Morgunblaðið - 15.06.2004, Side 46
ÍÞRÓTTIR
46 ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DICK Advocaat landsliðsþjálfari
Hollendinga hefur ákveðið að tefla
Ruud Van Nistelrooy fram í
fremstu víglínu í leiknum gegn
Þjóðverjum í dag. Advocaat ætlar
að beita leikaðferðinni 4-3-3 svo að-
eins er pláss fyrir einn framherja
en fjórir berjast um þá stöðu í lið-
inu, Nistelrooy, Roy Makaay, Pat-
rick Kluivert og Pierre van
Hooijdonk.
Öll spjót hafa beinst að Advoccat
vegna þeirrar ákvörðunar hans að
taka Nistelrooy fram fyrir Kluivert
og Makaay og hefur mátt skynja að
þeir tveir síðastnefndu, og þá sér-
staklega Makaay, eru ekki beint
sáttir við ákvörðun þjálfarans.
Kluivert hefur skorað 40 mörk í
76 landsleikjum, Makaay 5 mörk í
32 leikjum og Nistelrooy 14 mörk í
33 leikjum. „Ég þarf ekkert að
skýra út ákvörðun mína,“ sagði
Advocaat á fréttamannafundi þeg-
ar hann var spurður út í valið á
framherjunum. „Fjölmiðlar hafa
sínar hugmyndir um hvernig liðið á
að vera en ég er þjálfarinn og ég á
síðasta orðið um það hvernig liðið
er valið,“ sagði Advocaat.
Dick Advocaat veðjar á
Nistelrooy í sókninni
Dick Advocaat og
Edgar Davids.
AKRANESHLAUPIÐ fór fram á
laugardaginn og voru þátttakendur
vel á þriðja hundruð og þar af hlupu
55 hálft maraþon. Í hálfmaraþoninu
sigraði Steinar Jens Friðgeirsson
sem kom í mark á 1.19,14 klst. Gísli
Einar Árnason varð annar á 1.20,19
klst og Ingólfur Örn Arnarson þriðji
á 1.20,21 klst. Fyrstu konur í mark
voru Margrét Elíasdóttir á 1.34,38,
Huld Konráðsdóttir á 1.38,31 og Guð-
rún Kristín Sæmundsdóttir á 1.54,04.
Í 10 km hlaupi kom Valur Þórsson
fyrstu í mark á 25,17 mín, Ólafur
Thorlacius varð anna rá 36,13 mín og
Jakob Einar Jakobsson þriðji á 36,38
mín. Áslaug Ösp Aðalsteinsdóttir
varð fyrst í kvennaflokki á 48,26 mín,
Marianne Sigurðardóttir önnur á
56,25 mín., og Anna Sólveig Smára-
dóttir þriðja á 57,02 mín.
MIÐJUMAÐURINN snjalli Edgar
Davids mun líklega skrifa undir
þriggja ára samning við Barcelona
bráðlega. Davids sem er 31 árs hol-
lenskur landsliðsmaður var lánaður
frá Juventus til Barcelona í janúar.
Hann spilaði mjög vel fyrir liðið og
átti mikinn þátt í góðu gengi Barce-
lona eftir áramót.
ENSKA úrvalsdeildarliðið í knatt-
spyrnu Blackburn Rovers hefur hafið
viðræður við Leeds United um kaup á
fyrirliða liðsins, Dominic Matteo, en
hann er 30 ára gamall varnarmaður.
GAMLA kempan Dion Dublin hef-
ur gengið til liðs við Leicester City frá
Aston Villa á frjálsri sölu. Dublin lék
lengst af í stöðu framherja og er einn
ellefu leikmanna sem skorað hafa
fleiri en 100 mörk í ensku úrvalsdeild-
inni en á síðasta tímabili lék hann í
stöðu miðvarðar.
MAGIC Johnson, fyrrverandi leik-
maður Los Angeles Lakers, gagn-
rýndi liðið harðlega um helgina fyrir
lélega frammistöðu í leikjunum gegn
Detroit Pistons um NBA-titilinn. „Ég
held að Lakers hafi ekki sýnt Detroit
þá virðingu sem liðið á skilið. Leik-
menn Lakers hafa kannski haldið að
það yrði mjög auðvelt að sigra Detroit
en það er öðru nær. Ég er reiður því
Lakers spilar ekki af krafti og ef liðið
bætir ekki leik sinn mun Detroit
verða NBA-meistari,“ sagði Magic
sem er varaforseti Los Angeles Lak-
ers.
MAGIC Johnson gagnrýndi einnig
Karl Malone og Gary Payton sem
gengu í raðir Lakers síðasta sumar.
„Malone á ekki að láta stuðnings-
menn Detroit hafa áhrif á sig og hann
á aldrei að svara þeim til baka. Payton
er ekki sami leikmaður og fyrir tíu ár-
um og hann verður að sætta sig við
það. Hann hefur fengið fullt af opnum
skotum gegn Detroit sem hann hefur
misnotað og hann hefur einnig verið
mjög slakur í varnarleiknum,“ sagði
Magic.
FÓLK OWEN Hargreaves, leikmaður
Englands og Bayern München, var-
ar aðrar þjóðir við því að vanmeta
Þýskaland í Evrópukeppninni. Hann
telur að Þjóðverjar geti staðið sig
mun betur en margir halda en þeir
eru í riðli með Tékklandi, Hollandi
og Lettlandi og mæta Hollendingum
í Aveiro kl. 16 í dag.
„Þjóðverjar eru ófyrirsjáanlegir.
Það bjóst enginn við því að þeir
kæmust alla leið í úrslitaleikinn á
HM fyrir tveimur árum og fólk varð
einnig mjög undrandi þegar þeir
komust ekki upp úr riðlinum á EM
fyrir fjórum árum. Þýskaland er í
mjög erfiðum riðli en ég held að þeir
geti komist í fjórðungsúrslitin,“
sagði Hargreaves.
Þjóðverjar hafa náð frábærum ár-
angri á stórmótum í knattspyrnu og
Hargreaves segir að í ljósi sögunnar
megi ekki vanmeta Þýskaland.
„Undirbúningur þýska landsliðsins
hefur ekki verið góður fyrir Evrópu-
keppnina, en það er svo skrýtið með
Þjóðverja að þegar kemur að stór-
mótum ná þeir oftast að spila mjög
vel og ná því besta út úr öllum leik-
mönnunum. Ég mun aldrei vanmeta
Þjóðverja og það kæmi mér ekki á
óvart þótt Þýskaland færi lengra í
keppninni en flestir halda.“
Owen Hargreaves er samnings-
bundinn þýska liðinu Bayern Mün-
chen til ársins 2006 en hann vill leika
í ensku úrvalsdeildinni í framtíðinni.
„Það er ekki spurning að framtíð
mín liggur í ensku úrvalsdeildinni.
Ég er ekki Þjóðverji og ég mun ekki
vera allan minn feril í Þýskalandi.
Um þessar mundir er ég liðsmaður
Bayern og ég er samningsbundinn
liðinu til ársins 2006. Ég er ánægður
hjá Bayern og mér líður vel í Þýska-
landi, en þegar kemur að fótboltan-
um breytist allt mjög hratt. Maður
getur verið kominn í annað lið áður
en maður veit af,“ sagði Hargreaves.
Ekki
vanmeta
Þjóðverja
BRESK blöð harma mjög ósigur
Englendinga gegn Frökkum á Evr-
ópumótinu í knattspyrnu í fyrra-
kvöld en Evrópumeistararnir stálu
sigrinum í orðsins fyllstu merkingu
þegar Zinedine Zidane skoraði tví-
vegis í uppbótartíma.
„Kramin ljónshjörtu“ segir í fyr-
irsögn í Daily Mirror og þar er
greint frá því að landsliðsfyrirliðinn
David Beckham hafi gengið snökt-
andi af leikvelli.
„Við vorum rændir þegar Zined-
ine Zidane stakk hnífnum í okkur
tvívegis á síðustu þremur mínútum
leiksins,“ voru meðal þeirra orða
sem notuð voru í lýsingum blaða-
manns The Sun á leiknum.
„Hryllingur. England kastaði frá
sér sigri í hræðilegri sýningu í upp-
bótartíma. Það sem stefndi í að vera
fullkomin byrjun á EM 2004 var hent
í burtu á þremur brjálæðislegum
mínútum,“ var skrifað í Daily Mail.
„Hversu miskunnarlaust, hversu
ósanngjarnt, hversu grimmt. Þegar
Englendingar héldu að björninn
væri unninn eftir hugaðan og góðan
varnarleik og frábært mark frá
Lampard skoraði Zinedine Zidane
tvö undraverð mörk í blálokin,“ var
lýsing í Telegraph á leiknum.
Frank Lampard markaskorari
Englendinga var mjög ósáttur
hvernig frönsku leikmennirnir báru
sig að eftir leikinn.
„Þeir sungu franska sigursöngva
og mér fannst það mjög ótímabært
af þeim að gera það undir þessum
kringumstæðum. Ég er handviss um
að við hefðum ekki gert það sama ef
við hefðum sigrað. Það var að vonum
mikið svekkelsi inni í búningsklefa
okkar eftir leikinn og jafnvel þó svo
að leikurinn hefði endað 1:1 hefðum
við verið vonsviknir. Að tapa leik þar
sem skorað er úr aukapsyrnu og
vítaspyrnu í uppbótartíma er hrika-
lega svekkjandi en við verðum að
taka það jákvæða úr leiknum. Það er
mikið eftir af mótinu og vonandi
fáum við tækifæri til að hefna ófar-
anna gegn Frökkum,“ sagði Lamp-
ard.
Á laugardeginum fór fram ein-staklingskeppni með útsláttar-
fyrirkomulagi. Af 18 keppendum í
karlaflokki voru 7 er-
lendir en Íslending-
arnir röðuðu sér í
efstu fjögur sætin. Í
undanúrslitum náði
Hróar Hugoson 15:11 forystu gegn
Andra Heiðari Kristinssyni, sem
sneri við blaðinu og vann 15:14 en
þeir eru báðir í Skylmingafélagi
Reykjavíkur. Hann stóð síðan í
Ragnari Inga í úrslitum en varð að
játa sig sigraðan 15:9.
„Ég átti von á að vinna en ekki að
Íslendingar myndu raða sér í efstu
sætin, við bjuggumst við tveimur á
verðlaunapall svo að þetta kom
skemmtilega á óvart enda nokkrir
keppendur meðal fimmtán bestu í
Bretlandi,“ sagði FH-ingurinn
Ragnar eftir mótið. Hann var í 151.
sæti á heimslistanum fyrir mótið og
fékk fyrir sigur 4 stig sem líklega
hækkar hann um nokkur sæti. „Ég
hef keppt á þessum mótum síðan
1995 og oftast verið í tveimur efstu
sætunum. Suma keppendur þekki ég
úr mótaröðunum en aðra ekki svo
það er gott að fá fjölbreytni í bar-
daga. Það þarf þá að vera mun út-
sjónarsamari, skipta um stíl og svo-
leiðis enda sér maður mun á milli
þjóða. Síðasta vetur fór ég að jafnaði
einu sinni mánuði á mót erlendis sem
var nokkuð mikið því yfirleitt hefur
það verið nokkrum sinnum yfir árið.
Það er samt alltof sjaldan ef við ætl-
um að ná árangri,“ bætti Ragnar við
en hann vill fyrst jafna sig á álags-
meiðslum. „Nú er stefnan að hvíla
sig í sumar því ég er kominn með
tennisolnboga og þarf að losna við
það. Sleppi meðal annars Evrópu-
móti í sumar. Svo sé ég til í haust
hvað ég geri. Nú er ég að þjálfa
meira en áður og byggja upp deild
hér hjá FH en ég er samt enn ungur
og alls ekki að hætta, maður á nokk-
ur ár eftir.“
Keppnin var ekki síður skemmti-
lega í kvennaflokki þar sem 6 af 11
keppendum komu frá útlöndum.
Þorbjörg úr Skylmingafélagi
Reykjavíkur vann Nicolu Gathercole
frá Bretlandi 15:9 í undanúrslitum
en beið lægri hlut fyrir Emmu, 15:13,
í úrslitum. „Ég ætlaði mér að vinna,
vann hana fyrir þremur árum, en nú
tók hún mig á endasprettinum,“
sagði Þorbjörg eftir mótið. „Þetta
var frábært mót og að það skyldu
koma svona margir útlendingar. Það
skiptir öllu máli því maður lærir á Ís-
lendingana svo að reynslan er mjög
góð fyrir framtíðina,“ bætti Þorbjörg
við. Hún fékk 2 stig fyrir annað sæti,
til viðbótar við 4 stig sem hún átti áð-
ur og er í 100. sæti á heimslistanum
en hyggur á frekari frama. „Ég æfi í
sumar en við hvílum okkur í júlí til að
koma fersk inn aftur. Svo fer allt af
stað í ágúst, ég stefni á mörg innan-
landsmót í Frakklandi og heimsbik-
armót. Ég ætla að reyna vera meira í
Frakklandi, æfði þar með franska
landsliðinu fyrir tveimur árum og
langar að komast þangað aftur. Við
höfum keppt mikið í útlöndum en það
er eina leiðin til að taka framförum.“
Á sunnudeginum var sett upp liða-
keppni, ekki síst til að keppendur
fengju meira út úr mótinu. Lið skip-
að Ragnari Inga, Þorbjörgu, Hróari
og Arnari Sigurðssyni vann fjölþjóð-
legt lið sem taldi kappann Jörgen
Kjöller frá Danmörku, Gildas Braine
frá Lúxemborg, Ólaf Bjarnason
ásamt Guðjóni Inga Gestssyni. Það
gekk samt ekki þrautalaust en hafð-
ist í lokin. „Ég hafði aldrei séð ís-
lensku keppendurna en heyrt um af-
rek þeirra og sagt að þeir væru
góðir,“ sagði Gildas Braine, besti
skylmingakappi Lúxemborgar, en
varð að sætta sig við tap fyrir Andra
í einstaklingskeppninni. „Ég var því
spenntur þegar mótið hófst og það er
frábært að koma hingað, mikið fjör
og margir góðir keppendur. Það eru
margir góðir ungir krakkar svo það
er betra fyrir Evrópumenn að vera
tilbúnir fyrir þá eftir tíu ár.“
Morgunblaðið/Stefán Stefánsson
Gull- og silfurhafar eftir liðakeppnina á sunnudaginn. Frá vinstri Ragnar Ingi Sigurðsson, Hróar
Hugoson, Þorbjörg Ágústsdóttir, Arnar Sigurðsson, Jörgen Kjöller frá Danmörku, Guðjón Ingi
Gestsson, Gilda Braine og Ólafur Bjarnason.
Íslendingar
voru sigursælir
SKYLMINGAFÓLK á Íslandi sýndi og sannaði um helgina að það
tekur stöðugum framförum en þá fór fram í Kaplakrika alþjóðlegt
mót með höggsverðum, Coupe du Nord, sem gefur stig á heimlista
skylmingamanna. Íslandsmeistarinn Ragnar Ingi Sigurðsson sigr-
aði í karlaflokki en Íslandsmeistarinn Þorbjörg Ágústsdóttir fékk
silfur í kvennaflokki eftir naumt tap fyrir bestu skylmingakonu Ástr-
ala, Emmu Hynes.
Stefán
Stefánsson
skrifar
„Við vorum rændir sigri“