Morgunblaðið - 17.06.2004, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 17.06.2004, Blaðsíða 52
DAGBÓK 52 FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Mannamót Aflagrandi 40. Á morgun föstudag kl. 9 vinnustofa, bað og jóga, kl. 14 bingó. Hársnyrting, fótaað- gerð. Miðvikudaginn 23. júní Jónsmessu- kaffi í Skíðaskálanum í Hveradölum, ekið um Heiðmörk, brott- för frá Aflagranda kl. 12.30, skráning í s. 562 2571. Árskógar 4. Á morg- un föstudag kl. 9–12 handavinna, kl. 13– 16.30 smíðar. Bingó spilað 2. og 4. föstu- dag í mánuði. Bólstaðarhlíð 43. Á morgun föstudag kl. 8–16 hárgreiðsla, kl. 8.30–12.30 bað, kl. 9– 16 handavinna, kl. 13– 16 vefnaður og frjálst spilað í sal. Sími 535 2760. Félagsstarfið, Dal- braut 18–20. Á morg- un föstudag kl. 9–16. 45 hárgreiðslustofan opin, kl. 9–12 aðstoð við böðun, púttvöll- urinn opinn. Félagsstarfið Dal- braut 27. Á morgun föstudag kl. 8–16 handavinnustofan op- in, kl. 10–13 verslunin opin. Félagsstarfið Furu- gerði 1. Á morgun föstudag kl. 9, aðstoð við böðun, kl. 14.15 verður Aðalheiður Þorsteinsdóttir við pí- anóið fram að kaffi. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Á morgun föstudag opin vinnu- stofa kl. 9–16.30, hár- greiðsla, ganga kl. 9.30. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Á morgun föstudag kl. 10 hár- snyrting, kl. 10–12 verslun opin, kl.11 leikfimi, kl. 13 „opið hús“ spilað á spil. Félag eldri borgara í Kópavogi. Á morgun föstudag félagsvist spiluð í Fannborg 8 (Gjábakka) kl. 20.30. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraun- seli, Flatahrauni 3. Á morgun föstudag, kl. 13 brids, kl. 14–16 pútt á Hrafnistuvelli. Gleðilega þjóðhátíð Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði. Dagsferð 25. júní Þjórsárdalur Reyk- holtssundlaug í Þjórs- árdal, Stöng, Gjáin, Háifoss, Búðaháls, Hrauneyjar. Á svæð- inu eru þrjú orkuver Landsvirkjunar. Á heimleið er ekið um Landssveit. Kaffi og meðlæti í Hest- heimum. Brottför frá Glæsibæ kl. 9. Leið- sögumaður: Ólafur Sigurgeirsson. Skrán- ing og uppl. í síma 588 2111. Þeir sem hafa skráð sig í Laug- arfellsferðina 21. júlí–25. júlí þurfa að greiða ferðina fyrir 21. júní. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Þjóðhátíð- arkveðjur til allra þátttakenda, sam- starfsaðila og vel- unnara frá starfsfólki félagsstarfsins. Gjábakki, Fannborg 8. Á morgun föstudag kl. 13.15 brids. Hraunbær 105. Á morgun föstudag kl. 9 handavinna og búta- saumur , kl. 10–11 pútt, baðþjónusta, fótaaðgerð og hár- greiðsla, kl. 14 bingó. Hvassaleiti 58–60. Á morgun föstudag fóta- aðgerðir, hársnyrting. Norðurbrún 1. Á morgun föstudag kl. 9–17 hárgreiðsla, kl. 10–11 ganga, kl. 14 leikfimi. Vesturgata 7. Á morgun föstudag kl. 9–10.30 setustofa, dag- blöð og kaffi, kl. 9–16 fótaaðgerðir og hár- greiðsla, kl. 9.15–14 aðstoð v/böðun, kl. 9:15–15.30 hannyrðir, kl. 9–10 boccia, kl. 9.30–11.30 skraut- skrift, kl.13–14 leik- fimi. Vitatorg. Á morgun föstudag kl. 8.45–11.45 smiðjan, kl. 9–16 hár- greiðsla, kl. 9.30–10 morgunstund, kl 9.30– 16 handmennt, kl. 9.30–12.30 bókband, kl 10–11 leikfimi, kl. 10– 16 fótaaðgerðir, kl 13.30–14:30 bingó. Þjónustumiðstöðin, Sléttuvegi 11. Opið í júlí og ágúst frá kl. 10–14. Félag eldri borgara, Gjábakka. Spilað brids kl. 19 þriðjud. og kl. 13.15 föstud. Hana-nú, Kópavogi. Laugardagsgangan laugardaginn 19. júní. Lagt af stað frá Gjá- bakka, kl. 10. Ferðaklúbbur eldri borgara, vegna for- falla eru 4 sæti laus í Grímseyjar- og Skaga- fjarðarferðina 4 júlí, upplýsingar í s. 892 3011 Hannes. Messað á Múlanesi Hin árlega messa á Múla á Skálmarnesi, A-Barð., veður laug- ardaginn 19. júní kl. 14. Brúðubíllinn Brúðubíllinn, verður í dag 17. júní kl. 14 í Hallargarðinum við Fríkirkjuveg 11. Í dag er fimmtudagur 17. júní, 169. dagur ársins 2004, Lýðveld- isdagurinn. Orð dagsins: Svo seg- ir Drottinn: Hinn vitri hrósi sér ekki af visku sinni og hinn sterki hrósi sér ekki af styrkleika sínum og hinn auðugi hrósi sér ekki af auði sínum. (Jer. 9, 23.)     Í frétt í Morgunblaðinu ígær, þar sem sagt var frá sam- tali blaðs- ins við Vigdísi Finn- bogadótt- ur, fyrr- verandi forseta Ís- lands vegna fréttar á Stöð 2 í fyrrakvöld sagði m.a.: „Í frétt á Stöð 2 í gær- kvöldi var höfð eftir Vig- dísi skoðun, sem hún seg- ist ekki hafa sett fram í viðtali. Hún hafi verið beðin um viðtal um fjöl- miðlalögin og fleira en hafnað því. Í fréttinni var hins vegar vitnað í óform- legt spjall í óþökk Vigdís- ar.“     Í fréttum Stöðvar 2 ígærkvöldi stóð frétta- stofan fast á því, að fyrr- verandi forseta hafi verið ljóst að frá ummælum hennar yrði sagt og hún ekki gert athugasemdir við það. Fréttastofan tók sig svo til og leiddi fram nákomna aðila til þess að tjá sig um þau orð, sem eftir Vigdísi voru höfð.     Vigdís Finnbogadóttirgegndi embætti for- seta Íslands í 16 ár af reisn, þótt hún hafi eins og aðrir forsetar orðið fyrir gagnrýni fyrir ein- stök embættisverk. Hún er eini íslenzki forystu- maðurinn á sviði þjóð- mála, sem náð hefur heimsfrægð. Hún var þekkt um allan heim.     Þeir núlifandi Íslend-ingar eru ekki marg- ir, sem hægt er að segja að eigi kröfu til að þeim sé sýnd virðing og tillitssemi í opinberum umræðum. Vigdís Finnbogadóttir er í þeim hópi.     Alveg sérstaklega áþetta fólk kröfu til þess að vera ekki dregið niður í það svað, sem fjöl- miðlaumræður á Íslandi eru því miður orðnar. Það er hins vegar ekki fyrst og fremst vandi þeirra sem fyrir því verða, sem þó er töluverður, heldur fjölmiðlanna sjálfra.     Þótt umræður á vett-vangi fjölmiðla hafi harðnað mjög á seinni ár- um og minni nú einna helzt á ástandið eins og það var verst á dimmustu dögum kalda stríðsins og á fjórða áratugnum eru það hagsmunir fjöl- miðlanna sjálfra að fara ekki út fyrir viss mörk – ella uppskera þeir van- þóknun lesenda, áheyr- enda og áhorfenda og missa traust þeirra.     Fjölmiðlar í hverju landidraga dám af um- hverfi sínu en þeir eiga líka mikinn þátt í að skapa það andrúm, sem ríkir í þeirra nánasta umhverfi. Ætla mætti að fjölmiðla- fólk á Íslandi geti a.m.k. staðið saman um það að hafa frekar jákvæð áhrif á samfélagið en neikvæð. STAKSTEINAR Í óþökk Vigdísar Víkverji smíðaði nokkuð stór-an sólpall fyrir utan stof- una hjá sér fyrir nokkrum ár- um. Allt gekk það vel fyrir sig þar sem Víkverji á að heita nokkuð vanur smíðum. Nokkr- ir vinir Víkverja eru að bisa við pallasmíði þessa dagana og því finnst Víkverja kannski ekki óeðlilegt að nefna að ekki þarf að taka öllum ráðleggingum í byggingavöruverslunum sem heilögum sannleik því stund- um bera þær nokkurn sölu- keim. Þetta átti t.d. við þær ráðleggingar sem Víkverji fékk um skrúfumagn í sinn pall og að hluta til um bil á milli borða en mikilvægt er að klæða palla ekki of þétt. x x x Í byggingavöruverslunum er geng-ið út frá og ráðlagt að hvert borð í sólpöllum sé fest með tveimur skrúfum á hverja undirstöðu eða battning. Þetta er þó engan vegin al- gild sannindi því húsasmíðameistari sem Víkverji ræddi við þegar hann stóð í pallasmíðinni benti á að slíkt væri alls ekki nauðsynlegt og jafnvel raunar algerlega óþarft, nóg væri að festa borðin með einni skrúfu á hverja undirstöðu og skrúfa þá vinstra megin í borðið á fyrstu und- irstöðuna, hægra megin á næstu og þannig koll af kolli en það, sagði húsasmíðameistarinn, að ætti að tryggja að borðin verptust ekki um of. x x x Vindur er yfirleitt hverfandi lítillbeint neðan af jörðunni og lítil hætta á að klæðningin í pallinum feykist af þótt hún sé skrúfuð með þessum hætti í stað þess sem bygg- ingavöruverslanir ráðleggja vanalega; pallurinn verður því engu óstyrkari fyrir vikið en með þessu einfalda móti má fækka skrúfunum í pallinum um helming og spara þannig bæði töluverða vinnu á hnján- um og peninga því staðreyndin er sú að skrúfur í sæmilega stóran sólpall kosta drjúgt. x x x Þetta ber einungis að takasem ábendingu af hálfu Víkverja, þeir sem vilja skrúfa borðin á tveimur stöðum á hverja undirstöðu eru eftir sem áður frjáls- ir að því. Þá bendir Víkverji einnig á að ef menn hyggjast smíða sólpalla sjálfir geti verið sniðugt, en kannski ekki nauðsynlegt, að fá upplýsingar um bil á milli uppistaðna í pallinn, bil á milli borða í klæðninguna, skrúfun eða neglingu og annað þess háttar hjá fagmanni utan bygginga- vöruverslananna. Einfaldast og best er auðvitað ef hægt er að slá á þráð- inn til smiðs í fjölskyldunni eða vina- hópnum og fá hann til að ráðleggja sér í þessum efnum. Víkverji skrifar... Bönnum hundahald REIÐ kona hafði samband við Velvakanda og var henni mikið niðri fyrir vegna hundahalds í Reykjavík. Henni þykir tímabært að banna alfarið hundahald sökum óþrifnaðar sem af hundunum hlýst. Þá sagð- ist hún hafa búið bæði í Austurbænum og Vestur- bænum og á báðum stöðum væri ástandið slæmt. Benti hún jafnframt á að vart væri hægt að ganga eftir göngustígum vegna hundanna, slíkur væri óþrifnaðurinn. Eldri borgarar fylgjast með ALÞINGISMENN okkar Íslendinga gleyma því að stór hópur eldri borgara fylgist mikið með þinginu og þeim ofbýður þegar stjórnarþingmenn halda því fram að ekkert frum- varp hafi fengið jafnmikla umræðu og fjölmiðlafrum- varpið. Þetta var ekki um- ræða heldur einræða. Ekkert af okkur er á móti frumvarpinu heldur aðferðinni sem beitt var við afgreiðslu þess. Allir sem ég þekki ætla á kjörstað og kjósa Ólaf sökum þess að hann hafði meiri kjark en þingmennirnir. Þingmenn- irnir vita ekki að við erum að mótmæla aðferðinni, þessu offorsi. Þingið ætti að sjá sóma sinn í því að afturkalla lög- in og spara þjóðinni hundr- að milljónir. Þá vil ég taka það fram að það er fáránlegt að setja 75% reglu. Kosningar eru kosningar og þær skulu fara fram sem slíkar. Einnig ofbýður mér þeg- ar ráðherrar og þingmenn eru að koma og biðla til okkar eldri borgaranna fyrir kosningar. Ég sagði við Halldór Ás- grímsson þegar hann kom hingað í heimsókn að mér væri misboðið sem Íslend- ing að þeir skyldu gera okkur að þátttakendum í Íraksstríðinu. Hann spurði mig þá hvort ég væri svona hrifin af Saddam Hussein. Hvað halda þessir menn að við gamla fólkið séum. Að svara okkur svona. Ásta Bjarnadóttir, Norðurbrún 1. Tapað/fundið Kvenmannsjakki með hettu tapaðist DÖKKBRÚNN kven- mannsjakki tapaðist á Dubliners 11. júní s.l. Jakkinn er í líkingu við þunna úlpu með hettu og rennilás. Finnandi hafi samband við Jónu í síma 846 7230. Dýrahald 3 kisur fást gefins 3 KISUR vantar ný heimili vegna flutninga eiganda. Þetta eru 2–3 ára læður og einn 1 árs geldur högni. Allar sprautaðar og heil- brigðar. Uppl. gefur Jón- ína í síma: 663 6320. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT 1 pjönkur, 4 spakur, 7 örðug, 8 hrósum, 9 óhljóð, 11 hreint, 13 ósoðna, 14 fljót, 15 sleip- ur, 17 belti, 20 lík, 22 mærir, 23 falleg, 24 rödd, 25 vitlausi. LÓÐRÉTT 1 ófúst, 2 rándýr, 3 tukta til, 4 fuglahljóð, 5 liprar, 6 deila, 10 skott, 12 álít, 13 skar, 15 hæðir, 16 hófu á loft, 18 ósann- indin, 19 gerði minni, 20 slydduveður, 21 reiður LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 stímabrak, 8 talar, 9 óskar, 10 ker, 11 garma, 13 særði, 15 hlass, 18 sinna, 21 tóm, 22 gyðja, 23 eimur, 24 frátalinn. Lóðrétt: 2 tælir, 3 merka, 4 bjórs, 5 askur, 6 stag, 7 hrái, 12 mis, 14 æli, 15 hægt, 16 auðar, 17 stakt, 18 smell, 19 náman, 20 aurs. Krossgáta  Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.