Morgunblaðið - 17.06.2004, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 164. TBL. 92. ÁRG. FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Feðgar fá
verðlaun
Ingvar og Áslákur með Kaldaljós á
kvikmyndahátíð í Portúgal | Fólk
Úr verinu | Sjómenn orðnir sítengdir Hvatning-
arverðlaun til Godthaab í Nöf Viðskipti | Alltaf gaman að
fá eitthvað gefins Vilja styðja listamenn í útrás
Úr verinu og Viðskipti í́ dag
og víðar, í viðleitni sinni til að koma
á fót íslömskum her. Saddam hafi
sent háttsettan leyniþjónustumann
til fundar við bin Laden í Súdan
1994, en engar vísbendingar hafi
fundist um samstarf Íraka og sam-
taka bin Ladens.
Stjórn Georges W. Bush Banda-
ríkjaforseta hefur ítrekað sagt að
tengsl væru á milli Saddams og al-
Qaeda, og voru þessi meintu tengsl
ein af rökum stjórnarinnar fyrir
herförinni til Íraks. Á mánudaginn
sagði Dick Cheney varaforseti í
ÞVERT á fullyrðingar banda-
rískra stjórnvalda greindi nefnd,
sem skipuð var til að rannsaka
hryðjuverkaárásirnar 11. septem-
ber 2001, frá því í gær, að „engar
áreiðanlegar vísbendingar“ væru
um að Saddam Hussein, fyrrver-
andi Íraksforseti, hefði lagt sam-
tökunum al-Qaeda lið í hryðju-
verkunum.
Nefndin segir í skýrslu, að
Osama bin Laden hafi leitað að-
stoðar Saddams, sem og annarra
leiðtoga í Súdan, Íran, Afganistan
ræðu að Íraksforsetinn fyrrver-
andi hefði „lengi átt samstarf við
al-Qaeda“.
Þá segir í skýrslu nefndarinnar,
að maðurinn sem skipulagði
hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11.
september, Khalid Mohammed,
hafi upphaflega haft hugmyndir
um að ræna 10 flugvélum, þ.á m.
einni sem hann myndi fljúga sjálf-
ur og lenda á flugvelli, eftir að allir
karlkyns farþegar hefðu verið
drepnir, og halda þar ræðu gegn
Bandaríkjunum. Mohammed er í
haldi Bandaríkjamanna. Bin Lad-
en vildi fyrst að árásirnar yrðu
gerðar 12. maí 2001, og lagði síðar
til að þær yrðu gerðar í júní eða júlí
það ár vegna þess að Ariel Sharon,
forsætisráðherra Ísraels, átti þá að
vera í heimsókn í Hvíta húsinu.
Mohammed taldi bin Laden ofan af
báðum þessum hugmyndum á
þeim forsendum að væntanlegir
flugræningjar væru ekki reiðubún-
ir. Að lokum var 11. september val-
inn vegna þess að þá var Banda-
ríkjaþing saman komið.
Engar vísbendingar eru um
tengsl Saddams og al-Qaeda
Washington. AP.
FRANK Moody, 101 árs gamall
Ástrali, varð í gær elsti fallhlíf-
arstökkvari heims.
Vinir hans mönuðu hann til
stökksins, þar sem þeir sátu að
sumbli í ruðningsklúbbi í borginni
Cairns í austurhluta Ástralíu.
Moody varð við áskoruninni, stökk
með reyndum fallhlífarstökkvara úr
3000 metra hæð og setti um leið
heimsmet.
Starfsmaður fallhlífarstökks-
þjónustunnar, Amanda Pilkington,
sagði Moody ernan og heillandi og
þótti afar ánægjulegt að hafa orðið
við bón hans.
Myndbandsupptaka af stökkinu
verður send heimsmetabók Guinn-
ess í Lundúnum og má búast við
staðfestingu á heimsmetinu innan
fárra vikna.
Moody sneri aftur til félaga sinna
að stökki loknu og fékk sér krús af
Guinness-bjór í tilefni dagsins.
101 árs fallhlífarstökkvari vill
komast í heimsmetabókina
Sydney. AFP.
HINN heimsþekkti arkitekt Norman Foster
er meðal þeirra sem hafa lýst yfir áhuga á
að hanna ráðstefnu- og tónlistarhús á Aust-
urbakka Reykjavíkurhafnar. Foster er einn
af helstu arkitektum samtímans, en hann
hefur hannað frægar
byggingar, eins og hið
nýja hvolfþak Reichstag-
þinghússins í Berlín,
Stanstead-flugvöll og
hinn risastóra glerhúss-
grasagarð í Wales, auk
þess sem hinn nýi
Wembley-íþróttaleik-
vangur, sem nú er í
byggingu, er í höndum
byggingaverktakans
Multiplex Group og Foster & Partners, fyr-
irtækis Fosters, en þau fyrirtæki hafa sótt
saman um þátttöku í forvalinu vegna ráð-
stefnu- og tónlistarhússins og hótelsins sem
byggt verður samhliða því. Þá var Foster
einn af þeim sem komust í undanúrslit með
tillögur sínar að nýjum byggingum þar sem
World Trade Center stóð.
Halldór Gíslason, deildarforseti hönn-
unardeildar Listaháskóla Íslands, segir
Foster afar afkastamikinn arkitekt. Hönn-
un hans sé afar stílhrein og praktísk auk
þess sem hún sé tæknilega framsækin.
„Hann vinnur mikið úr gleri, stáli og plasti
og höfðar lítið til eldri stílbrigða,“ segir
Halldór, en stíll Fosters felst auk þess að
miklu leyti í nýtingu opinna rýma og þeirra
möguleika sem þau bjóða upp á.
Í samtali við Morgunblaðið segir Foster
að Dorrit Moussaieff, sem er góð vinkona
hans, hafi verið búin að tala mikið um Ís-
land og hvetja hann til að heimsækja land-
ið. Hann kom svo hingað til lands á opnun
sýningar Ólafs Elíassonar, Frost Activity,
en þá sýndi Dorrit honum landið og fór með
hann í ferðir. „Við elskuðum Ísland og okk-
ur þótti ótrúlegt að koma hingað,“ segir
Foster, sem þakkar Dorrit vel fyrir að
kynna honum landið, en hún sé ötull tals-
maður lands og þjóðar. „Þegar þessi keppni
kom upp, þótti okkur hugmyndin um að
keppa um að fá að hanna eitthvað á Íslandi
alveg frábær. Við skemmtum okkur vel á
Íslandi og þykir landið alveg ótrúlega
áhugaverður staður. Þetta land veitir
manni gríðarlegan innblástur og það væri
frábært að fá tækifæri til að hanna fallegar
byggingar fyrir Íslendinga.“
Landið
veitir gríð-
arlegan
innblástur
Heimsfrægur arkitekt
vill hanna tónlistarhúsið
Norman Foster
FÁNARNIR sem Bandalag íslenskra skáta gaf öllum leikskólabörnum
nú í vor fengu svo sannarlega verðugt hlutverk í gær þegar börnin á
Hálsaborg tóku forskot á sæluna og skelltu sér í skrúðgöngu. Þau tóku
m.a. lagið fyrir elstu kynslóð landsins og eru því búin að hita radd-
böndin vel upp fyrir „Hæ hó og jibbí jei“ sem án vafa mun hljóma um
allt land í dag.
Morgunblaðið/Einar Falur
Gleðilega
þjóðhátíð!