Morgunblaðið - 17.06.2004, Blaðsíða 12
ERLENT
12 FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÁFRÝJUNARRÉTTUR í Moskvu
staðfesti í gær úrskurð undirréttar
sem bannaði á sínum tíma söfnuði
Votta Jehóva að starfa í landinu.
Rétttrúnaðarkirkjan hefur hvatt til
þess að Vottunum yrði meinað að
starfa á þeirri forsendu að trúar-
skoðanir þeirra séu hættulegar
heilsu félaganna. Einnig er söfn-
uðurinn sakaður um að sá hatri og
ofstæki og „brjóta upp fjölskyldur,
hvetja safnaðarfélaga til sjálfsvígs
og valda þeim heilsutjóni“. Vottar
Jehóva eru andvígir blóðgjöf sem
þeir telja stangast á við Ritninguna.
Vottarnir neita einnig að gegna
herþjónustu en hún er skylda í
Rússlandi. Málareksturinn gegn
þeim hófst fyrir sex árum. Hafa
Vottar Jehóva meðal annars bent á
að sérfræðingar við félagsfræðideild
Moskvuháskóla hafi komist að
þeirri niðurstöðu að ekkert sam-
band sé á milli trúarskoðana fólks
og traustleika fjölskyldna.
Sett voru lög um trúflokka í
Rússlandi 1997 og er þar tekið fram
að kenningar Rétttrúnaðarkirkj-
unnar séu ríkjandi í landinu en því
er heitið að virða einnig búddisma,
íslam og gyðingdóm. Hins vegar
eru öðrum trúfélögum settar skorð-
ur.
Um 133 þúsund manns eru sagðir
vera félagar í söfnuðum Votta Je-
hóva í Rússlandi, þar af um 11 þús-
und í Moskvu. Vottar Jehóva segja
að verði úrskurðinum framfylgt
muni þeir í reynd ekki geta starfað,
þeir geti t.d. ekki verið með eigin
bankareikning eða leigt húsnæði til
að halda bænasamkomur. Vottar
Jehóva halda ekki upp á afmæl-
isdaga eða aðra hátíðisdaga og
menn velta því nú fyrir sé hvernig
eigi að framfylgja niðurstöðu rétt-
arins, hvort lögregla verði send inn
á heimili til að tryggja að fólk hagi
sér í samræmi við úrskurðinn.
Leiðtogi safnaðarins í Rússlandi,
Vasílí Kalín, sagðist furða sig á úr-
skurðinum sem minnti á sovétskeið-
ið. Þá sættu sumir liðsmenn Vott-
anna nauðungarflutningum til
Síberíu. „Mér fannst gömlu tímarn-
ir vera runnir upp á ný,“ sagði Kal-
ín. Hann bætti við að málið færi nú
fyrir Mannréttindadómstól Evrópu
í Strassborg en Rússland á aðild að
Evrópuráðinu. Bandaríkjamenn for-
dæmdu á sínum tíma niðurstöðu
undirréttar og sögðu að hún væri
atlaga gegn trúfrelsi.
Vottum Jehóva meinað
að starfa í Moskvu
Hyggjast áfrýja til mannréttindadómstólsins
AP
Leiðtogi safnaðar Votta Jehóva í Rússlandi, Vasílí Kalín, yfirgefur rétt-
arsalinn í Moskvu í gær.
Moskvu. AP, AFP.
NÆR 300 manns eru í söfnuði
Votta Jehóva á Íslandi. Talsmaður
þeirra, Svanberg K. Jakobsson,
segir að menn hafi fylgst vel með
réttarhöldunum í Moskvu. „Ofsókn-
ir á hendur minnihlutahópum
vegna trúar eða annars hljóta að
vera áhyggjuefni. Þær vitna um
umburðarleysi og jafnvel eitthvað
enn verra, þær valda áhyggjum
vegna þess að þær hafa tilhneig-
ingu til að breiðast út. Ef ráðist er
gegn einum hópi er spurningin:
hvenær sá næsti er í hættu?“
Hann segir að Mannréttinda-
dómstóllinn í Strassborg hafi tekið
fyrir nokkur mál Votta Jehóva,
m.a. gegn gríska ríkinu og þau hafi
öll unnist. Dæmi séu um ofsóknir
gegn Vottunum í öðru landi Rétt-
trúnaðarkirkjunnar, Georgíu og
þar hafi lögreglan ekki gripið í
taumana.
„Fyrir nokkrum árum var rætt á
þingi Evrópuráðsins að koma á fót
yfirþjóðlegri stofnun til að hafa eft-
irlit með því sem kallað var „hættu-
legar sértrúarreglur“.
Við gerum okkur grein fyrir því
að það eru til sértrúarreglur sem
hafa staðið fyrir fjöldasjálfs-
morðum. En þetta hefur stundum
verið reynt að nota gegn trúflokk-
um eins og Vottum Jehóva sem
gera auðvitað aldrei neitt af þessu
tagi. Það er fáránlegt að halda því
fram. Stofnunin var reyndar ekki
sett á fót.“
Svanberg segir að töluverðs mis-
skilnings gæti varðandi afstöðu
Votta til blóðgjafa. Víðast hvar
valdi þetta engum vanda og læknar
beiti öðrum aðferðum en blóðgjöf,
komi t.d. í veg fyrir blæðingu með
kælingu eða beiti lyfjum og skurð-
tækni til að draga úr blæðingum.
„Hvenær er sá næsti í hættu?
ÞEIM Jennu og Barböru, tvíbura-
dætrum forsetahjónanna banda-
rísku, George W. Bush og Lauru
Bush, hefur ekki verið hampað í póli-
tísku lífi forsetans. Hjónin hafa
reynt eftir megni að hlífa þeim við
því að verða bitbein fjölmiðla þótt
ekki hafi það alltaf tekist. Nokkrar
vandræðalegar uppákomur hafa
orðið mörgum tilefni til að fara háð-
syrðum um forsetann og uppeldis-
aðferðir hans.
En nú eru dæturnar orðnar 22 ára
gamlar og í sumar munu þær taka
þátt í baráttu föðurins fyrir endur-
kjöri í nóvember. Kom þetta fram í
máli Gordons Johndroe, talsmanns
forsetafrúarinnar, fyrir skömmu.
„Ég geri ráð fyrir að þær muni byrja
að taka þátt í baráttu föður síns und-
ir lok sumarsins en ekki er enn ljóst
hvert umfangið verður,“ sagði Jo-
hndroe.
Jenna Bush hefur lokið háskóla-
prófi í bókmenntafræði við Texas-
háskóla og stundar nú kennslu.
Barbara Bush lauk hins vegar prófi
við hinn þekkta Yale-háskóla, þar
sem faðir hennar stundaði á sínum
tíma nám. Hún hyggst starfa við
áætlun um baráttu gegn alnæmi í
Afríku og Evrópu. Hvorug þeirra
hefur enn látið í ljós áhuga á að
reyna sjálf fyrir sér í stjórnmálum.
Þær eru nú á ferðalagi í Evrópu
og Jenna fór í pílagrímsgöngu til
Santiago de Compostela á Spáni og
gekk allt að 30 kílómetra á dag. Báð-
ar hafa þær verið fyrirsætur fyrir
tískuritið Vogue og munu myndirnar
af þeim birtast í ágúst. Tímaritin
Time og People hafa nýlega birt
greinar um systurnar.
„Venjulega reyna menn að halda
börnunum utan við fjölmiðlana, frá
kastljósi stjórnmálanna, þangað til
þau eru orðin fullvaxin,“ segir Allan
Lichtman, prófessor í stjórn-
málafræði við American University í
Washington. „En þær eru nú orðnar
fullorðnar og fyllilega hæfar til að
taka þátt í stjórnmálum. Fjölmiðlar
munu framvegis ekki hlífa þeim.“
Syndir og fjölmiðlar
Götublaðið New York Daily News
birti í mars ögrandi ljósmynd á for-
síðu af Barböru í næturklúbbi þar
sem hún dansaði af vægast sagt mik-
illi ákefð við Fabian Basabe, son
auðugs kaupsýslumanns frá Ekva-
dor.
En bandarískir fjölmiðlar virtust
fyrst uppgötva að forsetahjónin
ættu tvíburadæturnar þegar Jenna,
sem var þá 19 ára, var árið 2001
tvisvar tekin föst fyrir að panta sér
áfengi á veitingastað þótt hún væri
ekki orðin tvítug. Í seinna skiptið
var Barbara með henni.
Margir hlógu að þeim en dag-
blaðið Wall Street Journal sagði í
leiðara að menn þyrftu að vera
býsna harðbrjósta til að finnast rétt-
látt að 19 ára stúlka væri handtekin
og hlyti refsingu og sálgreind á op-
inberum vettvangi „fyrir að panta
sér margaritu“.
Tvíburar í forsetaslaginn
Dætur Bush-
hjónanna ætla að
taka þátt í barátt-
unni vegna for-
setakosninganna
í haust
Reuters
Barbara (t.v.) og Jenna Bush, tvíburadætur George W. Bush Bandaríkja-
forseta og Lauru Bush, á götu í Fort Hood í Texas í apríl.
Washington. AFP.
YFIRMAÐUR öryggismála á olíu-
svæðunum í Norður-Írak var skot-
inn til bana fyrir utan heimili sitt í
borginni Kirkuk í gær. Hefur
árásum á olíumannvirki fjölgað
mikið að undanförnu og má nú
heita, að lítil sem engin olía berist
frá landinu.
Með morðinu á Ghazi Talabani,
yfirmanni öryggismála á olíusvæð-
inu í norðri, hafa þrír háttsettir
embættismenn verið drepnir í Írak
á aðeins fjórum dögum. Hinir tveir
voru aðstoðarutanríkisráðherrann
og háttsettur maður í mennta-
málaráðuneytinu. Þar að auki
sprungu tvær bílsprengjur í Bagd-
ad á sunnudag og mánudag og
urðu að minnsta kosti 20 manns að
bana, þar á meðal nokkrum er-
lendum verktökum. Það, sem af er
júní, hafa 150 manns fallið í óöld-
inni í landinu og búist er við, að
ástandið muni versna eftir því sem
nær dregur valdaskiptunum í land-
inu um næstu mánaðamót.
Enginn útflutningur
Talabani hafði það erfiða verk-
efni að reyna að koma í veg fyrir
árásir á olíumannvirki og olíu-
leiðsluna milli Kirkuk og tyrk-
nesku borgarinnar Ceyhan en
hafði ekki haft erindi sem erfiði
hingað til. Hefur lítil sem engin ol-
ía farið um leiðsluna frá falli Sadd-
ams Husseins í apríl í fyrra og
vegna sprengingar í olíuleiðslu við
borgina Basra í Suður-Írak á
þriðjudag og aftur í gær má kalla,
að olíuiðnaðurinn í landinu sé lam-
aður.
Árásir lama olíu-
iðnaðinn í Írak
Yfirmaður öryggismála á olíusvæð-
unum í Norður-Írak skotinn
Kirkuk. AFP.
FJÖLSKYLDA Paul Marshall
Johnson, bandaríska flugvélaverk-
fræðingsins, sem er í haldi samtaka
sem tengjast al-
Qaeda hryðju-
verkanetinu,
grátbað honum
griða í gær.
Mannræningj-
arnir sendu frá
sér tilkynningu í
fyrradag þar sem
þeir segjast munu
taka Johnson af
lífi á morgun,
föstudag, hafi al-
Qaeda-liðum ekki verið sleppt úr
haldi samkvæmt kröfum þeirra.
Systir Johnson og sonur hans
mættu í viðtal á sjónvarpsstöðinni
CNN í gær, báðu mannræningjana
um að sýna Johnson miskunn og
hvöttu stjórnvöld í Sádi-Arabíu til
þess að gera allt sem í valdi þeirra
stæði til að tryggja öryggi hans.
„Hann er saklaus. Það er engin lausn
að drepa hann. Gerið það, ekki drepa
hann,“ sagði systir Johnson, Donna
Mayeux. Sonur Johnson, Paul
Marshall Johnson III, brotnaði sam-
an í viðtalinu þegar hann grátbað
föður sínum griða.
Myndband var birt á íslamskri
vefsíðu á þriðjudag þar sem Johnson
sést með bundið fyrir augu og mann-
ræningjarnir hóta að taka hann af lífi
verði ákveðnum al-Qaeda-mönnum
ekki sleppt úr fangelsi.
Fjölskyldan biður
Johnson griða
New York. AFP.
Paul Marshal
Johnson