Morgunblaðið - 17.06.2004, Síða 6

Morgunblaðið - 17.06.2004, Síða 6
FRÉTTIR 6 FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ S ýning Þjóðleikhússins á Þetta er allt að koma eft- ir Hallgrím Helgason í leikgerð Baltasars Kor- máks hlaut í gærkvöldi Grímuna, íslensku leiklist- arverðlaunin, sem sýning ársins 2004. Verðlaunin voru nú veitt í ann- að sinn við hátíðlega athöfn í Borg- arleikhúsinu. Segja má að Þetta er allt að koma hafi verið sigurvegari kvöldsins, því sýningin hlaut alls þrenn verðlaun. Baltasar Kormákur var valinn besti leikstjórinn og Gretar Reynisson þótti eiga bestu leikmyndina. Sýn- ingin fékk alls tíu tilnefningar til verðlauna. Þjóðleikhúsið hlaut alls átta verð- laun af tólf mögulegum. Leikfélag Reykjavíkur og Íslenski dansflokk- urinn fengu tvenn verðlaun hvort og Hafnarfjarðarleikhúsið og Vest- urport sín verðlaunin hvort leik- félag. Jón Atli leikskáld ársins Jón Atli Jónasson hlaut Grímuna sem leikskáld ársins fyrir Brim sem sýnt er hjá Vesturporti. Eggert Þorleifsson er leikari árs- ins fyrir framgöngu sína í Belgísku Kongó eftir Braga Ólafsson hjá Leikfélagi Reykjavíkur og Brynhild- ur Guðjónsdóttir varð hlutskörpust í flokknum leikkona ársins fyrir túlk- un sína á Edith Piaf í samnefndri sýningu Þjóðleikhússins. Björn Thors leikari ársins í aukahlutverki Björn Thors er leikari ársins í aukahlutverki fyrir frammistöðu sína í Græna landinu eftir Ólaf Hauk Símonarson í Þjóðleikhúsinu og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leik- kona ársins í aukahlutverki fyrir leik sinn í Ríkarði þriðja, einnig í Þjóð- leikhúsinu. Þetta voru einu verðlaun sýningarinnar sem fékk níu tilnefn- ingar. Lára sigursæl í flokki dansverka Búninga ársins gerði Elín Edda Árnadóttir fyrir Chicago hjá Leik- félagi Reykjavíkur og voru það einu verðlaun sýningarinnar sem fékk átta tilnefningar. Lýsingu ársins á Egill Ingibergsson fyrir Meistarann og Margarítu í Hafnarfjarðarleik- húsinu. Bestu tónlistana gerði Jó- hann G. Jóhannsson fyrir Edith Piaf. Lára Stefánsdóttir var valin dans- höfundur ársins fyrir verk sitt Luna hjá Íslenska dansflokknum, sem jafnframt fór með sigur af hólmi í vali á danssýningu ársins. Dýrin í Hálsaskógi eftir Thor- björn Egner í Þjóðleikhúsinu er besta barnaleiksýningin og útvarps- verk ársins er Hinn íslenski aðall í leikgerð Bjarna Jónssonar. Gríman, íslensku leiklistarverðlaunin, voru veitt í annað sinn við hátíðlega athöfn í Borgarleikhúsinu Þetta er allt að koma er sýning ársins Mikil stemmning var á verðlaunaafhendingu Grímunnar í gærkvöld. Þetta er í annað sinn sem verðlaunin eru af- hent og hafa þau skipað sér mikilvægan sess í ís- lensku leikhúslífi. Morgunblaðið/Jim Smart Björn Thors var valinn besti leikari ársins í aukahlutverki en svo skemmti- lega vildi til að konan hans, Unnur Ösp Stefánsdóttir, afhenti verðlaunin. Morgunblaðið/Jim Smart Það var þéttsetinn salurinn á afhendingu Grímunnar. Fyrir miðju eru mæðgurnar Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri og Sólveig Arnarsdóttir. Morgunblaðið/Jim Smart Katrín Hall tók við verðlaunum fyrir hönd Íslenska dansflokksins. Luna er danssýning ársins og Lára Stefánsdóttir er danshöfundur ársins. Morgunblaðið/Jim Smart Að lokinni afhendingu hópuðust verðlaunahafar og aðrir gestir upp á svið og glöddust. Hér má sjá f.v.: Baltasar Kormák, leikstjóra ársins, Gretar Reynisson, leikmyndahönnuð ársins, Brynhildi Guðjónsdóttur, leikkonu ársins, Björn Thors, aukaleikara ársins, og Jón Atla Jónasson, leikskáld ársins. Morgunblaðið/Eggert Baltasar Kormákur er leikstjóri ársins fyrir Þetta er allt að koma. Morgunblaðið/Eggert Eggert Þorleifsson var valinn leik- ari ársins fyrir Belgísku Kongó. Morgunblaðið/Eggert Morgunblaðið/Jim Smart Brynhildur Guðjónsdóttir var valin leikkona ársins í Edith Piaf. CHICAGO var besta sýningin í ár að mati áhorfenda. Kosn- ingin fór þannig fram að áhorf- endur völdu fimm bestu sýning- arnar í gegnum Netið. Atkvæðamestar í þeirri kosn- ingu voru Dýrin í Hálsaskógi og Edith Piaf í uppsetningu Þjóðleikhússins, Grease og Chi- cago í uppsetningu Borgarleik- hússins og Eldað með Elvis sem var sett upp í Loftkast- alanum. Í framhaldi af þessu vali gátu áhorfendur kosið milli þessara fimm sýninga með því að hringja eða senda sms- skilaboð. Kosningunni lauk ekki fyrr en í gærkvöld rétt áð- ur en úrslitin voru kunngjörð. Áhorfendur völdu Chicago bestu sýninguna Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir fagnaði ákaft titlinum besta leikkona ársins í auka- hlutverki í sýningunni Ríkharði þriðja.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.