Morgunblaðið - 17.06.2004, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 17.06.2004, Blaðsíða 54
ÍÞRÓTTIR 54 FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Puma Cellerator Fullorðinsstærðir 25.990 kr. Útilíf - Glæsibæ, Smáralind og Kringlunni Toppmenn og sport - Akureyri Boltamaðurinn - Laugavegi 42 Rounder - Laugavegi 11 K-sport - Keflavík Ozone - Akranesi FJÓRTÁN ára bið Detroit Pistons eftir NBA-meistaratitlinum í körfuknattleik lauk í fyrranótt þegar Detroit bar sigurorð af Los Angeles Lakers, 100:87, í fimmta úrslitaleik liðanna um titilinn. Fyr- irfram áttu fæstir von á að Detroit stæði í veginum fyrir stjörnup- rýddu liði Lakers að innbyrða fjórða meistaratitil sinn á síðustu fimm árum en annað kom á dag- inn. Leikmenn Detroit báru enga virðingu fyrir stórstjörnunum og þegar upp var staðið unnu þeir ein- vígið á sannfærandi hátt, 4:1. Þetta er þriðji meistaratitill Detroit frá upphafi en liðið fagnaði sigri tvö ár í röð 1989 og 1990. Richard Hamilton var stigahæst- ur í liði Detroit með 21 stig og Ben Wallace skoraði 18 stig og tók 22 fráköst. Chauncey Billups skoraði 14 stig í leiknum og var í leikslok útnefndur besti leikmaðurinn í úr- slitaeinvíginu. Sterkur varn- arleikur Detroit og skæð hraða- upphlaup gerðu útslagið í viðureigninni í fyrrinótt líkt og í fleiri leikjum liðanna. Kobe Bryant var í góðri gæslu en náði samt að skora 24 stig og Shaquille O’Neal kom næstur með 20 stig en hann lenti snemma leiks í villuvandræð- um. „Við höfðum allan tímann trú á að við gætum lagt Lakers að velli. Við lékum sem ein liðsheild, börð- umst eins og ljón og við sýndum mikið hungur í að vinna titilinn,“ sagði Billups eftir leikinn. Detroit hrifsaði titilinn af Los Angeles Lakers Suður-Afríkumenn hafa staðið sigbest í því nú síðari ár að halda uppi merki erlendra keppenda, Re- tief Goosen sigraði 2001, Ernie Els 1997 og 1994 og Gary Player 1965. Tony Jacklin frá Englandi sigraði 1970 og Ástralinn David Graham 1981. Það líður sem sagt alltaf nokk- ur tími milli þess sem erlendir kylf- ingar sigra. Fjórir kylfingar hafa sigrað fjór- um sinnum á Opna bandaríska meistaramótinu, síðast Jack Nick- laus 1980 og Ben Hogan 1953. Hale Irwin hefur þrisvar sigrað, síðast 1990. Af þeim sem eru enn á fullri ferð og gætu bætt sigri í safnið eru Woods, sem sigraði 2000 og 2002 og Ernie Els, sem sigraði 1994 og 1997. Aðrir sem eru enn að en verða ekki með að þessu sinni eru Payne Stew- art (1991/1999), Lee Janzen (1993/ 1998) og Curtis Strange (1988/1998). Engum virðist detta í hug að Jim Furyk, meistara síðasta árs, takist að verja titilinn, en þau nöfn sem oft- ast heyrast nefnd eru Tiger Woods, ef hann verður búinn að ná tökum á sveiflunni hjá sér, sem hann hefur unnið í síðustu vikurnar. Hinn örv- henti Phil Mickelson hefur leikið vel í sumar og gæti gert góða hluti á mótinu að þessu sinni, en hann varð í öðru sæti 2002, á eftir Woods og 1999 á eftir Payne Stewart. Mun fleiri erlendir kylfingar eru nefndir til sögunnar sem hugsanleg- ir sigurvegarar. Þar ber fyrsta að telja Spánverjana tvo sem verða með að þessu sinni, Sergio Garcia og Miguel Angel Jimenez, en báðir þykja hafa leikið vel að undanförnu og sagðir til alls líklegir. Sá síðar- nefndi varð í öðru til þriðja sæti ásamt Ernie Els árið 2000 þegar Woods sigraði. Vijay Singh er einnig talinn líkleg- ur en hann er talinn besti kylfing- urinn á evrópsku mótaröðinni nú um stundir. Þá hafa menn nefnt til sög- unnar Padraig Harrington, Darren Clarke, Ian Poulter, Justin Rose og Paul Casey. Fallegur og erfiður völlur Shinnecock Hills völlurinn þykir sérlega góður og hann verður betri og erfiðari með árunum, en hann er nú 113 ára gamall. Fyrstu 90 árin var ekki haldið neitt stórmót á honum en síðan hafa þau verið nokkur þar og 1986 var Raymond Floyd sá eini sem náði að leika hringina fjóra á Opna bandaríska undir pari vallarins. Næst þegar mótið var haldið þar, ár- ið 1995 varð Corey Pavin fyrsti kylf- ingurinn í sextán ár til að sigra á Opna bandaríska á parinu. Nokkuð vindasamt er á vellinum og verði Kári við völd á meðan mótið fer fram er talið ólíklegt að skorið verði mikið undir pari, ef það nær því þá. Hver leikur best á Shinnecock? OPNA bandaríska meistaramótið í golfi, það 104. í röðinni, hefst á Shinnecock Hills vellinum í New York ríki í dag. Þar munu 156 kylf- ingar reyna með sér í einu af fjórum stóru mótunum svonefndu. Bandaríkjamaðuirnn Jim Furyk sigraði í fyrra, Tiger Woods þar áður en sagan sýnir að erlendir kylfingar hafa 27 sinnum unnið og aðeins fimm sinnum síðustu 33 árin. Bandaríkjamenn því líklegri til afreka en erlendir gestir þeirra á mótinu.  ÍSLANDSMEISTARAR KR í knattspyrnu kvenna drógust í 4. riðil með Ter Leede frá Hollandi, Malm- in Palloseura frá Finnlandi og ŽNK Krka Novo Mesto frá Slóveníu í UEFA-bikar kvenna. Riðillinn verð- ur leikinn í Slóveníu 19. -25. júlí. Í 1. umferð keppninnar er leikið í níu fjögurra liða riðlum þar sem sigur- vegarar riðlanna komast áfram í 2. umferð, sem einnig er leikin sam- kvæmt riðlafyrirkomulagi.  RAFAEL Benitez var gær ráðinn knattspyrnustjóri enska úrvalsdeild- arliðsins Liverpool. Benitez tekur við stjórastöðunni af Frakkanum Gerard Houllier sem verið hefur við stjórnvölinn hjá Liverpool undan- farin sex ár. Benitez kemur til Liver- pool frá spænska liðinu Valencia en undir hans stjórn vann liðið sigur í UEFA-keppninni og varð spænskur meistari. Fyrsti leikurinn sem Benit- ez stýrir Liverpool verður gegn Celtic þann 26. júlí.  PAUL Scholes æfði með enska landsliðinu í gær og mun að öllum líkindum spila með liðinu gegn Sviss í dag. Scholes meiddist á ökkla í leiknum gegn Frakklandi og óvíst var hvort hann yrði orðinn leikfær fyrir leikinn í dag. Allir leikmenn enska liðsins, fyrir utan Nicky Butt sem verður ekki meira með á mótinu, verða því með gegn Sviss.  BAYERN München hefur gengið frá kaupum á þýska landsliðsmann- inum Torsten Frings, miðvallarleik- manninum sterka hjá Borussia Dortmund, sem skoraði mark Þjóð- verja gegn Hollendingum í fyrra- kvöld. Frings gerði fjögurra ára samning við Bæjara en kaupverð þeirra á leikmanninum er talið vera 10 milljónir evra. Með tilkomu Frings er framtíð Michael Ballack hjá Bayern München í óvissu.  JOSE Mourinho, nýráðinn fram- kvæmdastjóri Chelsea, gæti þurft að taka út leikbann hjá Chelsea sem hann fékk þegar hann var við stjórn- völinn hjá Porto. Mourinho lenti í útistöðum við leikmann Sporting Lissabon eftir leik með Porto í byrj- un febrúar og fékk fyrir vikið 10 leikja bann. Svo gæti farið að knatt- spyrnuyfirvöld í Portúgal fari fram á við enska knattspyrnusambandið að Mourinho taki út leikbannið hjá Chelsea. FÓLK Grikkir héldu áfram að koma áóvart í Evrópukeppninni þegar þeir fengu eitt stig á móti Spánverj- um. Fernando Morientes kom Spán- verjum yfir á 28. mínútu eftir frá- bæra hælsendingu frá Raul Gonzalez en sóknarmaðurinn Ange- los Charisteas jafnaði fyrir Grikki á 67. mínútu eftir mistök í vörn Spán- verja. Spánverjar voru mun sterkari að- ilinn í leiknum og fengu nokkur úr- valsfæri til þess að tryggja sér sig- urinn en Antonios Nikopolidis, markvörður Grikkja, átti góðan leik og varði oft mjög vel. „Við sönnuðum það í dag að sigur okkar gegn Portú- gal var ekki heppni. Við erum með mjög gott lið og önnur lið ættu að byrja að taka mark á okkur. Við sýndum mikinn karakter með því að ná að jafna metin gegn Spánverjum. Eftir þessi úrslit mun fólk gera meiri væntingar til okkar en áður og við verðum að ná góðum úrslitum gegn Rússum á sunnudaginn,“ sagði Angelos Charisteas. „Jafntefli gegn Grikkjum eru ekki góð úrslit fyrir okkur og það sem eft- ir lifir af vikunni verður mikil pressa á okkur. Við gerðum mistök í síðari hálfleik, spiluðum of varfærnislega og það kostaði okkur sigurinn,“ sagði Inaki Saez, þjálfari Spánverja. Portúgal gerði út um vonir Rússa Nuno Maniche og Rui Costa tryggðu Portúgal sigurinn gegn Rússum. Maniche skoraði fallegt mark á 7. mínútu og Costa skoraði síðara markið af stuttu færi á 88. mínútu. Sigur Portúgals var sann- gjarn en Rússar þurftu að leika ein- um leikmanni færri eftir að Sergei Ovchinnikov, markvörður Rúss- lands, fékk að líta rauða spjaldið á 44. mínútu fyrir að handleika knött- inn utan vítateigs. „Ég tek fulla ábyrgð á að Rússland eigi ekki möguleika á að komast upp úr riðl- inum því það er ég sem vel liðið, sagði,“ Georgy Yartsev, þjálfari Rússlands. „Allir leikmenn Portúgals spiluðu vel. Við héldum að það yrði auðveld- ara að spila á móti tíu leikmönnum en það var erfiðara. Hvort við vinnum 10:0 eða 2:0 skiptir ekki máli. Eina sem skiptir máli er að sigra. Leikurinn við Spánverja verður mjög erfiður og ég get ekki ímyndað mér hvernig stemning verður á leiknum. Ég mun setjast niður með leikmönnunum mínum og við mun- um skoða hvaða mistök við gerðum í leiknum gegn Rússum,“ sagði Luiz Felipe Scolari, þjálfari Portúgals. Reuters. Angelos Charisteas skorar jöfnunarmark Grikkja gegn Spánverjum. Grikkir með vænlega stöðu GRIKKLAND og Spánn gerðu jafntefli, 1:1, og Portúgal sigraði Rússland, 2:0, í A-riðli Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu. Grikkland og Spánn eru með fjögur stig í efstu tveimur sætunum en Grikkir eru með betra markahlutfall. Portúgal er með þrjú stig og Rússar eru án stiga og eiga ekki möguleika á að komast í fjórðungs- úrslitin. Á sunnudag mætast Grikkland og Rússland og Spánn spil- ar við Portúgal í lokaleikjum riðilsins. OPNA KB BANKA MÓTIÐ! á Svarfhólsvelli 19. júní 2004 Leikfyrirkomulag: Punktakeppni Skráning á golf.is/gos eða í síma 482 3335 VERÐLAUN FYRIR 6 EFSTU SÆTIN. Verðlaun fyrir næst holu á par 3 brautum. Verðlaun fyrir lengsta teighögg. Golfklúbbur Selfoss
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.