Morgunblaðið - 17.06.2004, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 17.06.2004, Blaðsíða 23
AUSTURLAND MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2004 23 Egilsstaðir | Rúmlega sex þúsund gestir sóttu sýninguna Austurland 2004, sem stóð í íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum í fjóra daga. Að- standendur sýningarinnar, Athygli og Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands, bjuggust fyrirfram við á milli sex og átta þúsund manns og varð aðsóknin góð alla sýningardagana, en flestir voru gestirnir á laugardag og sunnu- dag. Fólk er almennt mjög ánægt með sýninguna, en þar sýndu 128 einstaklingar, fyrirtæki og stofn- anir á Austurlandi starfsemi sína á 2000 fermetra sýningarsvæði. Austurland 2004 sýn- ingin vel heppnuð Morgunblaðið/Helgi Garðarsson Guð á Austurlandi 2004: Sókn- arprestar á Fljótsdalshéraði kynntu guðsorð fyrir ungum og öldnum sýningargestum. Reyðarfjörður | Sautjánda júní hátíðarhöld fara fram í Fjarða- byggð í dag, svo sem víðar gerist í landinu. Þetta er annað árið í röð þar sem hátíðin er ein- skorðuð við Reyðarfjörð og allir Fjarðabyggðarbúar boðnir vel- komnir þangað. Íbúi í Neskaup- stað hafði samband við Morg- unblaðið og lýsti megnri óánægju með þessa ráðstöfun bæjaryf- irvalda og vildi fá að halda sinn sautjánda júní í Neskaupstað. Sagði viðmælandi að umhendis gæti verið fyrir barnafólk og fleiri að fara yfir á Reyðarfjörð og telur þá ráðstöfun að halda ekki upp á daginn í öllum þremur þéttbýliskjörnum Fjarðabyggðar undarlega. Aðrir viðmælendur á Eskifirði og í Neskaupstað sögðu sjómannadaginn mjög viðamikinn á þessum tveimur stöðum og því eðlilegt að hátíðarhöld dagsins færu fram á Reyðarfirði. Aðsókn að 17. júní hátíðarhöldum á hin- um stöðunum hefði enda verið dræm undanfarin ár. Morgunblaðið/Helgi Garðarsson Votir og vaskir: 17. júní hátíðargestir á Reyðarfirði í fyrra. 17. júní í Fjarðabyggð haldinn á Reyðarfirði Stöðvarfjörður | Þeir Jóhannes Jónsson vélamaður og Sigurður Guðmundsson áfengisráðgjafi, báðir úr Vogunum, ákváðu að verja sum- arleyfinu sínu í kajaksiglingu milli Djúpavogs og Stöðvarfjarðar þetta árið. Morgunblaðið hitti þá félagana á kaffihúsinu Kútternum á Stöðvar- firði, þar sem þeir voru að bíða eftir rútunni til Djúpavogs. Þaðan leggja þeir upp á tveimur fimm og hálf- smetralöngum sjókajökum, sem vega um 70 kg hvor með farangri. Þeir reikna með að dagleiðin geti verið eitthvað um 20 km ef veður helst bærilegt, en hafa hugsað sér að dóla þetta yfir á Stöðvarfjörð á tíu dögum. Sigurður segir þá hafa verið að dunda við kajaksiglingar síðustu fjögur árin og farið nokkrar ferðir, m.a. í Jökulfirðina. Þeir ætluðu upp- haflega í Arnarfjörðinn fyrir vestan, en veðurspáin gerði það að verkum að þeir settu kúrsinn yfir á Austur- land. Damlandi í Berufirðinum Þegar vertinn á Kútternum var búinn að heimta sína aura fyrir kaffið ofan í kajakræðarana, hlupu þeir um borð í rútuna sem flytja átti þá til Djúpavogs, en þar beið allur búnaður þeirra tilbúinn til sjósetn- ingar. „Nú svo bara fer maður í land til að hella upp á kaffi þegar maður nennir ekki að róa lengur,“ sagði Sigurður glaðbeittur þegar hann rauk út úr dyrunum og hlakkaði greinilega til ferðarinnar. Ætli þeir séu ekki damlandi einhvers staðar í Berufirðinum núna og væntanlegir á Stöðvarfjörð um miðja næstu viku. Vinir verja sumarleyfinu sínu í að sigla kajökum milli Djúpavogs og Stöðvarfjarðar Bregða sér í land og hella uppá Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Búnir að borga kaffið og klárir á sjóinn: Jóhannes Jónsson og Sigurður Guðmundsson, ásamt vertinum á Kútternum, Samúel Sveinssyni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.