Morgunblaðið - 17.06.2004, Side 45
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Ólafsfjarðarkirkja
Organista vantar
Sóknarnefnd Ólafsfjarðarsóknar auglýsir stöðu
organista við Ólafsfjarðarkirkju. Starfið er
metið sem 37% starfshlutfall og er veitt frá
1. september 2004 til eins árs.
Um störf organista gilda starfsreglur nr. 823/
1999.
Í umsókn skal umsækjandi gera grein fyrir
menntun og fyrri störfum.
Launakjör taka mið af menntun og starfsum-
fangi og miðast við laun tónlistarkennara. Um-
sóknarfrestur er til 1. ágúst 2004.
Umsókn sendist til:
Ólafsfjarðarkirkja,
Kirkjuvegi 12,
625 Ólafsfjörður.
Upplýsingar um starfstilhögun og launakjör
veita sr. Elínborg Gísladóttir í síma 696 3684
og formaður sóknarnefndar, Svava Jóhanns-
dóttir, í síma 466 2199.
Einnig kemur til greina að viðkomandi fái
kennslu við Tónskóla Ólafsfjarðar þannig að
starfshlutfallið í heildina verði 100%.
Upplýsingar um starfstilhögun Tónskóla Ólafs-
fjarðar veitir Óskar Þór Sigurbjörnsson í síma
466 2736.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
HÚSNÆÐI Í BOÐI
Verð 58.750 á m²
Til sölu eða leigu mjög gott verslunar-, lager-
og skrifstofuhúsnæði. 400 fm gólfflötur á 2
hæðum. Góð staðsetning. Verð 23,5 millj.
Möguleiki að skipta húsnæði í tvennt.
Upplýsingar í síma 898 8577 milli kl. 18 og 22.
TILKYNNINGAR
Auglýsing
um skipulag í Kópavogi
A. Tillaga að breytingu á aðalskipulagi
Lundur
Hafnarfjarðarvegur, Skeljabrekka og Nýbýlavegur
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2000-2012 auglýsist hér með í samræmi við
18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. Breytingin nær annars vegar til Lundar-
svæðisins, um 10 ha. svæðis, sem afmarkast af bæjarmörkum Kópavogs og Reykjavíkur til
norðurs, íbúðarsvæði við Birkigrund til austurs, Nýbýlavegi til suðurs og af Hafnarfjarðarvegi
til vesturs. Í breytingunni felst að í stað landnotkunar fyrir verslun og þjónustu (hátæknimiðstöð)
verður svæðið nýtt sem íbúðarsvæði, svæði fyrir þjónustustofnanir (leikskóli) og verslunar-
og þjónustusvæði (bensínstöð). Áætlað er að á svæðinu verði byggðar um 400 íbúðir fyrir
um 1.100 íbúa, miðað við 2,7 íbúa á íbúð. Þéttleiki fyrirhugaðrar byggðar í Lundi er áætlaður
um 40 íbúðir á ha. Samkvæmt tillögunni mun um helmingur Lundarlandsins tekinn undir
byggð en samanlagt flatarmál lóða er áætlað um 5,8 ha, nýtingarhlutfall (með bílageymslum
neðanjarðar) 1,2-1,4 og byggingarmagn 73.000 til 77.000 fermetrar. Hámarksnýtingarhlutfall
einstakra lóða getur orðið 1,6 til 2,9 með bílageymslum. Gert er ráð fyrir 2 bílastæðum fyrir
80 fermetra íbúðir eða stærri. Í tillögunni er gert ráð fyrir færslu Nýbýlavegar til norðurs en
aðkoma að Lundarsvæðinu verður frá Nýbýlavegi. Gert er ráð fyrir fernum nýjum undirgöngum
í tengslum við fyrirhugað íbúðarsvæði í Lundi: einum til vesturs undir Hafnarfjarðarveg og
öðrum undir afrein af Nýbýlavegi inn á Hafnarfjarðarveg. Þá er gert ráð fyrir tvennum göngum
undir Nýbýlaveg, öðrum á móts við Skeljabrekku og hinum á móts við Auðbrekku. Gönguleiðir
breytast. Afmörkun lóðar fyrirhugaðrar þjónustustöðvar/bensínstöðvar sem tengist Nýbýlavegi
breytist.
Breytingin nær hins vegar til tengingar Hafnarfjarðarvegar, Skeljabrekku og Nýbýlavegar.
Í henni felst að í stað slaufu norðan Nýbýlavegar sem tengist Nýbýlavegi milli Skeljabrekku
og Auðbrekku er gert ráð fyrir rampa af Hafnarfjarðarvegi inn í núverandi legu Skeljabrekku
sem tengist síðan Nýbýlavegi með hringtorgi. Gert er ráð fyrir „nýrri Skeljabrekku“ á stuttum
kafla, austan þeirrar sem nú er. Mun hún tengjast inn í Dalbrekku.
Tillagan er sett fram í mkv. 1:10.000 dags. í maí 2004. Nánar vísast til kynningargagna.
B. Lundur
Tillaga að deiliskipulagi
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. auglýsist hér með tillaga
að deiliskipulagi Lundarsvæðisins. Deiliskipulagssvæðið afmarkast af lögsögumörkum Kópavogs
og Reykjavíkur til norðurs, íbúðarbyggð við Birkigrund til austurs, Nýbýlavegi til suðurs og
Hafnarfjarðarvegi til vesturs. Í tillögunni felst heimild til að byggja 384 íbúðir að stofni til í
fjölbýli en austast á svæðinu næst núverandi byggð við Birkigrund, er gert ráð fyrir sérbýli,
bæði raðhúsum og parhúsum. Hæð sérbýlisins verður 1-2 hæðir. Upp við Nýbýlaveg er gert
ráð fyrir fjórum 8 til 9 hæða byggingum auk kjallara og þakhæðar en neðar á svæðinu verða
2-5 hæða klasabyggingar. Þéttleiki byggðarinnar er áætlaður um 40 íbúðir á ha og fjöldi íbúa
um 1.100. Samkvæmt tillögunni verða aðrar byggingar en íbúðarhúsin „Nýi Lundur“ og „Lundur
3“ fjarlægðar. Miðað er við 2 bílastæði fyrir 80 fermetra íbúðir eða stærri og hluti bílastæða
verður í bílageymslum neðanjarðar. Á deiliskipulagssvæðinu er auk þess gert ráð fyrir, leikskóla,
sparkvelli og minni leiksvæðum. Í tillögunni er jafnframt gerð grein fyrir: núverandi stöðu
svæðisins; húsakönnun; öðrum hugmyndum að landnotkun; forsendum og markmiðum;
aðkomu og umferð; fyrirhugaðri byggð; mótvægisaðgerðum vegna umferðarhávaða og almenn-
um skilmálum og kvöðum. Á deiliskipulagsuppdrættinum kemur fram afmörkun og lega
svokallaðra „Kópavogsganga“, stofnbrautar í göngum milli Reykjanesbrautar, Hafnarfjarðarvegar
og miðborgar Reykjavíkur, samanber staðfest Aðalskipulag Kópavogs 2000-2012 og Svæðis-
skipulag höfuðborgarsvæðisins 2001-2024. Deiliskipulagtillagan er sett fram á uppdrætti
í mkv. 1:1000 ásamt greinargerð dags. 4. maí 2004 og breytt 18. maí 2004.Tillögunni fylgja
skýringarmyndir í greinargerð sem sýna m.a. dæmi um útlit fyrirhugaðrar byggðar. Nánar
vísast til kynningargagna.
C. Tenging Hafnarfjarðarvegar, Skeljabrekku og Nýbýlavegar
Tillaga að deiliskipulagi
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br. auglýsist hér með tillaga
að deiliskipulagi tenginga Hafnarfjarðarvegar, Skeljabrekku og Nýbýlavegar. Í tillögunni er
gert ráð fyrir að tengja rampa af Hafnarfjarðarvegi inn í núverandi legu Skeljabrekku sem
tengist síðan Nýbýlavegi með hringtorgi. Gert er ráð fyrir „nýrri Skeljabrekku“ á stuttum kafla,
austan þeirrar sem nú er. Mun hún tengjast inn í Dalbrekku. Í tillögunni kemur jafnframt fram
færsla Nýbýlavegar til norðurs á móts við húsin á Nýbýlavegi 2-32, hringtorg á gatnamótum
Nýbýlavegar, Auðbrekku og nýrrar götu að fyrirhuguðu Lundarsvæði, aðkoma að fyrirhugaðri
þjónustustöð/bensínstöð við Nýbýlaveg, undirgöng og gönguleiðir. Tillagan er sett fram
á uppdrætti í mkv. 1:1000 ásamt greinargerð dags. 4. maí 2004 og breytt 18. maí 2004. Nánar
vísast til kynningargagna.
Ofangreindar aðal- og deiliskipulagstillögur verða til sýnis á Bæjarskipulagi Kópavogs, Fannborg
6, 2. hæð, frá kl. 8:00 til 16:00 mánudaga til fimmtudaga og á föstudögum frá 8:00 til 14:00
frá 18. júní til 16. júlí 2004. Athugasemdir eða ábendingar skulu hafa borist Bæjarskipulagi
skriflega eigi síðar en kl. 15:00 mánudaginn 9. ágúst 2004. Einnig er hægt á kynningartímanum
að nálgast upplýsingar um framlagðar tillögur á heimasíðu Bæjarskipulags Kópavogs,
www.kopavogur.is.
Þeir, sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunum.
Skipulagsstjóri Kópavogs.
UPPBOÐ
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Flétturimi 7, 0304, Reykjavík, þingl. eig. Stíghús ehf. (Ice Beauty
Ltd), gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 22. júní 2004
kl. 14:00.
Gautavík 9, 0301, Reykjavík, þingl. eig. ERON ehf., gerðarbeiðendur
Frjálsi fjárfestingarbankinn hf. og Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins,
B-deild, þriðjudaginn 22. júní 2004 kl. 15:00.
Grensásvegur 8, 0101, Reykjavík, þingl. eig. Þb. Panorama ehf. c/o
Sigmundur Hannesson hrl. , gerðarbeiðendur Húsasmiðjan hf. og
Lífeyrissjóðurinn Framsýn, þriðjudaginn 22. júní 2004 kl. 11:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
16. júní 2004.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á skrif-
stofu embættisins í Skógarhlíð 6, 2. hæð, sem hér segir:
Flugvélin TF-TAL, nr. 802, Cessna 206, þingl. eig. Sólbraut 5 ehf,
gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, mánudaginn 21. júní 2004
kl. 10:30.
Flugvélin TF-TOB, nr. 313, þingl. eig. Stél ehf., (áður Flugskólinn
Flugsýn ehf.), gerðarbeiðandi Sparisjóður Hornafjarðar/nágrennis,
mánudaginn 21. júní 2004 kl. 10:15.
Flugvélin TF-TOH nr. 233, þingl. eig. Stél ehf. (áður Flugskólinn Flug-
sýn ehf.), gerðarbeiðandi Sparisjóður Hornafjarðar/nágrennis, mánu-
daginn 21. júní 2004 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
16. júní 2004.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri
sem hér segir:
Austurströnd 12, 0704, Seltjarnarnes, þingl. eig. Paula Andrea Jóns-
dóttir, gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf., Kaupþing Búnaðarbanki
hf., Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins B-deild, Sparisjóður Reykjavík-
ur og nágrennis, útibú og Sparisjóður vélstjóra, mánudaginn
21. júní 2004 kl. 13:30.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
16. júní 2004.
mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2004 45