Morgunblaðið - 17.06.2004, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 17.06.2004, Qupperneq 10
FRÉTTIR 10 FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ SENDIHERRA Norður-Kóreu, með aðsetur í Stokkhólmi, Jeon In Chan, er staddur hér á landi og hyggst taka þátt í 17. júní hátíða- höldunum í dag. In Chan afhenti forseta Íslands trúnaðarbréf sitt á þriðjudaginn en í gær átti hann m.a. fund með Sólveigu Pétursdótt- ur, formanni utanríkismálanefndar Alþingis, þar sem m.a. mannrétt- inda- og kjarnorkumál bar á góma. Í samtali við Morgunblaðið sagði In Chan þetta vera í fyrsta skipti sem hann hefði komið til Íslands og hann hefði hug á að fræðast betur um Ísland og hyggðist m.a. í því skyni taka þátt í opinberum hátíða- höldum í dag. Spurður um hugs- anlega samvinnufleti milli land- anna sagði In Chan að hann væri einnig hingað kominn til þess að skoða og kynna sér betur mögu- leika á því og myndi funda með ýmsum íslenskum ráðamönnum, m.a. með embættismönnum úr ut- anríkis- og viðskiptaráðuneytinu. Hefur hug á að fræðast meira um Ísland Sólveig Pétursdóttir sagði fund- inn með sendiherra Norður-Kóreu hafa verið gagnlegan og greinilegt væri að sendiherrann hefði hug á að kynna sér og fræðast meira um Ísland. Sendiherrann hafi í þessu sambandi nefnt sérstaklega fisk- veiðar og jarðhita. Sólveig sagðist m.a. hafa innt sendiherrann eftir efnahags- ástandinu í Norður-Kóreu og hvort stjórnvöldum þar hefði tekist að vinna bug á hungurvofunni. „Sendiherrann sagði mikla erfið- leika vera í efnahagslífinu en ástandið hefði þó skánað. Ég spurði hann sérstaklega um mann- réttindamál, t.d. um það að mann- réttindasamtök hafa haft áhyggjur af illri meðferð á föngum. Ég spurði hann einnig um framleiðslu kjarnorkuvopna. Við ræddum þessi mál og fundurinn var út af fyrir sig lærdómsríkur. Við vonumst auðvit- að til að þessi viðleitni Norður- Kóreu til þess að taka upp sam- starf við önnur ríki, eins og t.d. Norðurlöndin, geti orðið til þess að bæta ástandið í Norður-Kóreu,“ sagði Sólveig. Mannréttinda- og kjarn- orkumál bar á góma Morgunblaðið/ÞÖK Sólveig Pétursdóttir, formaður utanríkismálanefndar, tekur á móti sendi- herra Norður-Kóreu, Jeon In Chan. Sendiherra N-Kóreu ræddi við formann utanríkismálanefndar SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA hefur undirritað reglugerð um leyfi- legan heildarafla á fiskveiðiárinu 2004–5 sem hefst 1. september nk. og er hann í öllum aðalatriðum í sam- ræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofn- unar. Heildarafli í þorski verður 205 þús- und tonn, í ýsu 90 þús. tonn og ufsa 70 þús. tonn. Heildarafli í karfa er ákveð- inn til bráðabirgða 57 þús. tonn í takt við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar, um 35 þús. tonn af gullkarfa og 22 þús. tonna áætlun af djúpkarfa, en ráðgjöf fyrir djúpkarfa liggur ekki fyrir fyrr en í október. Aflamark í grálúðu verður 15 þús. tonn. Einu frávikin frá ráðgjöf Hafrann- sóknastofnunar eru þau að leyfilegur heildarafli í skarkola verður 5 þúsund tonn, eða 1 tonn umfram ráðgjöf, og heildarafli í rækju verður 20 þúsund tonn, en tillaga Hafrannsóknastofn- unar um upphafsákvörðun var 14 þús. tonn. 220 þúsund tonna viðbót af kolmunna Í tilkynningu frá sjávarútvegsráðu- neytinu segir að þetta sé gert vegna væntinga um meðafla og heildarafla í rækju á djúpslóð. Þá liggi endanleg tillaga frá Hafrannsóknastofnun um rækjuafla ekki fyrir fyrr en í haust og verði þá tekin ákvörðun um hugsan- lega aukningu á leyfilegum rækjuafla eða framhald rækjuveiða í samráði við hagsmunaaðila. Þá er með sérstakri reglugerð ákveðið að auka leyfilegan heildarafla á langlúru á yfirstandandi fiskveiðiári um 200 tonn. Jafnframt hefur sjáv- arútvegsráðherra undirritað reglu- gerð um hækkun á leyfilegum heild- arafla í kolmunna á árinu 2004 og hækkar hann um 220 þúsund tonn í samtals 713 þúsund tonn. Í tilkynn- ingu frá sjávarútvegsráðuneytinu segir að síðustu ákvarðanir um heild- arafla í kolmunna hafi fylgt því sem Evrópusambandið hafi ákveðið sem sinn kvóta. Ekki hafi tekist að semja um takmarkanir á kolmunnaveiðum og veiðiþjóðir hafi ákvarðað sér kvóta einhliða. Leyfilegur heildarafli á næsta fiskveiðiári í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar Heildarafli í þorski 205 þúsund tonn                          !" Morgunblaðið/Alfons HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjaness þess efnis að sýslumanninum í Kópavogi beri að setja lögbann við því að fyrirtæki þar í bæ selji og dreifi No Name-snyrtivörum á Ís- landi og í íslenskum fríhöfnum eða íslenskum flugvélum. Í málinu deildu fyrirtækið Ísflex í Reykja- vík annars vegar og tvö í Kópavogi hins vegar, Adriana og Cosmic. Fyrstnefnda fyrirtækið keypti í september í fyrra af hinum tveim- ur umboð fyrir einkasölu á No Name-snyrtivörum og viðkomandi umboðum á Íslandi, í íslenskum frí- höfnum og íslenskum flugvélum, að því er fram kemur í dómnum. Samkvæmt kaupsamningnum framleiddu síðarnefndu fyrirtækin tvö umrædda vöru og hönnuðu og framleiddu umbúðir utan um þær. Samkvæmt kaupsamningnum skuldbundu þau sig til þess að selja reykvíska fyrirtækinu umræddar vörur og umbúðir að minnsta kosti næstu 10 árin. Það fyrirtæki var því með einkasöluumboð á sölu og dreifingu varanna hérlendis, í verslanir og til annarra smásölu- aðila. Deildu fyrirtækin um efndir samninga og hvort grundvöllur hafi skapast til riftunar. Hæstiréttur taldi að síðarnefndu fyrirtækjunum tveimur hafi ekki verið heimil riftun hans á grund- velli gagna málsins. Þá hefði reyk- víska fyrirtækið leitt að því nægar líkur að dreifing hinna tveggja á umræddum vörum bryti gegn lög- vörðum einkarétti þess. Var Cosm- ic og Adriana gert að greiða Ísflex samtals 350.000 krónur í máls- kostnað í héraði og fyrir Hæsta- rétti. Úrskurður Hæstaréttar um lögbann vegna No Name Fyrrverandi eigendum bönnuð sala og dreifing SIGURÐI Helgasyni, fyrrverandi forstjóra Flugleiða, hefur verið veitt viðurkenning fyrir störf sín í þágu The American Scandinavian Foundation. Sigurður hefur verið stjórnarmaður í félaginu með hléum frá árinu 1973 og setið sam- fleytt í stjórn félagsins frá árinu 1982. Sigurður hefur beitt sér mjög við uppbyggingu og fjáröflun fyrir Thor Thors sjóðinn sem er í vörslu samtakanna. Sjóðurinn hefur styrkt hundruð Íslendinga til náms í Bandaríkjunum sem og Banda- ríkjamenn til námsdvalar á Íslandi. Thor Thors sjóðurinn var stofn- aður árið 1965 og tveimur árum síðar tók Sigurður að byggja hann upp og afla fjár. Í dag eru 1,4 millj- ónir Bandaríkjadala í sjóðnum, eða um einn milljarður íslenskra króna. Frá því sjóðnum var komið á fót hefur álíka há upphæð verið veitt úr honum. „Ég hef leitað til velunnara, ís- lenskra sem erlendra, í gegnum ár- in og það hefur tekist vel,“ segir Sigurður um hvernig honum hafi tekist að afla svo mikils fjár. Bæði hafa Íslendingar búsettir í Banda- ríkjunum og fyrirtæki og aðilar sem eiga viðskipti við Ísland látið fé að hendi rakna til sjóðsins. Þá aflaði Sigurður einnig fjár vegna byggingar samtakanna sem reis við Park Avenue í New York fyrir nokkrum árum. Ísland aflaði þá 800 þúsund Bandaríkjadala, en alls kostaði byggingin yfir 20 millj- ónir dala. Inntur eftir því hvort viðurkenn- ingin sé ekki mikill heiður segir Sigurður að aðalatriðið sé að gera eitthvert gagn. „Maður gerir þetta nú af því að þetta er gott málefni og vill treysta það. Mér finnst það gott málefni að geta styrkt ungt fólk til náms í Bandaríkjunum eins og þessi sjóður hefur gert,“ segir Sigurður. Ljósmynd/Tina Buckman Frá vinstri: Ed Gallagher, framkvæmdastjóri American Scandinavian Foundation ásamt þremenningunum er heiðraðir voru; Sigurður Helgason, Peder Bonde og Martin E. Segal. Sigurður Helgason og Peder Bonde unnu meðal annars náið saman að stofnun Cargolux á sínum tíma. Allir eiga þeir sameiginlegt að hafa starfað lengi að málefnum ASF. Sigurður Helgason fær viðurkenningu The American Scandinavian Foundation Byggði upp og aflaði fjár í Thor Thors sjóðinn TVÖHUNDRUÐ og sextíu nemend- ur skráðu sig í inntökupróf í lækna- deild sem haldið verður 21. og 22. júní næstkomandi. Er þetta talsverð aukning síðan í fyrra þegar 203 nem- endur skráðu sig í prófið, samkvæmt upplýsingum frá læknadeild. Inn- tökuprófið er bæði fyrir læknisfræði og sjúkraþjálfun en 48 nemendur komast áfram í læknisfræði og 20 í sjúkraþjálfun. Um er að ræða eitt próf, sem tek- ur tvo daga og verður þreytt í tveim- ur þriggja tíma lotum hvorn daginn, alls tólf klukkustundir, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá læknadeild. Reiknað er með að nið- urstöður liggi fyrir um miðjan júlí. 260 skráðir í inntöku- próf í læknadeild
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.