Morgunblaðið - 17.06.2004, Síða 40
MINNINGAR
40 FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Gunnlaugur Við-ar Guðmundsson
fæddist á Akureyri
10. maí 1941. Hann
lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Ak-
ureyri þriðjudaginn
8. júní. Foreldrar
hans voru Guðmund-
ur Jónsson, f. 1.
september 1914, d.
21. júlí 1993, og Jó-
hanna Kristín Gunn-
laugsdóttir, f. 3.
mars 1915, d. 4.
ágúst 1995. Systur
Gunnlaugs eru: 1)
Steinunn Guðmundsdóttir, gift
Birni Baldurssyni. 2) Margrét
Guðmundsdóttir, gift Kristni
Hólm. 3) Guðrún Guðmundsdótt-
ir, gift Hannesi Haraldssyni.
Árið 1969 kvæntist Gunnlaug-
ur Guðlaugu Sigríði Stefánsdótt-
ur, f. 5. maí 1947, d. 11. ágúst
2003. Dætur þeirra eru: 1) Jó-
hanna Kristín Gunnlaugsdóttir, f.
28. júlí 1968, gift Gesti Geirssyni.
f. 19. júní 1967, sonur þeirra er
Gunnlaugur Geir Gestsson, f. 3.
október 2003. 2) Anna Soffía
Gunnlaugsdóttir, f. 3. desember
1970, gift Friðriki Guðjóni
Guðnasyni, f. 7. desember 1973.
Gunnlaugur
stundaði nám við
Samvinnuskólann á
Bifröst og nam
tryggingafræði í
Danmörku. Hann
starfaði að trygg-
ingamálum í
Reykjavík og á Ak-
ureyri. Lengstan
hluta starfsævi sinn-
ar starfaði hann í
hinum ýmsum
rekstrardeildum hjá
Kaupfélagi Eyfirð-
inga svo sem Út-
gerðarfélagi KEA,
skipaafgreiðslu og launadeild.
Síðustu ár var hann starfsmaður
Skattstofu Norðurlandsumdæmis
eystra.
Gunnlaugur var meðlimur í
Frímúrarareglunni og sinnti
trúnaðar- og stjórnunarstörfum í
ýmsum félögum þ.m.t. í Guð-
spekifélaginu á Akureyri, Félagi
verslunar- og skrifstofufólks Ak-
ureyri, Framsóknarflokknum,
Náttúrulækningafélagi Akureyr-
ar og Skákfélagi Akureyrar.
Útför Gunnlaugs fer fram frá
Akureyrarkirkju á morgun,
föstudaginn 18. júní, og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Ég ræddi eitt sinn við mann sem
starfaði um tíma í Austurlöndum
fjær. Þrátt fyrir erfitt starf í erfiðu
umhverfi tókst hann með jákvæðni
og þrautseigju á við alla erfiðleika og
kom fram við samferðafólk sitt af
mikilli virðingu og vináttu. Að nokkr-
um tíma liðnum varð hann var við að
eitthvað hafði gerst, því hvert sem
hann fór horfði fólk hlýlega til hans
og hneigði höfuð sitt í virðingarskyni.
Þegar hann spurði innfæddan vin
sinn að því hverju þetta sætti var
brosað og svarað á þá lund að eftir
framkomu hans væri tekið og það
orðspor fylgdi honum að hér færi
góður maður.
Gunnlaugur var slíkur maður, góð-
ur maður, og vinamergð hans bar því
glöggt vitni. Ég man þegar ég, Reyk-
víkingurinn, steig í fyrsta sinn inn um
hinar ólæstu dyr Þórunnarstrætisins
og á móti mér tóku þau hjón, Laugi
og Lauga, sem föðmuðu mig í bak og
fyrir og buðu mig innilega velkominn
í fjölskylduna – orð sem öðlaðist síð-
an enn dýpri merkingu strax næsta
morgun þegar hann reif mig á lappir í
vikulegan laugardagsgraut stórfjöl-
skyldunnar þar sem ég kynntist á
augabragði öllum systrum hans,
mágum, börnum þeirra og barna-
börnum. Þessi sterku innbyrðis
tengsl fjölskyldunnar voru Lauga af-
ar hjartfólgin og alltaf þótti mér jafn-
vænt um að finna hversu vel hann
fylgdist með okkur og tók þátt í lífi
okkar, enda passaði hann ætíð upp á
að gefa sér tíma til að hitta okkur í
hvert sinn sem hann átti erindi suður.
Hann ræktaði vel sína vini enda
voru dyr Þórunnarstrætisins ávallt
opnar og vinir velkomnir. En þótt
ræktarsemi hans við fjölskyldu og
vini hafi verið mikil stenst fátt sam-
anburð við þann stuðning og hlýju
sem hann sýndi eiginkonu sinni,
Laugu, frá upphafi allt fram til henn-
ar ótímabæra fráfalls í ágúst á síð-
asta ári. Í gegnum langa sjúkrasögu
hennar stóð hann ætíð sem klettur
við hlið hennar, gladdist með henni á
góðum stundum, hlúði að henni á erf-
iðum tímum og studdi hana sama á
hverju gekk.
Hinn sterki karakter Lauga kom
þó hvergi betur fram en á dánarbeði
hans þar sem hann lagðist inn á
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
vegna eymsla í maga en rannsóknir
leiddu í ljós krabbamein á lokastigi.
Æðruleysi hans gagnvart dauðanum
og fullvissan fyrir framhaldslífinu
mun aldrei gleymast þeim sem sátu
við hlið hans allt þar til yfir lauk.
Hér fer því góður maður og fyrir
þér hneigi ég höfuð mitt í virðing-
arskyni og veit að hið góða orðspor
þitt fylgir þér einnig inn í land ljóss-
ins þar sem þú hvílir nú í opnum örm-
um Laugu og í góðum félagsskap
horfinna vina og ættingja.
Þinn tengdasonur,
Friðrik Guðjón Guðnason.
Elsku afi og tengdapabbi.
Þar sem englarnir syngja sefur þú,
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú,
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Faðir minn láttu lífsins sól
lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta
vekja hann með sól að morgni.
Farðu í friði, vinur minn kær,
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær,
aldrei skal ég þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens.)
Eftir allt of stutta viðkynningu
kveðjum við feðgar í djúpri sorg.
Gestur og Gunnlaugur Geir.
Dauðinn er og verður ávallt óvænt-
ur, jafnvel þótt hann hafi verið um
hríð á næsta leiti. Hinn 8. júní sl. lést
góður vinur minn og mágur Gunn-
laugur Viðar, um aldur fram, úr ill-
vígum sjúkdómi eftir stutta en harða
baráttu. Hvern grunaði þegar fjöl-
skyldan hittist í venjubundnum laug-
ardagsgraut á heimili hans í byrjun
maí að andlát hans væri svo skammt
undan? Gunnlaugur hafði síðustu
tvær vikurnar teflt sína síðustu skák
við þann sem öllu ræður. Þessi síðasti
hildarleikur Lauga var heiðarleg og
hvöss baráttuskák, eins og svo marg-
ar skákir sem hann tefldi um ævina,
en þó einstök, því að hér náði hann
æðrulaus jafntefli við drottin sinn
sem nú hefur tekið hann til sín yfir
móðuna miklu á vit eiginkonu og for-
eldra. Vissan um fagnaðarfund
þeirra, handan móðunnar miklu, er
okkur sem eftir lifum huggun harmi
gegn.
Allt frá unglingsárum Gunnlaugs
höfum við verið í sömu fjölskyldunni,
eða frá því að hann fór til náms í Sam-
vinnuskólanum á Bifröst og að því
loknu til náms og þjálfunar hjá trygg-
ingafélagi í Kaupmannahöfn og eftir
það í starfi hjá Kaupfélagi Eyfirðinga
í fjölmörg ár í hinum ýmsu rekstr-
ardeildum, svo sem hjá Útgerðar-
félagi KEA, skipaafgreiðslu og
launadeild, en nú síðustu ár starfs-
maður skattstofunnar. Hin margvís-
legu störf Gunnlaugs á þessum
vinnustöðum hafa verið unnin af trú-
mennsku og af þeirri eðlisgreind sem
honum var ríkulega gefin.
Ekki verður Gunnlaugs minnst án
þess að getið sé um félagslega þátt-
inn í fari hans, en þar var hann í sér-
flokki, sat í stjórnum félaga, eignaðist
marga vini í veiðiferðum, fjallgöngum
og badminton, en það sem var honum
kærast voru þó taflmennska, bridge
og þátttaka í stjórnmálum. Segja má
að þegar aðrir fengu verðlaun fyrir
alls konar „sprikl“ hafi hann sópað til
sín bikurum og verðlaunapeningum
fyrir hugar-íþróttir. Gunnlaugur var
hvorki sporgöngumaður annarra né
bókstafstrúarmaður í neinum skiln-
ingi. Skörp hugsun gerði hann hæfan
til þess að brjóta mál til mergjar og
mynda sér skoðanir út frá því. Í rök-
ræðum um stjórnmál var hann ávallt
trúr sannfæringu sinni. Þar naut rök-
hyggja hans og sterk rödd sín vel.
Gunnlaugur starfaði um árabil í Frí-
múrarareglunni og átti þar margar
ánægjustundir.
Í æsku var Gunnlaugur sendur í
sveit ásamt stóru systur, Steinunni,
hjá góðu fólki að Tumabrekku í
Skagafirði. Hér verða ekki rakin öll
þau ævintýri sem þau lentu í þar, en
víst tel ég að þar hafi kviknað sá
neisti sem svo vel kom fram í áhuga á
sumarbústað systkininna, Hlíðarseli,
í Vaðlaheiði. Þar var Gunnlaugur sæll
og glaður, við ræktun, girðingar-
vinnu og málningarvinnu, en glaðast-
ur að verki loknu í hópi fjölskyldu og
vina.
Á lífsleiðinni upplifði Gunnlaugur,
eins og allir, sorg og gleði. Fyrir
tæpu ári lést eiginkona hans, Guð-
laug. Í langvarandi veikindum henn-
ar sannaði hann enn og aftur mann-
gildi sitt. Umvafinn elskulegum
dætrum sínum og eiginmönnum
þeirra, systrum og síðast en ekki síst
afastráknum Gunnlaugi Geir, kvaddi
hann æðrulaus þetta lífshlaup sitt,
sem hann hefur svo oft dúxað í.
Og nú þegar leiðir skiljast um sinn,
þakka ég honum allt, allt og bið
Drottin að blessa hann og milda með
kærleik sínum sorgir dætranna, eig-
inmanna þeirra, barnabarns og
systra, ásamt fjölskyldum þeirra.
Björn Baldursson.
Við kveðjum kæran bróður.
Hugurinn laðar fram minningar
frá uppvexti okkar í föðurhúsum í
Hlíðargötunni og seinna sem giftum
manni og föður tveggja yndislegra
dætra í Þórunnarstrætinu.
Þessar minningar eru okkur afar
dýrmætur fjársjóður sem við munum
varðveita í hjarta okkar.
Áhugamál Lauga voru mörg og
spönnuðu vítt áhugasvið t.d. skák,
bridge, pólitík, dulspeki og mann-
rækt.
Hann var mjög trúaður maður,
leitaði til kirkjunnar og félagsskapar
við Frímúrararegluna og Guðspeki-
félagið til þess að þroska sig og
auðga. Hann kunni þá list sem sumir
kalla „gullgerðarlist“ andans, að
breyta óæðri málmi lífsins í gull hins
daglega lífs.
Með eldmóði hugans gat hann
breytt neikvæðni í jákvæðni og svart-
sýni í bjartsýni. Þannig hafði hann
skapandi áhrif á okkur systurnar og
allt samferðafólk sitt með víðsýni og
skilningi.
Við minnumst bróður okkar sem
manns með hlýtt hjartalag, einlægt
innræti og gott viðmót. Hann hafði
lag á því að senda þessa hjartahlýju
til annarra sem nærandi og heilandi
gjöf.
Úr dýpstu fylgsnum hjartans – líkt og úr
fjarska
berst gnægð þín. – þögnin.
Líf mitt verður án vanda
einfalt, ljóst og án truflana.
Héðan í frá flýt ég – barn ljóssins
á hafi hinnar dýrðlegu birtu.
Þar sigli ég fleyi mínu,
sigli – altekinn fögnuði.
Líf mitt er leikur hundraða öldufalda
á hinu mikla hafi lífsins.
Öldur hníga, öldur rísa,
jurtir visna, jurtir blómgast.
Væntingar eru takmarkalausar
eins er farið afrekum manna.
Ekkert varir, ekkert er skammætt.
Á hvern skal hrópa?
Á hvað skal hrópa?
Hvern ákalla –
nýja hugsun – nýtt form?
Allt ber ávöxt að lokum.
Sameinumst andanum,
fljúgum á vængjum sálarinnar.
Höldum á ný til ljósheima
til yndisheima.
þar er dauðinn útlægur.
Þar ríkir eilífðin ein.
Ljósheimar eru hið innra
í innstu fylgsnum
hjartna vorra.
(Sri Chinmoy.)
Laugi var þátttakandi í þessu æv-
intýri sem lífið er og tók með æðru-
leysi því sem að höndum bar. Hann
hefur nú flogið á vængjum sálarinnar
til Ljósheima, þar sem dauðinn er út-
lægur og eilífðin ein ríkir.
Megi algóður Guð vernda og
styrkja dætur hans, tengdasyni og
barnabarn í framtíðinni.
Með systurlegri kveðju,
Steinunn, Margrét og Guðrún.
Nú er fallinn frá frændi minn,
Gunnlaugur V. Guðmundsson, langt
um aldur fram. Akureyri minnkar
mikið í vitund minni við hvarf hans.
Enn er höggvið í sama knérunn ætt-
ar okkar úr dalnum sem kallaður hef-
ur verið fegurstur íslenskra dala.
Að mínu áliti er einfaldast að lýsa
honum með því að hann hafi alltaf
verið framsóknarmaður. Alltaf þegar
við ræddumst við kom þessi lífsskoð-
un hans fram, félagshyggjan, sam-
vinnuhugsjónin, áhugi á landsbyggð
og lífi fólks þar voru ætíð hans ær og
kýr. Kímnin var samt aldrei langt
undan. Við vorum yfirleitt ekki sam-
mála, hann var trúr sínum flokki og
ég held að nú hafi Framsóknarflokk-
urinn misst einn sinn tryggasta fylg-
ismann.
Ég kynntist Lauga strax í uppeldi
mínu á Akureyri eftir miðja síðustu
öld. Við hittumst alltaf öðru hvoru,
einkum eftir að hann flutti í íbúð á
móti okkur við Þórunnarstrætið. En
ég flutti suður og kynni okkar hófust
aftur tuttugu árum seinna í gegnum
systkinabarnamótin, en þar hittumst
við börn systkina föður míns en
Laugi var einn þeirra. Þetta eru æv-
inlega fagnaðarfundir, við gerum
eitthvað saman og endum með kvöld-
stund, þar sem málin eru rædd fram
og til baka. Frá þessum samkomum
koma svipmyndir í hug minn eins og
Laugi á Snæfellsjökli, Laugi í bú-
staðnum í Vaðlaheiði, Laugi í heita
pottinum á Árskógssandi o.s.frv. Það
verður öðruvísi þegar við hittumst
næst og enginn Laugi er á meðal okk-
ar, en vonandi náum við fótfestu
þrátt fyrir að Laugi, Lauga, og
Minný hafi horfið á braut annars
heims síðan við hittumst síðast.
Ég sendi dætrum Gunnlaugs og
Guðlaugar, þeim Jóhönnu og Önnu
Soffíu, mínar samúðarkveðjur og
sömuleiðis Gunnlaugi litla, barna-
barni Lauga.
Jóhann Guðjónsson.
Það er dálítið táknrænt að einmitt
þegar náttúran skartar sínu fegursta,
allt er í blóma sem henni viðkemur og
sólargangurinn er lengstur, hefur
Gunnlaugur, minn kæri vinur, fengið
hvíldina og farið á fund elskulegrar
eiginkonu sinnar, Laugu, sem kvaddi
fyrir tæpu ári. Það er alltaf eftirsjá að
góðum samferðamönnum og miklum
vinum þó svo að maður viti að þau lifi
áfram í heimi Drottins.
Vinátta okkar Gulla og Laugu hef-
ur varað í langan tíma og mörg ár,
þótt mér finnist það vera eins og í
gær þegar ég var stödd ein míns liðs í
gleðinni á Sjallanum, þeim undra-
stað, og kynntist þeim glöðum og kát-
um. Þau voru meira en til í að veita
aðkomukonunni nærveru og
skemmtun, enda félagslynd, jákvæð
og sérlega óeigingjörn bæði. Eftir
þessa fyrstu kvöldstund var ávallt
tekið á móti mér sem eðalborin væri
og margar ánægjustundir átti ég með
þeim hjónum og reyndar auðnaðist
mér að kynnast og eiga að góðum vin-
um foreldra Gulla og systur. Brátt
hefði liðið að okkar árlegu sumarbú-
staðarferð en Gulli hlakkaði til að
sýna mér bústað þeirra hjónanna því
búið væri að setja upp heitan pott og
sána-bað. En í vor þegar hann bauð
mér með sér kvöldstund til æsku-
félaga síns Sigurðar og konu hans
Auðar, átti ég síst von á að þetta yrði
okkar síðasta samvera og nutum við
kvöldsins með þeim hjónum. Það var
svo ekki fyrr en á leið minni norður á
Akureyri á uppstigningardag, að ég í
raun gerði mér grein fyrir að hann
kom í það skiptið til að kveðja. Ég átti
góða stund í hinsta sinn með Gulla
þennan eftirmiðdag en dagana á eftir
gat ég heyrt í honum og var það okk-
ur báðum gleðilegt að heyra rödd
hvors annars.
Það eru svona traustir vinir sem
gefa lífinu gildi og ég veit að einmitt
slík viðkynning gerir mann ríkari
sem manneskju. Á sunnudögum átti
Guðmundur, pabbi Gulla, það til að
bjóða upp á bjór sem var í þá daga
eins og forboðinn ávöxtur. Vildi Guð-
mundur ómögulega að ég slyppi suð-
ur á sunnudögum án þess að þiggja
eina ölkrús, því bjórinn var ekki auð-
fundinn hér á landi í þá daga. Hefur
þessi hefð með bjórinn hugsanlega
verið eins og var með dönskuna sem
sannir Akureyringar brúkuðu á
sunnudögum hérna í ,,den“.
Gulli var eins og foreldrarnir, ein-
staklega gestrisinn og mikill vinur
vina sinna, félagslyndur og glaðvær
og hafði áhuga á samneyti við fólk
eins og dæmin sanna á því í hversu
mörgum félögum hann var fé-
lagsmaður númer eitt. Hann hafði
ekki bara áhuga á fólki hérna megin
grafar heldur líka í handanheiminum.
Allt sem viðkom sálrænum fyrirbær-
um var honum sem og Laugu einkar
hugleikið, enda slíkur áhugi hluti af
hans ættarsögu.
Það mun reynast dætrum og litla
dóttursyninum og nafna, erfitt að
horfa á eftir föður sínum og afa sem
ávallt vakti yfir þeim og lifði fyrir
sína, ekki síst þegar svo stutt reynd-
ist milli þeirra hjóna. Það segir sig
sjálft að missir þeirra sem eftir
standa er sérstaklega erfiður og
þjáningarfullur, og á það einnig við
um þessa fjölskyldu þrátt fyrir trú
hennar á líf að loknu þessu og vissu
um guðlega forsjá hér og í ríki Drott-
ins.
Þegar ég nú kveð vin minn Gunn-
laug í hinsta sinn, þá veit ég að þótt
sumarbústaðarferðirnar verði ekki
fleiri hérna megin, þá er ekki ósenni-
legt að tríóið Gulli, Lauga og góðvin-
ur okkar Dóri, bíði okkar í nýjum
heimkynnum, tilbúin að leggja í ‘ann,
vitandi hvert halda skal þegar þar að
kemur að við hittumst á ný. Endur-
fundir verða vísir og koma örugglega
ekki til með að valda mér og mínum
vonbrigðum því ég veit í hjarta mínu
að þau munu þar sem hér styðja vini
sína á nýjum og framandi leiðum, við
aðstæður sem bíða okkar allra en við
þekkjum ekki fyrr en okkar tími
kemur, þrátt fyrir vissu um væntan-
lega tilvist okkar í Guðs faðmi í ríki
Drottins.
Að lokum langar mig að kveðja vin
minn með eftirfarandi ljóði um leið og
ég sendi öllum ástvinum Gunnlaugs
vinar hjartans samúðarkveðjur:
Stirðnuð er fífilsins brosmilda brá
og brostinn er lífsins strengur.
Helkaldan grætur hjartað ná
því horfinn er góður drengur.
Farinn ert á friðarströnd
frjáls af lífsins þrautum.
Styrkir Drottins helga hönd
hal á ljóssins brautum.
Í Gjafarans milda gæskuhjúpi
gróa öll mín sár.
Með sólargeisla úr sorgardjúpi
sendi þér kveðjutár.
(Jóna Rúna Kvaran.)
Blessuð sé minning Gunnlaugs
Guðmundssonar.
Kristín Ágústsdóttir.
Látinn er, langt fyrir aldur fram,
góðvinur og spilafélagi til margra
ára, Gunnlaugur Viðar Guðmunds-
son. Skammt er stórra högga á milli
hjá fjölskyldunni þar sem Gunnlaug-
ur stóð yfir moldum konu sinnar fyrir
tíu mánuðum en hún lést eftir lang-
vinn og erfið veikindi. Við Gunnlaug-
ur kynntumst að marki í Gagnfræða-
skólanum á Akureyri, vorum
bekkjarbræður og áttum það sameig-
inlegt að hafa gaman af skák en í
GUNNLAUGUR
VIÐAR
GUÐMUNDSSON