bandaríkjanna
með fjölskyldu sína árið 1950 og
settust þau að í Louisville Ken-
tucky. Hann var einn af stofnendum
og stjórnarformaður Íslensk-Amer-
íska Verslunarráðsins í New York,
og einnig í stjórn American-Scand-
inavian Foundation. Hann stofnaði
Þjóðræknisfélag Ís-
lendinga í Bandaríkj-
unum.
Jón starfaði í harð-
viðariðnaðinum í mörg
ár en árið 1964 stofn-
aði hann sitt eigið
harðviðarfyrirtæki,
Norðland Corporation.
Einnig starfaði hann
sem stjórnarformaður
eða stjórnarmeðlimur í
mörgum aðalsamtök-
um harðviðariðnaðar-
ins í Bandaríkjunum
og Kanada.
Hann var í 20 ár
meðlimur skipulagsnefndar sýsl-
unnar sem hann bjó í.
Jón var ræðismaður Íslands í
Louisville Kentucky.
Hann var sæmdur Fálkaorðunni
árið 1996.
Eftirlifandi eiginkona hans er
Sesselja Svana Eggertsdóttir og
börn þeirra eru Örn Eggert, Jórunn
Hilda og Jón Sigurður og eiga þau 6
barnabörn og eitt barnabarnabarn.
Jarðarför Jóns fer fram miðviku-
daginn 16. júní í Louisville, Ken-
tucky.
Andlát
JÓN SIGURÐUR
GUÐMUNDSSON
samninganefndar Launanefndar,
var fundurinn stuttur og fallist á þá
tillögu kennara að koma næst saman
til fundar 11. ágúst næstkomandi.
Ágreiningur hafi ekki verið gerður
um þá tillögu, þó að samninganefnd-
in hafi verið reiðubúin til áframhald-
andi viðræðna. Birgir Björn segir
engar efnislegar viðræður hafa farið
STJÓRN Kennarasambands Ís-
lands (KÍ) lýsir yfir áhyggjum af
stöðu samningaviðræðna og talar um
skilningsleysi viðsemjenda gagnvart
kröfum kennara og skólastjórnenda
í grunnskólum. Í yfirlýsingu frá
stjórn KÍ er skorað á stjórn Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga að
beita öllum tiltækum ráðum til að
semja við Félag grunnskólakennara
og Skólastjórafélag Íslands um
„nauðsynlegar breytingar“ á launum
og vinnutíma í grunnskólum.
Samninganefndir kennara og
Launanefndar sveitarfélaganna
komu saman á stuttum fundi hjá rík-
issáttasemjara í gær. Að sögn Birgir
Björns Sigurjónssonar, formanns
fram í gær, hvorki um kröfur kenn-
ara eða síðasta tilboð sveitarfélaga.
Verkfallsboðunin áskorun
Sem kunnugt er hafa grunnskóla-
kennarar með atkvæðagreiðslu sam-
þykkt verkfallsboðun 20. september,
hafi samningar ekki tekist fyrir þann
tíma. Spurður um áhrif þeirrar nið-
urstöðu á samningaviðræður segir
Birgir Björn að í henni felist áskorun
á báða aðila að ljúka viðræðum með
undirritun nýs kjarasamnings, þann-
ig að ekki þurfi að koma til verkfalls
sem skaði alla; nemendur, foreldra
og kennara.
Stjórn KÍ vill að sátt ríki um
skólastarfið og að grunnskólinn sé á
hverjum tíma eftirsóknarverður og
aðlaðandi vinnustaður bæði fyrir
starfsmenn og nemendur.
Hlutverk kennara og skóla hafi
tekið miklum stakkaskiptum á und-
anförnum árum vegna breytinga á
menntun og skólastarfi og vegna
breyttra samfélagshátta. Í hlut
kennara komi núorðið margt annað
en að kenna nemendum og meta nám
þeirra. Aukið þjónustuhlutverk
grunnskóla og aukið samstarf þeirra
við heimilin um uppeldi barna og
unglinga hafi haft veruleg áhrif á
starfsemi grunnskólans í heild. Sí-
fellt meiri tíma sé varið í samstarf
innan skóla og utan, aðstoð og ráð-
gjöf, umsjón og eftirfylgni.
Grunnskólakennarar og samninganefnd sveitarfélaga gera hlé á kjaraviðræðum fram í ágúst
Stjórn KÍ skorar á
sveitarfélögin að semja
vaxtar og efnahagslegra framfara, nýta kosti
markaðarins og búa almenningi um leið öryggi og
hagsæld, hafa mannréttindi í hávegum og þróa lýð-
ræði sem sé opið, gegnsætt og víðtækt, samfélög
þar sem upplýsingatæknin er slík almenningseign
að við getum þróað nýjar leiðir við ákvarðanir og
almenna þátttöku í meðferð hins formlega valds,
gert hina nýju veröld að framfaraskeiði lýðræðis
og mannréttinda,“ sagði Ólafur Ragnar.
Skara fram úr í harðnandi samkeppni
Hann sagði að flestir fræðimenn væru sammála
um að á hinni nýju öld væri lýðræðisleg hugsun, lif-
andi og margræð menning, áhersla á sköp-
unarkraft og frumleika mikilvægar forsendur þess
að ná árangri á heimsmarkaði og þar með að skara
fram úr í harðnandi samkeppni þar sem ögrunin
gæti komið úr hvaða átt sem væri.
Forsetinn ræddi einnig um árangur íslenskra
fyrirtækja á heimsmarkaði og nefndi Kaupthing
Bank, Baug Group, Actavis, Össur, Icelandair,
Marel, GoPro og Flögu í því sambandi. Hann benti
t.d. á að nú væru tekjur Íslendinga af lyfjaútflutn-
ingi til Þýskalands meiri en af útflutningi á karfa
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti Íslands, flutti
erindi við upphaf norrænnar sveitarstjórnar-
ráðstefnu í Reykjavík í gær, sem bar yfirskriftina
„Að hugsa á heimsvísu og skapa á heimaslóð“.
Ólafur Ragnar gerði að umræðuefni þau miklu
tækifæri sem sú kynslóð sem nú væri að vaxa úr
grasi á Norðurlöndum hefði ólíkt eldri kynslóðum.
Hún gæti valið hvar hún vildi búa og starfa án mik-
illar fyrirhafnar.
Hann sagði að sveitarfélög, borgir eða þjóðríki
gætu ekki gengið að því vísu að íbúarnir kysu að
búa þar áfram.
Forsetinn sagði að viðbrögð margra við þessari
breyttu mynd hefðu gjarnan verið neikvæð og
sumir hefðu lagt áherslu á að draga varnarlínur til
að bregðast við þróuninni. Reynslan sýndi hins
vegar að í þessum breytingum fælust einnig tæki-
færi fyrir byggðarlögin og árangurinn hefði víða
verið glæsilegur.
Forsetinn vék að samfélagshugsuninni sem
fylgt hefði norrænum mönnum. „Norræn samfélög
eru af mörgum talin fyrirmynd, vegvísir um fram-
tíðina, sönnun þess hvernig hægt er að tryggja vel-
ferð, menntun og heilsugæslu og njóta um leið hag-
til Þýskalands sem lengi hefði verið helsti mark-
aður okkar fyrir karfa.
Ráðstefnuna, sem lýkur á morgun, sækja um
350 manns, fyrst og fremst kjörnir fulltrúar í sveit-
ar- og héraðastjórnum. Hún er haldin á vegum
Sambands íslenskra sveitarfélaga í samstarfi við
sveitarfélagasamböndin annars staðar á Norð-
urlöndunum. Formaður sambandsins, Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson, bauð gesti velkomna.
Yfirskrift ráðstefnunnar er staða norrænna
sveitarfélaga og héraða í hnattvæddum heimi.
Astrid Thors, sem situr á Evrópuþinginu fyrir
hönd Finnlands, fjallaði á ráðstefnunni um stöðu
norrænna sveitarfélaga á vettvangi Evrópumála.
Borgarstjóri Linköping í Svíþjóð, Eva Joelsson,
ræddi um norræna áhrifaþætti á þróun sveitarfé-
laga og héraða næstu ár. Umfjöllun hennar var
byggð á grundvelli mikillar framtíðarrannsóknar
sem nýlega var gerð á vegum sænska sveitarfé-
lagasambandsins.
Í vinnuhópum var fjallað um afmarkaða þætti,
svo sem norræna velferðarsamfélagið, pólitíska
stjórnun í framtíðinni og þróun í átt til netlýð-
ræðis.
Forseti Íslands við upphaf norrænnar ráðstefnu um sveitarstjórnarmál
Getum þróað nýjar
leiðir við meðferð
hins formlega valds
Norræn sveitarstjórnarráðstefna hófst í Reykjavík í gær.
Forseti Íslands sagði í erindi að á Norðurlöndum væri upp-
lýsingatæknin almenningseign og löndin gætu þróað nýjar
leiðir við ákvarðanir og almenna þátttöku í meðferð valds.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga.
ÍSLENSK forrit fyrir þjálfara og
leikmenn í mismunandi íþróttagrein-
um eru í mikilli útrás um þessar
mundir. Brynjar Karl Sigurðsson og
Guðbrandur Þorkelsson eru höfund-
ar forritanna en þeir seldu fyrsta
eintakið árið 2001. Síðan þá hafa þeir
þróað þau enn frekar og komið þeim
á markað í Bandaríkjunum.
Að sögn Brynjars eru forritin
hönnuð fyrir þjálfara og auðvelda
þeim vinnuna svo um munar. Þjálfari
getur t.d. notað forrit til að greina
leiki liðsins, hanna leikskipulag,
koma upplýsingum og kennslu áfram
til leikmanna og svo framvegis.
Ótal lið nýta sér forritin í Banda-
ríkjunum. Þjálfarar háskólaliða í
körfubolta nýta þau mikið og nokkur
lið í NBA-deildinni notast við þau.
„Svo eru jafnvel þjálfarar sem þjálfa
allt niður í 8–9 ára börn sem nota for-
ritin. Við gerðum okkur aldrei grein
fyrir að við færum svona langt niður í
aldri,“ segir Brynjar og bætir við að
nýjasta útgáfan sé fyrir amerískan
fótbolta.
Að hans sögn stendur til að mark-
aðssetja forritin í Evrópu en FIBA,
alþjóða körfuknattleikssambandið,
er tilbúið að taka þau undir sinn
verndarvæng. Brynjar segist ekki
þekkja til þess að sambærileg forrit
séu á markaðnum. „Það er ekki til
neitt svona alhliða forrit sem tekur á
öllum þessum þáttum.“
Nánari upplýsingar um forritin er
að finna á http://www.sideline-
sports.com.
Íslensk forrit
fyrir þjálfara
í mikilli útrás
HALLDÓR Blöndal, forseti Alþing-
is, segir ekkert því til fyrirstöðu að
halda þingið, sem saman kemur 5.
júlí nk., í þingsal alþingishússins, en
þar standa nú yfir ýmsar fram-
kvæmdir vegna endurbóta á húsinu.
Framkvæmdirnar hófust í byrjun
mánaðarins og hefur af þeim sökum
öllum stólum og borðum verið rutt
úr þingsalnum.
Halldór segir að stólum og borð-
um verði aftur komið í þingsalinn
fyrir þingið í sumar en rafræna
kosningakerfið verði þó ekki tilbúið.
„Ég geri ráð fyrir því að við látum
okkur duga handauppréttingu í
staðinn fyrir þessar rafrænu kosn-
ingar sem við höfum haft í venju-
legri atkvæðagreiðslu,“ útskýrir
hann og bætir við: „Maður vandist
því í gamla daga.“
Þingflokksherbergin verða ekki
tilbúin fyrir þinghald í júlí og verða
því þingflokkar, að sögn Halldórs,
að halda fundi sína annars staðar.
Á fullri ferð
Karl M. Kristjánsson, rekstrar-
og fjármálastjóri Alþingis, segir
framkvæmdir í þinghúsinu „á fullri
ferð.“ Í þingsalnum eigi m.a. að
setja nýjar lagnir, sem tengjast raf-
ræna atkvæðagreiðslukerfinu, undir
gólfið og hreinsa út gamlar hita-
lagnir. Þá eigi að gera upp sjálfan
salinn; mála hann og laga gifs. „Við
gerum salinn eins kláran og hægt
er,“ segir hann aðspurður hvort sal-
urinn verði tilbúinn fyrir þinghaldið
í sumar.
Ekkert því til fyrirstöðu
að þing verði í þingsalnum
Morgunblaðið/ÞÖK
Tómlegt er um að litast í þingsal alþingishússins þessa dagana. Unnið er að
endurbótum á gamla þinghúsinu. M.a. á að laga gólf og mála veggi. Stólum
og borðum verður þó komið fyrir í þingsalnum fyrir þinghaldið 5. júlí.