Morgunblaðið - 17.06.2004, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 17.06.2004, Blaðsíða 31
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2004 31                                                           !         "         "      #      $       !     !                 % &    "    $     !   "  $   '                               ! " #  $    %  (            )*+ ,-.-  !       +/--  ,/-- 0     "!      /   1 &'( % #  (  #  ) *+& ,  - , ./0+1&         $         !    ,/-- 2 3/-- 4    .5 --- 2  - , ./0+1&          $        !    3/-- 2 */.- 4    ) --- 2 ./0+1&     .             '    66  !    */.- 2 5-/-- 4    5 --- 2           0(789:; 2 <=%>:7 2 ?@8(7A74 2 @0B987 2 %;874:;                             Lúxusjeppi + þú græðir kr. 27.900 um leið og þú kaupir miða Bylting í happdrætti - www.pulsinn.com LEIKVERKIÐ Landsmótið, sem leikdeild Ungmennafélagsins Efl- ingar í Reykjadal setti upp í vetur, er áhugaverðasta leiksýning áhugaleik- húss á leikárinu að mati Þjóðleik- hússins og verður sýnt þar um næstu helgi. „Leiksýningin er umfangsmikil og því um viðamikið verkefni að ræða við uppsetningu í Þjóðleikhúsinu, en segja má að með vali sínu hafi nefnd á vegum leikhússins vísað þessu vin- sæla verki til þjóðarinnar,“ sagði Jó- hann Guðni Reynisson, kynningar- stjóri Landsmótsins, við Morgunblaðið. Höfundar verksins eru Hörður Þór Benónýsson og Jóhannes Sigur- jónsson, leikstjóri er Arnór Benón- ýsson og tónlistarstjóri Jaan Ala- vere. Þegar leikverkið var sýnt á Breiðumýri í vetur komu að því yfir 100 manns þegar allt er talið sem sýnir umfangið ágætlega. „Það sem er ef til vill ekki síður athyglisvert er að hér er um að ræða fólk víðs vegar að af landinu. Skýrist það einkum af því að nemendur við Framhaldsskól- ann á Laugum skipa veglegan sess í verkinu. FL er heimavistarskóli í sveit og er þátttaka nemendanna í leikstarfsemi Eflingar hluti af blóm- legu félagslífi í skólanum. Og núna, þegar hópurinn er á leiðinni á svið Þjóðleikhússins, drífur fólkið að úr öllum áttum. Má t.d. nefna að leik- endur koma m.a. frá Vopnafirði, Kópaskeri, Þingeyjarsveit, Dalvík, Stokkseyri, Reykjavík, Hafnarfirði, Húsavík, Hvammstanga, Borgar- nesi, Sandgerði, Aðaldal, Mývatns- sveit og Sauðárkróki!“ sagði Jóhann Guðni. Sýningin vel sótt Leikritið verður sýnt í Þjóðleik- húsinu á laugardag og sunnudag kl. 20. „Það er ljóst að miðað við aðsókn í Breiðumýri í Reykjadal, þar sem á þriðja þúsund manns hafa séð sýn- inguna, má gera ráð fyrir mikilli að- sókn í Þjóðleikhúsinu. Uppselt hefur verið á nær hverja sýningu í Reykja- dalnum og við, aðstandendur sýning- arinnar, vonum auðvitað að svo verði einnig í Reykjavík. Við viljum því hvetja Þingeyinga og aðra unnendur skemmtilegra leiksýninga að koma í Þjóðleikhúsið þar sem lofað er góðri skemmtun.“ Úr leikritinu Landsmótið sem sýnt verður í Þjóðleikhúsinu. Landsmótinu vísað til þjóðarinnar! EDDA útgáfa og KB banki hafa gert með sér samstarfssamning um ljósmyndasýninguna Íslendingar sem sett verður upp á Austurvelli í dag og mun standa til 1. september. Páll Bragi Kristjónsson, forstjóri Eddu útgáfu, og Sólon R. Sigurðs- son, forstjóri KB banka, undirrit- uðu samninginn í húsakynnum Eddu útgáfu. Ljósmyndasýningin sam- anstendur af völdum myndum úr bókinni Íslendingar sem ljósmynd- arinn Sigurgeir Sigurjónsson og rithöfundurinn Unnur Jökulsdóttir unnu í sameiningu en Unnur er höf- undur texta. Bókin kemur einnig út í dag. Sýningin verður opnuð á ensku og íslensku og síðar einnig á frönsku og þýsku. Framlag á 60 ára afmæli lýðveldisins Í tvö ár ferðuðust Sigurgeir og Unnur um Ísland og heimsóttu fólk í öllum landshlutum. „Markmiðið var að skilja betur lífsviðhorf þeirra sem lagað hafa hefðbundin störf að nútímanum, standa á mörk- um þess gamla og nýja. Bókin og sýningin bregða upp myndum af Ís- lendingum samtímans en vekja fólk jafnframt til umhugsunar um sam- spil náttúru og mannlífs og gamalla og nýrri hefða. Á 60 ára afmæli lýðveldisins er sýningin framlag til að skilja hvar Íslendingar eru staddir nú í upphafi 21. aldar, hvernig hefðir, tungumál og venjur standa af sér umrót sam- tímans. Um leið er sýningin tilraun til að tengja saman byggðir lands- ins, færa Íslendinga um land allt inn í miðju borgarinnar, sýna borg- arbúum og gestum íslenskan veru- leika okkar daga,“ segir í kynn- ingu. Eftir Sigurgeir Sigurjónsson liggja fjölmargar bækur um ís- lenskt landslag og Íslendinga. Frá seinni árum er þekktust bókin Ís- landssýn eða Lost in Iceland. Unnur Jökulsdóttir er annar höf- undur ferðabóka um ævintýri Krí- unnar og barnabókarinnar Eyjadís. Sólon R. Sigurðsson, bankastjóri KB banka, og Páll Bragi Kristjóns- son, forstjóri Eddu, skrifa undir. Íslendingar samtímans á Austur- velli Sængurfataverslun, Glæsibæ • Sími 552 0978 Vöggusett barnasett Fréttasíminn 904 1100
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.