Morgunblaðið - 17.06.2004, Síða 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2004 31
!
"
" # $
!
!
% &
"
$ ! "
$ '
!
"
# $ %
( )*+ ,-.- !
+/-- ,/-- 0
"! /
1 &'( % # ( #
)
*+& , - , ./0+1&
$
!
,/-- 2
3/-- 4
.5 --- 2
- , ./0+1&
$
!
3/-- 2
*/.- 4
) --- 2
./0+1&
.
' 66 !
*/.- 2 5-/-- 4
5 --- 2
0(789:; 2 <=%>:7 2 ?@8(7A74 2 @0B987 2 %;874:;
Lúxusjeppi + þú græðir kr. 27.900
um leið og þú kaupir miða
Bylting í happdrætti - www.pulsinn.com
LEIKVERKIÐ Landsmótið, sem
leikdeild Ungmennafélagsins Efl-
ingar í Reykjadal setti upp í vetur, er
áhugaverðasta leiksýning áhugaleik-
húss á leikárinu að mati Þjóðleik-
hússins og verður sýnt þar um næstu
helgi.
„Leiksýningin er umfangsmikil og
því um viðamikið verkefni að ræða
við uppsetningu í Þjóðleikhúsinu, en
segja má að með vali sínu hafi nefnd
á vegum leikhússins vísað þessu vin-
sæla verki til þjóðarinnar,“ sagði Jó-
hann Guðni Reynisson, kynningar-
stjóri Landsmótsins, við
Morgunblaðið.
Höfundar verksins eru Hörður
Þór Benónýsson og Jóhannes Sigur-
jónsson, leikstjóri er Arnór Benón-
ýsson og tónlistarstjóri Jaan Ala-
vere. Þegar leikverkið var sýnt á
Breiðumýri í vetur komu að því yfir
100 manns þegar allt er talið sem
sýnir umfangið ágætlega. „Það sem
er ef til vill ekki síður athyglisvert er
að hér er um að ræða fólk víðs vegar
að af landinu. Skýrist það einkum af
því að nemendur við Framhaldsskól-
ann á Laugum skipa veglegan sess í
verkinu. FL er heimavistarskóli í
sveit og er þátttaka nemendanna í
leikstarfsemi Eflingar hluti af blóm-
legu félagslífi í skólanum. Og núna,
þegar hópurinn er á leiðinni á svið
Þjóðleikhússins, drífur fólkið að úr
öllum áttum. Má t.d. nefna að leik-
endur koma m.a. frá Vopnafirði,
Kópaskeri, Þingeyjarsveit, Dalvík,
Stokkseyri, Reykjavík, Hafnarfirði,
Húsavík, Hvammstanga, Borgar-
nesi, Sandgerði, Aðaldal, Mývatns-
sveit og Sauðárkróki!“ sagði Jóhann
Guðni.
Sýningin vel sótt
Leikritið verður sýnt í Þjóðleik-
húsinu á laugardag og sunnudag kl.
20. „Það er ljóst að miðað við aðsókn
í Breiðumýri í Reykjadal, þar sem á
þriðja þúsund manns hafa séð sýn-
inguna, má gera ráð fyrir mikilli að-
sókn í Þjóðleikhúsinu. Uppselt hefur
verið á nær hverja sýningu í Reykja-
dalnum og við, aðstandendur sýning-
arinnar, vonum auðvitað að svo verði
einnig í Reykjavík. Við viljum því
hvetja Þingeyinga og aðra unnendur
skemmtilegra leiksýninga að koma í
Þjóðleikhúsið þar sem lofað er góðri
skemmtun.“
Úr leikritinu Landsmótið sem sýnt verður í Þjóðleikhúsinu.
Landsmótinu vísað
til þjóðarinnar!
EDDA útgáfa og KB banki hafa
gert með sér samstarfssamning um
ljósmyndasýninguna Íslendingar
sem sett verður upp á Austurvelli í
dag og mun standa til 1. september.
Páll Bragi Kristjónsson, forstjóri
Eddu útgáfu, og Sólon R. Sigurðs-
son, forstjóri KB banka, undirrit-
uðu samninginn í húsakynnum
Eddu útgáfu.
Ljósmyndasýningin sam-
anstendur af völdum myndum úr
bókinni Íslendingar sem ljósmynd-
arinn Sigurgeir Sigurjónsson og
rithöfundurinn Unnur Jökulsdóttir
unnu í sameiningu en Unnur er höf-
undur texta. Bókin kemur einnig út
í dag. Sýningin verður opnuð á
ensku og íslensku og síðar einnig á
frönsku og þýsku.
Framlag á 60 ára
afmæli lýðveldisins
Í tvö ár ferðuðust Sigurgeir og
Unnur um Ísland og heimsóttu fólk
í öllum landshlutum. „Markmiðið
var að skilja betur lífsviðhorf
þeirra sem lagað hafa hefðbundin
störf að nútímanum, standa á mörk-
um þess gamla og nýja. Bókin og
sýningin bregða upp myndum af Ís-
lendingum samtímans en vekja fólk
jafnframt til umhugsunar um sam-
spil náttúru og mannlífs og gamalla
og nýrri hefða.
Á 60 ára afmæli lýðveldisins er
sýningin framlag til að skilja hvar
Íslendingar eru staddir nú í upphafi
21. aldar, hvernig hefðir, tungumál
og venjur standa af sér umrót sam-
tímans. Um leið er sýningin tilraun
til að tengja saman byggðir lands-
ins, færa Íslendinga um land allt
inn í miðju borgarinnar, sýna borg-
arbúum og gestum íslenskan veru-
leika okkar daga,“ segir í kynn-
ingu.
Eftir Sigurgeir Sigurjónsson
liggja fjölmargar bækur um ís-
lenskt landslag og Íslendinga. Frá
seinni árum er þekktust bókin Ís-
landssýn eða Lost in Iceland.
Unnur Jökulsdóttir er annar höf-
undur ferðabóka um ævintýri Krí-
unnar og barnabókarinnar Eyjadís.
Sólon R. Sigurðsson, bankastjóri
KB banka, og Páll Bragi Kristjóns-
son, forstjóri Eddu, skrifa undir.
Íslendingar
samtímans
á Austur-
velli
Sængurfataverslun,
Glæsibæ • Sími 552 0978
Vöggusett
barnasett Fréttasíminn 904 1100