Morgunblaðið - 17.06.2004, Page 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2004 11
Gjöf
Jóns Sigurðssonar
Í reglum frá árinu 1881 um Gjöf Jóns Sigurðssonar er
kveðið á um að fé úr sjóðnum megi veita „1. til verðlauna
fyrir vel samin vísindaleg rit, 2. til þess að styrkja útgáfur
slíkra rita annars kostar og 3. til þess að styrkja útgáfur
merkilegra heimildarrita.” Enn fremur segir: „Öll skulu rit
þessi lúta að sögu Íslands, bókmenntum þess, lögum, stjórn
eða framförum.” Á árinu 1974 var bætt við ákvæði þess
efnis „að þegar sérstök ástæða þyki til, megi verja fé til
viðurkenningar á viðfangsefnum og störfum höfunda, sem
hafa vísindarit í smíðum.“
Umsækjendur um verðlaun úr sjóðnum skulu senda
nefndinni þrjú eintök þeirra rita er þeir óska að tekin verði
til álita. Æskilegt er að þeim fylgi umsögn viðurkenndra
fræðimanna, sérfróðra um efnið.
Framangreind gögn skulu send forsætisráðuneytinu,
Stjórnarráðshúsinu, 150 Reykjavík, merkt verðlaunanefnd
Gjafar Jóns Sigurssonar, fyrir 1. september næstkomandi.
Reykjavík, 1. júní 2004
Verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar
Jón G. Friðjónsson,
Ragnheiður Sigurjónsdóttir,
Magdalena Sigurðardóttir.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Heimsferðir bjóða þér nú síðustu sætin í sólina í júlí á hreint ótrúlegu
verði, en nú er sumarið komið á vinsælustu áfangastöðum Evrópu og
aldrei betra að njóta vinsælustu staðanna á fegursta tíma ársins.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Síðustu
sætin
í sólina
í júlí
frá kr. 19.990
með Heimsferðum
Bologna
Verð frá kr. 19.990
Flugsæti, m.v. 2 fyrir 1 til Bologna/-
Forli, 1. og 8. júlí. Netverð.
Mallorca
Verð frá kr. 34.995
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, 7. júlí,
vikuferð, nettilboð. Netverð.
Benidorm
Verð frá kr. 29.995
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, viku-
ferð, stökktutilboð, 7. júlí. Netverð.
Rimini
Verð frá kr. 39.995
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, viku-
ferð, 1. júlí, stökktutilboð. Netverð.
Costa del Sol
Verð frá kr. 39.990
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, viku-
ferð, 7. júlí, stökktutilboð. Netverð.
Barcelona
Verð frá kr. 19.990
Flugsæti, m.v. 2 fyrir 1 til Barcelona,
1. júlí. Netverð.
Portúgal
Verð frá kr. 39.990
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, viku-
ferð, 7. júlí, stökktutilboð. Netverð.
Króatía
Verð frá kr. 33.895
Flugsæti á mann með sköttum, beint
flug á Trieste.
Tryggðu þér síðustu sætin í júlí
BÚIST er við því að borgarráð
ákveði í næstu viku hvort samþykkja
eigi aðra aukafjárveitingu til þess að
koma á móts við þá námsmenn sem
eru enn án sumarvinnu í Reykjavík.
150 milljóna króna aukafjárveiting
var samþykkt í vor af borgarráði til
að hægt væri að ráða fleiri sumar-
starfsmenn en sú fjárveiting hefur
ekki dugað því enn eru um þrjú
hundruð námsmenn, 17 ára og eldri,
án sumarvinnu.
Samkvæmt upplýsingum sem
fengust úr fjármáladeild Reykjavík-
urborgar kom þessi sama staða upp í
fyrra og þá var samþykkt önnur
aukafjárveiting. Bendi allt til þess að
slíkt hið sama verði gert nú. Sé mið-
að við árið í fyrra var samþykkt
aukafjárveiting sem hljóðaði upp á
148 milljónir króna en við það bætt-
ist svo önnur aukafjárveiting upp á
80 milljónir króna. Nú í ársbyrjun
sóttu samtals 2.670 manns um vinnu
og hafa 1.370 verið ráðnir, þar af 843
innan fjárhagsramma og 527 vegna
aukafjárveitingarinnar.
Sumarstörf námsmanna
Aukafjár-
veitingar
að vænta í
næstu viku
FYRSTA úthlutun Tækniþróunar-
sjóðs, sem Rannsóknarmiðstöð Ís-
lands (RANNÍS) annast umsýslu á,
var kynnt í gær í Þjóðmenning-
arhúsinu. Sjóðnum er ætlað að
vera stuðningur við rannsóknar- og
þróunarverkefni og stuðla þannig
að bættri samkeppnisstöðu at-
vinnulífsins.
Sjóðurinn úthlutaði um 180 millj-
ónum króna til 27 verkefna en alls
bárust 102 umsóknir af ólíkum
toga. Fjögur verkefni voru kynnt
sem fengu hæstu styrkina og voru
þau ólík að viðfangi en þau fjölluðu
m.a. um rannsókn á nýrri aðferð til
að kyngreina eldisseiði, þróun á að-
ferð til að greina Alzheimerssjúk-
dóminn á frumstigi, véltungumál
sem hlýðir munnlegum fyrirmæl-
um og loks verkefni sem ætlað er
að stytta vinnu við síldarsöltun úr
tveim dögum niður í nokkrar
klukkustundir. Segja má að öll
verkefnin eigi það sameiginlegt að
stefna að aukinni samkeppnis-
hæfni, hraðari vinnuferlum og
stuðla að hagkvæmari rekstri.
Hefur gríðarlega
mikla þýðingu
Valgerður Sverrisdóttir, við-
skipta- og iðnaðarráðherra, var
viðstödd kynninguna og spurð um
mikilvægi sjóðsins svaraði hún því
að sjóðurinn hefði gríðarlega mikla
þýðingu. „Fjárveitingar til rann-
sóknarsjóðanna, eins og þeir voru
reknir, skiluðu sér ekki inn til
frumkvöðlanna og til atvinnulífs-
ins. Þess vegna var það sem tekin
var ákvörðun um að stofnsetja
þennan nýja sjóð, Tækniþróunar-
sjóð, sem sinnir frumstigi nýsköp-
unar.“
Hún segir að hugmyndir verði að
vera mjög þróaðar til þess að fjár-
festar fái áhuga á þeim og er sjóðn-
um ætlað að brúa þá gjá sem er á
milli frumstigs nýsköpunar og fjár-
festa.
Hans Kristján Guðmundsson,
forstöðumaður RANNÍS, segir
mikla grósku vera í þróunarstarfi
hérlendis og nefnir að Íslendingar
séu fámenn þjóð en alls ekki smá
þegar kemur að því að vera leið-
andi afl á sviði vísinda og rann-
sókna í heiminum. Hann bendir á
að sjóðir eins og Tækniþróunar-
sjóður séu nauðsynlegir enda fjár-
skortur víða á sviði vísinda og
rannsókna.
Morgunblaðið/Þorkell
Úthlutað var úr sjóðnum um 180 milljónum króna til 27 verkefna en alls bárust 102 umsóknir af ólíkum toga.
Úthlutað úr Tækniþróunarsjóði
Stuðlar að bættri
samkeppnisstöðu
atvinnulífsins
PHIL Craven, forseti alþjóðaól-
ympíuhreyfingar fatlaðra (IPC) og
Bob Price, forseti Evrópudeildar
ólympíuhreyfingar fatlaðra voru í
heimsókn á Íslandi í byrjun júní.
Íþróttasamband fatlaðra (ÍF) skipu-
lagði dagskrá fyrir þá hér á landi
og m.a. var farið til Íshesta í Hafn-
arfirði í þeim tilgangi að kynna
þeim íslenska hestinn.
Erlendis hafa hestar verið not-
aðir í sívaxandi mæli við meðferð
og þjálfun fatlaðs fólks og íslenski
hesturinn er talinn henta sérlega
vel á þessu sviði. Nokkrir aðilar
starfa að þessum málum hér á landi
en árið 2001 stóð Íþróttasamband
fatlaðra og Hestamiðstöð Íslands á
Sauðárkróki fyrir námskeiði og
málþingi um reiðþjálfun og reið-
mennsku fatlaðra, þar sem tilgang-
urinn var fyrst og fremst sá að
virkja fólk til samstarfs og kanna
stöðu mála hér á landi. Starfshópur
á vegum ÍF og HMÍ vinnur nú að
því að skapa grundvöll til viðræðna
við stjórnvöld um viðurkenningu á
þessu árangursríka meðferð-
arformi.
Forystumenn ólympíuhreyfingar fatlaðra
Phil Craven, forseti IPC, Einar Bollason og Sigrún Sigurðardóttir reið-
kennari. Sigrún er sérmenntuð á sviði reiðþjálfunar fyrir fatlaða.
Kynna sér
íslenska
hestinn