Morgunblaðið - 17.06.2004, Blaðsíða 16
- SPENNANDI VALKOSTUR
Stangarhyl 3, 110 Reykjavík, sími 591 9000
www.terranova.is
Akureyri, sími 461 1099
Lignano
2 fyrir 1
1. júlí
frá kr. 19.990
Terra Nova býður nú síðustu sætin í sólina til Lignano 1. júlí á frábærum
kjörum. Þú getur valið um 5, 12 eða 19 daga ferð og notið sólar og sumars
á einni af fallegustu baðströndum Ítalíu. Á Lignano er að finna afþreyingu við
allra hæfi, skemmtigarða, spennandi næturlíf og verslanir af öllu tagi. Íslend-
ingar hafa kolfallið fyrir ítalskri matarmenningu og hér eru veitingastaðir,
barir og ísbúðir sem svíkja engan. Þú bókar ferðina og 3 dögum fyrir brottför
færðu að vita hvar þú gistir í fríinu þínu á Lignano.
Verð kr. 19.990 á mann
Flug og flugvallarskattar.
Flugsæti kr. 32.200/2 = kr. 16.100.
Skattar kr. 3.890. m.v. 1. júlí Verð kr. 2.990 á mann
á nótt í fjórbýli.
Gisting á 2* og 3* hótelum.
Ferðir til og frá hótelum á Lignano kr. 1.800.
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Stækka golfvöllinn | Vinna er hafin við
golfvöllinn á Silfurnesi á Höfn en byrjað var
að stækka völlinn í fyrra. Núna er verið að
fullmóta flatirnar, grínin eins og það heitir
á golfmáli, og gera þau tilbúin undir sán-
ingu og búa til teiga. Haft er eftir Guðnýju
Helgadóttur, formanni golfklúbbsins, á
heimasíðu Hornafjarðar að fullgera eigi
völlinn í sumar en hann verði ekki formlega
opnaður fyrr en 2006 því grasrótin verði að
vera orðin þétt og sterk. Völlurinn er núna
1920 m. hringurinn en eftir stækkun verður
hann 2,5 km og áfram 9 holur eins og hann
er. Hönnuður að golfvellinum er Edvin
Ragnarsson og fylgist hann með „grín-
framkvæmdunum“. Mikið er um að vera á
golfvellinum á Silfurnesi í sumar og í dag,
17. júní, verður haldið svokallað Hafn-
arapóteks-golfmót. Humarhátíðar-
golfmótið verður 2.-4. júlí og Hótel Hafn-
armótið, sem er stærsta golfmót sumarsins,
verður 21. ágúst.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Kiwanismenn | Kiwanismenn úr Kiwanis-
klúbbnum Setbergi í Garðabæ heimsóttu
grunnskólana í Garðabæ við útskrift nem-
enda. Tilefni heimsóknanna var að afhenda
viðurkenningar til þeirra nemenda sem
skarað hafa fram úr í íslenskunámi.
Kiwanismenn í Garðabæ hafa veitt þess-
ar viðurkenningar hátt í 20 ár og er það eitt
af ánægjulegustu verkefnum þeirra. Kiw-
anisklúbburinn hefur notið stuðnings bóka-
útgáfunnar Eddu við þetta verkefni og
þakka Kiwanismenn þeim stuðninginn, seg-
ir í fréttatilkynningu.
Í Flataskóla: Frá vinstri: Matthías Guð-
mundur Pétursson, Hildur Guðmunds-
dóttir 6. VK, Anna Björk Almarsdóttir 6.
ÞH, Hildur Hafsteinsdóttir 6. ÁJ, Anna
Guðrún Einarsdóttir 6. SKA, Sigrún Gísla-
dóttir skólastjóri og Sigurður Axelsson.
Við Skógafoss
Bæjarstjórn Akra-ness hefur sam-þykkt nýjar reglur
um fjárhagsaðstoð í sveit-
arfélaginu. Helstu breyt-
ingar sem fram koma með
nýjum reglum eru m.a.
þær, að fjárþörf tekur mið
af fullorðnum, en ekki af
börnum líka eins og áður
var. Greiðslur vegna barna,
svo sem meðlög, barnabæt-
ur og barnabótaauki reikn-
ast hins vegar ekki sem
tekjur og húsaleigu- og
vaxtabætur eru ekki taldar
til tekna.
Fjárhagsaðstoð til ein-
staklinga getur nú numið
allt að kr. 81.396 á mánuði,
en til hjóna og fólks í
skráðri sambúð getur hún
numið allt að kr. 130.234 á
mánuði. Nýju reglurnar
miða við heildarlaun en
ekki nettólaun eins og áður
var. Forsenda námsstyrkja
er þrengd og aðstoð til for-
eldra, að vissum skilyrðum
uppfylltum, er aukin.
Nýjar reglur
Fagridalur | Á dögunum
fór fram sumarhátíðin
Vík 2004 og er þetta
fyrsta hátíð sinnar teg-
undar en áætlað er að
þetta verði árviss við-
burður.Mikið var lagt upp
úr því að hátíðin væri fjöl-
skylduvæn með ýmiskon-
ar afþreyingu fyrir börn.
Þá var harmonikkud-
ansleikur á Ketilsstöðum
og Sniglabandið lék á
dansleik í Leikskálum .
Mörg fyrirtæki á staðnum
buðu upp á ýmiskonar til-
boð og höfðu opið hús. Þá
fór fram Kötluganga sem
fól í sér að ganga eftir
korti og finna póstkassa
sem þátttakendur settu
síðan nafnspjöld með
nafninu sínu í, Brandur
Guðjónsson var sá eini
sem fann alla kassana og
var því sigurvegari.
Verslunin Kjarval í Vík
gaf verðlaunin.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Fótboltatjaldið var vinsælt hjá yngri kynslóðinni.
Sumarhátíð í Vík í Mýrdal
Velktur miði fannst íbók sem keypt vará fornbókasölu
með ágætum vísum og
yrði undirritaður þakk-
látur ef einhver þekkti
höfundana. Tilefnið er
„veðmál unnið að vori,
loks goldið eftir sum-
arlanga, stranga bið.“
Undir fyrri vísurnar er
letrað S.G.:
Kvenmanns drykkju-dólg ég
þekki,
sem drykkjarvana hefur orgað.
En vaxtagreiðslur verða ekki
vegna þess að skjótt er borgað.
Veikur er maginn, bilað bakið
bölvað var að skulda þér.
Dýra klára koníakið
kreisti ég undan nöglum mér.
Síðan stendur: „Svar til S.
samið á 5 mín, meðan
sendimaður beið á hesti
sínum utandyra.“ Undir
það er ritað EM:
Þótt dýra klára koníakið
kverkar væti ljúflega
auman magann, úldið bakið
aldrei skal þér vorkenna.
Undan nöglum óþvegnum
út þú kreistir vínið.
En að halda á fleygnum
ekki þorðir „– svínið“.
Dýrt koníakið
pebl@mbl.is
FJÖLBRAUTASKÓLI Norðurlands
vestra (FNV) og Háskólinn á Hólum hafa
undirritað samkomulag um víðtækt sam-
starf. Meginmarkmið samkomulagsins er
að efla skólahald á framhalds- og háskóla-
stigi á Norðurlandi.
Eitt samstarfsverkefnið er að bæta und-
irbúning nemenda fyrir háskólanám.
Stefnt er að námi í frumgreinadeild Hóla-
skóla næsta haust, í samstarfi við FNV á
Sauðárkróki. Um er að ræða eins árs und-
irbúningsnám fyrir BS- og BA-nám. Skól-
arnir hafa undanfarin ár verið í samstarfi
um skipulag náms í hestamennsku við
FNV.
Jón F. Hjartarson, skólameistari FNV,
segir mikilvægt fyrir íslenskt atvinnulíf að
menntun sé í boði fyrir þá sem hafi áhuga á
að vinna við fiskeldi eða ferðamennsku í
framtíðinni. Nú sé háskólanám í þeim
greinum í boði við Hólaskóla og við Fjöl-
brautaskólann sé unnt að stunda nám til
undirbúnings þess. Þeir sem ekki hafi stúd-
entspróf, en lifandi áhuga á náminu, geti
snúið sér til Hólaskóla og skráð sig til náms
í frumgreinadeildinni. Stærstur hluti þessa
náms mun fara fram í Fjölbrautaskólanum.
FNV og Hóla-
skóli í samstarf
Ljósmynd/Pétur Ingi Björnsson
Jón F. Hjartarson, skólameistari FNV, og
Skúli Skúlason, rektor Hólaskóla, við
undirritun samstarfssamningsins.
LEIKSKÓLANUM Garðaseli á Akranesi
hefur verið veitt viðurkenning frá Lýð-
heilsustöð og Landlæknisembættinu fyrir
störf að bættu heilbrigði, íþróttum og hreyf-
ingu meðal barnanna. Anna Björg Aradóttir
frá Lýðheilsustöð veitti Ingunni Ríkharðs-
dóttur leikskólastjóra viðurkenninguna.
Garðasel er þriðji leikskólinn á landinu sem
má skilgreina sig sem heilsuleikskóla. Áður
hafa leikskólar í Grindavík og Kópavogi
hlotið sambærilegar viðurkenningar.
Garðasel er
heilsuleikskóli
♦♦♦
FJÖLDI ferðamanna var við
Skógafoss í vikunni enda hefur
fossinn mikið aðdráttarafl og
þar stoppa margar rútur fullar
af ferðamönnum á degi hverj-
voru í sinni fyrstu för til Íslands.
Þau höfðu ferðast um landið í
viku og kváðust hafa heillast af
fegurð og fjölbreytileika í nátt-
úru landsins.
um. Fossinn skartaði sínu feg-
ursta þennan dag og voru
myndavélar hvarvetna á lofti til
að mynda dýrðina. Anita og
Gottfried Seifert frá Þýskalandi
Morgunblaðið/RAX
Ferðamenn dásama fossinn