Morgunblaðið - 17.06.2004, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 17.06.2004, Blaðsíða 29
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2004 29 Listasafn Íslands er opið á þjóðhá- tíðardaginn 17. júní frá kl. 11–17. Listasetrið Kirkjuhvoli, Akranesi kl. 16 Svanborg Matthíasdóttir opn- ar sýningu sína sem ber yfirskriftina Tónar. Svanborg sýnir olíumálverk unnin á árunum 1999–2004. Svanborg er fædd árið 1958. Hún nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1981–1985, Jan Van Eyck Akademie í Hollandi 1985–1987. Hún hefur starfað sem kennari við Myndlista- og handíðaskóla Íslands, Listaháskóla Íslands. Svanborg hef- ur haldið fjórar einkasýningar og tekið þátt í mörgum samsýningum. Sýningunni lýkur 4. júlí. Opið alla daga nema mánudaga kl. 15–18. Safnaðarheimili Vestmannaeyja kl. 17 Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari og Richard Simm píanóleikari flytja verk eftir W.A. Mozart, Jón Nordal, H. Wieniawski og Karl O. Runólfs- son. Gamla Borg, Grímsnesi Sigurlín Grímsdóttir opnar sýningu á vatns- litamyndum. Myndefnið er nátt- úrulegt og jarðbundið. Opið er fimmtudaga til sunnudags frá 14 til miðnættis. Sýningin stendur til 27. júní. Í DAG HÓPUR Íslendinga, skipaður nokkrum leikurum Þjóðleikhússins og stórmeisturum í skák, er um þessar mundir staddur í Kanada í tilefni af 60 ára afmæli íslenska lýð- veldisins og 100 ára afmæli heima- stjórnarinnar. Leikarar Þjóðleik- hússins munu flytja dagskrá með söngvum, New Iceland’s Saga, í Winnipeg og Gimli í dag og á morg- un, en það er Böðvar Guðmundsson rithöfundur ásamt leikurunum sem hefur sett saman dagskrána sem rekur sögu fjölskyldu sem tekur sig upp frá Íslandi og heldur vestur um haf, til Kanada. Inn í söguna flétt- ast söngvar frá ýmsum tímum, þó einkum frá 19. öldinni. Sex leikarar frá Þjóðleikhúsinu, Gunnar Eyjólfs- son, Jóhann Sigurðarson, Kjartan Guðjónsson, Nanna Kristín Magn- úsdóttir, Ragnheiður Steindórs- dóttir og Þórunn Lárusdóttir flytja dagskrána ásamt Bergþóri Páls- syni óperusöngvara og Þorsteini Gauta Sigurðssyni píanóleikara. Á sama tíma fer fram skákmót í Winnipeg og taka fimm íslenskir stórmeistarar, Helgi Ólafsson, Helgi Ás Grétarsson, Jóhann Hjart- arson, Jón L. Árnason og Þröstur Þórhallsson, þátt í mótinu. Í dag verður svo athöfn við styttu Jóns Sigurðssonar þar sem Gunnar Eyjólfsson leikari mun flytja kvæði og sungnir verða þjóðsöngvar land- anna. Þann 19. júní mun Helgi Áss Grétarsson stórmeistari tefla fjöl- tefli í Gimli. Með í förinni verður Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Unnið hefur verið að undirbún- ingi ferðarinnar frá því í vetur. Að verkefninu standa Heimastjórnin, Þjóðleikhúsið, utanríkisráðuneytið, Icelandair og Dreifing ehf, en í undirbúningsnefnd sátu Atli Ás- mundsson, aðalræðismaður Íslands í Kanada, Júlíus Hafstein, fram- kvæmdastjóri Heimastjórnar, Jó- hann Sigurðarson leikari og Helgi Ólafsson stórmeistari. Saga Íslendinga í Kanada rakin Morgunblaðið/Jim Smart Leikarar og skákmenn við styttu Ingólfs Arnarsonar. GEOFFREY Douglas Madge píanóleikari vakti mikla athygli hér á landi þegar hann kom fram ásamt Kolbeini Bjarnasyni flautuleikara í Salnum í Kópavogi fyrir nokkru. Madge var svo mjúkhentur, en bjó að sama skapi yfir þvílíkri tækni að það var ævintýri líkast. Nú býðst tækifæri til að heyra enn meira af Madge, í þetta sinn á geisla- diski frá Bis útgáfunni og leikur hann þar með Caput-hópnum pí- anókonsert nr. 3 eftir gríska tón- skáldið Nicos Skalkottas. Skalkottas fæddist árið 1904 og varð aðeins 45 ára gamall. Hann nam tónsmíðar m.a. hjá Arnold Schönberg og er tónlist hans í fremur frjálslegum tólf- tónastíl. Hún er sérkennileg að því leyti að þó að hún sé að mestu „tóntegundalaus“ virkar hún oft eins og hún rambi á barmi þess að detta niður í ein- falda dúr – eða mollhljóma, án þess beinlínis að gera það. Þetta er alls ekki leiðinleg tónlist en er samt langt frá því að vera að- gengileg; í henni er ekki að finna neina ódýra, hégómlega effekta. Hún er rökrétt; píanókonsertinn er prýðilega samsettur, ólíkir hlutar samsvara sér vel, fram- vindan er eðlileg og sjálfri sér samkvæm. Helsti galli verksins er óhófleg lengd, heilar 65 mín- útur; í svipinn man ég ekki eftir neinum píanókonsert sem er svo langur. Lengstu píanókonsertar rómantíkurinnar, sá fyrsti eftir Tchaikovsky, hinn síðari eftir Brahms og sá þriðji eftir Rachm- aninoff eru t.d. ekki lengri en þrjú kortér ef minnið svíkur mig ekki. Burtséð frá lengdinni er flutn- ingurinn þrunginn sannfæringar- krafti. Madge er óaðfinnanlegur; leikur hans er blæbrigðamikill og þrunginn andstæðum auk þess að vera tæknilega fullkominn. Blás- arar og slagverksleikarar Caput- hópsins eru sömuleiðis með allt sitt á hreinu undir öruggri stjórn Nikos Christodoulou og upptak- an er bæði skýr og hljómmikil. Af allt öðrum toga er ballett- verkið Dvergarnir, en það fjallar um illgjarna, hrekkjótta dverga sem fara á kreik um jólaleytið. Hér er tónlistin lagræn og hefð- bundin, enda fyrst og fremst út- setningar eftir Skalkottas, aðal- lega á lögum fyrir börn eftir Bartók. Hljómsveitarraddsetning tónskáldsins er haganlega gerð og leikur Caput-hópsins er til fyrirmyndar ef frá er talið óþægilega mjósleginn hljómur fiðlnanna hér og þar. Óbóleikur Eydísar Franzdóttur hefði líka mátt vera líflegri, þó ekki sé hægt að finna að neinu hjá henni hvað tæknina varðar. Í það heila er þetta áhugaverð- ur geisladiskur. Þar sem um er að ræða fyrstu upptöku sögunnar á báðum tónsmíðunum er ekki annað hægt en að óska aðstand- endum framtaksins til hamingju með vel unnið verk. Það búa illir dvergar TÓNLIST Geisladiskur Geoffrey Douglas Madge leikur á píanó ásamt Caput-hópnum. Nikos Christo- doulou stjórnar. Bis Records. SKALKOTTAS: PÍANÓKONSERT NR. 3, THE GNOMES Jónas Sen SÆNSKI stúdentakórinn Chalmers sångkör hefur verið á tónleikaferð um Ísland og annað kvöld verður kórinn með lokatónleika ferðarinnar í Hallgrímskirkju kl 20. Tónleikarnir eru haldnir í samvinnu við tónleika- röðina Sumarkvöld við orgelið sem er að hefja sitt 12. starfsár þessa helgi. Efnisskrá kórsins er að mestu leyti sænsk með íslensku og dönsku ívafi. Í fyrsta hlutanum flytur hann m.a. Ave maris stella eftir sænska tónskáldið Otto Olsson og Sanctus úr messu eftir Sandström. Miðhluti efnisskrárinnar er tileinkaður sænskum sumarsálmum en síðasti hlutinn er tileinkaður sænska tón- skáldinu Wilhelm Stenhammar. Eft- ir hann flytur kórinn þrjá kórsöngva sem Stenhammar samdi aðeins 19 ára gamall við ljóð danska skáldsins J.P Jacobsen en söngvarnir hafa all- ir hlotið sérstakan sess í sænskri kórmenningu. Þá endar efnisskráin með verkinu lofsöngnum Sverige eftir Wilhelm Stenhammer sem er tekinn úr kantötunni „Þjóð“ við texta Verners von Heidenstams. Chalmers sångkör er elsta og um leið stærsta stúdentafélagið við tækniháskólann í Gautaborg. Kórinn var stofnaður árið 1870 og hefur þátttaka hans í starfi skólans mótast gegnum tíðina. Upphaflega var kór- inn karlakór en með fjölgun stúlkna meðal námsmanna var blandaður kór stofnaður árið 1964 og sérstakur kvennakór árið 1987. Í dag eru um 120 virkir félagar í kórunum en á ferðalaginu eru um 50 söngvarar. Stjórnandi er Susanna Fredén. Stúdentakór í Hallgrímskirkju UNNAR Örn Jónasson Auðarson opnar í dag Plöntu-skiptistöð í Gall- eríi Vesturvegg, Skaftfelli, menning- armiðstöð á Seyðisfirði. Sýningar- gestir geta komið með sína eigin afleggjara og skipt út fyrir nýja, ásamt því að lesa sér til um blóma- rækt og fylgst með vexti ýmissa plantna s.s. sólblóma, kaktusa, sí- trónutrjáa og margra fleiri. Sýningin opnar klukkan 12.00 á hádegi með kaffi og meðlæti og stendur til 1. júlí. Unnar Örn útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands árið 1999 og síðar Háskólanum í Lundi, Malmö, Svíþjóð. Hann á að baki fjöldann all- an af einka- og samsýningum og býr og starfar í Malmö og Reykjavík. Menningarborgasjóður styrkti verk- efnið. Menningarauki á slaginu sex Laugardaginn 19. júní opnar Að- alheiður Eysteinsdóttir sýningu sína „Aftur“ í sýningarsalnum í Skaftfelli. Sýningin dregur upp svipmynd af litlu samfélagi sem raunverulega mótast af ósköp venjulegum einstak- lingum. Sýningin opnar klukkan 17.00 og á slaginu 18.00 hefst sjáv- arréttakynning frá Fiskbúð Siglu- fjarðar. Menningarauki verður á slaginu sex alla daga til 27. júní og þar er m.a. boðið upp á fyrirlestra, ljóðatónleika og dorgveiðikeppni. Dagskrá menningaraukans má nálg- ast á vef Skaftfells, www.skaftfell.is. Plöntuskiptistöð í Skaftfelli Listmunahorn Árbæjarsafns Helga Birgisdóttir/Gegga sýnir ljós- myndir úr postulíni. Sýningin stendur til 23. júní. Askja, náttúrufræðihús Háskóla Íslands í Vatnsmýrinni, kl. 17 Sendiherra Króatíu á Íslandi, frú Ana Marija Besker, mun heimsækja Ísland á 60 ára afmæli lýðveldisins. Í leiðinni mun hún opna sýningu á ljós- myndum (veggspjöldum) frá Króat- íu. Sýningin mun standa út júní. Á MORGUN  Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.