Morgunblaðið - 15.06.2004, Side 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2004 25
Nú getur þú tryggt þér síðustu sætin til Portúgal þann 30. júní á
hreint ótrúlegum kjörum. Njóttu frísins á Algarve, vinsælasta
áfangastaðar Portúgal við frábærar aðstæður um leið og þú nýtur
traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða í fríinu. Þú bókar núna,
tryggir þér síðustu sætin og 3
dögum fyrir brottför færðu að
vita á hvaða gististað þú býrð.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Verð kr. 29.995
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, flug,
gisting, skattar. Vikuferð, 30. júní.
Stökktutilboð, netverð.
Verð kr. 39.990
M.v. 2 í stúdíó/íbúð, vikuferð, 30. júní,
Stökktutilboð, netverð.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Stökktu til
Portúgal
30. júní
frá kr. 29.995
REYKJAVÍK • AKUREYRI
„Bumbubaninn“
sívinsæli
gerir sitt gagn.
EFTIR húsnæðisbasl og hrakhóla
árum saman hefur Leikfélag Hafnar-
fjarðar nú fengið gamla Lækjarskól-
ann undir starfsemi sína til frambúð-
ar og úbúið sér splunkunýtt leikhús á
neðstu hæðinni. Þar ætlar félagið að
sýna þakklæti sitt og halda upp á her-
legheitin með því að setja fyrst upp
fimm leiksýningar á fimm mánuðum
en allt eru það klassísk, þýdd leik-
verk. Stórhugurinn er svo mikill að til
viðbótar leikstýra félagar sjálfir þess-
um leikritum en í áhugafélögum er al-
gengast að fá aðkeyptan atvinnuleik-
stjóra þó að hitt hafi ætíð verið gert
líka.
Fyrsta leikritið, leikgerð Hafliða
Arngrímssonar á hinni þekktu sögu
Hamskiptunum eftir Kafka, er ekki
auðvelt í uppsetningu. Sagan fjallar
um ungan mann, Gregor Samsa, sem
gengur vel í lífinu, er sölumaður sem
sér fyrir fjölskyldu sinni en kemur
veikur heim einn góðan veðurdag og
þá sígur heldur betur á ógæfuhliðina.
Smám saman breytist ungi maðurinn
í skordýr fyrir augunum á fjölskyld-
unni sem heldur þrátt fyrir það áfram
að vera sérhlífin og værukær með af-
brigðum. Það má túlka sögu Kafka á
ýmsan hátt og lengi má deila um réttu
leiðina, til dæmis hvað sé ímyndun og
hvað veruleiki og hver ímyndar sér
hvað um annað fólk sem allt er á sín-
um básum. Leikstjórinn Snorri Eng-
ilbertsson, sem aðeins rúmlega tví-
tugur stýrir fyrsta verki sínu, velur
þá leið að láta áhorfendur ímynda sér
breytinguna á Gregor. Það er nátt-
úrlega ekki hver sem er sem getur
leikið hlutverkið þannig en hér var
það Gunnar Björn Guðmundsson,
hinn flinki leikhús- og kvikmynda-
maður sem túlkaði hinn ólánsama
skordýrsmann og gerði það fjarska-
lega vel. Hann var sérstaklega sann-
færandi þegar hann skreið um og ótt-
aðist að vekja andstyggð móður
sinnar og systur og þegar hann kúg-
aðist af matnum. Bestur var hann þó
þegar hann horfði á sjálfan sig utan
frá og talaði af yfirvegaðri sorg um
það hvernig málum væri komið milli
hans og annarra. Í þeim senum fór
annar leikari í flet hans en það var al-
veg óþarfi að flækja svo málin því það
dró aðeins úr áhrifamætti og flæði
sýningarinnar að hafa tvo Gregora.
Það hefði þá þurft að vinna meira með
þá lögn svo hún hefði tilgang.
Viðbrögð fjölskyldunnar við um-
breytingunni á Gregor hafa svo auð-
vitað mikið að segja um það hvernig
áhorfendur sjá hann. Það var einstak-
lega ánægjulegt að fá svo mikil heild-
aráhrif af útliti og framkomu föður,
móður og systur Gregors. Þau voru
dásamlega værukær, siglandi í þéttu
útlitinu og náðist einhver grótesk
andstæða við hinn, þrátt fyrir allt, fín-
gerða Gregor. Hins vegar var í kyn-
lífssenu foreldranna farið of langt í að
sýna hve úrkynjuð þau voru þegar
áhrifameira hefði verið að gefa í skyn.
Halldór Magnússon er einn af hæfi-
leikaríkustu áhugaleikurum okkar og
hann fór létt með að leika hinn sið-
blinda og eigingjarna heimilisföður;
hann var alltaf á fínu línunni milli þess
að vera ofur venjulegur vísitölufaðir
og ákaflega ógeðslegur. Kristín Svan-
hildur Helgadóttir var fyndin og af-
káraleg á köflum en um leið kunn-
ugleg sem húsmóðirin sínartandi,
sem hylmir yfir og afsakar allt í skjóli
kvenlegrar góðmennsku. Dótturina
lék Elva Dögg Gunnarsdóttir en það
var eitthvað óborganlega fyndið við
göngulagið og svipinn hjá hálffull-
orðnu barninu sem hún sýndi.
Lýsingin var ágætlega gerð en
nokkuð flókin og gætti seinagangs á
frumsýningunni. Sviðsmyndin var
óþarflega viðamikil miðað við lítið
leikrými fjölskyldunnar þó að gaman
væri að sjá alla litlu hlutina sem gera
heimili að heimili og einmitt heimili
þessarar fjölskyldu. Til þess að af-
marka herbergin voru notaðar viðar-
plötur sem náðu rétt upp úr gólfinu
en þar hefði aftur þurft að treysta
áhorfendum til þess að ímynda sér og
með því að sleppa þeim hefði rýmið
líka orðið léttara. Það var vel til fund-
ið að hafa kjallaraherbergi Gregors á
gólfi salarins og áhorfendur allt í
kring en íbúð fjölskyldunnar uppi. En
það má velta fyrir sér hvort skýrara
hefði verið að fara annaðhvort nat-
úralísku leiðina eða þá súrrealísku í
heildarútlitinu en ekki að eiga við
báðar samtímis. Þannig yrðu skilin
milli heimanna tveggja ekki eins
skörp en líklegt er að Kafka hafi
reynt að sýna fram á það með sögunni
sinni. Það breytir því þó ekki að Leik-
félagi Hafnarfjarðar tókst vel að birta
óhugnað og grótesku þá sem Kafka
vildi sýna okkur með sögu sinni af
unga manninum sem á sér ekki við-
reisnar von í samfélagi manna. Hafn-
firðingum er óskað til hamingju með
þor og dug í nýju leikhúsi við Lækinn.
Stórhuga Hafnfirðingar
LEIKLIST
Leikfélag Hafnarfjarðar
Höfundur: Franz Kafka. Leikgerð: Hafliði
Arngrímsson. Leikstjóri: Snorri Eng-
ilbertsson. Leikmynd: Ingvar Bjarnason,
Jón Stefán Sigurðsson, Hilmar Karl Arn-
arson og Snorri Engilbertsson. Ljós:
Hilmar Karl Arnarson. Frumsýning í
Gamla Lækjarskólanum, 28. maí 2004.
HAMSKIPTIN
Hrund Ólafsdóttir
LÍF blásarasveita á Íslandi er óvenju
fjörugt í vikunni. Þar sker sig úr
þjóðhátíðardagurinn 17. júní með
tilheyrandi lúðrablæstri, en auk þess
er von á erlendum hljómsveitum
hingað til lands og til að setja punkt-
inn yfir i-ið verður landsmót ís-
lenskra lúðrasveita haldið í Vest-
mannaeyjum í vikulokin.
Þrjár norrænar blásarasveitir
verða með tónleika í vikunni: Jaren
Hormusikforening sem er ein af 10
bestu málmblásarasveitum Noregs
verður með tónleika í Salnum í
Kópavogi í dag, þriðjudag, kl. 20.
Nardo Skolekorps frá Þrándheimi
verður með tónleika í Ráðhúsi
Reykjavíkur kl. 16.30 á morgun en
hún heldur nú uppá 50 ára afmæli
sitt. Þau koma fram ásamt gest-
gjöfum sínum úr Skólahljómsveit
Kópavogs og flytja blandaða efnis-
skrá. Frítt er inn þá tónleikana.
Nardo Skolekorps taka einnig þátt í
skrúðgöngu í Kópavogi 17. júní, en
sterk vinabæjartengsl eru milli
Kópavogs og Þrándheims.
Finnska blásarasveitin Lappböle-
Hornkapelle tekur þátt í hátíðahöld-
um Reykvíkinga á 17. júní og verður
með tónleika í Höllinni í Vest-
mannaeyjum föstudaginn 18. júní kl.
20.30, ásamt áðurnefndri Jaren
Hornmusikforening frá Noregi. Þeir
tónleikar eru hluti af landsmóti
Sambands íslenskra lúðrasveita,
sem fram fer í Vestmannaeyjum
dagana 18.-20. júní. Þá á Samband
íslenskra lúðrasveita 50 ára afmæli.
Unnendur góðrar blásaratónlistar
ættu því að hafa úr nógu að velja í
vikunni.
Blásaratíð í vændum
Morgunblaðið/Ásdís
Sameinuð hljómsveit reykvískra lúðrasveita kom saman í fyrsta skipti á
dögunum og flutti Vatnasvítuna eftir Georg Friedrich Händel.
SUMARÓPERAN ætlar í
ár að setja upp verkið
Happy End eftir Kurt
Weill og Bertolt Brecht og
verður það frumsýnt í Ís-
lensku óperunni 7. ágúst.
Síðast mátti heyra lög
þeirra félaga á tónleikum
þýsku söngkonunnar Ute
Lemper í Háskólabíói. Með
uppsetningu á þessu verki
stígur Sumaróperan ný
skref. Síðastliðin tvö ár hef-
ur hún sett upp barokk-
óperur, en nú er það Kurt
Weill. Happy End gerist í
undirheimum Chicago-
borgar á þriðja áratugnum.
Þar eigast við Hjálpræðis-
herinn og harðsvírað
glæpagengi með ófyrirséð-
um afleiðingum, en allt
endar það vel að lok-
um … eða hvað?
Um 15 leikarar og söngv-
arar koma fram í sýning-
unni ásamt átta manna
hljómsveit sem er skipuð
nokkrum af þekktustu tón-
listarmönnum landsins.
Bogomil Font leikur eitt
hlutverkanna og er það í
fyrsta skipti sem hann tek-
ur að sér hlutverk á sviði.
Aðrir listamenn eru Hrólfur Sæ-
mundsson, Valgerður Guðnadóttir,
Hallveig Rúnarsdóttir, Brynja Val-
dís Gísladóttir og Guðmundur Jóns-
son svo einhverjir séu nefndir. Leik-
stjóri sýningarinnar er Kolbrún
Halldórsdóttir og um leikmynd og
búninga sér Elín Edda Árnadóttir.
Tónlistarstjórar eru Sigtryggur
Baldursson og Vignir Stefánsson.
Sumaróperan
sýnir Happy End í
Íslensku óperunni
Morgunblaðið/Sverrir
Hluti hópsins sem kemur að Happy End á
tröppum Íslensku óperunnar: Bogomil Font,
Hrólfur Sæmundsson, Valgerður Guðnadótt-
ir og Kolbrún Halldórsdóttir leikstjóri.
DAGSKRÁ lista- og menning-
arhátíðarinnar Bjartir dagar í
Hafnarfirði í dag er eftirfarandi:
Kl. 14–18 Austurgata 17
Allir velkomnir að kíkja í heim-
sókn á vinnustofu til listakon-
unnar Sigrúnar Guðjónsdóttur.
Kl. 19 Gamla bókasafnið
Rafkvöld. Fram koma m.a.
McNonni, „Two vampires and
dead guy crew“, Hermigervill
og Retrospect ásamt fleirum.
Kynning á tölvutónlistarforriti.
Kl. 21 Bæjarbíó
Frumsýning kvikmyndarinnar
Konunglegt bros eftir Gunnar
B. Guðmundsson. Að auki verð-
ur sýnd stuttmyndin Kara-
mellumyndin eftir sama höfund
en hún hlaut Eddu-verðlaunin
2003. Aðgangseyrir kr. 500.
Bjartir
dagar
Listasafn Íslands kl. 12.10–12.40
Rakel Pétursdóttir safnfræðingur
fer með gestum um sýninguna Í
nærmynd/Close-up, bandarísk sam-
tímalist.
Sýningin spannar tímabilið frá 1980
til 2003.
Súfistinn kl. 20.30 Konur úr
Bríeti, félagi ungra feminista, efna
til samdrykkju um kúgun kvenna.
Þær munu fjalla um ritið Kúgun
kvenna eftir John Stuart Mill. Bryn-
hildur Heiðardóttir Ómarsdóttir,
doktorsnemi í bókmenntafræði, og
Hólmfríður Anna Baldursdóttir,
kynjafræðingur fjalla um verkið
útfrá hugmyndum feminista sam-
tímans. Þær munu segja frá Mill og
sambandi hans við konu hans Harr-
iet Taylor og fjalla einnig um ís-
lensku hliðstæðuna, samband Bríet-
ar Bjarnhéðinsdóttur og Páls Briem.
Samdrykkjan er haldin í tilefni af því
að Frelsið og Um kúgun kvenna eru
Lærdómsrit mánaðarins í bóka-
verslunum.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Gengið um
óbyggðir – Hand-
bók fyrir útivist-
arfólk er eftir Jón
Gauta Jónsson.
Hann er marg-
reyndur fjallaleið-
sögumaður og
miðlar af reynslu
sinni og fjölda
annarra sérfræðinga um ferðalög í
óbyggðum.
Í bókinni er hagnýtur fróðleikur fyrir
þá sem ætla að leggja land undir fót og
ferðast um hálendið, jafnt þá sem litla
eða enga reynslu hafa og þá sem van-
ari eru. Í fréttatilkynningu segir m.a.:
„Landsmenn hafa uppgötvað fjöllin og
óbyggðirnar og kynnst því hve stórkost-
legt er að ganga um Ísland. En það er í
mörg horn að líta áður en lagt er af
stað í fjallaferð. Í bókinni er að finna
upplýsingar í máli og myndum um flest
það sem hafa þarf í huga áður en hald-
ið er af stað og fjallað um ýmislegt
sem nauðsynlegt er að kunna skil á í
ferðum fjarri mannabyggðum.“
Útgefandi er Almenna bókafélagið.
Bókin er 240 bls. Verð: 4.490 kr.
Útivist