Morgunblaðið - 15.06.2004, Qupperneq 43
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2004 43
Fæst í
bókabú›um
HELGIN var frekar ró-
leg, með færra móti í
miðbænum og lítil af-
skipti þurfti að hafa af
fólki. Aðfaranætur laugardags
og sunnudags var sérstakt eft-
irlit með umferð og voru stöðv-
aðar rúmlega 600 bifreiðar. Einn
af ökumönnum þessara bifreiða
reyndist ölvaður og nokkur önn-
ur umferðarlagabrot komu upp
við þetta eftirlit.
Um helgina var tilkynnt um 10
innbrot, 19 þjófnaði og 15 sinn-
um var tilkynnt um skemmd-
arverk.
Um helgina var tilkynnt um 31
umferðaróhapp og var í 6 þeirra
um minniháttar meiðsli að ræða.
48 ökumenn voru kærðir fyrir of
hraðan akstur og 12 voru grun-
aðir um ölvun.
Á föstudagsmorgunn var til-
kynnt um að íbúð á efstu hæð við
Blönduhlíð væri full af reyk. Er
slökkvilið og lögregla komu á
staðinn kom í ljós að kviknað
hafði í út frá kertaskreytingu.
Varð af mikill reykur en lítill
eldur og voru skemmdir taldar
minniháttar.
Átök við Eiðistorg
Til átaka kom milli manna að-
faranótt laugardags við Eiðis-
torg á Seltjarnarnesi. Eftir að
átökum linnti settist annar að-
ilinn undir stýri á bifreið sinni
og ók á þann sem hann hafði
verið að slást við og ók síðan á
brott. Hann náðist skömmu síðar
og viðurkenndi að hafa ekið á
manninn. Sá sem fyrir bifreiðinni
varð er ekki talinn hafa slasast
alvarlega en var fluttur á slysa-
deild.
Á laugardagskvöldið var til-
kynnt að eldur væri laus í íbúð
við Flókagötu. Þarna hafði 4 ára
sonur húsráðanda komist yfir
eldspýtur og kveikt á einni undir
svefnpoka. Við það kviknaði í
rúmdýnu og varð af mikill reyk-
ur. Engan sakaði en nokkrar
skemmdir urðu, aðallega af völd-
um reyks.
Undir morgunn á sunnudag
var maður sleginn í andlitið, þar
sem hann var staddur á salerni á
veitingastað í miðborginni. Hann
var talinn nefbrotinn. Málið er í
rannsókn.
Um hádegi á sunnudag komu
húsráðendur sem búa við Eini-
mel að þrem mönnum er þau
komu heim. Höfðu þau farið út í
skamman tíma og mennirnir
komið í millitíðinni, brotið
glugga í kjallara og farið inn.
Tókst þeim að stela um 50 þús-
und krónum í peningum og far-
síma. Þeim tókst að komast und-
an og er málið í rannsókn.
Seinni partinn á sunnudag var
tilkynnt um tilraun til þjófnaðar
á fimm flíkum úr verslun í
Kringlunni. Kona á áttræðisaldri
hafði tekið þjófavarnir af flík-
unum og reyndi síðan að komast
með þær út en var stöðvuð af ör-
yggisvörðum.
Helstu verkefni lögreglunnar 11. til 14. júní
Helgin frekar róleg
Þriðjudagsganga í Viðey Göngu-
ferð undir leiðsögn Örvars B. Eiríks-
sonar sagnfræðings þar sem farið
verður austur í þorp. Í ferðinni verð-
ur skoðuð ljósmyndasýning um Við-
ey á fyrri hluta 20. aldar og einnig
kíkt í félagsheimili Viðeyingafélags-
ins þar sem uppi er sýning um
strand tundurspillisins Skeena. Lagt
verður af stað með Viðeyjarferjunni
frá Sundahöfn kl. 19.30. Gangan tek-
ur u.þ.b. tvær klukkustundir og
kostar 500 kr. fyrir fullorðna en 250
kr. fyrir börn. Ef þátttaka er nægi-
leg verður kaffisala í Stofunni í lok
göngunnar.
Göngum um Ísland Opnun verkefn-
isins fer fram í Borgarfirði með
skipulagðri göngu um Jafnaskarðs-
skóg með leiðsögn Birgis Hauks-
sonar skógarvarðar. Ekið er út af
þjóðvegi nr. 1 rétt sunnan við Bifröst
í Norðurárdal. Við veginn er skilti
sem á stendur Jafnaskarðsskógur-
Hreðavatn. Fylgið upplýsinga-
skiltum. Gengið verður frá bílastæð-
inu kl. 20 í kvöld.
Í DAG
ardaginn 19. júní nk. verður hið
vinsæla og sérstæða Fjöruhlað-
borð í Hamarsbúð í Húnaþingi
vestra og hefst það kl. 19.00. Þar
verður að vanda fjölbreyttur og
góður matur á borðum. Má þar
nefna selkjöt nýtt og reykt, graf-
inn silung og reyktan rauðmaga,
signa grásleppu og súra selshreifa,
harðfisk og hákarl. Húsfreyjurnar
á Vatnsnesi halda sumarhátíðina
nú í níunda sinn. Þær leggja
áherslu á að hlaðborðið sé sem
glæsilegast og þar geti allir fengið
að bragða eitthvað við sitt hæfi. Í
stórtjaldinu verður m.a. böggla-
uppboð og fjöldasöngur. Þar munu
Guðmundur og Eiríkur sjá um
tónlistina. Tvær gönguferðir með
leiðsögn verða farnar þennan
sama dag og eru þær inni í dag-
skrá Bjartra nátta. Önnur er göm-
ul fjárrekstrarleið yfir Vatns-
nesfjall, milli Þverárréttar og
Hamarsréttar, krefjandi ganga um
17 km löng með 700 m hækkun.
Brottför verður kl. 12.00 á hádegi
frá Syðri-Þverá í Vesturhópi. Hin
gönguleiðin er ströndin frá
Ánastaðastapa út að Hamarsbúð.
Um 5 km löng leið sem flestir geta
gengið. Brottför er kl. 16.00 frá
vegvísi skammt sunnan Skarðs á
Vatnsnesi.
Konur í baráttu Dagana 18. og 19.
júní nk. verður haldin í Reykjavík
ráðstefnan: Konur í baráttu: Óður
til kvenfrelsiskvenna Rómönsku
Ameríku á tuttugustu öld. Dag-
skráin fer aðallega fram á
spænsku en er öllum opin. Fyr-
irlestrar verða haldnir í Öskju,
stofu 130 (nýju húsnæði Háskóla
Íslands í Vatnsmýrinni) og hefst
hún báða daga kl. 10 f.h. og svo
aftur kl. 14.00 e.h. Ráðstefnan er
samvinnuverkefni Stofnunar Vig-
dísar Finnbogadóttur og HAINA
(Samtaka fræðimanna um málefni
kynjanna í Rómönsku Ameríku) og
til landsins eru væntanlegir 10 er-
lendir fyrirlesarar sem fjalla munu
um rannsóknir sínar.
Blómaskreytinganámskeið Uffe
Balslev blómaskreytir heldur fimm
daga námskeið í blómaskreyt-
ingum í vinnustofu sinni í Hvassa-
hrauni, Vatnsleysuströnd, dagana
21.–25. júní nk. Námskeiðið er
u.þ.b. 40 klst. og kennt er frá kl.
9–17. Kennt verður að búa til
blómvendi, brúðarvendi, skreyt-
ingar, útfararskreytingar og annað
eftir óskum hvers og eins. Unnið
er úr ræktuðum og náttúrulegum
efnum. Hægt er að panta tíma og
fá nánari upplýsingar hjá Uffe.
Bjartar nætur á Vatnsnesi Laug-
Á NÆSTUNNI
MÆÐRASTYRKSNEFND
Reykjavíkur hefur nýlega fengið
að gjöf mikið af nýjum fatnaði, að-
allega barnafatnaði. Þessi höfðing-
lega gjöf barst frá fyrirtækinu
AKS ehf., sem heldur markaðinn
„Merkjavara á silfurfati“ í Perl-
unni tvisvar á ári. Fötin eru gefin
án skilyrða og mun Mæðrastyrks-
nefnd dreifa fatnaðinum til skjól-
stæðinga sinna hér innanlands,
þar sem þörfin er brýnust hverju
sinni.
Fram kemur í fréttatilkynningu
frá Mæðrastyrksnefnd að gjöfin
komi sér einkar vel þar sem alltaf
sé mikil þörf á vönduðum barna-
fatnaði.
Þeir sem koma færandi hendi til
Mæðrastyrksnefndar eru einstak-
lingar eða fyrirtæki sem gefa ým-
ist nýjar vörur eða vel með farna
notaða hluti. Þeir sem vilja styðja
starf nefndarinnar geta haft sam-
band í síma 863 8874.
Úthlutanir Mæðrastyrksnefndar
eru í hverri viku, á miðvikudögum
frá kl. 14 til 17 í húsnæði nefnd-
arinnar að Sólvallagötu 48.
Mæðrastyrksnefnd
fær barnaföt að gjöf
Konurnar hjá Mæðrastyrksnefnd voru önnum kafnar við að flokka og raða
barnafötum fyrir afhendingu á miðvikudaginn en gáfu sér stund til að
skjótast út í blíðuna til myndatöku. Á myndinni eru f.v. Kristín Njarðvík,
Hildur G. Eyþórsdóttir, formaður nefndarinnar, Halldóra Sigurbjörns-
dóttir og Einar Sigfússon sem afhenti fötin fyrir hönd AKS ehf.
TRYGGINGASKÓLANUM var slit-
ið fimmtudaginn 10. júní sl. Á þessu
skólaári luku 30 nemendur námi við
skólann, ýmist svonefndu grunnámi
eða sérnámi. Við skólaslitin var nem-
endum afhent prófskírteini, en frá
stofnun skólans fyrir rúmum 40 ár-
um, hafa verið gefin út alls 1.213
prófskírteini frá Tryggingaskólan-
um.
Varaformaður Sambands ís-
lenskra tryggingafélaga, Einar
Sveinsson, afhenti nemendum viður-
kenningu fyrir góðan prófárangur.
Verðlaun hlutu Eyrún Baldvinsdótt-
ir, Sjóvá-Almennum tryggingum hf.,
Katrín Bryjnarsdóttir, Vátrygginga-
félagi Íslands hf., Erna Kristjáns-
dóttir, Tryggingamiðstöðinni hf.,
Fylkir Þór Guðmundsson, Verði vá-
tryggingafélagi hf. og Heiður Huld
Hreiðarsdóttir, Tryggingamiðstöð-
inni hf.
Frá árinu 1962 hefur Samband ís-
lenskra tryggingafélaga starfrækt
skóla fyrir starfsfólk vátrygginga-
félaganna undir heitinu Trygginga-
skóli SÍT. Málefni skólans eru í
höndum sérstakrar skólanefndar,
sem skipuð er fimm mönnum. For-
maður skólanefndar er Eggert
Ágúst Sverrisson. Daglegan rekstur
annast hins vegar Samband ís-
lenskra tryggingafélaga. Vátrygg-
ingafélögin innan vébanda SÍT
standa straum af kostnaði við rekst-
ur skólans. Námi í skólanum er skipt
í tvo meginþætti, þ.e. annars vegar
viðamikið og áfangaskipt grunnnám
og hins vegar sérnám, sem er nám-
skeið um afmörkuð svið vátrygginga,
og er ætlað þeim, er lokið hafa
grunnnámi. Námskeiðum skólans
lýkur með prófum. Einnig gengst
skólinn fyrir fræðslufundum og
námsstefnum, og hefur með höndum
útgáfustarfsemi.
Skólaslit
Trygginga-
skólans
TÍMARITIÐ ÁHRIF, sem fjallar
einvörðungu um vímuefnaforvarnir,
kemur út á morgun. Það kom fyrst
út árið 1994 en útgáfan er samstarfs-
verkefni Bindindisfélags ökumanna
(BFÖ), Fræðslumiðstöðvar í fíkni-
vörnum (FRÆ) og ÍUT-forvarna-
samtaka.
Tímaritinu er dreift í 3000 eintök-
um til einstaklinga, stofnana og sam-
taka í landinu auk fjölmargra aðila
sem vinna að forvörnum. ÁHRIF
1.04 verður einnig aðgengilegt á vef-
síðu FRÆ; www.forvarnir.is.
Umfjöllun um
forvarnir gegn
vímuefnum
Tímaritið Áhrif
www.thjodmenning.is
♦♦♦