Morgunblaðið - 17.06.2004, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 17.06.2004, Blaðsíða 56
ÍÞRÓTTIR 56 FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Puma Attaccante Fullorðinsstærðir 6.990 kr. Barnastærðir 4.990 kr. Útilíf - Glæsibæ, Smáralind og Kringlunni Maraþon - Kringlunni Sportver - Akureyri Sportbúð Kópavogs Toppmenn og sport - Akureyri Boltamaðurinn - Laugavegi 42 Rounder - Laugavegi 11 Sportbúð Grafarvogs Axel Ó - Vestmannaeyjum Sportbær - Selfossi Tákn - Húsavík K-sport - Keflavík Fjarðarsport - Neskaupstað Borgarsport - Borgarnesi ÚRSLIT ÍA 2:2 FH Leikskipulag: 4-4-2 Landsbankadeild karla, 6. umferð Akranesvöllur Miðvikudaginn 16. júní 2004 Aðstæður: Sól, andvari og fínn völlur. Áhorfendur: 981 Dómari: Kristinn Jakobsson, KR, 4 Aðstoðardómarar: Erlendur Eiríksson, Sigurður Óli Þórleifsson Skot á mark: 11(7) - 9(5) Hornspyrnur: 13 - 5 Rangstöður: 1 - 0 Leikskipulag: 4-3-3 Þórður Þórðarson Hjálmur Dór Hjálmsson M Gunnlaugur Jónsson M Reynir Leósson Andri Lindberg Karvelsson (Guðjón H. Sveinsson 68.) Kári Steinn Reynisson M (Þorsteinn Gíslason 85.) Julian Johnsson (Hjörtur J. Hjartarson 87.) Pálmi Haraldsson M Haraldur Ingólfsson M Grétar Rafn Steinsson M Stefán Þ. Þórðarson M Daði Lárusson M Guðmundur Sævarsson Tommy Nielsen M Sverrir Garðarsson M Freyr Bjarnason Baldur Bett M Heimir Guðjónsson M Emil Hallfreðsson Atli Viðar Björnsson Ármann Smári Björnsson M (Simon Karkov 67.) Jón Þorgrímur Stefánsson (Allan Borgvardt 63.) 0:1 (13.) Guðmundur Sævarsson sendi stungusendingu frá hægri inn á miðj- una. Reynir Leósson, miðvörður ÍA, virtist öruggur með boltann en datt og þaðnýtti Ármann Smári Björnsson, sem ekki var langt undan, sér til fullnustu og skoraði af öryggi einn á móti Þórði Þórðarsyni mark- verði. 1:1 (17.) Kári Steinn Reynisson sendi fyrir markið frá hægri, Grétar Rafn Steins- son náði að skalla knöttinn áfram og rétt utan við vinstra markteigs- hornið var Haraldur Ingólfsson aleinn, lagði boltann fyrir sig og þrum- aði honum upp í markhornið nær. 1:2 (55.) FH fékk hornspyrnu frá vinstri. Boltinn var skallaður frá marki en Jón Þ. Stefánsson náði honum og sendi fyrir á ný frá vinstri. Boltinn fór í gegnum markteiginn án þess að menn næðu að koma við hann en á endanum kom Tommy Nielsen og kom boltanum í netið af stuttu færi. 2:2 (66.) ÍA fékk aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi FH, vinstra megin. Boltinn barst upp undir endamörk hægra megin þar sem Julian Johnsson skallaði til baka og á markteignum tók fyrirliðinn Gunnlaugur Jónsson glæsilega hjólhestaspyrnu og þrumaði knettinum í markið. Gul spjöld: Emil Hallfreðsson, FH (75.) Fyrir brot. Rauð spjöld: Engin  ÞORVALDUR Már Guðmunds- son, knattspyrnumaður úr Víkingi, hefur verið lánaður til 2. deildarliðs Aftureldingar. Þorvaldur kom til liðs við Víking í vetur frá Aftureld- ingu og spilaði fimm fyrstu leiki liðs- ins í úrvalsdeildinni, einn þeirra í byrjunarliði.  STUÐNINGSMENN FH fögnuðu fyrra marki Hafnfirðinga gegn ÍA með því að kveikja á blysi en það er ekki leyfilegt. Einhver eftirmál geta orðið vegna þessa atviks en í reglum KSÍ er lagt bann við að kveikja á blysum á knattspyrnuleikjum.  FRANCESCO Totti, leikmaður Ítalíu, var kærður í gær af UEFA fyrir óíþróttamannslega hegðun en hann hrækti á Christian Poulsen, leikmann Dana, í leik þjóðanna á mánudaginn en dómari leiksins sá það ekki. Aganefnd UEFA ákvað að kæra Totti eftir að hafa skoðað myndir og upptöku af leiknum. Aga- nefndin mun í dag skýra Ítölum frá dómi sínum en það er mögulegt að Totti verði dæmdur í nokkurra leikja bann.  JUVENTUS hefur bæst í hóp þeirra liða sem vilja krækja í portú- galska landsliðsmanninn Deco en hann er á mála hjá Evrópumeistur- um Porto. Chelsea og Bayern Mün- chen hafa bæði borið víurnar í miðju- manninn snjalla og gerði Peter Kenyon stjórnarmaður Chelsea sér ferð til Portúgals fyrr í vikunni þar sem hann átti viðræður við leik- manninn. FÓLK Leikurinn byrjaði með miklumágætum og voru bæði lið greini- lega mætt til að selja sig dýrt. Stefán Þórðarson fékk fínt færi strax á annarri mínútu en Daði Lár- usson varði skalla hans úr markteign- um í slána. Aðeins fjórum mínútum síðar var Ármann Smári Björnsson í ákjósanlegu færi þegar hann komst einn inn fyrir vörn ÍA, en hann var allt of lengi að ná valdi á knettinum þannig að Þórður Þórðarson, mark- vörður ÍA, náði að leika vel á hann. Ármann Smári fór mikinn því hann átti skömmu síðar fínt skot rétt yfir þverslána og á 13. mínútu kom hann gestunum yfir með ágætu marki eftir slæm mistök í vörn ÍA. Skagamenn gerðu það sem öll lið dreymir um að gera – svöruðu með marki því aðeins fjórum mínútum síðar jafnaði Haraldur Ingólfsson metin. Því miður dofnaði mikið yfir leiknum eftir mörkin, en baráttan hélt áfram um miðjuna. Allt of mikið var um langar sendingar á mótherja og það var ekki fyrr en rétt undir lok hálfleiksins að eitthvað markvert gerðist við mörkin, fyrst skallaði Kári Steinn Reynisson framhjá úr ákjósanlegu færi og hinum megin skaut Jón Þ. Stefánsson framhjá úr fínu færi. Síðari hálfleikur byrjaði fjörlega líkt og sá fyrri en munurinn var sá að þessi hálfleikur hélst ágætlega skemmtilegur til loka. Heimamenn fengu nokkrar hornspyrnur snemma í síðari hálfleik en gestunum tókst að bjarga þó að hart væri gengið að þeim og litlu mætti muna. En það voru gestirnir sem skoruðu eftir hornspyrnu á 55. mínútu og komust þar með öðru sinni yfir í leiknum og að þessu sinni var það varnarmað- urinn Tommy Nielsen. Mínútu síðar átti Grétar Rafn fínt skot framhjá og á 67. mínútu jafnaði Gunnlaugur eins og áður segir, annar varnarmaður sem þar kom við sögu. Eftir markið sóttu Skagamenn mun meira og Grétar Rafn átti flott skot sem Daði varði vel og skömmu síðar fór Pálmi illa með fínt skotfæri er hann skaut beint á Daða. Á loka- mínútunum bjargaði Hjálmur Dór á marklínu ÍA og kom í veg fyrir að gestirnir tækju öll stigin. Hægri helmingur ÍA varnarinnar lék vel í gærkvöldi. Á miðjunni áttu Pálmi, Kári Steinn og Haraldur fín- an dag og frammi voru þeir Grétar Rafn og Stefán sprækir, sérstaklega var sá síðarnefndi duglegur og bar- áttuglaður. Hjá FH virkaði Tommy frekar óöruggur framan af leik en náði sér vel á strik er á leið. Annars var vörn- in fín og sterk í skallaboltunum. Heimir og Baldur léku ágætlega á miðjunni og Ármann Smári var frískur frammi. Fyrirliðinn með hjólhestaspyrnu SKAGAMENN og FH-ingar gerðu 2:2 jafntefli á Skipaskaga í gær og virðist komin hefð fyrir því að liðin geri jafntefli á Akranesi því síð- ustu ár hafa leikir liðanna endað þannig, síðustu tvö árin marka- laust en að þessu sinni fengu áhorfendur fjögur mörk, líkt og árið 2001. Fyrirliðinn Gunnlaugur Jónsson jafnaði síðara sinnið fyrir ÍA með glæsilegu marki með hjólhestaspyrnu. Skúli Unnar Sveinsson skrifar FYRIRLIÐI Skagamanna, Gunnlaugur Jónsson, var nokkuð sáttur við stigið en fannst þó að heimamenn hefðu átt að hirða öll stigin. „Ég held að við höfum átt betri færi í þessum leik en bæði lið áttu góðan leik og ég held að þetta sé besti leikurinn til þessa. Svona í heildina var þetta besti leikurinn okkar. Mörkin sem við fengum á okkur voru af ódýrari gerðinni og mað- ur er svolítið svekktur yfir því,“ sagði Gunnlaugur. „Þú hefur greinilega ekki horft á æfingar hjá okkur, þetta gerist öðru hverju,“ sagði Gunnlaugur að- spurður hvort hann hefði einhvern tímann skorað úr vítaspyrnu áður. Heimir Guðjónsson, fyrirliði FH, var einnig sáttur við jafnteflið. „Það er alltaf erfitt að koma upp á Skaga og spila. Þeir eru með kröftugt lið og þeir lágu svolítið á okkur. Við fengum samt sem áður nokkur opin færi. Ég tel hins vegar að við eigum töluvert inni,“ sagði Heimir. Báðir fyrirliðarnir nokkuð sáttir ÓLAFUR Þórðarson, fyrirliði Skagamanna, var ekki sáttur við jafnteflið. „Nei, ég er ekki sáttur við jafn- tefli. En engu að síður var þetta hörkuleikur, mjög opinn og að mörgu leyti skemmtilegur. Þetta er ef- laust einn af skemmtilegri leikjum í deildinni hing- að til,“ sagði Ólafur. Hann sagði jafnframt að þetta hefði verið lang- besti leikur liðsins í sumar. „Það er allt annað að sjá liðið. Það voru allir tilbúnir að berjast og það var kraftur í mönnum. Við vorum að vísu óheppnir og gefum þeim eitt mark og ég er nokkuð viss um að Tommy Nielsen tekur hann með hendinni í seinna markinu en ég á eftir að sjá það í sjónvarpi,“ sagði Ólafur og bætti við að það væri mikill munur á liðinu frá því í undanförnum leikjum. „Það vant- aði reyndar marga menn þar en það er alveg sama. En við vorum alla vega með hugarfarið í lagi í dag,“ sagði Ólafur. Langbesti leikur liðsins í sumar KNATTSPYRNA 2. deild karla: Varmárvöllur: Afturelding - ÍR ................20 Garðsvöllur: Víðir - Leiftur/Dalvík...........20 3. deild karla: Þróttarvöllur: Númi - Afríka.....................20 Gróttuvöllur: Grótta - Árborg...................20 Eyrarbakkavöllur: Freyr - Skallagrímur 20 Ásvellir: ÍH - Ægir.....................................20 Torfnesvöllur: BÍ - Hamar ........................20 Árskógsvöllur: Reynir Á. - Magni ............20 Sindravellir: Sindri - Neisti D...................20 Seyðisfjarðarvöllur: Huginn - Leinir F....20 Í KVÖLD KNATTSPYRNA Efsta deild kvenna, Landsbankadeild: Kaplakrikavöllur: FH - KR.......................11 Í DAG KNATTSPYRNA Efsta deild karla, Landsbankadeild Grindavík - KR..........................................0:0 Fram - KA..................................................0:1 Atli Sveinn Þórarinsson 69. ÍA - FH .......................................................2:2 Haraldur Ingólfsson 17., Gunnlaugur Jóns- son 66. - Ármann Smári Björnsson 13., Tommy Nielsen 55. Staðan: Fylkir 6 4 2 0 9:3 14 Keflavík 6 3 1 2 7:9 10 ÍBV 6 2 3 1 10:6 9 ÍA 6 2 3 1 7:5 9 FH 6 2 3 1 7:6 9 KR 6 2 2 2 6:7 8 Grindavík 6 1 4 1 5:6 7 KA 6 2 1 3 5:6 7 Fram 6 1 2 3 7:8 5 Víkingur R. 6 0 1 5 3:10 1 Markahæstir: Gunnar Heiðar Þorvaldsson, ÍBV ............. 5 Grétar Ó. Hjartarson, Grindavík ............... 4 Atli Sveinn Þórarinsson, KA ...................... 4 Arnar B. Gunnlaugsson, KR ...................... 3 Sævar Þór Gíslason, Fylki.......................... 3 Magnús Már Lúðvíksson, ÍBV................... 3 1. deild kvenna A Keflavík - HK/Víkingur ............................1:0 Staðan: Keflavík 3 3 0 0 23:0 9 Haukar 3 2 0 1 13:12 6 HK/Víkingur 2 1 0 1 6:1 3 Ægir 2 0 1 1 5:11 1 UMF Bessastaða 4 0 1 3 5:28 1 Evrópukeppnin A-riðill: Grikkland - Spánn ....................................1:1 Mark Grikklands: Angelos Charisteas 67. Mark Spánar: Fernando Morientes 28. Bessa, Porto; Lið Grikklands: Antonios Nikopolidis - Georgios Seitaridis, Traianos Dellas, Konstantinos Katsouranis, Mihalis Kapsis, Panagiotis Fyssas (Stylianos Venetidis 86.) - Stylianos Giannakopoulos (Themistoklis Nikolaidis 49.), Georgios Karagounis (Vasi- lios Tsiartas 53.), Theodoros Zagorakis - Zisis Vryzas, Angelos Charisteas. Lið Spánar: Iker Casillas - Carles Puyol, Carlos Marchena, Ivan Helguera, Raul Bravo - David Albelda, Ruben Baraja, Jos- eba Etxeberria (Joaquin Sanchez 46.), Vic- ente Rodriguez - Raul Gonzalez (Fernando Torres 80.), Fernando Morientes (Juan Carlos Valeron 65.). Gult spjald: Carlos Marchena og Ivan Hel- guera, Spáni, Konstantinos Katsouranis, Stylianos Giannakopoulos, Georgios Kar- agounis og Theodoros Zagorakis, Grikk- landi. Rautt spjald: Engin. Dómari: Lubos Michel frá Slóvakíu. Áhorfendur: 25.444. Rússland - Portúgal..................................0:2 Mörk Portúgals: Nuno Maniche 7., Rui Costa 88. Liz, Lissabon; Lið Rússlands: Sergei Ovchinnikov - Vadim Evseev, Alexei Smertin, Alexei Bugayev, Dmitry Sennikov - Yevgeny Aldonin (Viacheslav Malafeev 45.), Dmitry Alenic- hev, Dmitry Loskov, Andrei Karyaka (Dimitri Bulykin 79.), Marat Izmailov (Vladimir Bystrov, 72.) - Alexander Kerzhakov. Lið Portúgals: Ricardo - Miguel, Ricardo Carvalho, Jorge Andrade, Nuno Valente - Costinha, Nuno Maniche, Luis Figo (Crist- iano Ronaldo 78.), Deco, Simao Sabrosa (Rui Costa 63.) - Pedro Pauleta. Gult spjald: Alexei Smertin, Vadim Evseev og Dmitry Alenichev, Rússlandi, Ricardo Carvalho og Deco, Portúgal. Rautt spjald: Sergei Ovchinnikov 45., Rússlandi. Dómari: Terje Hauge frá Noregi. Áhorfendur: 58.000. Staðan í A-riðli: Grikkland 2 1 1 0 3:2 4 Spánn 2 1 1 0 2:1 4 Portúgal 2 1 0 1 3:2 3 Rússland 2 0 0 2 0:3 0  GRINDVÍKINGAR náðu í gær- kvöld sínu fyrsta stigi á heimavelli gegn KR í sjö ár. KR-ingar höfðu sex sinnum í röð sótt öll þrjú stigin til Grindavíkur og er skemmst að minnast leiks þeirra þar í fyrrahaust þegar þeir tryggðu sér meistaratit- ilinn með 3:1 sigri. Félögin gerðu markalaust jafntefli í fyrsta skipti í 19 viðureignum sín á milli í efstu deild.  ÞORSTEINN Gíslason kom inn á sem varamaður hjá ÍA gegn FH og lék sinn fyrsta leik í efstu deild.  HAUKUR Ingi Sigurbergsson, varnarmaður frá Neskaupstað, var í fyrsta skipti í byrjunarliði KA í efstu deild þegar Akureyrarliðið mætti Fram í gærkvöld.  ALLAN Borgvardt, besti leikmað- ur Íslandsmótsins 2003, kom inn á sem varamaður hjá FH gegn ÍA og spilaði sinn fyrsta deildaleik á árinu. Borgvardt missti af fimm fyrstu leikjum FH vegna meiðsla í nára.  CHELSEA er sagt hafa boðið framherja Real Madrid og spænska landsliðsins, Fernando Morientes, fimm ára samning. Morientes spilaði með Mónakó á síðustu leiktíð og varð markahæsti leikmaður Meistara- keppni Evrópu. Chelsea er þó ekki eina liðið sem er á eftir leikmann- inum en nokkur stórlið á Ítalíu hafa sýnt honum áhuga. Hann hefur farið fram á tveggja ára framlengingu á samningi sínum og verulega launa- hækkun við Real Madrid og það er því undir spænska félaginu komið hvað verður um framtíð Morientes.  JOHANN Vogel, leikmaður sviss- neska landsliðsins, sem vikið var af velli í leik Sviss og Króatíu verður í leikbanni gegn Englendingum í dag. FÓLK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.