Morgunblaðið - 17.06.2004, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2004 53
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
TVÍBURAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert ákveðin/n og sannfær-
andi og gerir miklar kröfur til
sjálfrar/sjálfs þín. Þú ert frá-
bær skipuleggjandi. Ein-
beittu þér að nánustu sam-
böndum þínum á árinu.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þetta er góður dagur til að
endurskoða hversdagslega
hluti í lífi þínu. Hvernig get-
urðu betrumbætt líf þitt?
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nýtt tungl veitir þér full-
komið tækifæri til að fara yfir
það hvernig þú verð pening-
unum þínum. Ertu viss um að
þú sért að fá andvirði þeirra?
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það er nýtt tungl í merkinu
þínu og því hefurðu einstakt
tækifæri til að endurskoða
nánasta samband þitt. Mundu
að þú þarft að henta maka
þínum ekki síður en hann/
hún þarf að henta þér.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Nýja tunglið gerir það að
verkum að þú ert í góðum
tengslum við sjálfa/n þig.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þetta er góður dagur til að
íhuga hvernig þú getur bætt
vinasambönd þín. Mundu að
vinir okkar hafa mikil áhrif á
viðhorf okkar og framtíð.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú ættir að líta yfir farinn veg
í dag og velta því fyrir þér
hvar þú viljir verða eftir tíu
ár. Gerðu áætlanir og leggðu
þannig drög að framtíð þinni.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú hefur þörf fyrir að læra
eitthvað nýtt. Þú getur einnig
lesið bók um eitthvað, sem er
þér framandi, eða heimsótt
staði sem þú hefur ekki komið
á áður.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú verður að hafa það í huga
að þú vinnur ekki ein/n að
þeim verkefnum sem þú ert
að fást við. Þess vegna þarftu
að taka tillit til sjónarmiða
annarra.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Tunglið er beint á móti merk-
inu þínu og því hefurðu gott
tækifæri til að skoða sam-
skipti þín við aðra. Fæst okk-
ar sjá sig í sama ljósi og fólkið
í kringum okkur.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þetta er góður dagur til að
huga að umbótum í vinnunni.
Þú ættir einnig að velta því
fyrir þér hvernig þú getur
bætt heilsu þína.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það er mikilvægt að þú komir
einhvers konar jafnvægi á líf
þitt. Það er mikið að gera hjá
þér og því þarftu að grípa þau
fáu tækifæri sem bjóðast til
að hvíla þig og létta þér upp.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Með nýju tungli færðu gullið
tækifæri til að íhuga hvernig
þú getir bætt samskiptin inn-
an fjölskyldunnar og gert
heimili þitt meira aðlaðandi.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
TIL FÁNANS
Rís þú, unga Íslands merki,
upp með þúsund radda brag.
Tengdu í oss að einu verki
anda, kraft og hjartalag.
Rís þú, Íslands stóri, sterki
stofn með nýjan frægðardag.
Skín, þú, fáni, eynni yfir
eins og mjöll í fjallahlíð.
Fangamarkið fast þú skrifir
fólks í hjartað ár og síð.
Munist, hvar sem landinn lifir,
litir þínir alla tíð.
- -
Einar Benediktsson
LJÓÐABROT
85 ÁRA afmæli. Ámorgun, föstudaginn
18. júní, verður 85 ára Sig-
urborg Ágústa Þorleifs-
dóttir, fyrrum garð-
yrkjubóndi, Björk,
Reykholtsdal, Aflagranda
40. Hún er að heiman á af-
mælisdaginn.
80ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 17.
júní, er áttræður Jón Björns-
son frá Bólstaðarhlíð í Vest-
mannaeyjum, Ægisíðu 92.
Hann og eiginkona hans,
Bryndís Jónsdóttir, verða
ásamt fjölskyldu sinni á
Þingvöllum í tilefni dagsins.
„ÞETTA hef ég aldrei séð
áður,“ sagði Magnús Magn-
ússon og átti við sögn félaga
síns, Matthíasar Þorvalds-
sonar.
Austur gefur; NS á hættu.
Norður
♠K
♥Á762
♦KG76
♣Á632
Vestur Austur
♠Á532 ♠G876
♥K983 ♥G1054
♦3 ♦D109
♣D1074 ♣G8
Suður
♠D1094
♥D
♦Á8542
♣K96
Spilið kom upp á lands-
liðsæfingu og Magnús og
Matthías voru í AV gegn Páli
Þórssyni og Ómari Olgeirs-
syni:
Vestur Norður Austur Suður
Ómar Matthías Páll Magnús
-- -- Pass Pass
1 hjarta Pass 3 hjörtu Pass
Pass 3 grönd ! Pass 5 tíglar
Pass Pass Pass
Ómar nýtti sér hagstæðar
hættur og vakti á einu hjarta
í þriðju hendi á fjórlitinn.
Matthías átti enga sögn við
því og Páll hindraði með
stökki í þrjú hjörtu. Sú sögn
kom til Matthíasar og hann
sá fyrir sér að makker ætti
stutt hjarta og þar með sam-
legu við annan láglitinn.
Hann spann því upp þrjú
grönd sem úttektarsögn í
láglitina. Þótt Magnús hefði
ekki séð sögnina áður var
hann ekki í vandræðum með
að túlka hana rétt og stökk í
fimm tígla.
Útspilið var tromp. Magn-
ús tók slaginn heima og spil-
aði spaða, sem vestur drap
og skipti yfir í hjartakóng.
Magnús tók á ásinn, lagði
niður tígulkóng, tók svo lauf-
ás og kóng og víxltrompaði
spaða og hjarta. Síðasta slag-
inn fékk vörnin tvöfalt á
tíguldrottningu og lauf.
Á hinu borðinu varð suður
sagnhafi í þremur gröndum
eftir opnun á tígli og dobl
vesturs. Austur svaraði do-
blinu með spaða og útspilið
var smár spaði undan ásnum.
Spilið er spennandi, en ætti
að vinnast: Sagnhafi fríar
tígulinn og austur notar inn-
komuna til að spila hjarta.
Það er dúkkað tvisvar. Sagn-
hafi tekur þriðja hjartað með
ás og spilar frítíglum. Allt í
allt, þarf vestur að henda
fjórum sinnum í tígul. Hann
má missa tvo spaða og eitt
lauf, en fimmti tígullinn fer
illa með hann. Ef hann fer
niður á blankan ás í spaða,
spilar sagnhafi spaða í bláinn
og fríar drottninguna. Laufi
má vestur alls ekki henda, en
ef hann kastar hjarta, tekur
sagnhafi tvo efstu í laufi og
sendir vestur inn á þriðja
laufið. Þá fær hann síðasta
slaginn á spaðadrottningu
heima.
Flókið spil, bæði í sókn og
vörn.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
60 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 17.
júní, er sextug Hjördís
Smith, Ársölum 1, Kópa-
vogi. Hún verður að heiman
á afmælisdaginn.
75 ÁRA afmæli. Ámorgun, föstudaginn
18. júní, verður 75 ára Bragi
V. Björnsson, fyrrverandi
skipstjóri úr Hafnarfirði.
Hann tekur á móti gestum
að Ásbúð 96, Garðabæ, milli
kl. 17 og 20 á afmælisdag-
inn.
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. e3 d5 5.
Rf3 O-O 6. Bd3 c5 7. O-O dxc4 8. Bxc4
Bd7 9. De2 Bc6 10. Hd1 Rbd7 11. d5
exd5 12. Rxd5 Rxd5 13. Bxd5 Dc7 14.
Bxc6 Dxc6 15. a3 Ba5 16. b4 Bc7 17. Bb2
Had8 18. Hac1 b6 19. Dc4 Hfe8 20. Hd5
De6 21. Rg5 Dg6 22. h4 h6 23. Rf3 De6
24. Hcd1 Rf6 25. Bxf6 Dxf6 26. Hxd8
Hxd8 27. Hxd8+ Dxd8 28. bxc5 Dd1+
29. Df1 Db3 30. Dc1 bxc5 31. Rd2 Dd3
32. g3 Ba5 33. Rc4 Bc3 34. Df1 Dc2 35.
Dg2 Dd1+ 36. Df1 Dc2 37. Dg2 Dd1+
Það vill loða við suma skákmenn að
vilja sigra hvað sem það kostar. Þetta
getur komið í bakið á þeim þar eð sé
teygt of langt í vinningstilraunum sín-
um hefur það einatt í för með sér biturt
tap. Alexander Beljavsky (2667), oft
kallaður stóri Al, hafði hvítt í stöðunni
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
gegn hinum síunga Viktori grimma
Kortsnoj (2579). Skákin virtist stefna í
þrátefli þegar stóri Al vildi reyna að
sigra með 38. Kh2?? Ótrúlegur afleikur
þar sem eftir 38...Dd3! á riddari svarts
sér enga undankomuleið. 39. Da8+ Kh7
og hvítur gafst upp.
ÁRNAÐ HEILLA
40 ÁRA afmæli. Laug-ardaginn 19. júní
verður fertug Sigríður Ósk
Jónsdóttir, til heimilis í
Blikaási 1, Hafnarfirði. Af
því tilefni tekur hún á móti
gestum í Kiwanishúsinu í
Kópavogi, Smiðjuvegi 13a, á
afmælisdaginn.
60 ÁRA afmæli. Ámorgun, föstudaginn
18. júní, er sextugur Ólafur
Snævar Ögmundsson, yf-
irvélstjóri og hönnuður Elí-
plóga, Öldugranda 9,
Reykjavík. Eiginkona hans
er Gunnhildur Inga Hösk-
uldsdóttir. Þau dvelja
ásamt fjölskyldu sinni í
sumarbústað á afmælisdag-
inn.