Morgunblaðið - 15.06.2004, Síða 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
NÝTT: Miðasala á netinu
www.borgarleikhus.is
Stóra svið
Nýja svið og Litla svið
CHICAGO eftir J. Kander, F. Ebb og B. Fosse
Lau 19/6 kl 20
SÍÐASTA SÝNING Í VOR
TANZ THEATER HEUTE - LJÓSMYNDASÝNING
í samvinnu við Goethe Zentrum - Í FORSAL
Miðasala: 568 8000
Nýr opnunartími: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00 - 18:00
miðviku-, fimmtu- og föstudaga: 10:00 - 20:00
laugardaga og sunnudaga: 12:00 - 20:00
www.borgarleikhus.is midasala@borgarleikhus.is
DON KÍKÓTI eftir Miguel de Cervantes
Sýningar hefjast á ný í september
BELGÍSKA KONGÓ eftir Braga Ólafsson
Sýningar hefjast á ný í október
LÍNA LANGSOKKUR eftir Astrid Lindgren
Su 12/9 kl 14, Su 19/9 kl 14, Su 26/9 kl 14
GRÍMAN - ÍSLENSKU LEIKLISTARVERÐLAUNIN
Mi 16/6 kl 20 - kr. 1.500
Dansleikur innifalinn
Frábær ný gamanmynd frá höfundi
Adaptation og Being John Malkovich
Með stórleikurunum Jim Carrey og
Kate Winslet.
"stílhreint snilldarverk"
HP Kvikmyndir.com
"..hreinn „gullmoli...
Brilljant mynd.“
ÞÞ FBL
25.000
manns
á 12 dögum!!!
PIERCE BROSNAN
JULIANNE MOORE
Sýnd kl. 8.
Ó.H.T Rás2
SV MBL
SKONROKK
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10.
Sýnd kl. 5.40 og 10.
1/2
HL Mbl
HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 15.00
ELLA
Í ÁLÖGUM
Sýnd kl. 3.50.
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
DV
kl. 5.50, 8.30 og 11.10.
Ó.H.T Rás2
SV MBL
SKONROKK
30.000
manns
á 19 dögum!!!
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 4, 5.20, 6.40, 8, 9.20 og 10.40.
"stílhreint snilldarverk"
HP Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Kvikmyndir.com
Jersey
girl
"..hreinn „gullmoli...
Brilljant mynd.“
ÞÞ FBL
1/2
HL Mbl
Fim. 24. júní FRUMSÝNING kl. 19.30 - UPPSELT
Fös. 25. júní Sýning nr. 2 kl. 19.30 - UPPSELT
Mið. 30. júní Sýning nr. 3 kl. 19.30 - ÖRFÁ SÆTI
Fim. 1. júlí Sýning nr. 4 kl. 19.30 - UPPSELT
Fös. 2. júlí Sýning nr. 5 kl. 19.30 - LAUS SÆTI
Sun. 4. júlí Sýning nr. 6 kl. 17.00 - LAUS SÆTI
Lau. 10. júlí Sýning nr. 7 kl. 16.30 - LAUS SÆTI
Lau 10. júlí Sýning nr. 8 kl. 19.30 - FÁ SÆTI
Á DAGSKRÁ stutt- og heimild-
armyndahátíðarinnar Reykjavík
Shorts & Docs voru sýndar sex
nýjar íslenskar stuttmyndir í einni
dagskrá, og var sú framsetning
bæði skemmtileg og forvitnileg þar
sem hún gaf áhorfanda kost á sam-
anburði og innsýn í breidd aðferða
og viðfangsefna.
Dagskráin hófst með hinni bráð-
skemmtilegu skopmynd Síðustu
orð Hreggviðs sem þegar hefur
verið birt umsögn um, en vegna
villu í birtingu stjörnufjölda með
gagnrýninni er stjörnugjöf leiðrétt
hér.
Það má kannski skipta leiknu
myndunum á dagskránni í tvo
flokka hvað viðfangsefni varðar.
Kvikmyndirnar Móðan, Blind Date
og Bragur, eiga það sameiginlegt
að segja litlar örlagasögur úr hver-
dagslífinu, og þreifa sig áfram með
persónusköpun, hrynjandi í fram-
vindu og hið knappa og oft óvænta
frásagnarform sem hentar stutt-
myndinni. Móðan er áhugaverð og
vel leikin lítil saga af óvæntri
uppákomu sem þeytir tveimur ein-
staklingum út af sporbraut hvunn-
dagsins, og í fangið hvort á öðru.
Þetta er nokkurs konar snjó-
boltafrásögn, sem hefst er ung
móðir (Nanna Kristín Magnúsdótt-
ir) læsir bíllykla, barn og hund inni
í bílnum sínum og ungur örygg-
isvörður (Ólafur Darri Ólafsson)
kemur til hjálpar. Sagan er sögð
með skemmtilega sposkum tóni og
myndræn útfærsla víða snjöll í
meðförum Jón Karls Helgasonar.
Blind Date er nokkurs konar
óhappa- eða álagasaga, og er þar
unnið með kunnuglegt minni. Þótt
sagan sé sögð á full stirðbusalegan
hátt, á hún nokkur góð gamanat-
riði. Þar vegur frammistaða leik-
ara þungt, en Edda Heiðrún Back-
man er hreint kostuleg í hlutverki
vonsvikins og allsendis ósjálfvilj-
ugs háskakvendis.
Bragur er að mínu mati heild-
stæðasta stuttmyndin á sýningar-
dagskránni. Það er ekki síst að
þakka einfaldri en innilegri sögu
og útfærslu sem undirstrikar sér-
staka stemningu og gefur leikur-
um gott svigrúm til að gæða per-
sónurnar lífi. Þar er sagt frá
nokkrum dögum í tilveru ellilífeyr-
isþegans Bubba og húshjálpar
hans Arnars. Þessir tveir einstak-
lingar eiga e.t.v. fátt sameiginlegt,
annar er staddur við upphaf full-
orðinsáranna, og hinn við enda-
stöðina, en í þeim báðum leynist
ást á ljóðum, skák og heimspeki
sem brúar kynslóðabilið. Þeir Jón
Sigurbjörnsson og Friðrik Frið-
riksson fara sérlega vel með hlut-
verk sín þannig að hið orðspara en
innilega samband vinanna verður
áþreifanlegt.
Stuttmyndirnar Áróður og Síð-
ustu orð Hreggviðs eiga það sam-
eiginlegt að takast á við málefni í
samtímanum með því að bregða
upp dæmisögu í tíma og rúmi sem
er örlítið á skjön við þann samtíma
sem reynt er að segja eitthvað um.
Ólíkt síðarnefndu myndinni, geng-
ur nálgunarleiðin í Áróðri ekki
nógu vel upp. Þar er leitast við að
vekja áhorfendur til umhugsunar
um stríðsátök í heiminum með því
að færa óróasvæðið nær okkur
vernduðum Frónbúum. Í byrjun
myndarinnar er áhorfendum kast-
að inn í uppspenntar aðstæður
mannráns, en þar reyna tveir and-
ófsseggir að hræða forsætisráð-
herra landsins (Anna Kristín Arn-
grímsdóttir) út úr pólitísku
valdaorðræðunni sem hann annars
beitir fyrir sig. Þetta er áhugaverð
hugmynd, sem ætlað er að skír-
skota til þátta á borð við stuðning
íslenska ríkisins við Íraksstríðið,
en því miður flaskar höfundurinn á
útfærslunni. Textinn er stirðbusa-
legur og bókstaflegur og því mjög
úr takt við spennuþrungið samtalið
sem reynt er að setja á svið. Heim-
spekilegu inntaki samræðnanna
hefði þurft að miðla á liprari hátt,
en textinn hljómar á köflum eins
og tekinn beint upp úr glósum úr
Heimspekilegum forspjallsvísind-
um við HÍ. Mikið mæðir á leik-
urum að koma til skila alvarleika
aðstæðnanna og halda um leið uppi
þvinguðum samræðunum, en þar
tekst Brynju Valdísi Gísladóttur
best upp.
Stuttmynd Páls Steingrímsson-
ar, Íshljómar, hnýtti fallegan
endahnút á sýningardagskrána, í
stuttmynd sem er sannkallaður
leikur með hljóðmynd. Þar leika
Einar Jóhannesson klarínettleikari
og Jóel Pálsson saxófónleikari
seiðandi tónlist hins síðarnefnda í
samspili við ísilagt landslag. Þar er
unnið með töfra og leikgleði nátt-
úru og tónlistarmanns og þetta
tvennt látið spila saman með skap-
andi samsetningu tónlistar, hljóða
og myndar.
Leikgleði í ýms-
um myndum
Heiða Jóhannsdóttir
Stuttmyndir
Reykjavík Shorts and Docs
Síðustu orð Hreggviðs Leikstjórn: Grímur Hákonarson. 22 mín.
Boris kvikmyndagerð, 2004.
Móðan - ástarsaga á þvottaplani Leikstjórn: Jón Karl Helgason.
15 mín. JKH-kvikmyndagerð, 2004.
Blind date Leikstjórn: Huldar Freyr Arnarson. 18
mín. Puppenspiel ehf., 2004.
Áróður
Leikstjórn: Haukur Már Helgason. 12
mín. Nýhil, 2004.
Bragur Leikstjórn: Rúnar E. Rúnarsson. 15 mín.
Prjónastofan, Óháða kvikmyndagerðin,
Tröllakirkja, 2004.
Íshljómar Stjórnandi: Páll Steingrímsson. Höf. tón-
listar: Jóel Pálsson. 6 mín. Kvik kvik-
myndagerð.
Sex íslenskar stuttmyndir
BANDARÍSKA leikkonan Courtney Cox er orðin
móðir, en hún eignaðist stúlkubarn síðastliðinn
sunnudag. Um er að ræða fyrsta barn hinnar fertugu
Cox. Hún og maður hennar, David Arquette, hafa
ákveðið að nefna stúlkuna Coco.
Hinir nýbökuðu foreldrar eru að sögn í skýjunum
en Cox hefur misst fóstur tvisvar áður. Hafa hjónin
talað opinskátt um fósturlátin og greint frá hversu
heitt þau þrái að verða foreldrar.
„Það verður gaman að verða loks faðir, ég get ekki
beðið eftir því að lesa fyrir hana og leika við hana
leiki,“ sagði Arquette í samtali við tímaritið People.
Courtney Cox er þekktust fyrir hlutverk sitt í Vinum
en síðustu þáttaröðinni lauk í síðasta mánuði.
Courtney Cox orðin léttari
Fjölgun hjá vinum
Reuters
Hinir nýbökuðu foreldrar.
ÍSLENDINGAR eiga tvo fulltrúa
á raftónlistarhátíðinni Sónar 2004,
sem fram fer í Barcelona á Spáni
dagana 17.–19. júní. Ghostigital
með Einar Örn og Bibba Curver í
fararbroddi spilar á þjóðhátíðar-
daginn kl. 19 en Mugison verður
með tónleika laugardaginn 19. júní
klukkan 20.30.
Að þessu sinni verður Frosti
Logason, gítarleikari úr Mínus,
með Ghostigital en hann hefur
ekki haft tíma til að spila með
þeim að undanförnu vegna anna
með eigin hljómsveit. Sónar-hátíð-
in stendur yfir í þrjá daga og þrjár
nætur og og er markmiðið að sýna
allt það nýjasta í raftónlist og
margmiðlunarlist. Í fyrra var
Björk aðalnúmer hátíðarinnar og
vöktu tónleikar hennar mesta at-
hygli. Bæði er mikið um tónleika á
hátíðinni og sett frá plötusnúðum
en þetta árið mæta til leiks m.a.
Billy Nasty, Pan Sonic og Prefuse
73.
Tónlistarhátíðin Sónar í Barcelona
Ghostigital og Mugison með
www.sonar.es www.ghostigital.com www.mugison.com
Ghostigital