Morgunblaðið - 15.06.2004, Side 15
Áhugaleysi kjósenda
áhyggjuefni í ESB
unni um næstu mánaðamót, sagði að
það yrði forgangsverkefni í for-
mennskutíð Hollendinga að finna
leiðir til að koma borgurum ESB-
landanna í betra samband við sam-
bandið og stofnanir þess. Reijo
Kemppinen, aðaltalsmaður fram-
kvæmdastjórnar ESB, hvatti stjórn-
völd aðildarríkjanna til upplýsa kjós-
endur betur. „Hvar ætti sá sem
ekkert veit um það sem Evrópuþing-
ið á að vera að gera að finna hjá sér
hvöt til að kjósa?“ sagði hann.
Flokkar sem vilja setja skýrar
hömlur á það hversu langt Evrópu-
samruninn gengur, jafnvel láta hann
ganga til baka, juku talsvert fylgi
sitt, þar á meðal Sjálfstæðisflokkur
Bretlands (UK Independence
Party), sem fjórfaldaði þingmanna-
tölu sína.
Yfirlýstir ESB-efasemdarmenn
unnu líka þingsæti í Hollandi, Dan-
mörku, Svíþjóð og víðar, en stjórn-
málaleiðtogar bentu á að þessir menn
yrðu eftir sem áður jaðarhópur á
þingi. „85–90% kjósenda kusu afger-
andi Evrópusinnaða flokka,“ lagði
Graham Watson, leiðtogi þingflokks
frjálslyndra á EÞ, áherzlu á.
ingana með öruggum meirihluta í
þjóðaratkvæðagreiðslum. Meðal
nýju aðildarríkjanna tíu var kjör-
sóknin minnst í Slóvakíu, 16,9%, en
mest á Möltu, þar sem hún náði 82%.
Völd EÞ vaxa en
áhugi kjósenda vex þó ekki
Í Lúxemborg komu utanríkisráð-
herrar ESB-ríkjanna saman í gær til
að reyna að ganga þannig frá drögum
að nýjum stjórnarskrársáttmála
sambandsins að unnt muni reynast
að slá smiðshöggið á hann á leiðtoga-
fundi í vikulokin. „Ein skýr skilaboð
frá kjósendum um alla Evrópu eru
þau, að þeir vilja að Evrópusamband-
ið vinni betur að hagsmunamálum
þeirra,“ sagði Jack Straw, utanrík-
isráðherra Bretlands. „Það er ein-
mitt tilgangurinn með stjórnarskrár-
sáttmálanum.“
Samkvæmt sáttmáladrögunum
munu áhrif Evrópuþingsins á
ákvarðanatöku ESB aukast til muna,
en sú ímynd þingsins að það hafi lítið
að segja hefur ýtt undir áhugaleysi
kjósenda á því.
Ben Bot, utanríkisráðherra Hol-
lands sem tekur við ESB-formennsk-
STJÓRNMÁLALEIÐTOGAR í að-
ildarríkjum Evrópusambandsins
(ESB) voru slegnir í gær yfir úrslit-
um kosninganna til Evrópuþingsins,
sem lauk á sunnudag. Mjög lítil kjör-
sókn, sérstaklega í nýju aðildarlönd-
unum í Mið- og Austur-Evrópu, og
aukið fylgi flokka sem eru andsnúnir
Evrópusambandinu var áfall fyrir
alla forsvarsmenn þess. Margir
þeirra sögðu úrslitin sýna að meira
yrði að gera til að færa sambandið og
stofnanir þess nær almenningi.
Í nær öllum löndunum 25, sem
tóku þátt í að kjósa hina 732 fulltrúa
sem sitja munu á Evrópuþinginu
næstu fimm árin, kusu kjósendur að
nota atkvæði sitt til að veita eigin rík-
isstjórn ráðningu.
„Við verðum að sýna að Evrópa
[les: Evrópusambandið] virkar,“
sagði Brian Cowen, utanríkisráð-
herra Írlands, sem gegnir for-
mennskunni í ESB þetta misserið.
Hann kallaði úrslitin „vakningarkall“
til ríkisstjórna aðildarríkjanna.
Heildarkjörsókn í þessum sögu-
legu kosningum – þeim fyrstu eftir að
tíu ríki fengu inngöngu í sambandið í
maí – var 45,5%. Í eldri aðildarríkj-
unum 15 var kjörsóknin 49%, sem er
aðeins 0,8 prósentustigum minna en í
síðustu kosningum fyrir fimm árum.
En í nýju aðildarlöndunum í Mið- og
Austur-Evrópu var kjörsóknin að
meðaltali aðeins 26,4%, sem var
mörgum mikil vonbrigði svo skömmu
eftir að þessar þjóðir, sem í tæpa
hálfa öld voru „lokaðar inni“ í Aust-
urblokkinni, sömdu sig inn í sam-
bandið og samþykktu aðildarsamn-
!
" # $
%
&
'
!
"
#
$
%
!
!"#$%&'(%%&)
*
&'()*!+),-)./$.!$012)3(,+$!-)4$
,)12)
)+-)5(&'6),) 7 8-)
#)2&6),1)/)&'/-
"
# ""
$
""
Brussel, Lúxemborg. AP, AFP.
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2004 15
Ilmurinn hennar
GJÖFIN ÞÍN
Þessi taska er gjöfin* þín þegar þú kaupir
tvær Cacharel vörur, þar af einn 50 ml ilm,
á næsta Cacharel útsölustað.
*meðan birgðir endast.