Morgunblaðið - 17.06.2004, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 17.06.2004, Blaðsíða 46
MINNINGAR 46 FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Nú er látinn rakar- inn í Kópavogi. Hann féll, fyrr en nokkurn grunaði, fyrir mannin- um með ljáinn, sem hann sagði að veitti sér mesta sam- keppni um viðskiptavinina síðustu árin. Torfi Guðbjörnsson hárskeri, eða rakari eins og fólk þekkti hann, TORFI GUÐBJÖRNSSON ✝ Torfi Guðbjörns-son fæddist í Bjarnarnesi í Kald- rananeshreppi í Strandasýslu 29. október 1929. Hann lést á Landspítalan- um 6. júní síðastlið- inn og var útför hans gerð frá Kópavogs- kirkju 15. júní. lést 6. júní síðastliðinn á 75. aldursári eftir stutta sjúkralegu. Hvað getur maður talað um stutta sjúkralegu í sam- bandi við Torfa? Hann þjáðist af alvarlegum vöðvasjúkdómi allt frá tvítugsaldri og síðar af liðagigt. Það kom þó ekki í veg fyrir að hann stundaði iðn sína alla tíð af dugnaði og æðru- leysi allt fram á síðustu daga. Alltaf var stofan opin hjá Torfa; það var varla tekið sumarfrí því ekki mátti vanrækja viðskiptavinina. Torfi var alltaf jafn hress þrátt fyrir þrautir af sjúkdómi sínum, þar sem hann klippti unga og gamla, sem margir hverjir höfðu verið fasta- kúnnar í áratugi. Margir eldri Kópa- vogsbúar mættu á stofuna til Torfa ekki aðeins til að láta klippa sig held- ur einnig til að geta fylgst með gangi heimsmála, svo ekki sé minnst á lands- og bæjarpólitík og annað ennþá merkilegra. Rakarinn var inni í öllum málum enda margir sem gaukuðu að honum merkilegum fréttum sem hann miðlaði áfram. Torfi rak rakarastofuna í rúm fjöru- tíu ár á Neðstutröðinni en alls starf- aði hann við iðn sína í fimmtíu og fimm ár. Sonur Torfa hefur starfað með föður sínum á stofunni undan- farin ár og sonarsonur hóf nám á stofu afa síns fyrir skömmu. Gamli rakarinn getur lagst til hvílu sáttur, stofan í góðum höndum, arfurinn tryggður og vafalaust mun andi hans svífa þar áfram yfir vötnum. Torfi var mikill Strandamaður, fæddur á Bjarnanesi í Kaldrananes- hreppi og ólst upp á Hólmavík. Ung- ur maður flutti Torfi suður, þar sem hann hóf fljótlega nám í rakaraiðn og kynntist eftirlifandi konu sinn, sem hann eignaðist með fimm börn. Barnabörnin eru orðin sextán og barnabarnabörnin fimm. Mikla ánægju hafði Torfi af að fylgjast með hópnum og alltaf var jafn spennandi fyrir börnin að fara til afa eða langafa í klippingu. Það er margs að minnast af kynn- um mínum af Torfa Guðbjörnssyni. Það stendur upp úr hvað hann var alltaf hress og bjatsýnn þrátt fyrir erfiðan sjúkdóm og aldrei var gefist upp þrátt fyrir erfiðleika og þrautir. Hann hvatti alla til dáða og dró aldrei kjarkinn úr neinum, hvorki nákomn- um né óskyldum. Alltaf leit Torfi björtum augum á lífið og vildi heldur mæla hitann sólarmegin en skugga- megin. Ég sendi Önnu Marín, börnum, barnabörnum, barnabarnabörnum og fjölskyldum innilegar samúðar- kveðjur og ekki má heldur gleyma öllum viðskiptavinunum sem nú missa rakarann sinn. Bragi Jónsson. AFMÆLIS- og minningar- greinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disk- lingi þarf útprentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusíma og heima- síma). Ekki er tekið við hand- skrifuðum greinum. Um hvern látinn einstakling birtist ein að- algrein af hæfilegri lengd á út- farardegi, en aðrar greinar séu um 300 orð eða 1.500 slög (með bilum) en það eru um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Frágangur afmælis- og minning- argreina Tilkynning um uppgreiðslu skuldabréfa í flokki Olís 96 1 Olíuverzlun Íslands hf. hefur ákveðið að nýta sér heimild til uppgreiðslu á skuldabréfaflokkn- um Olís 96 1 sem skráð eru í Kauphöll Íslands hf. Útgáfudagur skuldabréfanna er 10. júlí 1996 og ISIN númer flokksins er IS0000003218. Skuldabréfin verða greidd upp þann 5. júlí 2004. Óskað verður afskráningar skuldabréfanna úr Kauphöll Íslands hf. og verða skuldabréfin, sem útgefin voru á pappírsformi, eyðilögð þegar uppgreiðsla þeirra hefur farið fram. Reykjavík, 2. júní 2004. Olíuverzlun Íslands hf. Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Hafnar- stræti 1, Ísafirði, sem hér segir á eftirfarandi eignum: Aðalstræti 53, fastanr. 212-5427, Þingeyri, þingl. eig. Sigmundur F. Þórðarson, gerðarbeiðandi Byggðastofnun, þriðjudaginn 22. júní 2004 kl. 14:00. Arnarnes, Mýrarhr., Ísafjarðarbæ, fnr. 212-5684, ehl. gerðarþola, þingl. eig. Ásthildur Gunnarsdóttir, gerðarbeiðandi Sparisjóður Rvíkur og nágr., útibú, þriðjudaginn 22. júní 2004 kl. 14:00. Bakkavegur 1, Ísafirði, þingl. eig. Gyða Björg Jónsdóttir og Finnbjörn Elíasson, gerðarbeiðandi Sparisjóður Bolungarvíkur, þriðjudaginn 22. júní 2004 kl. 14:00. Brekkustígur 7, fnr. 212-6745, Suðureyri, þingl. eig. Lovísa Rannveig Kristjánsdóttir, gerðarbeiðandi Ísafjarðarbær, þriðjudaginn 22. júní 2004 kl. 14:00. Fitjateigur 3, fnr. 211-9425, Ísafirði, þingl. eig. Ásthildur Gunnarsdótt- ir, gerðarbeiðandi Sparisjóður Rvíkur og nágr., útibú, þriðjudaginn 22. júní 2004 kl. 14:00. Hafnarstræti 8, 0101 og 0102, Ísafirði, þingl. eig. Framsóknarfélag Ísfirðinga, gerðarbeiðandi Ísafjarðarbær, þriðjudaginn 22. júní 2004 kl. 14:00. Höfðaströnd, sumarhús, fnr. 225-0332, Grunnavíkurhr., Ísafjarðarbæ, ehl. gerðarþola, þingl. eig. Ásthildur Gunnarsdóttir, gerðarbeiðandi Sparisjóður Rvíkur og nágr., útibú, þriðjudaginn 22. júní 2004 kl. 14:00. Pólgata 6, 0301, Ísafirði, þingl. eig. Hrafnhildur Skúladóttir og Bjarki Arnarson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 22. júní 2004 kl. 14:00. Pramminn Fjölvi ÍS, skskr.nr. 2196, þingl. eig. Sjóverk ehf., gerðar- beiðandi Byggðastofnun, þriðjudaginn 22. júní 2004 kl. 14:00. Smiðjugata 1, neðri hæð, efri hæð og 1a. Ísafirði, þingl. eig. Gunnar Hólmsteinn Guðmundsson og Kristbjörg Þ. Gunnarsdóttir, gerðar- beiðendur Íbúðalánasjóður og Landsbanki Íslands höfuðstöðvar, þriðjudaginn 22. júní 2004 kl. 14:00. Strandgata 5, fnr. 212-0479, Ísafirði, þingl. eig. Kristján Ívar Sigurðs- son, gerðarbeiðendur Húsasmiðjan hf. og Ísafjarðarbær, þriðjudag- inn 22. júní 2004 kl. 14:00. Vallargata 1, fnr. 212-5570, Þingeyri, þingl. eig. Rauðsíða ehf., Ísa- fjarðarbæ, gerðarbeiðandi Ísafjarðarbær, þriðjudaginn 22. júní 2004 kl. 14:00. Öldugata 2, Flateyri, fnr. 212-6593, þingl. eig. Mieczyslaw Jaworow- ski, gerðarbeiðandi Ísafjarðarbær, þriðjudaginn 22. júní 2004 kl. 14:00. Sýslumaðurinn á Ísafirði, 16. júní 2004. Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Grænatún 2, þingl. eig. Hannes Björnsson, gerðarbeiðendur Íbúða- lánasjóður og Sparisjóður Rvíkur og nágr., útib., þriðjudaginn 22. júní 2004 kl. 10:00. Helgubraut 27, þingl. eig. Reynir Ingi Helgason, gerðarbeiðendur Ingvar Helgason hf. og Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda, þriðjudaginn 22. júní 2004 kl. 10:30. Jörfalind 3, þingl. eig. Kristján Snær Karlsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Sjóvá-Almennar tryggingar hf., þriðjudaginn 22. júní 2004 kl. 11:00. Kórsalir 5, 0101, þingl. eig. Þórdís Friðfinnsdóttir, gerðarbeiðendur Byko hf. og Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 22. júní 2004 kl. 13:00. Sýslumaðurinn í Kópavogi, 16. júní 2004. Þuríður B. Sigurjónsdóttir, ftr. TILBOÐ / ÚTBOÐ Útboð Leikskólinn Álfaborg Svalbarðseyri — viðbygging Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps óskar eftir tilboðum í uppsteypu og fullnaðarfrágang innan- og utanhúss á einnar hæðar 150 m² við- byggingu við leikskólann Álfaborg, Svalbarðs- eyri. Bjóðendum er boðið til kynningarfundar í hús- næði leikskólans Álfaborg, fimmtudaginn 24. júní 2004, kl. 13:15 og verða þar fulltrúar verkkaupa og hönnuður. Í framhaldi af fundin- um gefst bjóðendum kostur á að skoða að- stæður á væntanlegum verkstað. Útboðsgögn verða til sölu í húsnæði arkitekta- stofunnar Form, Kaupangi, eftir kl. 14.00 föstu- daginn 18. júní 2004. Verð á útboðsgögnum er kr. 5.000. Gögn verða endurgreidd sé skilað fullgildu tilboði. Tilboðum skal skila á arkitektastofuna Form, Kaupangi, Akureyri, og verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 1. júlí 2004 kl. 11.00, að við- stöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Verkkaupi áskilur sér rétt til að taka hvaða til- boði sem er, eða hafna öllum. Svalbarðsstrandarhreppur, Ráðhúsinu, Svalbarðseyri. NAUÐUNGARSALA Í dag kl. 14-18.00 Kaffisala. Kl. 17.00 Söngstund í umsjón Miriam. Í dag kl. 10 f.h. Leggjabrjót- ur. Gengið frá Þingvöllum í Botnsdal. Brottför Mörkin 6, 108 R. Verð 1.700/2.200. 20. júní Árbókarferð – Borg- arfjarðarhérað kl. 8 f.h. Öku- ferð með höfundi, Freysteini Sigurðssyni jarðfræðingi. Brott- för Mörkin 6, 108 R. Verð 4.500/ 5.000. 23. júní - Jónsmessuferð á Hafnarfjall. Brottför Mörkin 6 kl. 18.30. Verð 1.800/2.300. Fimmtudagur 17. júní Almenn samkoma í Þríbúðum, Hverfisgötu 42, kl. 20:00. Predik- un Valdimar Júlíusson. Mikill söngur og vitnisburðir. Allir eru hjartanlega velkomnir. Föstudagur 18. júní Opinn AA-fundur kl. 20:00. Þriðjudagur 22. júní Ungsam í Þríbúðum, Hverfis- götu 42, kl. 19:00. Uppbyggilegt starf fyrir ungt fólk í bata. www.samhjalp.is 17. júní á Þingvöllum Kl. 14.00 Hátíðarguðsþjón- usta í Þingvallakirkju Á þjóðhátíðardaginn 17. júní verður hátíðarguðsþjónusta í Þingvallakirkju á 60 ára afmæli lýðveldisins. Dóms- og kirkju- málaráðherra, Björn Bjarnason, prédikar og Kristján Valur Ing- ólfsson þjónar fyrir altari. Kl. 20.00 Fimmtudagskvöld á Þingvöllum. Heimsmynd nátt- úrufræðingsins Jónasar Hall- grímssonar. Sigurður Stein- þórsson jarðfræðingur fjallar um sýn Jónasar á náttúru og vísindi. Gangan hefst við útsýnisskífuna við Hakið og verður gengið að Þingvallakirkju. Þegar göngunni lýkur um kl. 22. verða kvöldbænir í Þingvallakirkju. 19. júní Laugardagur Kl. 13.00 Horft yfir Þingvelli Gengið frá fræðslumiðstöðinni með efri barmi Almannagjár að Langastíg. Sérstakt sjónarhorn yfir þingstaðinn forna. Gangan tekur um 2-3 klst og vissara er að vera á góðum skóm. Kl. 13.00 Kynning á forn- leifa- rannsóknum Adolf Friðriksson fornleifafræð- ingur hjá Fornleifastofnun Ís- lands mun kynna fornleifarann- sóknirnar sem fara fram á Þing- völlum. Safnast verður saman við Þingvallakirkju. 20. júní Sunnudagur Kl. 13.00 Fornleifaskóli barnanna á Þingvöllum Á bakka Öxarár hefur verið komið fyrir fornleifum á af- mörkuðu uppgraftrarsvæði þar sem krakkar geta grafið undir eftirliti og kynnst vinnubrögðum fornleifafræðinga. Fornleifaskóli barnanna verður alla sunnudaga frá kl.13–16 í Prestakrók á Neðri- völlum. Kl. 14.00 Guðsþjónusta í Þing- vallakirkju. Kl. 15.00 Þinghelgarganga. Gengið um þingstaðinn forna og hugað að sögu Þingvalla og fornleifarannsóknum. Hefst við kirkju að lokinni guðsþjónustu og tekur rúmlega 1 klst. Nánari upplýsingar eru veittar í þjónustumiðstöð í síma 482 2660 og á heimasíðu þjóðgarðs- ins, www.thingvellir.is. Þátttaka í dagskrá þjóðgarðsins á Þing- völlum er ókeypis og allir eru velkomnir. R A Ð A U G L Ý S I N G A R ATVINNA mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.